Morgunblaðið - 31.10.2019, Qupperneq 33
Eitt af algengustu vandamálumstoðkerfisins eru verkir í liðum.Mismunandi er í hvaða liðumverkirnir eru en oft eru það hnéin
eða fingurnir sem láta mest finna fyrir sér.
Margir hafa líka verki í mjöðmum, ökklum
eða öðrum liðum en sama hvar er þá skal
ávallt hafa í huga að kyrrseta er aldrei til
bóta og það er ýmislegt hægt að gera til að
láta sér líða betur.
Leiðir til úrbóta
Það er ýmislegt í lífsstílnum sem hefur áhrif
á liðheilsu og því er um að gera að huga vel
að ákveðnum þáttum sem geta haft jákvæð
áhrif og jafnvel dregið úr verkjum. Þar ber
helst að nefna mataræði og hreyfingu.
Mikilvægt er að borða sem mest af hreinni
fæðu og taka inn bæði D-vítamín og
Omega-3. Sykur er alltaf slæmur og getur
oft verið orsök liðverkja. Gott ráð er að taka
hann alveg út sem og að draga sem mest
úr brauðmeti og því sem innheldur einföld
(og oftast næringarsnauð) kolvetni. Mín
reynsla er sú að þegar við einblínum á að
borða eingöngu hreina fæðu, getur það haft
gríðarlega jákvæð heilsufarsleg áhrif. Borða
sem mest af ávöxtum, grænmeti, fræjum,
hnetum, berjum og baunum ásamt því að
borða egg, kjöt og fisk eins og hentar. Hver
og einn verður þó að hlusta á eigin líkama
og velja matvæli sem henta. Þegar við tökum
mataræðið í gegn getur það leitt til þess
að við léttumst, sem er í flestum tilfellum
jákvætt því ofþyngd reynir meira á liðina.
Ofþyngd leiðir oft af sér hreyfingarleysi
eða minni hreyfingu en annars og þannig
myndast vítahringur þar sem þyngd, verkir
og hreyfingarleysi ýta undir hvort annað.
Stundaðu hreyfingu við hæfi og styrktu
vöðvana kringum liðina. Köld böð geta
hjálpað en númer 1, 2 og 3 er að hafa
mataræðið í lagi því það sem við látum ofan
í okkur hefur lang mestu áhrifin á líðan
okkar.
Glúkósamín í lausasölu
Glúkósamín er nú loksins leyft í lausasölu
hér á landi en fjölmargir læknar hafa
um langa hríð mælt með því fyrir bætta
liðheilsu. Glúkósamín er amínósykra sem
þýðir að það er gert úr prótínsameind sem
blönduð er við sykursameind. Líkaminn
framleiðir sjálfur glúkósamín en sú
framleiðsla minnkar þó með aldrinum.
Inntaka á glúkósamíni eykur framboð þess
í líkamanum sem þýðir að viðgerðarhæfni
hans eykst umfram það sem annars væri
mögulegt.
Glukósamín og kondrotín
bætiefnablanda
Glucosamin & chondroitin complex frá
Natures Aid er magnað liðbætiefni þar
sem tekið er á fjölmörgum þáttum sem
tengjast liðverkjum. Auk glúkósamíns
inniheldur þetta bætiefni kondtrótín súlfat
sem er byggingarefni brjósks og eru þessi
tvö efni því afar góð blanda fyrir liðina
en dagsskammtur inniheldur 1000 mg af
glúkósamíni og 200 mg af kondrótíni ásamt
engifer, túrmerik, C-vítamíni og rósaldin
(rosehips). Engifer og túrmerik er þekkt
fyrir bólgueyðandi eiginleika og C -vítamín
stuðlar að eðlilegri myndun kollagens
fyrir eðlilega starfsemi brjósks. Í hverjum
dagsskammti er einnig 25 mg af rósaberjum
(rosehips). Þegar rósaberin eru unnin eru
ákveðin efni í þeim enn til staðar og hafa
flestar rannsóknir sýnt fram á að þau dragi
úr verkjum og stífleika og aukið virkni fólks
með slitgigt.
Vinnur saman
Misjafnt er hvað hentar til að vinna bót á
liðvandamálum og verkjum því en fjölmargir
notast við liðbætiefni ýmiskonar. Ég tel
að samhliða heilbrigðu mataræði og réttri
hreyfingu, komi Glucosamin & Chondroitin
complex sterkt þar inn og ég held að það geti
gert stórkostlega hluti.
Sölustaðir: Flest apótek, heilsubúðir og
heilsuhillur verslana
ERTU MEÐ STERK BEIN?
BEINVERND ER MIKILVÆG ALLA ÆVI
OSTEO ADVANCE er
fullkomin blanda fyrir beinin
• Kalk og magnesíum í
réttum hlutföllum
• D vítamín tryggir upptöku
kalksins
• K2 vítamín sér um að
kalkið skili sér í beinin
Sölustaðir: Flest apótek, heilsubúðir og heilsuhillur verslana
Kynning
Nýtt fyrir liðina
loksins á Íslandi!
Glúkósamín sem hefur verið eitt vinsælasta
liðbætiefnið erlendis um langa hríð fæst nú í
bætiefnaformi hér á landi.
Það eykur viðgerðarhæfni líkamans og
getur dregið úr liðverkjum.
„ Inntaka á glúkósamíni
eykur framboð þess í
líkamanum sem þýðir að
viðgerðarhæfni hans eykst
umfram það sem annars
væri mögulegt“.
Hrönn Hjálmarsdóttir