Morgunblaðið - 11.10.2019, Blaðsíða 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2019
✝ SigurfinnaPálmarsdóttir
fæddist í Unhól í
Þykkvabæ hinn 16.
ágúst 1925. Hún
lést á Dvalarheim-
ilinu Lundi á Hellu
1. október 2019.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin og
ábúendur á Unu-
hóli, Pálmar Jóns-
son, f. 9.6. 1899, d.
7.3. 1971, bóndi og bátasmiður,
og Sigríður Sigurðardóttir, f.
17.3. 1901, d. 18.12. 1989, hús-
móðir og bóndi.
Systkini Sigurfinnu eru Krist-
jón, f. 13.5. 1927, d. 24.4. 2010.
Lára, f. 13.11. 1928, og Svein-
Már. Barnabörnin eru níu og eitt
langömmubarn. 2) Pálmar Hörð-
ur, f. 1953. M. Jóna Elísabet
Sverrisdóttir, f. 1955. Börn
þeirra eru Sigmar Freyr, Sverr-
ir, Sigurfinna og Aldís Harpa.
Barnabörnin eru sjö. 3) Heiðrún
Björk, f. 1955. M. Kristján Ólafur
Hilmarsson, f. 1955. Börn þeirra
eru Hilmar, Sigurfinna og Jón-
ína Margrét. Barnabörnin eru 10
og eitt langömmubarn. 4) Sigríð-
ur, f. 1958. M. Valtýr Georgsson,
f. 1956, d. 10.3. 2018. Börn þeirra
eru Sindri og Reynir. 5) Sveinn,
f. 1962, d. 16.4. 2018.
Sigurfinna stundaði ýmis
störf; hún var í vist í Reykjavík
og einnig í Þykkvabæ. Hún vann
við saumaskap og sláturhússtörf
á vertíðum, ásamt búskapnum
og kartöfluræktinni. Hún var
lengi í kvenfélaginu Sigurvon í
Þykkvabæ.
Útför hennar fer fram frá
Þykkvabæjarkirkju í dag, 11.
október 2019, klukkan 13.
björg Una, f. 6.6.
1930.
Hinn 16. júní
1952 giftist Sigur-
finna Guðbrandi
Sveinssyni frá
Borgarholti í Mikla-
holtshreppi, f 28.5.
1920, d. 15.6. 2010.
Hann var sonur
hjónanna Pálínu
Svanhvítar Guð-
brandsdóttur frá
Ólafsvík og Sveins Þórðarsonar
frá Álftártungu í Mýrasýslu.
Börn Sigurfinnu og Guð-
brands eru: 1) Pálína Svanhvít, f.
1951. M. Birgir Óskarsson. f.
1950. Börn þeirra eru Guðrún
Ósk, Guðfinna og Sveinbjörn
En komin eru leiðarlok
og lífsins kerti brunnið
og þín er liðin æviönn
á enda skeiðið runnið.
…
(Höf. ók.)
Í dag er til moldar borin móð-
ir okkar og tengdamóðir hún
Finna í Unhól eins og hún var
alltaf kölluð. Hún var búin að
dvelja á Sjúkrahúsi Suðurlands
síðan í maí uns hún fór á Dval-
arheimilið Lund þann 22. ágúst
síðastliðinn, þar sem hún lést 1.
október eftir erfið veikindi sem
hún hafði átt í síðan í vor.
Það var ekki auðvelt að horfa
upp á þig svona mikið veika síð-
ustu vikurnar.
Eftir 94 ára afmælið þitt
hrakaði þér mjög hratt. Þú
komst heim í Unhól á afmæl-
isdaginn þinn 16. ágúst síðast-
liðinn og áttir góðan dag í faðmi
fjölskyldunnar. Hún mamma
var alger nagli. Hún vildi aldrei
þiggja neina hjálp, taldi sig nú
alveg færa um að gera hlutina
sjálf.
Hún heklaði og prjónaði mik-
ið, en svo fór sjónin að daprast
og á endanum var hún mjög
sjónskert og talaði um að það
væri verst að geta ekkert gert í
höndunum né heldur lesið því
að það hefði stytt henni stund-
irnar mikið.
Nú er hún komin í Sumar-
landið og eflaust búin að hitta
pabba, Svenna og Valtý og farin
að „elda og baka“ handa þeim.
