Morgunblaðið - 31.10.2019, Side 30
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019
20% AF ÖLLUM SKÓM
VERÐ ÁÐUR 17.995.-
VERÐ NÚ 14.396.-
STÆRÐ 40-47
VERÐ ÁÐUR 19.995.-
VERÐ NÚ 15.996.-
STÆRÐ 36-42
MIÐNÆTUROPNUN
Guðmundur Sv. Hermannsson
gummi@mbl.is
Gífurlegur áhugi er á sýningu, sem
opnuð var í Louvre-safninu í París í
síðustu viku í tilefni af því að 500 ár
eru liðin frá því Leonardo da Vinci
lést. Hafa yfir 240 þúsund manns
þegar bókað miða.
Áratugur er liðinn síðan byrjað var
að undirbúa sýninguna og þar má sjá
162 verk eftir meistarann, þar af 24
teikningar sem Elísabet Englands-
drottning lánaði úr safni bresku hirð-
arinnar.
British Museum, Hermitage-safnið
í St. Pétursborg og Páfagarður lán-
uðu einnig verk á sýninguna. Þá féllst
ítalska ríkið, eftir talsvert þref, á að
lána verk á borð við Vitrúvíu-
manninn, teikningu af mannslíkama
eftir da Vinci.
Á sýningunni í Napóleonssalnum,
sem stendur fram í febrúar, má sjá 10
af innan við 20 málverkum, sem stað-
fest er að da Vinci málaði auk teikn-
inga, handrita, höggmynda og ann-
arra muna. Gripirnir eru sýndir í
réttri tímaröð og geta gestir rakið sig
gegnum ævi da Vincis sem bjó og
starfaði í Flórens, Mílanó og Róm og
að lokum í Frakklandi. Hann lést í
bænum Amboise í Loiredal 2. maí
1519.
Tvö af þekktustu verkum da Vincis
eru þó ekki á sýningunni. Annað er
Mona Lisa, sem raunar er geymt í
Louvre en skipuleggjendur sýning-
arinnar tóku ákvörðun um að þetta
frægasta málverk í heimi verði áfram
í Salle des Etats í safninu. Mona Lisa
fær þó eigin sýndarveruleikastall á
sýningunni þar sem gestir geta
ímyndað sér að þeir sitji í tréflugvél,
sem da Vinci hannaði, og fljúgi yfir
fjöllin og dalina sem sjást í baksýn á
málverkinu.
Hitt verkið er Salvator Mundi, dýr-
asta málverk heims sem seldist fyrir
450 milljónir dala á uppboði hjá
Christie’s árið 2017. Sérfræðingar
deila raunar um hvort verkið sé í
raun eftir da Vinci en það hefur ekki
sést opinberlega eftir uppboðið. Tals-
menn Louvre-safnsins segja, að ósk-
að hafið verið eftir því að fá myndina
lánaða en af því varð ekki.
Deilt var um það fyrir dómstólum á
Ítalíu hvort ítölsk stjórnvöld mættu
lána teikninguna af Vitrúvíu-
manninum til Parísar. Samkvæmt
ítölskum lögum má ekki senda úr
landi og lána dýrmæt listaverk sem
þykja of viðkvæm fyrir flutninga og
loftslagsbreytingar. Niðurstaðan
varð þó sú, að lána mætti teikninguna
en hún verður aðeins á sýningunni í
tæpa 2 mánuði. Að sögn er Vitrúvíu-
maðurinn tryggður fyrir 1 milljarð
evra, nærri 140 milljarða króna.
Verk af ýmsum toga Málverk, þar á meðal af Ledu og svaninum, höggmyndir, teikningar af þyrilvængjum og andlitsmyndir af fólki eru meðal verkanna á sýningunni í Louvre í París.
Ævi da Vinci rakin í 162 verkum
Yfir 240 þúsund manns höfðu pantað miða fyrir fram á sýninguna sem stendur fram í febrúar
AFP
Milljarða virði Maður tekur mynd af teikningunni af Vítrúvíu-manninum á sýningu, sem opnuð var í síðustu viku í
Louvre í París á verkum Leonardos da Vinci. Teikningin er tryggð fyrir jafnvirði 140 milljarða íslenskra króna.
Leonardo da Vinci var óskilgetinn
sonur vel stæðs lögbókara og sveita-
stúlku en hann hafði lítið af móður
sinni af segja. Leonardo fékk vegna
þjóðfélagsstöðu sinnar ekki að
stunda formlega skólagöngu en faðir
hans kom honum í læri til Andrea
del Verrocchio, sem stýrði einum
helsta listaskóla Flórensborgar.
Leonardo starfaði síðar fyrir valda-
mikla menn og fjölskyldur í Flórens
og Mílanó.
Margir fræðimenn hafa lýst þeirri
skoðun að Leonardo hafi verið sam-
kynhneigður og bent á langt sam-
band hans við lærisvein sinn, Salai,
sem hann teiknaði erótíska mynd af.
Aðrir fræðimenn hafa dregið þessar
kenningar í efa og segja að nánast
ekkert sé vitað um einkalíf hans.
Leonardo skipulagði veislur og
hátíðir við ýmsar hirðar þar sem
hann dvaldi og hannaði búninga,
leikmyndir og brellur. Þegar hann
dvaldi við hirð Frans I Frakklands-
konungs bjó hann meðal annars til
vélljón sem gat gengið og síðan opn-
aðist brjóst ljónsins og afhjúpaði
skjaldarmerki konungs.
Leonardo aflaði sér þekkingar á
líffærafræði með því að kryfja bæði
dýr og fólk, þar á meðal að minnsta
kosti eina konu sem var þunguð þeg-
ar hún lést. Hann hafði mikinn
áhuga á svipbrigðum og rannsakaði í
þaula hvaða taugar yllu þeim – sem
skilaði árangri þegar hann fangaði
bros Monu Lisu.
AFP
Sjálfsmynd Sýningargestur virðir fyrir sér teikningu sem almennt er talið
að sé sjálfsmynd Leonardos da Vincis frá upphafi sextándu aldar.
Fékkst við margt