Morgunblaðið - 31.10.2019, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019
Kynntu þér málið áwww.iv.is
eða hafðu samband í síma 460-4700
SJÓÐIR OG EIGNASTÝRING
Íslensk verðbréf hf. • Hvannavellir 14, 600 Akureyri • Hlíðasmári 6, 201 Kópavogi
ÓHÁÐ OG FAGLEG EIGNASTÝRING OG SJÓÐIR SÍÐAN 1987.
ÍSLENSKVERÐBRÉF – ÞÍNIR HAGSMUNIR Í EIGNASTÝRINGU.
Íslensk verðbréf er faglegt eignastýringarfyrirtæki
sem fjárfestir með óháðum hætti í verðbréfum fyrir
hönd viðskiptavina sinna.
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Það er óhætt að segja að maður
hafi verið kominn á felguna eftir tón-
leikana á sunnudagskvöld, fjórðu
tónleikana á jafnmörgum dögum,“
segir Sigfús Pétursson, einn Álfta-
gerðisbræðra, sem um þessar mund-
ir eru að kveðja stóra sviðið, eins og
það hefur verið orðað hjá tónleika-
haldara, Dægurflugunni ehf.
Bræðurnir Sigfús, Pétur, Gísli og
Óskar Péturssynir voru ásamt Stef-
áni R. Gíslasyni söngstjóra og
hljómsveit með ferna tónleika um
síðustu helgi. Fyrst voru tvennir
tónleikar haldnir í Miðgarði í Skaga-
firði, á fimmtudags- og föstudags-
kvöldi, og síðan tvennir tónleikar í
Eldborg í Hörpu, á laugardags- og
sunnudagskvöldi. Uppselt var á alla
þessa tónleika og hið sama er að
segja um fimmtu tónleikana sem
verða í Miðgarði annað kvöld.
Samanlagt munu yfir 4.000 manns
koma og hlusta á bræðurna syngja á
þessum fimm tónleikum. Þetta hafa
þeir gert opinberlega í ein 32 ár, eða
síðan þeir sungu yfir föður sínum,
Pétri Sigfússyni, í Víðimýrarkirkju
3. október 1987. Að sögn Sigfúsar
höfðu þeir fyrir þann tíma eitthvað
raulað saman, enda aldir upp á
miklu tónlistarheimili og höfðu áður
verið að syngja með kórum og við
ýmis önnur tækifæri.
Meðalaldur að nálgast 71 ár
Sigfús er bræðranna elstur, orð-
inn 76 ára, og hefur ekki alveg geng-
ið heill til skógar eftir að hafa fengið
heilablóðfall í tvígang. Af þeim sök-
um sat hann á stól á tónleikunum og
segir það ekki það þægilegasta. „Það
er verra að syngja sitjandi, en ég
held að þetta hafi sloppið til. Við er-
um afskaplega þakklátir fyrir þær
hlýju og góðu móttökur sem við
fengum. Það er gott að syngja í
Hörpunni; þó að það sé fullt hús upp
undir rjáfur sjá ljósin til þess að við
sjáum bara fólkið á fremsta bekk.
Fyrir þá sem efst sitja erum við bara
eins og fjögur lítil kríli á sviðinu en
það heyrist vonandi eitthvað í okk-
ur,“ segir Sigfús, léttur að vanda.
Hann segist geta fullyrt að bræð-
urnir muni ekki halda fleiri tónleika
saman, hætta beri leik þá hæst hann
standi. „Þetta er að verða ágætt.
Meðalaldur okkar fer í 71 ár í lok
þessa árs þegar Óskar, sá yngsti,
verður 66 ára. Hann er hins vegar
ekkert að fara að hætta, enda þagn-
ar hann aldrei,“ segir Sigfús og
hlær.
Eftir að hafa ekið beint norður
eftir seinni tónleikana í Hörpu var
Sigfús kominn heim til sín í Varma-
hlíð um hálfþrjú aðfaranótt mánu-
dagsins. Ekki gafst langur hvíldar-
tími því á þriðjudagskvöldið voru
þeir Gísli mættir á æfingu hjá Stef-
áni R. Gíslasyni með kirkjukór
Glaumbæjar- og Víðimýrarsóknar.
Mun kórinn syngja við jarðarför
næsta laugardag, daginn eftir tón-
leika í Miðgarði.
Þó að þeir hafi kvatt stóra sviðið
má reikna með að þeir hafi ekki
sungið sitt allra síðasta saman.
Kominn á felg-
una eftir ferna
tónleika í röð
Ríflega 4.000 manns sjá Álftagerð-
isbræður kveðja stóra söngsviðið
Ljósmynd/Mummi Lú
Eldborg Söngbræður, tónlistarmenn og kynnirinn Atli Gunnar Arnórsson, lengst til hægri, fyrir framan fullan sal
af fólki. Atli, sem er tengdasonur Gísla, fékk salinn til að veltast um af hlátri áður en söngveislan hófst.
Morgunblaðið/Eggert
Bræðurnir Sigfús, Óskar, Pétur og Gísli Péturssynir saman á sviðinu í Eld-
borg, ásamt Stefáni R. Gíslasyni við píanóið, sem hefur fylgt þeim alla tíð.