Morgunblaðið - 31.10.2019, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019
94% ökumanna finnst þeir öruggari með EyeSight tækni
Þú fyllist hugarró þegar þú veist að bíllinn þinn skerst í leik og aðstoðar þig við að koma í veg fyrir árekstur. Varar þig við
þegar aðvífandi ökutæki er á blinda punktinum. Og gerir þér kleift að leggja bílnum áreynslulaust í þröngt stæði með aðstoð
myndavélar sem sýnir nálægð við gangstéttarbrún. EyeSight er staðalbúnaður í öllum Subaru Forester.
www.subaru.is
Komdu til okkar og reynsluaktu nýjum Subaru Forester
Subaru Forester
Gerður til að kanna
ætlaður til að ferðast
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
6
1
4
9
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 /www.bl.is
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
Erla María Markúsdóttir
erla@mbl.is
„Þetta er frekar óraunverulegt
núna. Þetta er búið að taka fimm ár,“
sagði Freyja Haraldsdóttir eftir að
hún hafði betur gegn Barnaverndar-
stofu í Hæstarétti í gær. Dómurinn
komst að þeirri niðurstöðu að Barna-
verndarstofu hefði verið óheimilt að
hafna umsókn Freyju um leyfi til
þess að taka barn í varanlegt fóstur
áður en hún hafði farið í gegnum
matsferli. Fjögur ár eru síðan
Freyja lagði inn umsóknina.
„Þetta er búið að taka alveg rosa-
lega mikið á en þetta er ótrúlega góð
niðurstaða og tryggir að fatlað fólk
skuli ekki vera fordæmt á grundvelli
fötlunar og eigi að fá tækifæri til að
fá sömu málsmeðferð og aðrir,“ segir
Freyja.
Hæstiréttur staðfesti dóm Lands-
réttar frá því í mars sem komst að
þeirri niðurstöðu að Barnaverndar-
stofa hefði mismunað Freyju vegna
fötlunar.
Réttindi fatlaðra viðurkennd
fyrir æðsta dómstól landsins
Sigurður Örn Hilmarsson, lög-
maður Freyju Haraldsdóttur, segir
niðurstöðuna sérstaklega ánægju-
lega. „Bæði fyrir Freyju sem og
hygg ég annað fatlað fólk í landinu að
réttindi þeirra séu viðurkennd fyrir
æðsta dómstól landsins.“
Í dómi Hæstaréttar kemur fram
að Freyja byggði kröfu sína fyrst og
fremst á því að Barnaverndarstofa
hefði ekki rannsakað málið nægilega
vel áður en tekin var ákvörðun um að
synja umsókn hennar. Umsókninni
hefði verið synjað á grundvelli ætl-
aðrar vanhæfni hennar án þess að
gefa henni áður færi á að sækja nám-
skeið sem er haldið á vegum Barna-
verndarstofu ætlað áhugasömum
fósturforeldrum, en umsækjendum
um að taka barn í fóstur er skylt að
sækja slíkt áður en leyfi er veitt til að
gerast varanlegt fósturforeldri.
Næsta skref í máli Freyju er að
sækja umrætt námskeið. „Það er
mjög „scary“ að eiga að fara á nám-
skeið og vera metin af fólki sem er
búið að standa í þremur dómsölum
og tala gegn mér en við þurfum bara
að finna farveg fyrir það. Ég treysti
því að Barnaverndarstofa hafi vit á
að líta í eigin barm og viðurkenna
þessi mistök.“
Treystir að Barnaverndar-
stofa viðurkenni mistökin
Freyja Haraldsdóttir hafði betur gegn Barnaverndarstofu í Hæstarétti
Morgunblaðið/Eggert
Sigur Freyja Haraldsdóttir segir niðurstöðu Hæstaréttar í máli hennar gegn Barnaverndarstofu gefa henni von og
kraft til að berjast áfram fyrir frekari réttindum þar sem fatlað fólk er mjög jaðarsett í samfélaginu.
„Dómurinn er
mjög fordæm-
isgefandi að
því leyti að
hann talar
skýrt um það
þegar Barna-
verndarstofa
metur hvort
einstaklingar
séu hæfir til
að gerast fósturforeldrar, þá
varðar það hagsmunaréttindi
barna. Við fögnum því mjög að
fá skýra afstöðu um það frá
Hæstarétti,“ sagði Heiða Björg
Pálmadóttir, forstjóri Barna-
verndarstofu, í samtali við
mbl.is í gærkvöldi.
Heiða Björg segir jafnframt að
niðurstaðan kalli mögulega á að
núverandi regluverk verði skoð-
að, en allir sem óska eftir því að
taka barn í fóstur þurfa að sitja
strangt námskeið Barnavernd-
arstofu til að uppfylla ákveðin
skilyrði. „Það er spurning hvort
það þurfi að hnykkja á því að
þeir sem augljóslega uppfylla
ekki skilyrðin, að hægt sé að
synja þeim þegar búið er að afla
grunngagna,“ segir Heiða Björg
og bendir á að t.d. einstaklingar
með afbrotaferil eða nýlega
neyslusögu að baki geti ekki
tekið barn í fóstur og segir ekki
eðlilegt að þeir þurfi að sitja
langt námskeið áður en hægt sé
að synja þeim. thorunn@mbl.is
Dómurinn
gefur skýrt
fordæmi
BARNAVERNDARSTOFA
Heiða Björg
Pálmadóttir