Morgunblaðið - 11.10.2019, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2019
✝ Alma Jóns-dóttir fæddist
í Keflavík 17. apr-
íl 1955. Hún lést á
líknardeild Land-
spítalans í Kópa-
vogi 5. október
2019. Foreldrar
Ölmu voru Jón
Hallvarður Júl-
íusson, f. 6. febr-
úar 1927, d. 14.
maí 1987 og Rósa
Jónsdóttir, f. 2. maí 1930.
Systkini Ölmu eru Júlíus Jón
Jónsson, f. 1950, kvæntur Ingi-
björgu Magnúsdóttur, Ína Dó-
róthea Jónsdóttir, f. 1952, gift
Guðmundi Jónassyni, Birgir
Jónsson, f. 1959, Hallvarður
Þröstur Jónsson, f. 1962,
kvæntur Lovísu Ósk Erlends-
dóttur, Víðir Sveins Jónsson, f.
1969, kvæntur Margréti
Stefánsdóttur.
Eftirlifandi eiginmaður
Ölmu er Jón Friðhólm Frið-
riksson, ketil- og plötusmiður,
f. 10. nóvember 1954 í Kópa-
vinnslu og ýmis störf. Alma og
Jón hófu búskap sinn á Lág-
holtsvegi 7 í Reykjavík í húsi
afa Jóns. Þau byggðu sér hús í
Sandgerði og fluttu þangað inn
árið 1974. Síðar hóf Alma störf
við Íþróttamiðstöðina í Sand-
gerði og vann þar í nokkur ár.
Lengst af starfaði Alma sem
ritari við Heilsugæslu Suður-
nesja. Árið 1999 fluttu þau
hjónin til Hafnarfjarðar þar
sem Alma hóf störf við St. Jós-
efsspítala. Síðustu æviár henn-
ar bjuggu hjónin í Arnarsmára
24 í Kópavogi og starfaði Alma
í heilbrigðisráðuneytinu.
Alma hafði mikinn áhuga á
félagsmálum og fengu m.a.
Knattspyrnufélagið Reynir og
Golfklúbbur Sandgerðis að
njóta krafta hennar. Auk þess
sat hún í bæjarstjórn
Sandgerðis um tíma. Helstu
áhugamál hennar voru golf,
veiðar og ferðalög. Árið 2006
keyptu þau hjónin sér sum-
arbústaðaland þar sem þau
reistu sér sumarhús og eyddu
þar ófáum stundum.
Útför Ölmu fer fram frá Frí-
kirkjunni í Reykjavík í dag, 11.
október 2019, klukkan 13.
vogi. Þau gengu í
hjónaband 1. júní
1974. Foreldrar
Jóns voru Friðrik
Björnsson, f. 2.
mars 1927, d. 17.
janúar 2004 og
Þórhildur
Sigurðardóttir, f.
10. júlí 1927, d. 23.
desember 2010.
Synir Ölmu og
Jóns eru Jónas
Guðbjörn Friðhólm Jónsson, f.
11. mars 1974, sambýliskona
hans er Helga Sigrún Þórs-
dóttir, f. 15. nóvember 1978.
Börn þeirra eru Jón Grétar
Jónasson, f. 13. ágúst 2005 og
María Sigrún Jónasdóttir, f.
21. maí 2012. Eiríkur Jónsson,
f. 18. júlí 1983, sambýliskona
hans er Kristjana Árnadóttir,
f. 20. mars 1985. Dætur þeirra
eru Eva Natalie Eiríksdóttir, f.
26. október 2007 og Nadia Liv
Eiríksdóttir, f. 23. ágúst 2014.
Alma ólst upp í Sandgerði
og fór ung að vinna við fisk-
Elsku hjartans mamma.
Ég geri mér ekki grein fyrir
hvernig við eigum að stíga fyrstu
skrefin eftir að þú kvaddir, en ég
held að við spjörum okkur þó, þar
sem þú kenndir okkur vel.
Minningarnar rigna inn í haus-
inn á mér og ég veit varla hvar á
að byrja.
Eitt er mér alltaf efst í huga, ég
hef verið um 5-6 ára gamall þegar
við vorum á heimleið úr einni af
ófáum Hagkaupsferðum okkar.
