Morgunblaðið - 11.10.2019, Síða 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2019
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Snæbjörn Arngrímsson, sem fram
að þessu hefur helst verið þekktur
sem afkastamikill útgefandi, hlaut í
gær Íslensku barnabókaverðlaunin
fyrir nýútgefna bók sína, Rann-
sóknin á leyndardómi eyðihússins.
Er þetta í fyrsta sinn sem Snæbjörn
sendir frá sér eigið verk og í raun í
fyrsta skipti sem hann fæst við
skriftir á eigin efni, ef ótal þýðingar
eru frátaldar. Snæbjörn ætlaði sér
að skrifa bókina undir dulnefni en
sú ætlun hans fékk ekki fram að
ganga.
Verðlaunin eru veitt með þeim
hætti að hver höfundur sendir inn
handrit til Forlagsins með dulnefni.
Rétt nafn höfundar er svo látið
fylgja með í umslagi.
Snæbjörn hefur stofnað og selt
sjö mismunandi bókaforlög í fjórum
löndum. Ferillinn hófst með stofnun
bókaútgáfunnar Bjarts og fór á flug
með útgáfu Harry Potter á Íslandi.
„Ég var með bókaforlag lengi og
seldi forlagið svo fyrir tæpum
tveimur árum. Svo sá ég auglýsingu
fyrir þessi verðlaun fyrir rúmu ári
og hafði þá meiri tíma en áður og
var aðeins að spekúlera í bókaskrif-
um. Þegar ég sá þessa auglýsingu
settist ég bara niður og skrifaði
fyrstu setningu bókarinnar,“ segir
Snæbjörn.
Ómótstæðileg spennubók
Í fyrstu hafði hann enga hug-
mynd um hvað bókin ætti að vera.
„Ég hugsaði að þetta ætti að vera
spennubók, hún ætti að vera svo
spennandi að enginn ætti að geta
sleppt henni, þetta ætti að vera
ómótstæðileg bók. Það var það sem
ég hugsaði og hafði í raun tvö börn í
huga sem aðalpersónur og svo byrj-
aði ég bara að skrifa spennubók.“
Snæbirni barst svo óvæntur inn-
blástur. „Sama kvöld og ég hófst
handa barst mér úrklippa úr New
York Times frá árinu 1976. Hún
segir frá manni sem kemur inn í
kauphöllina á Wall Street með átta-
tíu dollara í vasanum og byrjar að
kaupa og selja verðbréf. Eftir fimm
daga er hann búinn að selja og
kaupa 157 sinnum og kominn með
margar milljónir í vasann. Þetta
þykir svo grunsamlegt að maðurinn,
sem heitir Andrew Carlson, er
handtekinn og færður á lögreglu-
stöð. Þegar hann er yfirheyrður og
spurður hvaðan hann hafi fengið
upplýsingar um það hvernig hann
gæti gert þessi viðskipti sem voru
algjörlega villulaus þá sagði hann að
hann hefði ekki fengið neinar inn-
herjaupplýsingar, þetta væri ekkert
ólöglegt. Hann sagðist koma úr
framtíðinni og þess vegna vissi hann
hvað gerðist í verðbréfavið-
skiptum.“
Því trúði enginn og maðurinn var
sendur í fangelsi. „Næsta dag leysir
ókunnugur maður hann úr haldi og
greiðir trygginguna. Honum er
sleppt og hann hverfur fullkomlega.
Þegar lögreglan ætlar að reyna að
hafa uppi á manninum þá finnur hún
hann ekki og síðar kemur í ljós að
það er ekkert til um þennan mann.
Það eru hvergi skjöl um að þessi
maður hafi nokkurn tímann verið til,
eina skjalið var þessi handtöku-
skýrsla sem lögreglan sjálf gerði.
Þessa frétt las ég og fór í framhald-
inu að grúska um það hvað hefði
orðið af þessum manni. Niðurstaða
rannsóknarinnar er þessi bók sem
gerist í litlu þorpi á Íslandi og fjallar
um þessi tvö börn,“ segir Snæbjörn.
