Morgunblaðið - 11.10.2019, Qupperneq 32
32 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2019
Undankeppni EM 2020
C-RIÐILL:
Hvíta Rússland – Eistland ...................... 0:0
Holland – N-Írland................................... 3:1
Staðan:
Holland 5 4 0 1 17:6 12
Þýskaland 5 4 0 1 17:6 12
Norður-Írland 6 4 0 2 8:7 12
Hvíta-Rússland 6 1 1 4 3:10 4
Eistland 6 0 1 5 2:18 1
E-RIÐILL:
Króatía – Ungverjaland........................... 3:0
Slóvakía – Wales....................................... 1:1
Staðan:
Króatía 6 4 1 1 13:5 13
Slóvakía 6 3 1 2 10:8 10
Ungverjaland 6 3 0 3 7:9 9
Wales 5 2 1 2 5:5 7
Aserbaídsjan 5 0 1 4 5:13 1
G-RIÐILL:
Austurríki – Ísrael ................................... 3:1
Lettland – Pólland.................................... 0:3
N-Makedónía – Slóvenía.......................... 2:1
Staðan:
Pólland 7 5 1 1 11:2 16
Austurríki 7 4 1 2 16:7 13
Slóvenía 7 3 2 2 13:7 11
N-Makedónía 7 3 2 2 10:9 11
Ísrael 7 2 2 3 12:14 8
Lettland 7 0 0 7 1:24 0
I-RIÐILL:
Kasakstan – Kýpur .................................. 1:2
Belgía – San Marínó................................. 9:0
Rússland – Skotland ................................ 4:0
Staðan:
Belgía 7 7 0 0 28:1 21
Rússland 7 6 0 1 22:4 18
Kýpur 7 3 1 3 13:7 10
Kasakstan 7 2 1 4 9:11 7
Skotland 7 2 0 5 5:17 6
San Marínó 7 0 0 7 0:37 0
Undankeppni HM 2022
ASÍA, C-RIÐILL:
Írak – Hong Kong .................................... 2:0
Þorlákur Árnason er aðstoðarþjálfari
Hong Kong.
KNATTSPYRNA
EM 2020
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Erik Hamrén hefur á sínum tíma
sem landsliðsþjálfari karla í fótbolta
að langmestu leyti reynt að stóla
áfram á þann leikmannahóp sem
kom Íslandi á EM 2016 og HM 2018.
Þrátt fyrir að þeir eldist eins og aðr-
ir er ekki hægt að segja að á þessu
ári hafi síður verið hægt að velja þá í
landsliðið vegna meiðsla en áður.
Forföll vegna meiðsla eða leik-
banna hafa sem sagt ekki verið neitt
óvenjumikil í undankeppni EM 2020,
miðað við síðustu undankeppnir.
Hins vegar er ekki sama hvaða leik-
menn vantar og ef við leyfum okkur
að setja fyrirliðann Aron Einar
Gunnarsson, Gylfa Þór Sigurðsson
og Jóhann Berg Guðmundsson í „A-
flokk“ sem mikilvægustu menn liðs-
ins, eins konar krosstré, þá er leik-
urinn við heimsmeistara Frakka í
kvöld sá fjórði af sjö leikjum í
undankeppninni þar sem einhvern
þeirra vantar.
Jóhann hefur misst af þremur
leikjum, töpunum gegn Frakklandi
og Albaníu og sigrinum gegn Mold-
óvu, og Aron verður ekki með í kvöld
og líklega ekki meira í undankeppn-
inni. Því er útlit fyrir að sigrarnir á
Andorra, Albaníu og Tyrklandi verði
einu leikir þríeykisins saman í þess-
ari undankeppni. Í undankeppni HM
2018 forfallaðist einhver þeirra
þriggja í aðeins tveimur leikjum af
tíu, en í undankeppni EM 2016 vant-
aði einn af þeim í fimm leikjum af
tíu.
Birkir, Rúnar og Gylfi á miðj-
unni gegn Frökkum fyrir ári
Ef við lítum framhjá Þjóðadeild-
inni, sem flestir virðast vilja gleyma,
þá er ansi langt um liðið síðan lands-
liðið var án Arons í mótsleik. Það var
í heimaleik gegn Tyrklandi fyrir
þremur árum. Birkir Bjarnason
þótti þá standa sig vel í að fylla
skarð Arons, og Theódór Elmar
Bjarnason lék á vinstri kanti í stað
Birkis. Ísland vann leikinn 2:0 á
Laugardalsvelli. Vel má vera að
Birkir verði aftur á miðjunni í kvöld
og vonandi bitnar þá ekki mikið á
honum að hafa varla spilað með fé-
lagsliði síðan í byrjun þessa árs.