Þér lá eitthvað mikið á að komast
heim í þetta skiptið. Við vorum á
bláa Lancernum þar sem engin
belti voru aftur í. Þú tekur beygju
af Suðurgötu, inn á Austurgötu á
methraða, nokkuð viss um að Col-
in McRae hefði roðnað. Í öllum
látunum þá rúlla ég í aftursætinu
og þegar ég stoppa þá snýr dún-
úlpan mín öfugt á mér, hendur inn
í úlpunni og rennilás að aftan-
verðu. Ég get alltaf hlegið jafn
mikið að þessu.
Við spiluðum mikið golf saman
og vorum alltaf að kenna hvort
öðru. Ég gat aldrei farið til golf-
kennara því ég vissi alltaf betur en
þeir, en alltaf gat ég tekið ráðum
frá þér. Þá rifjast líka upp þegar
ég hékk á pokanum hjá pabba.
Mikið hefði ég viljað taka 18 holur
með þér og pabba í eitt skipti á
Ventura.
En elsku hjartans mamma, eitt
á ég svakalega erfitt með. Þú
varst svo veik um það leyti þegar
við fjölskyldan vorum að flytja í
húsið sem við byggðum okkur. Ég
hlakkaði svo til að bjóða þér og
pabba í mat til okkar. Mér finnst
það svo sárt að hafa ekki fengið að
sýna þér hversu flott húsið okkar
er. Vona að þú komir til mín í
draumi og ég fái að sýna þér
hvernig okkur tókst til. Veit að þú
ert stolt af okkur. En þú áttir
fyrsta vöfflukaffið hjá okkur, þeg-
ar þú komst með nýbakaðar vöffl-
ur og með því í miðjum fram-
kvæmdum, þessu mun ég aldrei
gleyma, yndisleg minning.
Mamma, mér fannst þú kveðja
fullsnemma. Ég veit að þú ert
kvalalaus núna og það hlýjar mér
um hjartað. Þetta var langt og erf-
itt ferli hjá þér.
Ég mun gera mitt besta í að að-
stoða hann pabba og sjá til þess að
hann fari sér ekki að voða.
Elska þig að eilífu, mamma.
Þinn sonur,
Eiríkur.
Elsku tengdamamma.
Þá er komið að leiðarlokum,
mun fyrr en við bjuggumst við.
Það eru 14 ár síðan ég kom
fyrst inn á heimili ykkar Nonna og
ekki leið á löngu þar til ég var flutt
inn. Við bjuggum hjá ykkur í rúm
2 ár og eignuðumst á þeim tíma
Evu Natalie, áður en við keyptum
okkar fyrstu íbúð.
Við áttum ófá samtölin á kvöld-
in ásamt bíltúrum með feðgunum
á Econoline-inum, sem endaði æði
oft á Skalla í ís.
Þið hafið í gegnum árin verið
boðin og búin til þess að aðstoða
okkur í öllu sem við höfum tekið
okkur fyrir hendur og nú síðast
þegar við keyptum okkur fokhelt
hús og hófum framkvæmdir. Þið
tókuð okkur 4 manna fjölskylduna
ásamt kettinum Nóa inn á heim-
ilið ykkar þrátt fyrir aukið álag á
ykkur.
Hjálpin var ómetanleg og hefð-
um við ekki getað flutt inn í húsið
okkar í ágúst nema fyrir ykkar að-
stoð.
Þú varst ekkert sérlega hrifin
af köttum og að þurfa að taka inn
á heimilið þitt stærðarinnar kött,
en eftir því sem vikurnar og mán-
uðirnir liðu urðuð þið ágætis vinir
og fylgdi Nói þér hvert fótspor og
var orðinn svo dekraður að hann
fékk að kúra sig í sófanum. Við
finnum það á honum að hann
saknar þín, þar sem þið voruð að
mestu tvö saman á daginn.
Sumarbústaðaferðirnar höfum
við átt ófáar saman og marga bíl-
túrana um Suðurlandið og upp-
sveitir. Stelpurnar okkar elska
sveitina sína og finnst ekkert
betra en að geta hlaupið frjálsar
um, leikið í kastalanum, hoppað á
trampólíni eða jafnvel farið í
berjamó hinumegin við lækinn.
Þú lifðir fyrir barnabörnin þín
fjögur. Það mátti allt hjá ömmu og
afa, algjört dekur.
