Morgunblaðið - 31.10.2019, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019
Athygli vekur að vextir Seðla-bankans hafa verið lækkaðir
það mikið að nú heyrast jafnvel þær
raddir að frekari
lækkun muni ekki
skila sér sem mót-
vægi við samdrátt í
atvinnulífinu. Aðrir
telja að enn sé svig-
rúm til að hafa já-
kvæð áhrif með
lækkun vaxta. Þá hefur Seðlabank-
inn kynnt aðrar aðgerðir til að ná
sama markmiði sem líklegt er að
fari að skila árangri.
Samtök iðnaðarins telja vaxta-lækkanir Seðlabankans hafa
verið mikilvægar og með réttum að-
gerðum í hagstjórn megi breyta
efnahagshorfum umtalsvert til batn-
aðar. Þó að deilt sé um vaxtalækk-
anir er varla deilt um hitt, að sam-
dráttur mælist nú á mörgum sviðum
atvinnulífsins, eins og Samtök iðn-
aðarins benda á.
Þau segja einnig: „Atvinnuleysihefur aukist og launþegum
fækkað í öllum helstu greinum hins
almenna vinnumarkaðar. Hægt hef-
ur á hagvexti í mörgum af helstu
viðskiptalöndunum og efnahags-
horfur þar dökknað. Hefur þetta
dregið úr væntingum um vöxt
gjaldeyristekna og hagvöxt íslenska
þjóðarbúsins. Samhliða vaxta-
ákvörðuninni nú mun Seðlabankinn
birta nýja þjóðhags- og verðbólgu-
spá. Reikna má með því að versn-
andi efnahagshorfur endurspeglist í
spá bankans nú.“
Þetta er mikið áhyggjuefni og viðþví þarf að bregðast með öllum
ráðum. Bent hefur verið á banka-
skattinn, því að afnám hans gæti
aukið útlánavilja bankanna. En vita-
skuld geta aðrar skattalækkanir
ekki síður stutt við atvinnulífið og til
þess er nauðsynlegt að horfa. Ekki
dugar að treysta eingöngu á aðgerð-
ir Seðlabankans í þessum efnum.
Atvinnulífið þarf
frekari aðgerðir
STAKSTEINAR
Fæðingum á Landspítalanum á
tímabilinu janúar til september í ár
fjölgaði um 4,8% miðað við sömu
mánuði í fyrra. Þetta kemur fram í
skýslu um starfsemi sjúkrahússins í
septembermánuði síðastliðnum, þar
sem reksturinn er greindur út frá
ýmsum viðmiðum.
Alls fæddust 2.466 börn á Land-
spítalanum á umræddu tímabili í ár
en 2.317 árið 2018. Tvíburafæðingar
á sjúkrahúsinu á fyrstu níu mánuð-
um líðandi árs voru 52 en 38 þegar
sama tímaskeið á síðasta ári er haft
sem viðmið.
„Skýringarnar á þessari fjölgun
geta verið tvíþættar,“ segir Hulda
Hjartadóttir, yfirlæknir fæðingar-
deildar Landspítalans, í samtali við
Morgunblaðið. „Annars vegar að
fæðningartíðni sé meiri og hins veg-
ar að fleiri konur velji að fæða á
Landspítalanum fremur en á sjúkra-
húsum úti á landi. Hver skýringin
nákvæmlega er sjáum við ekki fyrr
en árið allt er gert upp.“
Rétt er að minna á að alltaf er tals-
verð sveifla frá ári til árs í fjölda fæð-
inga. Athygli vakti til dæmis að fyrst
eftir efnahagshrunið fyrir rúmum
áratug var barnalán meðal landans
því 2009 fæddust 5.026 börn á Ís-
landi en í fyrra, árið 2018, 4.428.
Munurinn þarna er 16%. sbs@mbl.is
Fæðingum á Landspítala fjölgar
2.466 börn á fyrstu níu mánuðum líð-
andi árs Alltaf er sveifla á milli ára
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Nýburi Framtíðin bíður barnsins.
Sambönd og félög iðnaðarmanna
innan Alþýðusambands Íslands hafa
að undanförnu átt í viðræðum við
orkufyrirtæki og stóriðjufyrirtæki
um endurnýjun kjarasamninga.
Meiri hreyfing hefur komist á kjara-
viðræðurnar að undanförnu, sem
eru sagðar farnar að skila meiri og
sýnilegri árangri en áður og hafa
Rafiðnaðarsambandið, Samiðn og
VM þegar gengið frá kjarasamningi
við HS Orku vegna starfsmanna hjá
því fyrirtæki. Hafa þeir þegar sam-
þykkt nýgerða samninga sem byggj-
ast á lífskjarasamningunum og
samningum sem iðnaðarmenn hafa
gengið frá í sumar. Iðnaðarmanna-
samböndin hafa verið samstiga í við-
ræðum við orkufyrirtæki að undan-
förnu.
,,Þetta er eini samningurinn með-
al orkufyrirtækjanna sem er kominn
í höfn en við erum ennþá á fullu í við-
ræðum við Landsvirkjun, RARIK,
Landsnet og Orkuveituna,“ segir
Kristján Þórður Snæbjarnarson,
formaður Rafiðnaðarsambandsins.
Iðnaðarmenn eiga einnig ólokið
samningum við ríkið og Reykjavík-
urborg, gengið hefur hægar í þeim
viðræðum. Boðað er til fundar raf-
iðnaðarmanna á föstudag með samn-
inganefnd ríkisins.
Frumvarpstillögur ,,fara mjög
illa í okkar mannskap“
Iðnaðarmenn eru aftur á móti
mjög ósáttir við tillögur stjórnvalda
um breytingar á iðnaðarlögum sem
birtar hafa verið í samráðsgátt
stjórnvalda. ,,Þær eru alls ekki já-
kvæður vinkill inn í okkar stöðu.
Þetta varðar breytingar á lögum til
einföldunar regluverks og eru þar
lagðar til tiltölulega miklar breyt-
ingar á iðnaðarlögunum sem fara
mjög illa í okkar mannskap,“ segir
Kristján.
Í umsögn Rafiðnaðarsambandsins
er m.a. gagnrýnt að iðnaðarlögin
eigi framvegis samkvæmt drög-
unum eingöngu að taka til handiðnar
en ekki verksmiðjuiðnaðar.
Iðnaðarmenn hafa
samið við HS Orku
Gagnrýna tillögur
um lagabreytingar
Morgunblaðið/Eggert
HS Orka Nýlega var skrifað undir
kjarasamning iðnaðarmanna.
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18
fös: 12-16
MARA
GIBUCCI
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/