Hún vildi alltaf að allir fengju
nóg að borða og drekka þó að
enginn væri svangur né þyrst-
ur.
Hún var mikill dýravinur og
passaði upp á að þau fengu líka
nóg að éta.
Elsku mamma, vonandi nýtur
þú nú sólarinnar í blómabrekku
Sumarlandsins, sólarinnar sem
þú varst búin að þrá svo heitt í
sumar en það fór nú á annan
veg.
Elsku mamma okkar:
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
…
(Valdimar Briem)
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Pálína Svanhvít, Pálmar
Hörður, Heiðrún Björk,
Sigríður og makar.
Á fallegum haustdegi 1. októ-
ber síðastliðinn kvaddir þú,
elsku amma.
Minningarnar streyma fram,
allar ferðirnar í sveitina til þín
og afa, hversu dýrmætt það var
að eiga ykkur að og fá að taka
þátt í ýmsum sveitastörfum á
meðan þið hélduð bú, hvort það
var heyskapur, rollustúss, fjós-
ferð eða annað.
Þú varst glæsileg kona, ákaf-
lega myndarleg húsmóðir, þess
bar heimili þitt ávallt merki og
alltaf var tjaldað til „ferming-
arveislu“ þegar kíkt var í heim-
sókn en samt var aldrei neitt til
með kaffinu að þínu mati. Þú
bakaðir bestu kleinur, flatkökur
og pönnukökur í heimi (með
miklum sykri). Þú hafðir gaman
af hannyrðum hvort sem það
var að prjóna, hekla eða sauma
og eru ófá sokka- og vettlinga-
pörin, milliverkin, teppin og
fleira sem eftir þig liggja. Þú
varst hrein og bein og sagðir
ávallt það sem þér fannst og
sagðir það oft svo skemmtilega
að erfitt var að halda andlitinu.
Þú varst ósérhlífin og dugleg,
hugsaðir ávallt um aðra hvort
sem það var mannfólk eða dýr
en þú varst mikill dýravinur. Þú
varst ákaflega stolt af afkom-
endum þínum og vildir að þeir
vissu það. Þú kvartaðir aldrei
og aldrei mátti hafa neitt fyrir
þér og var það því sárt að þegar
þú þurftir á aðstoð að halda sök-
um heilsubrests undir það síð-
asta var hún ekki auðsótt.
Það eru mikil forréttindi að
hafa átt þig að.
Takk fyrir allt, elsku amma.
Hvíldu í friði.
Guðrún Ósk.
Elsku amma.
Í dag kveð ég þig með ást og
söknuði. Síðustu daga hafa fallið
mörg tár en ég veit að þú kveð-
ur sátt og það hlýjar mér um
hjartarætur.
„Það er bara verst að ég á
ekkert til með kaffinu.“ Þetta
sagði amma alltaf þegar gesti
bar að garði í Unhól, en það var
sko öðru nær, allir sem þekktu
ömmu vissu betur. Í Unhól
svignaði borðið alltaf undan
kræsingum hvort sem það var
matur eða kaffi, frá ömmu fór
enginn svangur hvorki menn né
dýr.
Hún amma var ótrúleg kona
og það sýndi hún best í veik-
indum sínum síðustu mánuði.
Hún var með hjarta úr gulli og
taugar úr stáli. Amma var afar
hreinskilin og sagði hlutina eins
og þeir voru án þess að móðga
neinn, oft höfum við hlegið að
þessu því að hún sagði hlutina
líka svo skemmtilega.
Að hafa fengið að alast upp
við að eiga ömmu og afa í sveit
eru forréttindi. Fyrir litla
stelpu að fá að taka þátt í bú-
störfum og kartöfluræktinni er
ómetanlegt. Hvort sem það var
heyskapur eða kartöfluupptaka
sá amma til þess að það væri
nóg að borða og oft hjálpaði ég
henni að smyrja nestið til að
fara með út í kartöflugarð,
heimabakaðar flatkökur, þær
bestu í heimi, kleinur, pönnu-
kökur með sykri og svo þurfti
að vera nóg af öllu svo enginn
yrði svangur.
Amma og afi bjuggu í Unhól
allan sinn búskap, svo þegar afi
lést 2010 þá bjó amma ásamt
Svenna yngsta syni þeirra þar
til 2018 þegar Svenni lést
skyndilega, amma bjó þá ein al-
veg þangað til á vormánuðum
þegar hún veiktist. Í sumar
dvaldi hún á Selfossi á hjúkr-
unarheimili en síðasta mánuð á
Lundi á Hellu.