Fær eyðihús á heilann
Bókin fjallar um Guðjón G.
Georgsson, sem er nýfluttur í Álfta-
bæ og fær eyðihús á heilann, og
Millu vinkonu hans. Hún hafði verið
nágranni Hrólfs, ríkasta manns
þorpsins sem hafði búið í eyðihúsinu
þar til hann lést, ári áður en sagan
hefst. Hrólfur hafði verið skapvond-
ur ógæfumaður sem sást sjaldan
utandyra því sennilega var honum
illa við annað fólk.
Snæbjörn bjóst ekki við að
hreppa verðlaunin. „Í raun hafði ég
hugsað mér að halda nafni mínu
leyndu ef ég skyldi vinna. Þegar
maður sendir inn í handrita-
samkeppnina skrifar maður dul-
nefni á handritið og svo rétt nafn í
umslag með handritinu. Ég sendi
annað nafn en mitt eigið því mín
hugsun var sú að þessi bók hefði
engan sérstakan höfund, að það
væri enginn höfundur á bak við
hana heldur bara tilbúin persóna.
Ég komst ekki upp með það. Ég
hafði sett kvenmannsnafn með og
svo bý ég í Danmörku. Þegar verð-
launanefndin hafði komist að niður-
stöðu um það hver ynni fékk ég
tölvupóst í þetta tilbúna tölvu-
póstfang gervihöfundarins.
Æsa sem stýrir þessu bað mig um
að hringja en þar sem það var kven-
maður sem hafði sent þetta inn gat
ég eiginlega ekki hringt. Ég spurði
um hvað málið snerist en hún vildi
ekki segja mér það, hún vildi tala
við höfundinn. Ég varð á endanum
að hringja og spyrja hvort ekki væri
hægt að halda nafni mínu leyndu en
hún tók það ekki í mál. Þannig að ég
varð að gefa mig fram sem höfund,“
segir Snæbjörn og hlær. Umrædd
Æsa er Æsa Guðrún Bjarnadóttir,
ritstjóri hjá Forlaginu.
Stórkostleg sætaskipti
Nú hefur Snæbjörn setið í sæti
útgefandans í rúm þrjátíu ár.
Spurður hvernig sé að færa sig í
sæti rithöfundarins segir Snæbjörn:
„Nú fékk ég að vita að ég hefði
unnið verðlaunin í febrúar. Þetta er
búinn að vera langur tími sem ég
hef vitað að bókin myndi koma út og
allt í einu er ég orðinn höfundur.
Það hefur verið mjög skemmtilegt
og í raun spennandi. Mér finnst
þetta ferli hafa verið frábært, það
hefur verið alveg stórkostlegt að
sitja hinum megin við borðið.“
Snæbjörn segir að vissulega hafi
vinna hans við útgáfur nýst honum
við skrif Rannsóknar á leyndardómi
eyðihússins enda hefur hann lesið
nokkur þúsund bækur á þrjátíu ár-
um.
„Ég veit hvaða bækur mér þykir
góðar og ég veit hverju ég fell fyrir.
Svo hefur maður reynt að læra
handbragðið af þessum miklu meist-
urum sem maður hefur lesið í gegn-
um tíðina. Bara það að lesa Rowling,
höfund Harry Potter, er heil stúdía
út af fyrir sig.“
Þá er spurning hvort ferill Snæ-
björns hafi snúist við, hvort nú sé
komið að rithöfundarferlinum.
„Maður veit aldrei. Þetta gekk vel
núna í fyrsta skipti og satt að segja
er ég byrjaður á framhaldssögu um
þetta mál,“ segir Snæbjörn.
Útgefandi vildi
skrifa undir dulnefni
Snæbjörn Arngrímsson hlaut Íslensku barnabókaverðlaun-
in fyrir fyrstu bók sína Niðurstaða rannsóknar á framtíðar-
manni á Wall Street Byrjaður á framhaldssögu um málið
Morgunblaðið/Hari
Gleðistund Snæbjörn Arngrímsson tók glaður við verðlaununum sem afhent voru í bókasafni Valhúsaskóla í gær.
Olga Togarczuk frá Póllandi hlýt-
ur Nóbelsverðlaunin í bók-
menntum árið 2018 og Peter
Handke frá Austurríki verðlaunin
fyrir árið 2019. Þetta tilkynnti
Mats Malm, ritari Sænsku aka-
demíunnar (SA), á blaðamanna-
fundi í gær. Tilkynnt var um tvo
verðlaunahafa í ár þar sem afhend-
ingu verðlaunanna var aflýst í
fyrra eftir að SA varð óstarfhæf í
kjölfar þess að Jean-Claude
Arnault, eiginmaður Katarinu
Frostenson og einn meðlima SA,
var sakaður um margvísleg kyn-
ferðisbrot um langt árabil og síðar
dæmdur í tveggja ára fangelsi fyr-
ir nauðgun.
Leggja ætti verðlaunin niður
Í rökstuðningi Sænsku akademí-
unnar kemur fram að Olga
Togarczuk hljóti verðlaunin „fyrir
frásagnarlist sem einkennist af
fjölfræðilegri ástríðu sem snýst um
sífellt ferðalag yfir landamæri sem
lífsform“. Um Handke segir að
hann hljóti verðlaunin fyrir
„áhrifamikil verk sem kanni landa-
mæri og sérstæður mannlegrar
upplifunar með frumlegu tungu-
taki“. Malm upplýsti að búið væri
að láta báða verðlaunahafa vita.
Tokarczuk er aktívisti og afar
gagnrýnin á stjórnvöld í heima-
landi sínu þar sem hún er metsölu-
höfundur. Það kom henni á alþjóð-
lega bókmenntakortið þegar hún
vann í fyrra alþjóðlegu Booker-
verðlaunin fyrir skáldsöguna
Bieguni, sem nefnist Flights í
enskri þýðingu.
Handke, sem jöfnum höndum
hefur skrifað prósa og leikrit síð-
ustu hálfa öldina, er mun umdeild-
ari höfundur, ekki síst fyrir af-
stöðu sína til átakanna á
Balkanskaganum. Hann flutti ræðu
við útför Slobodans Miloševic og
hefur farið gagnrýnum orðum um
stríðsglæpadómstóllinn í Haag.
Tvær skáldsögur hafa komið út á
íslensku eftir Handke, þ.e. Kaspar
og Barnasaga. Árið 2014 kallaði
Handke eftir því að Nóbels-
verðlaunin í bókmenntum yrðu
lögð niður og sagði verðlaunin
veita sigurvegaranum „falska dýr-
lingaupphefð“.
15 konan af 116 höfundum
Valið á Togarczuk og Handke
sem verðlaunahöfum kemur aðeins
örfáum dögum eftir að Sænska
akademían hét því að auka fjöl-
breytileikann og fjölga konum í
hópi verðlaunahafa sem og höf-
undum utan Evrópu. Tokarczuk er
15. konan af þeim 116 höfundum
sem hlotið hafa Nóbelsverðlaunin í
bókmenntum frá því þau voru fyrst
veitt árið 1906. Tokarczuk og
Handke fá hvort um sig níu millj-
ónir sænskra króna, eða því sem
nemur um 115 milljónum íslenskra
króna.
AFP
Höfundar Verðlaunahafarnir Olga Tokarczuk og Peter Handke.
Togarczuk og Handke
hljóta Nóbelsverðlaun
Tilkynnt um tvo Nóbelsverðlaunahafa
í bókmenntum eftir hneyksli síðasta árs
AFP
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
skotbómulyftara
AG línan frá Manitou býður meðal
annars upp á nýtt ökumannshús
með góðu aðgengi og útsýni.
HANNAÐUR TIL AÐ
VINNA VERKIN
NÝ KYNSLÓÐ
• DSB stjórntakkar
• JSM stýripinni í fjaðrandi armi
• Stýrð stjórnun og hraði á
öllum glussahreyfingum
• Virk dempun á bómu
SMARTLAND