Morgunblaðið - 08.10.2019, Síða 22

Morgunblaðið - 08.10.2019, Síða 22
Íslands gaf út árið 2000. Albína var fyrsti formaður Samtaka arkitekta- stofa árið 1999. Albína var varafulltrúi Alþýðu- bandalagsins í bæjarstjórn Garða- bæjar 1978-1990, hún sat í bygging- arnefnd Garðabæjar 1978-1986 og 1990-1993 og í skipulagsnefnd Garðabæjar 1978-1990. Hún fékk viðurkenningu fyrir merkt framlag til menningar og lista í Garðabæ 2017. Albína var formaður stjórnar framkvæmdasjóðs ferðamannastaða flugslysi. Ári seinna ákvað ég að halda þyrlurekstri áfram.“ Albína hefur unnið ýmis félags- störf fyrir Arkitektafélag Íslands svo sem ritari og gjaldkeri í stjórn félagsins og formaður þess 2005- 2007. Hún var kjörin heiðursfélagi Arkitektafélags Íslands 2015. Hún hefur setið í ýmsum dómnefndum á vegum félagsins svo sem um tónlist- arhúsið Hörpu. Hún var í ritstjórn bókarinnar „Leiðsögn um íslenska byggingarlist“ sem Arkitektafélag A lbína Hulda Thordarson fæddist 8. október 1939 í Kaupmannahöfn. „Ég átti fyrsta afmælið mitt um borð í ms. Esju ein- hvers staðar á leiðinni milli Jan Mayen og Orkneyja á heimleið frá Petsamó haustið 1940. Við sigldum aftur til Kaupmannahafnar haustið 1945 þar sem faðir minn lauk prófi frá Kunstakademiets Arkitektskole 1947. Ég byrjaði skólagöngu mína í leik- skóla og barnaskóla í Kaupmanna- höfn áður en við snerum heim aftur til Íslands.“ Albína var í Austur- bæjarskólanum og tók landspróf frá Gagnfræðaskóla Austurbæjar 1955. Hún varð stúdent frá MR 1959, inn- ritaðist í Kunstakademiets Arkitekt- skole í Kaupmannahöfn sama ár og lauk þaðan prófi vorið 1966. Albína byrjaði starfsferilinn hjá Framkvæmdanefnd byggingaráætl- ana 1967-1968. Hún vann á teikni- stofu Manfreðs Vilhjálmssonar og Þorvaldar S. Þorvaldssonar 1968- 1969 og 1972-1977. Albína hefur rek- ið eigin teiknistofu frá 1977, þar af árin 1984-1992 með Guðfinnu systur sinni. Meðal verka Albínu eru stjórn- sýsluhús á Ísafirði sem var tilnefnt til Menningarverðlauna DV 1989, leikskólar fyrir Reykjavíkurborg, Hof, Jörvi og Laufrimi, leikskólinn Álfasteinn í Hafnarfirði, leikskólinn Ásar í Garðabæ, orlofshús Kennara- sambands Íslands í Hrunamanna- hreppi, endurgerð Skuggasunds 1 fyrir umhverfisráðuneytið og íþróttahús Leiknis í Breiðholti. Albína hefur hlotið ýmis verðlaun í samkeppnum svo sem 1. verðlaun í samkeppni um stjórnsýsluhús á Ísa- firði 1984 með Guðfinnu og 2. verð- laun í samkeppni um hús Orkuveitu Reykjavíkur með Ævari Harðar- syni. Albína rak þyrluþjónustu árin 1980-1990 með Hughes 269C- og 369D-þyrlum, meginverkefnin voru mælingar fyrir Orkustofnun og flug á Grænlandi. „Ég hef alltaf haft áhuga á flugmálum og fyrri maðurinn minn var nýbúinn að kaupa þyrlu þegar hann lést í þyrlu- frá stofnun sjóðsins 2011 til 2017. „Áhugamál mín og vinna hafa ávallt farið saman en fyrir utan byggingarlist og þyrlumál eru áhugamálin þau sömu og flestra annarra; ferðalög innanlands sem utan, lestur og listir, handavinna, matreiðsla og flest annað en íþróttir og golf.“ Fjölskylda Eiginmaður Albínu er Ólafur Sig- urðsson, f. 30.5. 1936, fréttamaður. Foreldrar hans voru hjónin Sig- urður Pálsson, f. 8.7. 1901, d. 13.7. 1987, vígslubiskup, og Stefanía Gissurardóttir, f. 9.2. 1909, d. 13.9. 1989, húsfreyja. Fyrri eiginmaður Albínu var Ásgeir Höskuldsson, f. 16.12. 1932, d. 25.4. 1977, rafmagns- tæknifræðingur. Börn Albínu og Ásgeirs eru: 1) Páll Ágúst, f. 10.9. 1960, vélaverk- fræðingur í Garðabæ, maki: Lára Jóhannsdóttir, prófessor í HÍ. Páll á þrjú börn, eitt stjúpbarn og tvö barnabörn; 2) Áslaug, f. 3.6. 1966, prófessor í Bates College, Lewiston í Maine, Bandaríkjunum; 3) Agni, f. 16.1. 1969, forstöðumaður áhættu- stýringar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, búsettur í Garðabæ, maki: Hildur Sólveig Pétursdóttir hrl. Agni á tvær dætur og þrjú stjúp- börn. Stjúpbörn Albínu eru Guðrún Ólafsdóttir, f. 30.5. 1965, leirkera- smiður í Toronto, maki: Greg Chap- man, þau eiga tvö börn, og Brandur Ólafsson, f. 9.9. 1967, fjármálastjóri í Toronto, hann á eitt barn. Systkini Albínu eru Jón Örn Thordarson, f. 19.5. 1948, löggiltur skjalaþýðandi í Reykjavík; Guðfinna Erna Thordarson, f. 19.5. 1948, arki- tekt í Garðabæ; Hallveig Thordar- son, f. 11.4. 1952, gæðastjóri TR í Reykjavík; Sigvaldi Thordarson, hálfbróðir samfeðra, f. 3.5. 1964, jarðeðlisfræðingur í Reykjavík. Foreldrar Albínu voru hjónin Sig- valdi Thordarson, f. 27.12. 