Morgunblaðið - 31.10.2019, Qupperneq 22
FRÉTTASKÝRING
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Ein umfangsmesta aðgerð rúss-
neska Norðurflotans frá lokum
kalda stríðsins er nú í fullum gangi.
Talið er að minnst tíu kafbátar taki
þátt, af þeim eru átta kjarnorku-
knúnir. Tilgangur aðgerða er að lík-
indum að sýna mátt og megin Norð-
urflotans, meðal annars með því að
sigla óséðir um GIUK-hliðið svo-
nefnda og inn á Atlantshaf, en undir
því heiti gengur hafsvæðið milli
Grænlands, Íslands og Bretlands-
eyja. Á tímum kalda stríðsins ríkti
ósjaldan spenna á þessu svæði þegar
kafbátar Sovétríkjanna gerðu sams
konar tilraunir. Var þá haldið uppi
miklu eftirliti og kafbátaleit á haf-
svæðinu frá herstöðvum Atlants-
hafsbandalagsins (NATO) á Kefla-
víkurflugvelli og Bretlandseyjum.
Norska leyniþjónustan segir rúss-
neska kafbáta hafa látið úr heima-
höfnum sínum á Kólaskaga við aust-
urlandamæri Noregs snemma í
síðustu viku. Er talið að aðgerðirnar
muni standa yfir í minnst 60 daga.
Sérfræðingar í öryggis- og varnar-
málum telja að verið sé að sýna
Bandaríkjamönnum að Rússar geti
vel ógnað þeim heima fyrir með
Norðurflota sínum. Handan GIUK-
hliðsins geti kafbátar þeirra hæft
skotmörk í Bandaríkjunum með
langdrægum flaugum. Þá er jafnvel
talið að kafbátar Rússa taki stefnu á
Grænland og í kjölfarið austurströnd
Bandaríkjanna. Leyniþjónustan seg-
ir Rússa með þessu vilja vekja upp
viðbrögð af hálfu NATO sem sýni
eftirlits- og leitargetu bandalagsins.
Vilja láta reyna á getu NATO
„Rússar vilja segja: „Þetta er okk-
ar hafsvæði, okkur er þetta fært. Við
getum náð til Bandaríkjanna.“ Það
er þetta sem Rússar vilja segja við
okkur. Þeir vilja láta reyna á getu
Vesturlanda til að finna þá og bregð-
ast við ferðum þeirra,“ hefur NRK
eftir norsku leyniþjónustunni. Sömu
heimildarmenn segja pólitíska
ákvörðun um kafbátaaðgerð af þess-
ari stærðargráðu að líkindum vera
tekna á æðstu stöðum, yfirstjórn
rússneska flotans ákveði þetta ekki.
Norska leyniþjónustan segist hafa
„viðunandi eftirlit“ með því hvar
rússnesku kafbátarnir halda sig.
Greint hefur verið frá því á NRK
að tveir kjarnorkukafbátar séu fyrir
vestan Bjarnareyju, milli Svalbarða
og Finnmerkur, nyrsta hluta Nor-
egs. Tveir kafbátar eru fyrir sunnan
og austan Bjarnareyju í varðstöðu
við þá leið sem liggur inn í austur-
hluta Barentshafs og tveir eru sagðir
við æfingar í norðurhluta Noregs-
hafs. Þeir eru af Sierra-gerð kafbáta
og nefnast Nizhny Novgorod og
Pskov. Voru bátarnir teknir í notkun
árin 1989 og 1992, en endurbættir að
stórum hluta 2008 og 2015.
Kafbátar af Sierra-gerð eru svo-
kallaðir árásarkafbátar, um 110
metra langir og vel vopnum búnir.
Skrokkur þeirra er, ólíkt mörgum
öðrum kafbátum, búinn til úr títaní-
um sem eykur getu þeirra til að kafa
á mikið dýpi. Í Noregshafi má finna
mun meira dýpi en á Barentshafi og
telja sérfræðingar það ástæðu þess
að Rússar stundi nú djúpsjávaræf-
ingar á þessu hafsvæði.
Stór en hefðbundin æfing
Albert Jónsson, fyrrverandi
sendiherra, segir æfingu Rússa vera
í stærra lagi. Í grunninn sé hún þó
enn sem komið er hefðbundin.
