Morgunblaðið - 31.10.2019, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019
NÝJ
UNG
!
Öruggar þvaglekavörur
Extra
rakadræg
100%
Lyktarvörn
Passa
frábærlega
Hlæðu, hoppaðu,
hóstaðu og hnerraðu
áhyggjulaus!
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Árið í ár hefur verið gjöfult fyrir Íslendinga í
Hollywood. Tvær konur hafa haldið uppi
merki þjóðarinnar og gert það með miklum
sóma. Nýstirnið Hildur Guðnadóttir er á
hvers manns vörum en hún samdi tónlistina í
kvikmyndinni Joker. Förðunarmeistarinn
Heba Þórisdóttir var titluð yfirmaður förð-
unardeildar í tveimur stórum myndum í ár
og geri aðrir betur. Hún hélt vitaskuld áfram
gjöfulu samstarfi sínu við Quentin Tarantino
í nýjustu mynd leikstjórans en tók auk þess
að sér ofurhetjumyndina Captain Marvel.
Heba hefur hin síðustu ár unnið talsvert í of-
urhetjumyndum og þá gjarnan séð sér-
staklega um förðun ákveðinna stórstjarna.
Misstór hlutverk á ferilskránum
Þegar horft er yfir sviðið og framlag Ís-
lendinga í kvikmyndum í Hollywood síðasta
áratuginn eða svo er skoðað kemur margt
forvitnilegt í ljós. Leikstjórinn Baltasar Kor-
mákur hefur til að mynda farið mikinn og
stýrt myndum sem fengið hafa góðar við-
tökur. Auk þeirra Hildar og Hebu má einnig
nefna Jóhann heitinn Jóhannsson sem getið
hafði sér gott orð í bransanum. Og svo eru
það leikararnir og leikkonurnar en ófáir Ís-
lendingar hafa nælt sér í hlutverk í drauma-
verksmiðjunni á liðnum árum.
Þeir Ólafur Darri Ólafsson og Ingvar E.
Sigurðsson hafa leikið í nokkrum stórum
myndum þó hlutverkin hafi ekki alltaf verið
stór. Hera Hilmarsdóttir virðist vera á góðri
siglingu í Hollywood og þannig mætti áfram
telja. Jóhannes Haukur bætir sífellt við feril-
skrána og greinir raunar frá ferðum sínum
samviskusamlega á samfélagsmiðlum. Svo
eru það þau sem voru í fyrstu bylgjunni.
Anita Briem lék í Ferðinni að miðju jarðar
fyrir rúmum áratug og Gísli Örn Garðarsson
vakti mikla athygli sem vondi karlinn í Prins-
inum af Persíu.
Ótrúlegar tölur
Þegar ferilskrá Íslendinga í Hollywood á
liðnum áratug er skoðuð kemur margt for-
vitnilegt í ljós. Sérstaklega er áhugavert að
sjá hversu miklar tekjur þær kvikmyndir
sem okkar fólk hefur komið að hafa tekið
inn. Þó að hlutverkin séu misstór þá telur
þetta nú allt, í það minnsta í þessari sam-
antekt sem gerð er til gamans, og tölurnar
tala sínu máli. Íslendingar hafa, sé þessi listi
tæmandi, komið að kvikmyndum sem skilað
hafa eitt þúsund þrjú hundruð fjörutíu og
einum milljarði króna. Ríflega 1,3 billjónum
króna.
Ólafur Darri
Ólafsson
Samfara velgengni
Baltasars Kor-
máks hefur Ólafur
Darri byggt upp
farsælan feril. Þó
hlutverkin hafi ver-
ið misstór hefur
hann samt sem
áður leikið í níu
stórum myndum
á liðnum áratug.
Sumar þeirra
teljast meira að
segja risastórar.
Og meðfram því
í nokkrum minni
auk hlutverka í
sjónvarpi.
294 ma.kr.
Ingvar E.
Sigurðsson
Einhvern tímann
var sagt að það
væri ekki gerð
kvikmynd á Íslandi
án þess að Ingvar
léki í henni. Hann
hefur passað sig
á að vanda valið á
erlendum markaði
og hefur tekist
vel upp. Tvær
stórmyndir sem
hann lék í á liðnum
áratug nutu fá-
dæma vinsælda í
kvikmyndahúsum.
163 ma.kr.
Hildur
Guðnadóttir
Hefur tekið við
kefl inu af Jóhanni
Jóhannssyni,
samstarfsmanni
sínum, sem okkar
kunnasta tónskáld
í kvikmyndaheim-
inum. Tónlist
hennar í stór-
myndinni Joker
hefur hlotið mikið
lof og myndin
stefnir í að verða
ein sú stærsta á
árinu.
116 ma.kr.