Hamrén þurfti að spjara sig án
Arons í þremur af fjórum leikjum
Þjóðadeildarinnar í fyrra en þá var
mikið um forföll í hverjum leik, og
Ísland tapaði öllum. Guðlaugur Vict-
or Pálsson lék með Gylfa á miðjunni
í 6:0-tapi gegn Sviss, en Hamrén
notaði svo þriggja manna miðju í
öðrum leikjum með Gylfa fremstan
en Birki og Rúnar Má Sigurjónsson
aftar, eða Birki og Emil Hallfreðs-
son. Birkir, Rúnar og Gylfi voru á
miðjunni í 2:2-jafnteflinu við Frakka
í vináttulandsleik fyrir ári, þar sem
Frakkar skoruðu sín mörk undir lok
leiks.
Nokkur spurningarmerki
Í þjálfaratíð Lars Lagerbäck og
Heimis Hallgrímssonar var jafnan
sáralítið um forföll í landsliðinu.
Staðan var um tíma þannig að hvert
mannsbarn á Íslandi gat sagt til um
hvernig byrjunarliðið yrði og meiri
fréttapunktur fólst í því að vita
hvaða kvikmynd Hannes Þór Hall-
dórsson myndi sýna liðsfélögum sín-
um í aðdraganda leiks.
Spurningarmerkin eru hins vegar
nokkur fyrir leik kvöldsins.
Markið: Hannes heldur eflaust
sæti sínu þó að Hamrén hafi laumað
inn smágagnrýni á hann í ræðu sinni
um tapið í Albaníu á blaðamanna-
fundi síðasta föstudag.
Vörnin: Kári Árnason, Ragnar
Sigurðsson og Ari Freyr Skúlason
halda sætum sínum. Hörður Björg-
vin Magnússon er ekki til taks til að
veita Ara samkeppni, en Ari virðist
hvort sem er framar í goggunarröð-
inni. Líklega heldur Hjörtur Her-
mannsson sæti sínu sem hægri bak-
vörður þrátt fyrir slakan leik í
Albaníu, eftir þrjá flotta leiki á
Laugardalsvelli. Birkir Már
Sævarsson er þó til taks núna.
Miðjan: Afar líklegt virðist að
Rúnar Már komi inn á miðjuna, fyr-
ir aftan Gylfa, og sennilega með
mann sér við hlið. Mér finnst líklegt
að það yrði Birkir Bjarnason en
einnig gæti Guðlaugur Victor komið
inn í liðið. Jóhann Berg snýr aftur á
hægri kantinn en vinstra megin
gæti Arnór Ingvi Traustason komið
inn, nema þá að hinn ungi Arnór
Sigurðsson fái sitt annað tækifæri í
byrjunarliðinu, þar sem hann hóf
undankeppnina í Andorra. Ólíklegt
virðist að Emil Hallfreðsson byrji
leikinn.
Sóknin: Í ljósi þess að andstæð-
ingurinn er Frakkland er harla ólík-
legt að Ísland noti tvo framherja, en
það gæti þó gerst ef Hamrén treyst-
ir Birki og Gylfa, eða Rúnari og
Gylfa, til að spila tveir saman á miðj-
unni. Alfreð Finnbogason er kominn
aftur í hópinn, eftir að hafa aðeins
verið til taks í þremur af tíu móts-
leikjum undir stjórn Hamréns, en
líklegra er að Kolbeinn Sigþórsson
byrji fremstur enda kominn á gott
ról og spilaði 90 mínútur í síðustu
tveimur leikjum AIK. Jón Daði
Böðvarsson gæti svo sannarlega
einnig byrjað.
Krosstrén bregðast oftar
Ísland án eins af lykilmönnunum þremur í fjórða sinn í undankeppninni
Þrjú ár síðan Aron fyrirliði missti síðast af leik í undankeppni stórmóts
AFP
Áreiðanlegur Ragnar Sigurðsson er einn þeirra sem missa ekki af leik í undan- eða lokakeppnum stórmóta.
Meistaradeild Evrópu
Kristianstad – Kadetten ..................... 24:24
Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði 9
mörk fyrir Kristianstad en Teitur Örn
Einarsson ekkert.
Þýskaland
Kiel – Nordhorn................................... 31:23
Gísli Þorgeir Kristjánsson var ekki á
meðal markaskorara Kiel.
Geir Sveinsson þjálfar Nordhorn.
Erlangen – Göppingen........................ 23:26
Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Erlangen.
Stuttgart – Lemgo............................... 26:26
Elvar Ásgeirsson skoraði 2 mörk fyrir
Stuttgart.
Bjarki Már Elísson skoraði 4 mörk fyrir
Lemgo.
Leipzig – Balingen .............................. 27:26
Viggó Kristjánsson skoraði 2 mörk fyrir
Leipzig.
Oddur Gretarsson skoraði 5 mörk fyrir
Balingen.
Staðan: Hannover 14, Kiel 12, RN Löwen
12, Leipzig 12, Flensburg 11, Melsungen
11, Magdeburg 10, Füchse Berlín 10,
Wetzlar 9, Erlangen 9, Minden 7, Berg-
ischer 7, Göppingen 6, Balingen 4, Stutgart
4, Lemgo 4, Ludwigshafen 2, Nordhorn 2.