16. ágúst sl. varð amma 94
ára og gat hún komið heim í Un-
hól og þar var haldin veisla og
það var sko nóg með kaffinu að
hennar hætti.
Elsku amma, það er mér svo
dýrmætt að hafa átt þig að í lífi
mínu og síðustu daga hafa kom-
ið upp í huga mér svo margar
minningar sem ég geymi sem
gull í hjarta mínu.
Elsku amma, nú ertu komin
til afa, Svenna og Valtýs sem
taka á móti þér með opinn
faðminn.
Dag í senn, eitt andartak í einu,
eilíf náð þín, faðir gefur mér.
Mun ég þurfa þá að kvíða neinu,
þegar Guð minn fyrir öllu sér?
Hann sem miðlar mér af gæsku sinni
minna daga skammt af sæld og
þraut,
sér til þess að færa leið ég finni
fyrir skrefið hvert á lífs míns braut.
Hann, sem er mér allar stundir nærri,
á við hverjum vanda svar og ráð,
máttur hans er allri hugsun hærri,
heilög elska, viska, föðurnáð.
Morgundagsins þörf ég þekki eigi,
það er nóg, að Drottinn segir mér;
Náðin mín skal nægja hverjum degi,
nú í dag ég styð og hjálpa þér.
Guð, ég fæ af fyrirheitum þínum
frið og styrk, sem ekkert buga má.
Auk mér trú og haltu huga mínum
helgum lífsins vegi þínum á,
svo að ég af hjartaþeli hreinu,
hvað sem mætir, geti átt með þér
daginn hvern, eitt andartak í einu,
uns til þín í ljóssins heim ég fer.
(Sigurbjörn Einarsson)
Elsku amma.
Ástarþakkir fyrir samfylgd-
ina.
Þín
Guðfinna.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Grátnir til grafar
göngum vér nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.
Guð oss það gefi,
glaðir vér megum
þér síðar fylgja’ í friðarskaut.
(Valdimar Briem)
Sofðu rótt elsku amma.
Kristjana Dögg, Heiðrún
Rut, Jón Haukur, Sigurður
Helgi og Kolfinna Lind.
Elsku amma. Ég veit ekki
hvar ég á að byrja, mér finnst
svo skrítið að hugsa til þess að
þú sért farin frá okkur. Þegar
ég hugsa til þín er mér efst í
huga þakklæti fyrir allt sem þú
hefur kennt mér og allt sem þú
hefur gert fyrir mig og börnin
mín.
Mínar bestu æskuminningar
eru úr sveitinni hjá þér og afa,
það sem ég hlakkaði alltaf til að
koma til ykkar í sumarfrí, ég
gat ekki beðið eftir því. Að fá að
fara með þér í fjósið að mjólka,
að skrifa fyrir þig á miðana sem
fóru á kartöflupokana, að fá að
velja jógúrt úr mjólkurbílnum,
heyskapurinn, kartöfluupptak-
an og allt það sem ég fékk að
gera með ykkur í sveitinni. Þú
kenndir mér að vera ávallt góð
við alla, bæði dýr og menn, því
þannig varst þú. Þú varst svo
mikill dýravinur, enda sýndi
það sig best þegar þú fórst á
Lund og eignaðist þar tvær kis-
ur sem þú talaðir um sem kis-
urnar þínar og sendir svo alltaf
kveðju til Eyja til kisunnar
hennar Kolfinnu.
Eftir að ég átti börnin mín
fylgdist þú alltaf vel með og
vildir fá fréttir af öllum, hrós-
aðir okkur öllum og hvattir
áfram, svo varð ég amma og þú
langalangamma og mér fannst
svo dásamlegt að sjá hvað þið
Kolfinna náðuð vel saman og
talar hún oft um þig.
Ég dáist að því hversu dugleg
þú varst elsku amma mín, alla
þína ævi og fram að hinsta degi,
þú vannst úti, bakaðir, eldaðir,
saumaðir og prjónaðir á alla,
sást um heimilið og kvartaðir
aldrei, þú varst sannkölluð ofur-
kona.
