Morgunblaðið - 11.10.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2019
Tilboðsdagar
Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl. 12-16Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050
LISTHÚSINU
á púðum, rúmteppum og teppum
25% afsláttur föstudag til mánudags
Sorpa hefur sent inn umsögn umfyrirhugaðan urðunarskatt
ríkisstjórnarinnar. Í umsögninni
segir að urðunarskattur hafi komið
til tals í stjórnsýslunni nokkrum
sinnum undanfarin ár en ekki orðið
að veru-
leika. „Nú
bregður
svo við að
skella á
skatti á
urðunar-
staði án
nokkurs
undirbún-
ings og verður að telja það ámæl-
isverð vinnubrögð. Setja á skattinn
á um næstu áramót án þess að ann-
að sé fullmótað en upphæð skatts-
ins. Því er lítill tími til undirbúnings
eða viðbragða og mætti jafnvel
ræða um eignaupptöku í samheng-
inu,“ segir Sorpa.
Ekki batnar það þegar Sorpa ferað bera saman fyrirhugaðan
skatt hér á landi við það sem þekk-
ist annars staðar, en hann mun hafa
verið lagður á í sumum löndum
Evrópu og í nokkrum aflagður á
ný. Hér er lagt upp með að urð-
unarskattur verði 15 kr./kg, sem er
meira en þrefaldur sá urðunar-
skattur sem lagður er á í öðrum
löndum Evrópu að meðaltali, þ.e. í
þeim löndum þar sem hann á annað
borð er lagður á.
Sorpa segir að verði þessi skatturað veruleika þýði það 62%
hækkun á urðunargjaldi fyrirtæk-
isins. „Því gjaldi verður ekki mætt
öðruvísi en með hækkun á gjald-
skrá sem þá bæði íbúar og fyrirtæki
þurfa að greiða. Sá urðunarskattur
sem lagður er til er þá 204% hærri
en meðaltal þeirra 18 Evrópuríkja
sem eru með urðunarskatt (í raun
349% yfir meðaltali allra ríkj-
anna),“ segir í umsögninni.
Telur ríkisstjórnin virkilega þörfá þessum nýja ofurskatti?
Ofurskattur á sorp
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Bleiki dagurinn er í dag. Einstak-
lingar og fyrirtæki eru hvött til að
sýna stuðning við konur sem fengið
hafa krabbamein með því að bera
Bleiku slaufuna, klæðast bleiku og
skreyta eða lýsa upp með bleiku. Á
hverju ári greinast um 800 konur
með krabbamein og rúmlega 200 af
þeim með brjóstakrabbamein. Um
80% landsmanna segjast hafa
greinst eða þekkja einhvern sem
greinst hefur með krabbamein.
Bleika slaufan, sem Krabbameins-
félagið selur í fjáröflunarskyni, var
uppseld í gær hjá félaginu. Enn
fengust slaufur hjá sumum sölu-
aðilum. „Salan á Bleiku slaufunni
fékk gríðarlega sterkar viðtökur
strax í upphafi átaksins. Hátíðar-
slaufan, sem var gerð í 240 eintök-
um, seldist upp á þremur dögum.
Það hefur ekki gerst áður,“ sagði
Sigríður Sólan Guðlaugsdóttir kynn-
ingarstjóri.
Guðbjörg Kristín Ingvarsdóttir,
skartgripahönnuður í Aurum, hann-
aði Bleiku slaufuna í ár. Hún sér-
smíðaði tvö gulleintök úr 14 karata
gulli, hálsmen með bleikum demanti
og nælu með bleikum demanti. Þess-
ir tveir skartgripir voru settir á upp-
boð til styrktar átakinu. Hægt er að
bjóða í skartgripina á facebooksíðu
Bleiku slaufunnar. Uppboðinu lýkur
þriðjudaginn 15. október klukkan
16.00. gudni@mbl.is
Árvekniátakið Bleiki dagurinn í dag
Hvatt til að klæðast bleiku Stuðningur við þær sem fengið hafa krabbamein
Ljósmynd/Sigríður Sólan
Skart Bleika slaufan boðin upp.
Arnar Þór Ingólfsson
arnarth@mbl.is
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis-
ráðherra segir einungis Tyrki bera
ábyrgð á ákvörðun sinni um að ráðast
inn í norðurhluta Sýrlands, spurður
út í það hvort hann teldi að ábyrgðin á
stöðu mála gæti
ekki einnig talist á
herðum ríkis-
stjórnar Donalds
Trump Banda-
ríkjaforseta, sem
tók ákvörðun um
að flytja banda-
ríska hermenn frá
því svæði sem
Tyrkir herja nú á.
„Þetta er auð-
vitað einhliða ákvörðun Tyrkja, þeir
bera ábyrgð á henni,“ segir Guðlaug-
ur Þór og vísar svo til yfirlýsingar
Mike Pompeo, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sem hefur neitað því
að Bandaríkin hafi gefið „grænt ljós“
á innrás Tyrklands. Íslensk stjórn-
völd hafa ekki komið gagnrýni á fram-
færi við Bandaríkjamenn vegna
þeirrar ákvörðunar að draga herlið
sitt af svæðinu.
„Hins vegar hefur Bandaríkjafor-
seti verið gagnrýndur mjög, meðal
annars í heimalandi sínu af sínum eig-
in flokksmönnum, eins og við
þekkjum. Stóra málið er auðvitað að
þetta snýr að Tyrkjum, þetta er
þeirra ákvörðun og þetta er þeirra
framferði,“ segir Guðlaugur Þór í
samtali við mbl.is.
Hernaður fordæmdur
Utanríkisráðuneytið sendi frá sér
yfirlýsingu í gær þar sem aðgerðir
Tyrkja gegn Kúrdum í norðurhluta
Sýrlands voru gagnrýndar og hern-
aður sem beindist að almennum borg-
urum fordæmdur.
„Við höfum gagnrýnt þetta harð-
lega og komið þeirri gagnrýni á fram-
færi, bæði beint við Tyrki og líka með
„tvítum“ og yfirlýsingum. Við höfum
miklar áhyggjur af ástandinu og er-
um ekki ein um það. Þú finnur það nú
bara hvernig viðbrögðin eru víða um
heim. Viðbrögð okkar eru mjög í sam-
ræmi við það sem við sjáum í þeim
löndum sem við berum okkur saman
við,“ segir Guðlaugur Þór.
Utanríkisráðherra segir að sér
vitanlega hafi engin viðbrögð borist til
íslenskra stjórnvalda frá Tyrkjum
vegna þeirrar gagnrýni sem íslensk
stjórnvöld hafa komið til skila. »16
Einhliða ákvörðun
Tyrkja um innrás
Ráðherra hefur áhyggjur af ástandinu
Guðlaugur Þór
Þórðarson