„Þessi æfing snýst um að æfa
varnir í norðanverðu Noregshafi og
Barentshafi þar sem Rússar halda
úti kjarnaeldflaugakafbátum, sem
segja má að sé eitt af djásnunum í
krúnunni hjá þeim. Einnig er verið
að æfa varnir Norðurflotans, stöðva
hans á Kólaskaga og varnir Norð-
vestur-Rússlands. Þetta eru grund-
vallarhernaðarmarkmið Rússa í
Norðurhöfum og á norðurslóðum og
þannig hefur það verið alveg frá ár-
unum milli 1970 og 1980,“ segir hann
í samtali við Morgunblaðið.
Greint hefur verið frá að aðgerðir
Rússa muni að líkindum teygja sig í
átt að GIUK-hliðinu. Albert segir
það hafa verið markmið Norðurflota
Sovétríkjanna á sínum tíma að hafa
framvarnir sínar á þeim slóðum.
Sovéski flotinn hafði þó yfir að ráða
mun fleiri skipum, kafbátum og flug-
vélum en sjóher Rússlands gerir nú.
Segist Albert því ekki eiga von á
miklum umsvifum við GIUK-hliðið.
„Burðir rússneska Norðurflotans
til að koma svo langt út ég hef miklar
efasemdir um það,“ segir Albert og
bætir við að Norðurflotinn muni á
næstunni taka í notkun nýja tegund
langdrægra stýriflauga, svokallaðar
Kalibr. Flaugar þessar geta hæft
skotmörk í allt að 2.000 km fjarlægð.
Þá er verið að þróa aðra útgáfu sem
sögð er geta dregið allt að 4.500 km.
„Það þýðir að Rússar geta náð
markmiðum sínum miklu norðar.
Þeir munu því ekki hafa sömu þörf
fyrir því að teygja sig svona langt út.
Eins mun Norðurflotinn í fyrsta sinn
fá hlutverk í hugsanlegum átökum á
meginlandi Evrópu, en þeir geta
skotið þessum flaugum niður á meg-
inlandið frá Noregshafi og Barents-
hafi,“ segir Albert.
Flugmóðurskip góð skotmörk
Spurður hvort hann telji líklegt að
Rússar reyni að sigla kafbátum að
austurströnd Grænlands og í átt til
Bandaríkjanna kveður Albert nei
við. Segir hann Rússa ekki þurfa á
því að halda til að ógna austurströnd
Bandaríkjanna með kjarnavopnum.
„Ef markmið þeirra er að koma
kafbátum svo langt suður í haf þá
væri það, að mínu mati, miklu frekar
til þess að ógna bandarískum flug-
móðurskipum á leið þeirra norður,“
segir hann og bætir við að slík skip
séu afar mikilvæg skotmörk í hern-
aðarátökum. „Og það er eðlilegt að
vilja gera það eins langt í burtu og
hægt er,“ bætir hann við.
Fari svo að kafbátar Rússa færi
sig nær GIUK-hliðinu telur Albert
líklegt að viðbúnaður aukist í Kefla-
vík. „Og þá er ég ekki að tala um eina
eða tvær vélar heldur hóp. Kafbátar
eru eltir allan sólarhringinn og þá
þýðir ekki að vera með fáar vélar.
Þetta er eitt þeirra atriða sem fróð-
legt verður að fylgjast með í
tengslum við þessa æfingu Rússa.“
Norðurfloti Rússa á hreyfingu
Minnst tíu rússneskir kafbátar héldu til æfinga frá Kólaskaga í síðustu viku Ein umfangsmesta
aðgerð flotans frá lokum kalda stríðsins Búast má við viðbúnaði í Keflavík nálgist þeir GIUK-hliðið
Ljósmynd/Wikipedia
Hernaðarmáttur Rússneski kafbáturinn Severodvinsk sést hér við bryggju. Hann er af Yasen-gerð og var tekinn í notkun 2013 en fyrst sjósettur í júní 2010.
GIUK-hliðið milli Grænlands, Íslands
og Bretlandseyja
Kortagrunnur: Heritage
Foundation research
GIUK-hliðið
Fl
ug
dr
æ
gn
i B
oe
in
g
P-
8
Po
se
id
on
k
af
bá
ta
le
ita
rv
él
a
1.
20
0
sj
óm
ílu
r
GRÆNLAND
Kefl avík
Severomorsk
Skipahöfn Norður-
fl ota rússneska
sjóhersins
Norður-Íshaf
Norður-Atlantshaf
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019
Jólamatseðillinn
byrjar 14. nóvember
Tryggðu þér borð á
www.matarkjallarinn.is
Aðalstræti 2 | s. 558 0000