Þeir sem komu til þín í Unhól
fengu alltaf nóg að borða, því þú
hugsaðir alltaf fyrir því að eng-
inn færi svangur frá þér og allt-
af var hlaðborð hjá þér bæði í
mat og kaffi. Afmælið þitt 16.
ágúst sl. var dýrmæt stund þar
sem við komum öll saman og
áttum yndislegan dag með þér.
Það er skrítið að hugsa til þess
að ég muni ekki koma aftur til
þín í Unhól í kaffi og spjall.
Elsku amma mín, þakka þér
fyrir alla ástina sem þú gafst
mér og börnunum mínum, ég
mun sakna þín sárt og minning
þín mun lifa í hjörtum okkar
allra að eilífu.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(Vald. Briem)
Þín nafna,
Sigurfinna Kristjánsdóttir.
Sigurfinna
Pálmarsdóttir
Sálm. 86.7
biblian.is
Þegar ég er í
nauðum staddur
ákalla ég þig
því að þú
bænheyrir mig.
✝ SigurlaugIngvarsdóttir
fæddist á Blönduósi
20. október 1952.
Hún lést á Heil-
brigðisstofnuninni
á Hvammstanga 27.
september 2019.
Foreldrar hennar
voru Ingvar
Ágústsson, bóndi á
Ásum í Svínavatns-
hreppi, f. 12.1.
1906, d. 13.10. 1996 og Sigurlaug
Jósefína Sigurvaldadóttir, hús-
freyja og bóndi sama stað, f.
13.11. 1914, d. 21.1. 1986. Systk-
ini Sigurlaugar eru 10: Sigur-
valdi Óli, f. 8.3. 1935, d.15.10.
2012, Sigmar, f. 12.9. 1936, Guð-
laug, f. 26.9. 1938, Erla, f. 26.9.
1936, Hreinn, f. 15.6. 1940 d.
15.8. 2014, Hannes, f. 16.1. 1945,
Erlingur, f. 13.4. 1946, d. 3.12.
2015, Hörður Viðar, f. 28.4.
1949, Guðmundur, f. 24.2. 1951
og Bára, f. 1.4. 1954.
Sigurlaug giftist eftirlifandi
eiginmanni sínum Ragnari
Gunnlaugssyni, f. 17.3. 1941,
þann 12. júní 1971. Foreldrar
hans voru Gunnlaugur Auðunn
Jóhannesson, bóndi á Bakka, f.
16.11. 1894, d. 1.1. 1970, og Anna
Teitsdóttir, húsfreyja og bóndi á
Bakka, f. 1.12. 1894, d. 10.6.
1978. Sigurlaug og Ragnar eign-
uðust fjögur börn en þau eru:
Gunnlaugur Auðunn, f. 19.2.
1971, hagfræðingur og skrif-
stofustjóri byggingafélagsins
MótX, búsettur í Kópavogi.
Ingvar Friðrik f. 5.4. 1972, bú-
fræðingur og bóndi Syðra-
Kolugili í Víðidal, sambýliskona
hans er Malin Persson. Þau eiga
tvo syni, Ragnar Friðrik
framhaldsskóla-
nema, f. 26.5. 1998,
og Claes Hákon
framhaldsskóla-
nema, f. 25.3. 2002.
Dagný Sigur-
laug, bóndi og hús-
freyja á Bakka, gift
Erni Óla Andr-
éssyni. Þau eiga tvö
börn, Ágúst Andra
framhaldsskóla-
nema, f. 4.7. 1998
og Sigurlaugu Ernu, f. 19.10.
1999, stúdent og hjúkrunar-
nema.
Anna Heiða, f. 17.12. 1982,
býr á Hvammstanga. Stúdent frá
Tækniskólanum í Reykjavík.
Sigurlaug var í farskóla í
Svínavatshreppi og lauk þar
barnaskólaprófi. Hún var svo
einn vetur í framhaldsnámi í
Húnaveri og einn vetur í gagn-
fræðadeild á Blönduósi. Hún
vann og um tíma á Hótel Blöndu-
ósi.
Árið 1970 kynntist hún eftir-
lifandi manni sínum og flutti til
hans að Bakka í Víðidal í Vestur-
Húnavatnssýslu. Tók hún þar við
húsmóðurhlutverkinu, auk þess
að sinna almennum landbúnað-
arstörfum og vera í sláturvinnu í
sláturhúsi KVH nokkur haust.