Frakkland
París SG – Chambéry.......................... 32:29
Guðjón Valur Sigurðsson var ekki á með-
al markaskorara PSG.
Danmörk
SönderjyskE – Skanderborg ............. 27:32
Sveinn Jóhannsson skoraði 1 mark fyrir
SönderjyskE en Arnar Birkir Hálfdánsson
ekkert.
Svíþjóð
Skuru – Söder ...................................... 35:20
Eva Björk Davíðsdóttir skoraði 3 mörk
fyrir Skuru.
HANDBOLTI
Dominos-deild karla
Grindavík – Keflavík ............................ 89:97
Stjarnan – ÍR ...................................... 103:74
Valur – Þór Þ. ....................................... 87:73
KR – Haukar....................................... 102:84
Njarðvík – Tindastóll ........................... 75:83
Staðan:
Stjarnan 2 2 0 195:154 4
KR 2 2 0 191:161 4
Valur 2 2 0 181:160 4
Keflavík 2 2 0 183:166 4
Tindastóll 2 1 1 160:161 2
Haukar 2 1 1 189:186 2
Njarðvík 2 1 1 160:155 2
Fjölnir 1 0 1 87:94 0
Grindavik 2 0 2 166:186 0
Þór Ak. 1 0 1 84:105 0
Þór Þ. 2 0 2 153:179 0
ÍR 2 0 2 146:188 0
KÖRFUBOLTI
Fimm leikmenn hafa getað
gefið kost á sér í alla tíu móts-
leiki Íslands undir stjórn Eriks
Hamréns, í Þjóðadeildinni og
undankeppni EM. Það eru þeir
Hannes, Kári, Ari Freyr, Birkir
Már og Hörður Björgvin. Birkir
var hins vegar ekki valinn í 23
manna hóp í síðustu fjórum leikj-
um og Hörður er ekki með nú
vegna meiðsla.
Ef aðeins er horft til undan-
keppni EM 2020 hafa þeir Hann-
es, Kári, Ragnar, Ari Freyr, Ar-
on, Gylfi, Birkir Bjarna, Hörður
Björgvin og Birkir Már verið til
taks í öllum sex leikjunum fram
til þessa.
Í undan- og lokakeppni HM
2018 voru Birkir Már, Kári,
Ragnar, Ari Freyr, Hörður
Björgvin og Gylfi til taks í öllum
13 leikjunum. Hannes, Aron,
Birkir Bjarnason og Jón Daði
voru til taks í 12 leikjum hver.
Í undan- og lokakeppni EM
2016 voru Birkir Már, Kári,
Ragnar, Ari Freyr, Gylfi, Birkir
Bjarna, Jón Daði og Kolbeinn til
taks í öllum 13 leikjunum. Hann-
es, Aron og Alfreð misstu af ein-
um leik hver.
Hinir áreiðanlegu
Þau sem hafa gaman af því að bera
saman íþróttafólk í mismunandi
greinum, eða velta fyrir sér hver sé
best frá upphafi í einhverri íþrótta-
grein, geta gert sér mat úr afrekum
Simone Biles þessa dagana. Sú
bandaríska hefur verið ósigrandi í
áhaldafimleikum í sex ár. Ekki er al-
gengt að fólk nái mikilli yfirburða-
stöðu í útbreiddum íþróttum eins og
fimleikum og haldi henni í mörg ár
eins og Biles hefur gert. Má því velta
fyrir sér hvort hún sé besta íþrótta-
kona heimsins um þessar mundir.
Væri það mælanlegt myndi hún
væntanlega skora hátt.
Heimsmeistaramótið stendur nú
yfir í Stuttgart og þar hefur Biles
gert lítið annað en að undirstrika
yfirburði sína. Í gær hafði hún raun-
ar sögulega yfirburði í fjölþrautinni,
en hún fékk 58.999 stig fyrir æfingar
sínar. Tang Xijing frá Kína hafnaði í
2. sæti með 56.998 stig en svo mikill
munur hefur aldrei fyrr verið á efstu
tveimur keppendunum á HM. „Þessi
áfangi skiptir mig öllu máli. Að vinna
fimmta gullið í fjölþraut er fáheyrt
og var því mjög spennandi,“ sagði
Biles hógvær við fjölmiðla að keppni
lokinni en lét frekar verkin tala eins
og fyrri daginn.
Biles varð heimsmeistari í fjöl-
þraut í fimmta skipti í Stuttgart og
er ósigruð síðustu sex árin eins og
áður kom fram. Hún hefur unnið til
tuttugu og tvennra verðlauna á HM
á ferlinum og vantar aðeins ein til
viðbótar til að jafna metið. Er Biles
þó ekki nema 22 ára gömul. Hún
verður illviðráðanleg á Ólympíu-
leikunum á næsta ári. kris@mbl.is
Simone Biles komin
á sérstakan stall
AFP
Langbest Ekkert vefst fyrir Simone Biles í fimleikunum.