Það er mikill söknuður hjá
dætrunum tveim og á sú yngri
erfitt með að skilja af hverju hún
fékk ekki að eiga ömmu Ölmu
lengur og sú eldri saknar gæða-
stundanna ykkar sem þið áttuð
svo oft saman.
Takk fyrir allt og allt, elsku
Alma.
Þín tengdadóttir,
Kristjana.
Í dag kveð ég elskulegu
tengdamóður mína, Ölmu Jóns-
dóttur. Það var fyrir 21 ári sem ég
kom inn í fjölskyldu Ölmu og Jóns
þegar ég og Jónas fórum að hitt-
ast. Ég var afskaplega feimin
stelpa og þar sem við Jónas
bjuggum í Eyjum þá fékk ég góð-
an aðdraganda að okkar fyrstu
kynnum. Þá mætti Alma sem far-
arstjóri til Eyja með krakka úr
Sandgerði sem voru að fara að
keppa í golfi. Í þessari ferð mætti
Alma með steikarpönnu í farangr-
inum því Jónas þurfti að fá al-
mennilegan kvöldmat en þá bjó
hann með vini sínum og lítið var
um eldamennsku. Það voru fáir
sem gátu glatt Jónas eins mikið
með mat og móðir hans, þar
þekkti hún drenginn sinn vel. Það
var afskaplega auðvelt að kynnast
Ölmu og var mér strax vel tekið
inn í fjölskylduna. Alma var gædd
mörgum góðum eiginleikum sem
við öll myndum vilja hafa. Hún var
afskaplega ljúf og í kringum hana
var ávallt snyrtilegt. Það voru
aldrei læti í Ölmu en hún hafði
góðan húmor og gat oftar en ekki
gert grín að sjálfri sér. Hjónaband
Ölmu og Jóns var einstakt en þau
voru afskaplega samrýmd hjón
sem gengu í takt í gegnum lífið.
Aldrei varð ég vitni að ósætti eða
leiðindum og er ég þakklát fyrir
að hafa fengið að upplifa hversu
mikill kærleikur og ást var þeirra
á milli. Dugnaðurinn og kraftur-
inn í hjónunum var aðdáunarverð-
ur en á þessum árum okkar fylgd-
ist ég með þeim byggja glæsilegt
hús í Hafnarfirðinum. Þar gekk
Alma í mörg verk líkt og Jón og
enginn var betri í að kítta eða
spartla en hún. Sumarbústaður-
inn var stolt þeirra og yndi enda
byggður af þeim frá grunni. Þar
áttu þau margar góðar stundir og
unun að fylgjast með nýjum verk-
efnum þeirra þar. Sannkallaður
paradísarreitur sem allir í fjöl-
skyldunni elskuðu að heimsækja.
Börnin okkar Jónasar syrgja
yndislegu ömmu Ölmu sem var í
þeirra augum allt í senn; besti
kokkurinn, læknir og hjúkrunar-
fræðingur sem gat læknað öll sár,
skilningsríki faðmurinn og
skemmtilegi leikfélaginn. Það var
ekkert betra en að koma til ömmu
í grjónagraut eða steiktan fisk.
Hjá ömmu og afa var nefnilega
allt leyfilegt.
Frá því að Alma veiktist vissum
við að verkefnið yrði erfitt en hún
tókst á við veikindin með miklu
æðruleysi og gerði allt það sem
Alma Jónsdóttir
✝ Gunnar ÖrnGunnarsson
fæddist 19. nóv-
ember 1933 á Ísa-
firði. Hann lést 26.
september 2019.
Foreldrar Arnar
voru Gunnar
Bjarnason skipa-
smiður, síðar full-
trúi hjá Hafnar-
fjarðarbæ, f. 10.
október 1913, d. 30.
nóvember 1991, og Elísabet
Jónsdóttir húsmóðir, f. 19. apríl
1914, d. 22. júlí 2011. Systkini
Arnar: Brynjar, f. 1935, d. 2011,
Helga Birna, f. 1940, Halldór
Elías, f. 1944, d. 1964, Gunnar
Elías, f. 1948, d. 1965, og Ingi-
björg, f. 1951.
Örn lauk gagnfræðaprófi frá
Gagnfræðaskóla Ísafjarðar árið
1950. Hann nam tvær iðngrein-
ar og lauk sveinsprófi í hús-
gagnabólstrun árið 1962 og
einnig sveinsprófi í framreiðslu
árið 1967. Örn hlaut meistara-
bréf í húsgagnabólstrun árið
1977.