Jóhannes
Haukur
Jóhannesson
Rétt eins og
Ólafur Darri
hefur Jóhannes
Haukur byggt sér
ágætan feril úti í
heimi. Hann sést
kannski ekki á
plakötunum eða í
stiklunum en hann
sér afraksturinn af
fi mm bíómyndum
á bankabókinni.
72 ma.kr.
Heba
Þórisdóttir
Það er ekkert
smáhlutverk að
vera förðunar-
meistarinn í kvik-
myndum Quentins
Tarantino. Fjórar
myndir á liðnum
áratug hafa
gert Hebu að
lykilmanneskju í
Hollywood.
386 ma.kr.
Hera
Hilmarsdóttir
Hefur leikið í
fjölbreyttum
myndum á liðnum
árum. Fimm þeirra
hafa skilað vel í
kassann og Hera
á nóg eftir, rétt
þrítug.
50 ma.kr.
Gísli Örn
Garðarsson
Leikarinn og
leikstjórinn
Gísli Örn þarf
ekki nema eina
Hollywoodmynd
til að komast á
listann, Prinsinn af
Persíu.
42 ma.kr.
Anita Briem
Hefur látið lítið
fyrir sér fara
síðustu ár og stóra
mynd hennar kom
raunar út fyrir
réttum áratug. En
Ferðin að miðju
jarðar var ekkert
smá dæmi.
31 ma.kr.
Baltasar
Kormákur
Hefur leikstýrt
sex kvikmyndum
á liðnum áratug.
Alls hafa myndir
Baltasars tekið
inn rífl ega 800
milljónir dollara.
103 ma.kr.
Sigurjón
Sighvatsson
Framleiddi
kvikmyndina Z
is for Zachariah
ásamt Skúla Fr.
Malmquist og Þóri
Snæ Sigurjónssyni
hjá ZikZak.
15 ma.kr.
Jóhann
Jóhannsson
Samdi tónlist fyrir
átta kvikmyndir
áður en hann lést
í fyrra. Sú stærsta
var Arrival.
69 ma.kr.
Íslendingar í Hollywood
Framlag Íslendinga til kvikmynda í
Hollywood síðasta áratuginn er athyglis-
vert. Þjóðin getur státað af frambærilegum
leikstjóra, förðunarmeistara, tónskáldum,
framleiðendum og auðvitað leikkonum og
leikurum. Þegar rýnt er í þær myndir sem
Íslendingar hafa komið nálægt á þessum
áratug kemur í ljós hversu ótrúlegir
peningar eru þar að baki. Þó hér sé aðeins
stiklað á stóru er ljóst að umræddar
myndir hafa tekið inn vel yfi r þrettán
hundruð milljarða íslenskra króna.
Þrettán hundruð milljarðar króna
Hildur Guðnadóttir og Heba Þórisdóttir í stórum hlutverkum við gerð stórmynda í Hollywood í ár
Íslendingar komu að gerð fjölda mynda vestanhafs síðasta áratug sem tóku inn háar fjárhæðir
Svokölluð hrekkjavaka fer fram í kvöld, en hátíðarhöld í
tengslum við hana hafa verið að sækja í sig veðrið á Íslandi.
„Það hefur borið meira og meira á þessari vetrarhátíð í þessu
formi hrekkjavökunnar undanfarinn áratug eða tvo. Vissulega
eru þarna erlend áhrif á ferðinni; hér á fyrri öldum hefur þessi
vetrarhátíð verið kölluð vetrarnætur eða veturnætur. Þá voru
haldin haustblót og fólk kom saman. Algengt var að hafa brúð-
kaup á þessum tíma,“segir Kristinn Helgi Magnússon Schram,
dósent í þjóðfræði við Háskóla Íslands.
Hann segir hrekkjavökuna eiga rætur sínar að rekja til kelt-
neskra þjóða sem fluttu hátíðina með sér til Bandaríkjanna. Í
Íslendingasögum kemur að sögn Kristins víða fram að haldin
hafi verið vetrarnáttablót. Hann segir að bandarísk og ensk
áhrif hafi undirbúið jarðveginn hér heima fyrir núverandi vin-
sældir hátíðarinnar í gegnum menningarefni, s.s. sjónvarp og
kvikmyndir. „Það er þar sem við kynnumst hrekkjavökunni
vestra. Svo nýta kaupmenn sér þetta af miklum áhuga.“ Á árum
áður friðaði fólk vættina með matargjöfum á þessum tíma og
segir Kristinn mögulegt að þaðan gæti siðurinn um að ganga
milli húsa og sníkja sælgæti átt uppruna sinn. mhj@mbl.is
Hrekkjavakan aldagömul hefð
Sjónvarp og kvikmyndir undirbúið jarðveginn fyrir hátíðina
hérlendis Vættir friðaðir á árum áður með matargjöfum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hrekkjavaka Gestir Partýbúðarinnar máta grímur.