Morgunblaðið - 31.10.2019, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019
SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS
KÓÐI í VEFVERSLUN
“HREKKUR”
Hrekkjavökutilboð
30%
AFÖLLUMVÖRUM
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Ólafur Karl Nielsen, vistfræðingur
hjá Náttúrufræðistofnun Íslands,
sem m.a. annast vöktun rjúpna-
stofnsins og rannsóknir á vistfræði
hans og veiðiþoli, hefur aldurs-
greint 3.356 rjúpur frá veiðitím-
anum í fyrra. Hann gerir ráð fyrir
að fá fáeina fugla til viðbótar en
það á ekki að hafa teljandi áhrif á
niðurstöðuna sem sést í meðfylgj-
andi töflu.
Ólafur sagði í tölvupósti til
rjúpnavina að víðast hvar hefði ver-
ið lágt hlutfall unga. Ástandið var
þó hvað skást á Norðausturlandi og
Austurlandi. Hann ætlar áfram að
safna rjúpnavængjum til aldurs-
greiningar. Ólafur biður veiðimenn
að hirða annan vænginn af veiddum
rjúpum og senda til sín á Náttúru-
fræðistofnun Íslands. Með vængj-
unum þurfa að fylgja upplýsingar
um veiðistað og veiðimann. Gögnin
verða notuð við útreikning á stofn-
stærð og afföllum rjúpunnar.
Vantar þingeyskar rjúpur
Rannsóknir á heilbrigði rjúp-
unnar og tengslum heilbrigðis
fuglanna og stofnbreytinga stóðu
yfir í Þingeyjarsýslum frá 2006 til
2018. Þótt rannsókninni sé lokið
ætlar Ólafur að halda áfram að
meta holdafar fuglanna og verður
það hluti af árlegri vöktun rjúpna-
stofnsins. Rannsóknir á heilbrigði
rjúpunnar hafa sýnt skýr tengsl
heilbrigðis og sofnbreytinga.
Holdafar fuglanna sýnir marktæk
tengsl við stofnbreytingar og
vetrarafföll. Ólafur höfðar því til
þeirra sem veiða rjúpur í Þingeyj-
arsýslum og biður um að fá aðgang
að um 100 til 150 fuglum til að gera
á þeim einfaldar mælingar. Til að
byrja með ætlar hann að leita til
sunnanmanna sem fara norður til
veiða.
„Ætlun mín er að fá fuglana til
mín á Náttúrufræðistofnun í Garða-
bæ og mæla þá þar. Fuglarnir
þurfa að vera þíðir. Það sem ég
geri við þá er að taka þrjú stærð-
armál (hauslengd, vænglengd og
ristarlengd) og vigta þá. Fyrir vigt-
un þreifa ég sarp og ef fæða er í
sarpi þá fjarlægi ég hana með ca. 1
sm löngum skurði í gegnum húð á
hálsi og tæmi síðan sarpinn með te-
skeið. Fuglarnir verða geymdir í
kæli meðan þeir eru á
Náttúrufræðistofnun og að mæl-
ingu lokinni komið til síns heima,“
skrifaði Ólafur til rjúpnavina.
Þeir sem vilja taka þátt í þessu
verkefni eru beðnir að hafa sam-
band í tölvupóstfangið okn@ni.is.
Aldurshlutföll lesin úr
vængjum veiddra rjúpna
Náttúrufræðistofnun óskar eftir aðstoð veiðimanna
Heimild: Náttúrufræðistofnun Íslands
Landshluti Fullorðnir Ungfuglar Samtals
% ung-
fugla
Ungar á
kvenfugl
Vesturland 216 499 715 70% 4,6
Vestfi rðir 176 313 489 64% 3,6
Norðvesturland 131 292 423 69% 4,5
Norðausturland 196 585 781 75% 6,0
Austurland 125 348 473 74% 5,6
Suðurland 173 302 475 64% 3,5
Samtals 1.017 2.339 3.356 70% 4,6
Aldursgreining veiddra rjúpna 2018
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Einstaklingur sem tók 25 milljóna
kr. lán í danskri mynt í Landsbank-
anum árið 2007 var sýknaður af
kröfu bankans um endurgreiðslu
lánsins í Héraðsdómi Reykjavíkur
á mánudaginn. Landsbankinn
krafði lántakann um 36,3 milljónir
króna sem voru eftirstöðvar af höf-
uðstól lánsins. Fyrningarfrestur
kröfu Landsbankans var hins vegar
16. júní 2018 en bankinn stefndi
ekki lántakanum fyrr en 1. nóv-
ember 2018. Krafa bankans um
endurgreiðslu lánsins var því fyrnd
og var lántakinn sýknaður. Í dómn-
um kemur fram að tilefni lánsins
hafi verið kaup á hlutafé í Færeyja-
banka (nú Bank Nordik). Lands-
banki Íslands hafði auglýst hlutafé
í Færeyjabanka til sölu í tengslum
við skráningu síðarnefnda bankans
á hlutafjármarkað. Landsbankinn
veitti því einstaklingi, sem er ekki
nafngreindur í dómnum, 100% lán
til kaupa á bréfunum árið 2007.
Hlutabréfin voru sett að hand-
veði til tryggingar endurgreiðslu
lánsins. Í ágúst 2008 var hluti
hinna veðsettu bréfa í Færeyja-
banka seldur og keypti lántakinn
bréf í Landsbankanum í staðinn. Í
september 2008 óskaði síðan lán-
takinn eftir því að Landsbanka-
bréfin yrðu seld og í þeirra stað
keypt aftur bréf í Færeyjabanka.
Landsbankinn hafnaði hins vegar
að selja bréfin án skýringa.
Greiðsluseðill sendur árið
2011
Hinn 9. október hins vegar tók
Fjármálaeftirlitið þá ákvörðun að
ráðstafa eignum og skuldum
Landsbankans til Nýja Lands-
banka Íslands (síðar NBI hf. og
Landsbankinn hf.) Lánið var end-
urreiknað árið 2011 og var lántak-
anum sendur greiðsluseðill með
gjalddaga 18. maí 2011 þar sem
hann var krafinn um greiðslu af
eftirstöðum höfuðstóls að fjárhæð
36,3 milljónir króna.
Í niðurstöðu héraðsdóms kemur
fram að neitun bankans að selja
bréfin í bankanum hafði þær afleið-
ingar fyrir lántakann að hlutabréf-
in urðu nær verðlaus í efnahags-
hruninu. Landsbankinn skýrði ekki
frá þeirri höfnun fyrr en í október
2009. Sem fyrr segir var fyrningar-
fresturinn liðinn og var lántakinn
því sýknaður af kröfu bankans.
Bankanum var einnig gert að
greiða lántakanum 1,6 milljónir kr.
í málskostnað.
Tugmilljóna krafa Landsbankans fyrnd
Landsbankinn krafðist endurgreiðslu á 25 milljóna kr. láni í danskri mynt frá árinu 2007 Lánsféð
notað til að kaupa hlutafé í Færeyjabanka og síðar í Landsbankanum Lántakanum stefnt 1. nóv. 2018
Morgunblaðið/Kristinn
Landsbankinn Krafa bankans um
endurgreiðslu láns var fyrnd.
„Fjölbreytni er styrkur samfélags-
ins í Snæfellsbæ,“ segir Guðni Th.
Jóhannesson, forseti Íslands. Þau
Guðni og Eliza Reid kona hans voru
í gær í opinberri heimsókn í Snæ-
fellsbæ; litu þar inn í leik- og
grunnskóla og á dvalarheimilinu
Jaðri. Þau kynntu sér einnig starf-
semi sjávarútvegsfyrirtæksins
Valafells og KG fiskverkunar á
Hellissandi. „Það er áhugavert að
sjá hve fiskvinnslustöðvarnar eru
orðnar háþróaðar með tækibúnaði
sem er framleiddur á Íslandi. Slíkt
vekur með manni heilbrigt þjóðar-
stolt,“ sagði Guðni Th. Jóhann-
esson. Forsetahjónin sóttu einnig
málstofu um áskoranir og tækifæri
í ferðaþjónustunni sem er orðin
stór þáttur í atvinnulífi á svæðinu.
Í dag, fimmtudag, heimsækja for-
setahjónin Grundarfjörð; kynna sér
þar mannlíf og staðhætti og heilsa
upp á fólk. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Forseta-
hjónin í
Snæfellsbæ
Heimsókn Í KG-fiskverkun á Rifi í gær. Frá vinstri: Fannar og Daði Kristjánssynir, Guðni Th. Jóhannesson, Eliza Reid og Hjálmar Kristjánsson forstjóri.
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í
gær Borgarleikhúsið og Kristínu
Eysteinsdóttur leikhússtjóra til
þess að greiða leikaranum Atla
Rafni Sigurðarsyni 5,5 milljónir
króna í bætur vegna uppsagnar
hans frá leikhúsinu í desember
2017. Er stefndu auk þess gert að
greiða Atla Rafni eina milljón
króna í málskostnað.
Segir meðal annars í dómi Hér-
aðsdóms að stefndu hefði mátt vera
ljóst að ákvörðun þeirra um að
víkja stefnanda frá störfum og
fresta frumsýn-
ingu leikverks
með tilkynningu
í fjölmiðlum væri
til þess fallin að
vera meiðandi
fyrir stefnanda,
sem væri þekkt
persóna og hefði
átt farsælan leik-
feril. Hefðu
stefndu þar með
vegið að æru og persónu Atla
Rafns.
Gert að greiða Atla 5,5 milljónir í bætur
Atli Rafn
Sigurðarson