Örn sigldi á sænsku skipi árin
1953-1955. Í strandferðum og
síðan hjá Eimskip við fram-
reiðslu þar til nám hófst í Tré-
smiðjunni Víði haustið 1957.
Næstu ár starfaði Örn við hús-
gagnabólstrun eða þar til hann
lauk prófi í framreiðslu með
sveinsprófi árið 1967. Hann
vann síðan jöfnum höndum við
framreiðslu og húsgagna-
bólstrun ásamt
skrifstofustörfum
hjá Varnarliðinu á
Keflavíkurflugvelli.
Örn starfaði hjá
Varnarliðinu í hart-
nær 22 ár lengst af
hjá Tómstunda-
deildinni eða í 20
ár, fram að starfs-
lokum vegna aldurs
31. mars 2001.
Næstu fimm árin
bjó hann jöfnum höndum í Dan-
mörku og á Íslandi.
Örn giftist Ernu Þórdísi Guð-
mundsdóttur kennara 17. ágúst
1963.
Börn: 1) Jóhannes Már Arnar-
son matreiðslumaður, f. 2. sept-
ember 1956, maki Óskar Þór
Óskarsson, 2) Sigríður Pálína
Arnardóttir lyfjafræðingur, f. 8.
júlí 1963, sambýlismaður Ólafur
Sævar Elísson, 3) Helgi Arn-
arson kennari, f. 8. júní 1967,
maki Ragna Peta Hámund-
ardóttir, 4) Kristinn Arnarson
byggingafræðingur, f. 26. febr-
úar 1970, maki Arna Helgadótt-
ir.
Barnabörnin eru 14 og barna-
barnabörnin 12.
Örn og Erna bjuggu fyrstu
hjúskaparárin sín í Hafnarfirði
og Reykjavík en fluttust til
Njarðvíkur árið 1972 þar sem
áttu heima síðan.
Útförin fer fram frá Ytri--
Njarðvíkurkirkju í dag, 11.
október 2019, klukkan 14.
Elsku pabbi minn, besti pabbi í
heimi er fallinn frá. Hann var
skemmtilegur, góður og hlýr mað-
ur. Pabbi var maður gleðinnar.
Hann hafði sterkar skoðanir á
mönnum og málefnum, gaman að
því að rökræða við fólk og að fá
fram andstæðar skoðanir. Hann
var góður við okkur börnin sín og
enn betri við barnabörnin. Við átt-
um hvert bein í honum og hann í
okkur. Öll höfum við getað leitað
til hans með okkar dýrmætustu
mál og hann stóð á bak við okkur
eins og klettur og hvatti okkur
áfram til að láta drauma okkar
rætast. Hann kenndi okkur að
halda áfram, hrósaði okkur í há-
stert þannig að ekkert vantaði upp
á sjálfstraustið. Hann auðgaði
orðaforðann svo að ekkert kæmi á
óvart þegar út í lífið kæmi. Hann
kenndi okkur líka að líta björtum
augum á framtíðina, hafa skoðanir
á málefnum og standa með okkur
sjálfum.
Við áttum yndislegar stundir
með mömmu og pabba í fjölmörg-
um tjaldútilegum til Ísafjarðar,
Þingvalla og fleiri staða innan-
lands. Mikið var hlegið og sungið
og nesti borðað, saltkjöt og harð-
fiskur. Við fórum í ferðalag til
Spánar og Danmerkur, alltaf var
glens og gaman.
Þegar pabbi fór á eftirlaun
ákvað hann að flytja til Danmerk-
ur en það hafði verið draumur
hans. Hann dvaldi í Danmörku í
hálft ár og hálft árið dvaldi hann
heima á Íslandi. Mamma var hjá
honum öll sumur, þau áttu ynd-
islegar stundir, ræktuðu garðinn
sinn og nutu lífsins. Við vorum
dugleg að heimsækja hann þessi
ár. Þetta var yndislegur tími.
Eftir því sem barnabörnunum
fjölgaði stækkaði hjartað hans.
