Morgunblaðið - 11.10.2019, Síða 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2019
Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is
Apótekið þitt
í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2
Afgreiðslutími:
9-18:30 virka daga
10-16:00 laugardaga
Reykjavíkur Apótek býður upp á allar tegundir lyfja. Mikið og fjölbreytt úrval af
heilsuvörum, bað- og ilmvörum, gjafavörum auk ýmissa annarra góðra kosta.
Reykjavíkur Apótek er sjálfstætt starfandi apótek sem leggur áherslu á
persónulega þjónustu og hagstætt verð.
• Öryrkjar og eldri borgarar njóta sérkjara hjá okkur
• Frí heimsendingarþjónusta
BAKSVIÐ
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Félagið IMS ehf. sérhæfir sig í að
varðveita og selja sögulegar myndir
og hefur til þessa skannað inn um
tvær milljónir mynda sem eru allt að
hundrað ára gamlar. Arnaldur Gauti
Johnson, stofnandi og framkvæmda-
stjóri félagsins, segist sannfærður
um að mikið sóknarfæri sé fyrir
hendi þar sem ekkert sambærilegt
fyrirtæki er að sinna þessu í Evrópu.
Arnaldur Gauti útskýrir að fyrir-
tækið eignist myndasöfn dagblaða
gegn því að stafræn myndasöfn verði
gerð fyrir dagblöðin, sem halda höf-
undarrétti sínum. Þá gefst almenn-
ingi kostur á að kaupa upprunalegu
pappírseintökin. Hann segir fjöl-
miðla oft sitja á stórum myndasöfn-
um og ekki hafa fjármagn til að koma
myndefni í nútímalegt form. „Með
þessu verkefni erum við í raun að
bjarga miklum menningarverðmæt-
um því mörg svona söfn, að hluta eða
í heild, hafa skemmst í bruna, vatns-
tjóni eða annað í gegnum tíðina.
Margar af þessum myndum eru bara
til í þessu eina eintaki og margar
hafa aldrei sést áður opinberlega.“
Eitt þriggja í heiminum
Myndirnar sem afhentar eru
fyrirtækinu eru eftir skönnun settar
í sölu á vefnum. „Í geymslum dag-
blaða er svo mikil saga og svo mikið
af flottum ljósmyndum sem almenn-
ingur fær loksins að berja augum og
jafnvel eignast.“ Spurður um mark-
aðinn fyrir myndirnar svarar fram-
kvæmdastjórinn: „Þetta er mjög sér-
hæft. Það eru bara tvö fyrirtæki í
heiminum sem eru að gera það sama
og við. Ásamt hinum fyrirtækjunum
erum við að koma þessum myndum á
markað og þannig er að myndast
eftirmarkaður með þetta.“
Hann segir myndirnar eiga sér-
staklega erindi inn á markað fyrir
safnara. „Það er fullt af fólki byrjað
að kaupa þetta og selja aftur.“
Arnaldur Gauti útskýrir að um er
að ræða sölu á upprunalegum ein-
tökum ljósmynda og að fólki gefist
þannig tækifæri til að eignast hlut úr
sögunni. „Þetta eru myndir sem not-
aðar voru þegar blöðin voru prentuð
og hafa legið í söfnum fjölmiðla í tugi
ára.“
En myndirnar eru af ýmsum toga.
„Þetta geta verið myndir af frægu
fólki, Marilyn Monroe eða Elvis
Presley, af all konar sögutengdum
viðburðum eins og úr seinni heims-
styrjöldinni eða íþróttum. Fólkið
sem kaupir er ekki bara að kaupa
gamla mynd heldur mynd sem teng-
ist áhugamáli þess. Allt sem hefur
gerst í hundrað ár er í þessum
geymslum hjá dagblöðunum. Svo er
fólk að finna ættingja, húsið sem það
bjó í og byggði. Þannig að markaður-
inn er stór.“
Hugbúnaður og tækni
Mikil vinna liggur á bak við svo
hægt sé að taka við miklu magni af
myndum og koma þeim í stafrænt
form, ásamt því að flokka þær, að
sögn framkvæmdastjórans. „Þar er-
um við að þróa mjög fullkomið kerfi
sem byggir á gervigreind og mikilli
sjálfvirkni, við erum að þjálfa vél-
búnað í að lesa texta, þekkja andlit,
stimpla aftan á myndir, snúa þeim og
margt fleira. Þetta gerir okkur kleift
að vinna allt að átta þúsund myndir á
dag, skanna báðar hliðar og flokka
og skrá allar upplýsingar á þeim,“
útskýrir hann. „Við erum að vinna
með sumum af færustu sérfræðing-
um heims, bæði í gervigreind og í
sögu og flokkun ljósmynda, að þessu
verkefni og við vitum ekki um neitt
sambærilegt kerfi,“ bætir Arnaldur
Gauti við.