Þann 1. júlí 1999 brugðu þau
hjón búi og fluttu á Hvamms-
tanga. Um haustið fór hún að
vinna í KVH á Hvammstanga og
vann þar á meðan heilsan leyfði.
Síðasta mánuðinn dvaldi hún
á Heilbrigðisstofnuninni á
Hvammstanga.
Útför Sigurlaugar verður
gerð frá Hvammstangakirkju í
dag, 11. október 2019, klukkan
15.
Margar góðar minningar um
mæta konu koma upp í hugann við
ótímabært fráfall Sissu á Bakka í
Víðidal. Ung kynntist hún Ragn-
ari frænda mínum og stóð þétt við
hlið hans alla tíð. Fáum árum áður
hafði ég verið nokkur sumur í
sveit hjá afa mínum og ömmu á
Bakka sem bjuggu með Ragnari
syni sínum. Ragnar var kraftmik-
ill dugnaðarbóndi og með okkur
myndaðist sterk vinátta og kær-
leikur. Aldursmunur var nokkur á
milli okkar Ragnars og því fannst
mér sérkennilegt þegar hann tók
sér konu sem var fáeinum mán-
uðum eldri en ég.
Það hlýtur að hafa reynst Sissu
erfitt jafn ungri og hún var að
flytjast í sveit þar sem hún var al-
gerlega ókunn, ala upp börn og
stunda búskap með helsta bónda
sveitarinnar. Það kom hins vegar
fljótt í ljós að mikill dugur var í
ungu bóndakonunni og eftir því
sem árin liðu komu hennar styrk-
leikar æ betur í ljós. Sissa hafði
sínar skoðanir sem gátu verið frá-
brugðnar þeim sem almennt ríktu
í Víðidalnum en oftar en ekki voru
þær nær þeim breyttu sjónarmið-
um sem þá voru að ryðja sér til
rúms.
Sissa tók mér vel frá upphafi
kynna okkar og heimfærði vináttu
okkar Ragnars á sig. Alla tíð hefur
verið eftirsóknarvert að heim-
sækja Sissu og Ragnar, hvort
heldur sem er á Bakka eða
Hvammstanga, enda gestrisnin
mikil, húsmóðirin listakokkur og
óþrjótandi efni í skemmtilegar
samræður. Fyrir þetta er þakkað
og verður geymt í dýrmætum
sjóði minninga.
Sissa og Ragnar eignuðust
fjögur mannvænleg börn sem ól-
ust upp við sveitalífið á Bakka.
Það lýsir framsýni þeirra að fyrir
tveimur áratugum, þegar í ljós
kom að Dagný dóttir þeirra og
tengdasonur gætu hugsað sér að
stunda búskap, þá lögðu Sissa og
Ragnar til vistaskipti. Dóttirin og
tengdasonurinn tóku við búsfor-
ráðum á Bakka en foreldrarnir
fluttu á Hvammstanga. Þannig
var tryggð áframhaldandi búseta
á Bakka. Um svipað leyti tók
Ingvar sonur þeirra við búinu á
Syðra-Kolugili handan Víðidalsár-
innar. Systkinin og fjölskyldur
þeirra reka þar myndarbú sem
hafa vaxið og dafnað í skjóli dugn-
aðar og vinnusemi. Það er því
bjart yfir búskapnum í Víðidaln-
um, þökk sé Sissu og Ragnari.
Sissa var frá barnmörgu sveita-
heimili og átti ekki kost á frekari
menntun eftir skyldunámið. Hún
var vel greind og hæfileikarík.
Þegar hægðist um hjá þeim Ragn-
ari gaf hún sér tíma til að sinna
margs konar hannyrðum og hand-
verki og listrænir hæfileikar komu
í ljós. Heimili þeirra ber þess
glöggan vott.
Ströngu stríði Sissu við veikindi
er lokið. Eftir situr sár söknuður
og sorg hjá Ragnari, börnum,
tengdabörnum og barnabörnum.
Megi algóður Guð vera með þeim
og sefa sorg þeirra og að góðar
minningar veiti þeim birtu og
hlýju. Fjölskylda mín færir Sissu
kærar þakkir fyrir allt sem hún
veitti okkur og gaf. Blessuð sé
minning Sigurlaugar Ingvars-
dóttur.
Halldór Árnason.
Sigurlaug
Ingvarsdóttir
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar