Morgunblaðið - 31.10.2019, Side 2

Morgunblaðið - 31.10.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. 595 1000 Tenerife Castle Harbour aaa ÚTSALA HAUST 2 fyrir 1 2 fyrir 1 13. NÓVEMBER 7 NÆTUR Verð frá kr. 84.945 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. það gríðarleg áhrif á annað lífríki í kringum okkur og því er mikilvægt að leggja aukna áherslu á rannsókn- ir og vöktun á loðnu. Við teljum að ný aflaregla og sú aðferðafræði sem tekin var upp við mat á stofninum samhliða henni hafi ekki gefið rétta mynd af loðnustofn- inum. Þess vegna er nefnd að störf- um við að endurskoða forsendur aflareglunnar og í því starfi taka þátt fulltrúar stjórnvalda, Hafrannsóknastofnunar og út- gerðarinnar,“ segir Gunnþór. Loðnan mæld eftir áramót Gögn um niðurstöður ungloðnu- mælinganna verða lögð fyrir Al- þjóðahafrannsóknaráðið (ICES), sem mun veita ráð um upphafsafla- mark vertíðarinnar 29. nóvember. Hafrannsóknastofnun mun að venju mæla veiðistofn loðnu í janúar/febr- úar 2020 og endurskoða ráðgjöfina í ljósi þeirra mælinga. verið í gangi síðustu ár. Stóra höggið fyrir útgerðir uppsjávarskipa og þjóðarbúið allt hafi komið síðasta vetur þegar engar loðnuveiðar voru leyfðar. Hann segist enn vona að loðna finnist og að hún skili sér upp að landinu til að hrygna á hefð- bundnum stöðum eins og áður, loðn- an hafi einfaldlega haldið sig á öðr- um stöðum en leitaskipin. Alvarlegar afleiðingar Væntingar hafi þó verið minni nú en áður eftir lélega mælingu á ung- loðnu fyrir ári. Þegar loðna falli út af markaði í tvö ár geti það haft mjög alvarlegar afleiðingar til lengri tíma á mikilvægustu markaði. „Þetta eykur áhyggjur af stöðu loðnunnar en minnir okkur um leið á það sem talað var um þegar ný afla- regla var tekin upp, að það þyrfti að stórauka fjármagn sem sett er í loðnurannsóknir. Ef við trúum því að loðnan sé að hverfa frá Íslandi hefur Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Að óbreyttu er ekki útlit fyrir loðnu- vertíð í vetur og yrði það þá annað árið í röð sem engar loðnuveiðar yrðu stundaðar við landið. Mælingar á loðnu nú í haust voru langt undir viðmiðunarmörkum, en hins vegar mældist talsvert af ungloðnu, sem gæti gefið von um loðnuvertíð í árs- byrjun 2021. Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunn- ar í Neskaupstað, metur að 150 þús- und tonna loðnuafli, sem er ekki stór vertíð í sögulegu samhengi, gæti gef- ið um 20 milljarða króna í útflutn- ingsverðmæti inn á mikilvægustu markaði fyrir loðnu og loðnuhrogn. Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Hafrannsóknastofn- unar, segir að niðurstöður loðnu- mælinga í haust hafi verið þær léleg- ustu frá því að byrjað var að mæla loðnu á þessum árstíma árið 2010. Hann segir ljóst að framleiðslugeta loðnustofnsins hafi verið skert í nokkuð langan tíma. Það sjáist vel með því að bera saman veiðar á 20 ára tímabili fyrir aldamót þegar meðalafli var rúmlega 900 þúsund tonn á ári, en síðustu 15 ár hafi meðalaflinn verið rétt rúmlega 300 þúsund tonn. Þorsteinn segir að ungloðnumæl- ing hafi hins vegar verið sú hæsta frá 2010 og það gefi vonir um vertíð eftir rúmt ár, en spurning sé um afföll og hvernig ungviðinu reiði af. Veiðistofn 186 þúsund tonn Í niðurstöðunum kemur fram að heildarmagn loðnu mældist 795 þús- und tonn. Þar af var metin stærð veiðistofns vertíðarinnar 2019/2020 einungis um 186 þúsund tonn. Tölu- vert var hins vegar um ungloðnu og mældust tæplega 83 milljarðar, eða 608 þúsund tonn, af ókynþroska loðnu en samkvæmt aflareglu þarf yfir 50 milljarða til að mælt verði með upphafsaflamarki fiskveiðiárs- ins 2020/2021. Gildandi aflaregla byggir á því að skilja eftir 150 þúsund tonn til hrygningar í mars 2020 með 95% líkum. Tekur aflareglan tillit til óvissumats útreikninganna, vaxtar og náttúrulegrar dánartölu loðnu, auk afráns þorsks, ýsu og ufsa á loðnu. Í samræmi við aflaregluna ráðleggur Hafrannsóknastofnun að ekki verði leyfðar loðnuveiðar á ver- tíðinni 2019/2020. Gunnþór segir að léleg mæling á loðnu að hausti sé þróun sem hafi Morgunblaðið/Sigurður Bogi Rannsóknir Útlit er fyrir að ekki verði loðnuveiðar í vetur, annað árið í röð. Engar loðnuveiðar ráðlagðar í vetur  Lélegasta loðnumæling í áratug  Ungloðna lofar góðu Loðnuleit og útbreiðsla loðnu Haustið 2019 <10 10-50 50-100 100-500 500-1.000 1.000-1.500 >1.500 Útbreiðsla loðnu í sept.-okt. 2019 Þéttleiki (t/sjm2) Leiðangurs- línur Bjarna Sæmunds- sonar, Árna Friðrikssonar og EROS í sept. 2019 Í S L A N D G RÆ N L A N D Heimild: Hafrannsókna- stofnun Ragnhildur Þrastardóttir Sigurður Bogi Sævarsson Vinnustöðvanir hefjast á stærstu fréttamiðlum landsins á föstudag í næstu viku. Undir kvöld í gær lágu fyrir niðurstöður talningar í at- kvæðagreiðslu meðal félagsmanna í Blaðamannafélagi Íslands sem fram fóru fyrr á deginum. Alls greiddu 109 eða 86,5% þeirra sem afstöðu tóku atkvæði með vinnustöðvun en 17 voru á móti, eða 13,5%. Kjörsókn var 62,1% en á kjörskrá voru 211 blaðamenn. Auð og ógild atkvæði voru fimm. Vinnustöðvanirnar ná til blaða-, frétta- og myndatökumanna á Morg- unblaðinu og mbl.is, Ríkisútvapinu, Sýn, sem rekur fréttastofu Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar, og Torgi, útgáfufélagi Fréttablaðsins. Greidd voru atkvæði um fjórar vinnustöðvanir í nóvembermánuði og er sú fyrsta fyrirhuguð föstu- daginn 8. nóvember. Semjist ekki verður vinnustöðvun aftur 15. nóv- ember og þá í átta stundir og tólf 22. nóvember. Aðgerðir ná eingöngu til netmiðla og ljósmyndara og töku- manna í fyrstu þremur skiptunum og lengist um fjórar klukkustundir í hvert sinn. „Þetta gefur okkur byr undir báða vængi og sýnir bæði hve mikil samstaða er í stéttinni og mikil óánægja með kjörin,“ segir Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamanna- félags Íslands, um niðurstöðuna. Að- spurður hvort verkföllin hafi áhrif segir Hjálmar svo ekki, miðað við gang viðræðna til þessa. Vonandi sjái viðsemjendur þó að sér. „Skynsamt fólk leitar ekki að vandræðum heldur reynir að leysa þau,“ segir Hjálmar sem kveðst ánægður með hve afdráttarlausan stuðning við verkfallsaðgerðir fé- lagsmenn sýndu. Blaðamenn á leiðinni í verkfall  Netmiðlar stöðvaðir 8. nóvember Morgunblaðið/Hari Kjörnefnd Frá talningu atkvæða í gær. Niðurstaða var afdráttarlaus. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ásgeir Karlsson, deildarstjóri greiningardeildar ríkislögreglu- stjóra, hefur ritað Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráð- herra bréf þar sem hann lýsir yfir áhyggjum af framtíð embættisins. Ráðherra hefur sagt að breyting- ar á skipulagi lögreglu, þar með tal- ið hjá ríkislögreglustjóra, séu í skoðun. Ásgeir vildi aðspurður ekki ræða málið. Fyrst myndi hann vilja ræða persónulega við ráðherrann. Morgunblaðið hefur bréfið undir höndum en það var líka sent á alla starfsmenn embættisins. Íþyngjandi fyrir starfsmenn „Ég skrifa þér fyrir hönd yfir- manna hjá embætti ríkislögreglu- stjóra. Tilefnið er vaxandi uggur í röðum starfsmanna embættisins vegna þeirrar óvissu sem ríkir um framtíð þess og umræðu á opinber- um vettvangi. Að höfðu samráði við aðra deildarstjóra embættisins þyk- ir mér rétt að upplýsa þig um að nú- verandi staða er íþyngjandi fyrir starfsmenn og við teljum mikilvægt að miðlað verði svo fljótt sem auðið er upplýsingum til þeirra í þeim til- gangi að slá á vaxandi áhyggjur og kvíða í þeirra röðum. Skortur á upp- lýsingum veldur því að stjórnendur geta ekki svarað spurningum starfs- manna um stöðu mála og hvers megi vænta. Sögusagnir og getgát- ur um framtíð embættisins og ein- stakra deilda auka enn á vanlíðan starfsfólks,“ skrifaði Ásgeir. Við embætti ríkislögreglustjóra starfi um 140 manns. „Þeir starfs- menn sem ekki eru lögreglumenn eru ekki síst uggandi um stöðu sína enda eru réttindi þeirra önnur og minni. Ástæða er til að hafa áhyggj- ur af áhrifum þessarar óvæntu at- burðarásar. Starfsmenn eru undrandi á því að ekki sé haft við þá samráð um framtíð embættisins.“ Mannauður geti tapast „Enginn efi er á að mannauður stofnunarinnar er mikill og metn- aður í röðum starfsfólks til að leysa þau verkefni vel af hendi sem það hefur hlotið menntun og þjálfun til. Aðstæður starfsmanna eru ólíkar og við teljum að viðvarandi óvissa geti orðið til þess að dýrmæt þekking og reynsla tapist,“ skrifaði Ásgeir sem kallaði eftir svörum ráðherra. Dómsmálaráðherra vildi ekki tjá sig um efni tölvupóstsins þegar eftir því var leitað í gær. Ráðherra eyði óvissunni  Yfirmaður greiningardeildar ríkislögreglustjóra ritar dómsmálaráðherra bréf  Óvissa um embættið slæm  Ritaði bréfið fyrir hönd yfirmanna hjá embættinu Þrír karlmenn sitja í gæslu- varðhaldi vegna gruns um innflutning á kókaíni og nokkrum lítr- um af amfeta- mínvökva. Einn þeirra er sagður starfs- maður á Keflavíkurflugvelli og hinir tveir eru fyrrverandi starfs- menn. Lögreglan á Suðurnesjum handtók mennina. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær var haft eftir rannsóknarlögreglumanni hjá lög- reglunni á Suðurnesjum að rann- sókn málsins miðaði vel. Mennirnir voru handteknir 23. október. Þeir eru sagðir fæddir árin 1991 og 1992. Hald var lagt á efnin í heimahúsi. Starfsmaður flug- vallarins í haldi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.