Hann hefur mótað afkomendur
sína mikið, með visku, kærleik og
gleði. Hann var ótrúlega minnug-
ur og var hægt að fletta upp í hon-
um eins og í orðabók, ekki síst í
landafræði og sagnfræði. Hann
vissi hreinlega allt og talaði mörg
heimsins tungumál. Hann miðlaði
lífsreynslu sinni til okkar, sagði
okkur ótrúlegar sögur og varaði
okkur við hættunum. Pabbi var
mikill sælkeri og nestið sem hann
útbjó fyrir okkur, smurt brauð
eins og hann gerði, vakti athygli
vinnufélaganna. Hann hefur
skutlað börnunum á æfingar og
sótt til margra ára, mætt á kapp-
leiki og tónleika til að sýna sam-
stöðu og hvatningu, tók þátt í lifi
okkar af lífi og sál. Hann heimsótti
okkur um allt, sama hvar við vor-
um stödd. Þegar ég fór til Noregs
til þess að taka við apóteki þar, þá
kom hann til mín til þess að styðja
mig, það var yndislegur tími.
Hann stjanaði við okkur, eldaði
góðan mat og tók á móti gestum.
Við áttum dásamlegar stundir.
Í dag kveð ég yndislegan föður
sem verður með mér í huga alla
daga allt til æviloka. Megir þú
hvíla í friði í draumalandinu elsku
pabbi minn.
Sigríður Pálína Arnardóttir.
Það er erfitt að hugsa til þess að
sjá ekki brosandi andlitið á afa,
tilbúinn að segja manni nýjan
brandara eða einhverja skemmti-
lega sögu frá fyrri tíð en til var
nóg af þeim þar sem afi hafði lifað
mjög innihaldsríku og skemmti-
legu lífi. Það er auðvelt að loka
augunum og fá helling af minning-
um um hann afa og því erfitt að
draga minningarnar saman í
stutta grein.
Afi og amma bjuggu stóran
hluta okkar æsku í Grænási og
þangað var alltaf gaman að koma.
Það kom fyrir að við kusum jafn-
vel frekar að fara þangað en að
leika við vini þar sem það var alltaf
stuð upp í Grænási hjá afa auk
þess sem við fengum stundum að
fara með honum í vinnuna upp á
hersvæði og það var mjög spenn-
andi. Okkur þótti líka mjög spenn-
andi að fá eitthvað framandi þaðan
eins og Kool-Aid, Skittles, Wen-
dy’s eða kanilpítsu. Afi átti það
einnig til að koma með slíkt góð-
gæti heim úr vinnunni eða gefa
okkur pening þannig að við fórum
sjálf að kaupa okkur á meðan
hann var að vinna. „One ice
cream,“ kenndi hann okkur að
segja þannig við gætum bjargað
okkur sjálf.
Jólin heima hjá afa og ömmu í
Grænási eru einnig mjög minnis-
stæð enda vorum við börnin alltaf
í fyrirrúmi þegar kom að jólunum.
Afi passaði alltaf upp á að jóla-
sveinninn kæmi og heilsaði upp á
okkur, hver einustu jól. Þegar við
fjölskyldan fórum að halda upp á
okkar eigin jól heima á Blönduósi
og hættum að vera hjá afa og
ömmu yfir jólin var það ekki vin-
sælt hjá okkur systkinunum.
Afi hugsaði vel um barnabörnin
sín. Hann kenndi okkur spila-
galdra og leyfði okkur að leika
með myntsafnið sitt. Hann fór í
ófáa veiðitúra með okkur að Sel-
tjörn þar sem eggjasalatbrauð og
heitt kakó með smjöri var topp-
urinn á tilverunni. Hann og amma
hringdu líka alltaf og sungu fyrir
okkur afmælissönginn hvern ein-
asta afmælisdag.
Við stórfjölskyldan fórum með
afa til Danmörku í fyrrasumar en
þeir sem þekktu afa vita að hann
var ekki minni Dani en Íslending-
ur inn við beinið. Sú ferð er eitt-
hvað sem við munum alltaf eiga í
minningum okkar.
Elsku afi, þú sem varst alltaf
svo góður og yndislegur og varst
duglegur að segja okkur hvað þér
þótti vænt um okkur. Við vonandi
sjáum þig einn daginn taka á móti
okkur skælbrosandi og hlæjandi
tilbúinn að matreiða eitthvað fyrir
okkur eins og þér einum var lagið
þar sem maður fór aldrei svangur
út úr húsi frá þér. Afi, þú varst
einstakur og við elskum þig alltaf.