1911, d. 25.4. 1964, arkitekt, og Pálína Þór- unn Jónsdóttir, f. 8.5. 1913, d. 19.1. 1995, húsfreyja. Sigvaldi og Pálína skildu. Seinni kona Sigvalda var Kamma Nielsen Thordarson, f. 4.4. 1923, d. 15.3. 1986. Albína Hulda Thordarson, arkitekt FAÍ – 80 ára Brúðkaupsmynd Albína, Brandur Ólafsson, Áslaug Agnarsdóttir, Agni Ásgeirsson, Guðrún Ólafsdóttir, Páll Ásgeir Ásgeirsson og Ólafur árið 1981. Byggingarlist og þyrlumál Í þyrlurekstrinum Áslaug, Albína, Agni og Guðmundur Ingimarsson, yfirflugvirki Landhelgisgæslunnar, með TF-FIM í baksýn, árið 1984. 22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 2019 TWIN LIGHT RÚLLUGARDÍNA Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is Við erum sérhæfð í gluggatjöldum alnabaer.is 50 ára Sigurður er Mosfellingur og hefur búið í Mosfellsbæ mestalla tíð. Hann er blikksmíðameistari að mennt og rekur eigið fyrirtæki, Landsblikk. Maki: Inga María Hansen Ásgeirs- dóttir, f. 1965, skólaritari í Varmár- skóla. Börn: Sigríður Elsa, f. 1990, Guð- björg, f. 1991, og Rósa María, f. 1994. Foreldrar: Paul Hansen, f. 1936, tæknifræðingur, og Elsa Norðdal Sigurðardóttir, f. 1939, hjúkrunarfræð- ingur. Þau eru búsett í Mosfellsbæ. Sigurður Böðvar Hansen Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Eitthvað gerir það að verkum að þú dregur þig inn í skel. Það mun verða mikið að gera næstu vikur þannig að þú verður að fara vel með þig. 20. apríl - 20. maí  Naut Það eru miklar breytingar í vænd- um hjá þér. Makinn mun koma þér á óvart. Einhver pirringur er í ungling- unum. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Nú er rétti tíminn til þess að gera hreint fyrir sínum dyrum. Þér mun líða betur eftir á. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Settu þína eigin heilsu ofar öllu öðru því að öðrum kosti áttu margt á hættu sem erfitt getur orðið að finna lausn á. Líttu á björtu hliðarnar og vertu jákvæð/ur. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Leyfðu þér að taka það rólega og láta þig dreyma. Ef þú getur skapað í huganum, getur þú það í raunveruleik- anum líka. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Ekki hika við að láta skoðun þína í ljós. Þú færð skilaboð frá gömlum vini sem mun koma róti á tilfinningar þínar. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þér hættir til að vera of ráðrík/ur og þú þarft að gæta þess að reyna ekki að stjórna lífi annarra. Leitaðu þér að- stoðar ef þú þarft. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þótt þú eigir auðvelt með að hrífa aðra er ekki þar með sagt að allir viðhlæjendur séu vinir. Þú hefur gott nef fyrir fjárfestingum, nýttu þér það. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Reyndu eftir fremsta megni að miðla málum. Þú græðir ekkert á því að hafa áhyggjur af öllu, reyndu að sjá það góða í fólki. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er engin ástæða til þess að láta aðra komast upp með að borga ekki skuldir sínar. Enginn fær þakkir fyrir að vera píslarvottur. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þeir eru margir sem bíða í of- væni eftir að þú segir skoðun þína á ákveðnu máli. Kannski býstu við of miklu af makanum. 19. feb. - 20. mars Fiskar Samningaviðræður þínar við vini þína geta tekið óvænta stefnu í dag. Farðu varlega í umferðinni. Guðmundur Haraldsson fagnar 80 ára afmæli sínu í dag. Hann er fyrrverandi skólastjóri Bruna- málaskólans og starfaði við brunamál í yfir 40 ár. Hann hefur einnig verið virkur í ýmsum félagsmálum. Eiginkona Guðmundar er Guðfinna Sigurðardóttir, fyrrverandi talsímavörður. Börn þeirra eru Sigríður, Bryndís, Ragnheiður og Íris Halla. Guðmundur ætlar að fagna afmæli sínu í Hann- esarholti í dag milli kl. 17-19 og þætti gaman að sjá sem flesta ættingja og vini á þessum tíma- mótum. Árnað heilla 80 ára 40 ára Gulla er Sand- gerðingur en býr í Njarðvík. Hún er einkaþjálfari að mennt en vinnur við farþega- þjónustu hjá Airport Associates. Maki: Trausti Pálsson, f. 1978, skipstjóri hjá Stakkavík. Börn: Ingibjörg Anna, f. 2000, Óliver, f. 2003, Þóra Karen, f. 2011, og fjögur stjúpbörn. Foreldrar: Sigurður Jóhann Arnbjörns- son, f. 1955, verkamaður, búsettur á Siglufirði, og Þóra Jóhanna Kjartans- dóttir, f. 1960, d. 2011, dagmóðir og vann lengi í kaupfélaginu í Sandgerði. Guðlaug Helga Sigurðardóttir Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.