Hann segir lykilinn vera að geta
unnið að skönnun margra mynda á
dag. „Þegar við byrjuðum í þessu
fannst okkur mjög merkilegt að geta
unnið úr hundrað til fjögur hundruð
myndum á dag, en við erum núna
komin í vinnslu á í kringum sex til sjö
þúsund myndum á dag.
Menn hafa reynt þetta áður, en þá
í mun minna magni. Magn skiptir
öllu í þessum rekstri, annars gengur
það ekki. Með því að ná að gera þetta
í rosalega miklu magni náum við að
búa til rekstur í kringum þetta,“ út-
skýrir framkvæmdastjórinn. Hann
segir tekjur félagsins af sölu vera um
það bil 160 til 170 milljónir króna á
ári, en stefnt sé að frekari vexti. „Við
erum að stefna að því að auka þetta
umtalsvert. Við teljum okkur vera í
stöðu til þess. Það er enginn að gera
þetta í Evrópu og við erum að ræða
við mjög mörg myndasöfn. Við telj-
um okkur hafa færi til þess að ná
miklu forskoti á þessum markaði.“
Þá hefur félagið fengið fjárfesta í
lið með sér, meðal annars Brunn
Ventures.
Skrifstofa í Lettlandi
„Við erum komnir með um tvær
milljónir innskannaðra ljósmynda
hérna í Reykjavík og um 1,5 milljónir
mynda eru komnar í sölu,“ segir
Arnaldur Gauti sem bætir við að
fyrirtækið hafi þegar afgreitt um
eina milljón mynda frá Daily Tele-
graph í Bretlandi. „Við erum núna
með samninga við Independent,
Svenska Dagbladet í Svíþjóð og fleiri
viðræður eru í gangi. Síðan erum við
búnir að opna skrifstofu í Ríga í
Lettlandi og ráða þar um átta til níu
manns. Þar erum við að vinna í því að
koma upp miklu öflugri skönnun,“
segir Arnaldur Gauti.
Sjö þúsund myndir á dag
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Safngripir Um tvær milljónir ljósmynda eru í hirslum IMS ehf. og eru 1,5 milljónir þegar komnar í sölu á netinu.
Arnaldur Gauti Johnson segir gríðarleg tækifæri vera í Evrópu enda er fyrirtækið það eina sinnar tegundar í álfunni.
Nýta gervigreind við stafræna afritun ljósmynda Varðveita menningarverð-
mæti Selja almenningi frumeintökin Stefnt að opnun skrifstofu í Lettlandi
11. október 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 124.73 125.33 125.03
Sterlingspund 152.36 153.1 152.73
Kanadadalur 93.71 94.25 93.98
Dönsk króna 18.329 18.437 18.383
Norsk króna 13.61 13.69 13.65
Sænsk króna 12.533 12.607 12.57
Svissn. franki 125.45 126.15 125.8
Japanskt jen 1.161 1.1678 1.1644
SDR 170.26 171.28 170.77
Evra 136.92 137.68 137.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 165.8887
Hrávöruverð
Gull 1503.4 ($/únsa)
Ál 1731.5 ($/tonn) LME
Hráolía 58.02 ($/fatið) Brent
Eins og tilkynnt
var 21. júlí sl. hef-
ur Trygginga-
miðstöðin hf.
(TM) átt í einka-
viðræðum við
Klakka ehf. um
kaup á fjármögn-
unarfyrirtækinu
Lykli. Í tilkynn-
ingu frá TM segir
að þeim við-
ræðum hafi lokið í gær með undir-
ritun samnings um kaup á 100%
hlutafjár í Lykli. Kaupverðið er
9.250 m.kr. og þar að auki greiðir
TM hagnað Lykils á árinu 2019 til
seljanda. Eigið fé Lykils var 11.688
m.kr. um mitt ár 2019.
Í tilkynningunni segir að kaup-
verðið verði greitt með handbæru fé
og fjármagnað með útgáfu á nýju
hlutafé að fjárhæð allt að 3.000 m.kr.
og sölu á eignum. Þá kemur fram að
TM hafi tryggt sér lánsfjármögnun
að fjárhæð allt að 3.000 m.kr. vegna
viðskiptanna.
TM telur í tilkynningunni kaupin
vera hagfelld fyrir hluthafa, enda
gera áætlanir ráð fyrir að hagnaður
á hvern hlut muni aukast um 20-30%
á komandi árum.
Hinn 30. júní námu heildareignir
Lykils rúmum 40 milljörðum og eig-
infjárhlutfall var 29,2%. Efnahags-
reikningur TM mun tæplega tvö-
faldast við viðskiptin.
Viðskiptin eru háð samþykki hlut-
hafafundar TM, Fjármálaeftirlitsins
og Samkeppniseftirlitsins.
Kaupa
Lykil á níu
milljarða
Sigurður
Viðarsson
Efnahagsreikn-
ingur TM tvöfaldast