Rut Vestmann, Hámundur
Örn og Guðmunda Rós.
Örn bróðir.
Ég heimsótti þig fyrir nokkrum
dögum, en hafði þá ekki tilfinn-
ingu fyrir því að ég væri að kveðja
þig hinstu kveðju. En þú vissir
sjálfur að hverju stefndi, varst
sáttur við lífshlaup þitt, ánægður
með framgang og ástúð barna
þinna og fjölskyldu. Samband
ykkar Ernu byggt á traustri elsku
og virðingu alla tíð.
En nú er komið að kveðjustund
og margs ber að minnast og
þakka, elsku Örn bróðir.
Þú varst elstur okkar sex systk-
ina, tveggja systra og fjögurra
bræðra, sem nú eru allir látnir.
Systkinahópurinn var að vissu
leyti tvískiptur og aldursbilið nær
tuttugu ár.
Eldri hópurinn alinn upp við
góð kjör á Ísafirði en vegna
breyttra haga fluttist fjölskyldan
til Hafnarfjarðar í kringum 1950
og þá kom ég til liðs, tveir bræðra
okkar létust á unglingsaldri 1964
og 1965.
Öll nutum við systkinin alúðar
og umhyggju frá okkar yndislegu
foreldrum.
Ég minnist þess frá barnæsku
hversu mikinn metnað þú lagðir í
að leggja fyrir mig yngstu systur
þína alls kyns þrautir og gáfna-
próf. Þú vildir fá mig til þess að
hugsa afstætt og þjálfa hugann.
Þú vildir líka kenna mér skrift og
teikningu enda sjálfur listaskrifari
og hafðir mjög næmt auga fyrir
teikningu. Takk Örn minn, ég bý
að þessum metnaði þínum.
Við stórfjölskyldan höfum
lengst af haldið vel hópinn og oft
verið glatt á hjalla hjá okkur. Ekki
síst fyrir þitt tilstilli sem endalaust
dróst fram skemmtisögur sem
kættu og fengu alla viðstadda til
að hlæja og skemmta sér. Þú hafð-
ir lag á að sameina okkur.
Það kom enginn að tómum kof-
unum hjá þér, enda stálminnugur
og áhugasamur um menn og mál-
efni. Þú hafðir líka á yngri árum
siglt um öll heimsins höf og hafðir
frá mörgu að segja. Hvort sögurn-
ar voru sannar eða ekki skiptir
ekki máli.
Það fór aldrei lítið fyrir þér,
elsku Örn minn. Þú varst ætíð
hrókur alls fagnaðar, skapgóður,
skapbráður en alltaf skemmti-
legur. Fallegur maður.
Þú hafðir sérstakt lag á að
hrósa fólki og þá sérstaklega
börnunum og unga fólkinu í fjöl-
skyldunni. Unglingum sem gengu
frá spjalli við þig nokkrum núm-
erum stærri en þau komu að, með
aukið sjálfstraust og bjartar vonir.
Þau muna þig, vertu viss.
Elsku Erna, Jói, Palla, Helgi,
Kristinn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
Ég samhryggist ykkur af öllu
hjarta enda stórt skarð höggvið í
ykkar raðir. En höfum í huga að
Örn fær líkn við sínum sjúkdómi
og vel verður tekið á móti honum
af himnaföðurnum og horfnum
ættingjum og vinum.
Ingibjörg Gunnarsdóttir.
Að eiga langa samleið með ást-
vinum er mikil blessun, að verða
samferða stóra bróður í gegnum
lífið er ævintýr. Hversdagurinn,
sól og kyrrð í skjóli hárra fjalla,
sumarbústaðurinn Arnarhvoll,
lækur í miðjum garði með ljúfan
nið og berjalyng við garðshliðið.
Skíðaferðir, snjóhús og kynjasög-
ur við kertaljós. Mikil var sú auð-
legð æskunnar, lífið leikur og
glaðværð.
Að sjá áhugamál fullorðinsár-
anna raungerast, stóru ástina
koma til sögunnar og nýja yndis-
lega fjölskyldu verða til. Hann
Örn bróðir minn er farinn á vit
annars lífs sem hann vissi um hríð
að væri á næsta leiti. Óhræddur
og fullur æðruleysis tjáði hann
Gunnar Örn
Gunnarsson