Morgunblaðið - 31.10.2019, Síða 33

Morgunblaðið - 31.10.2019, Síða 33
Eitt af algengustu vandamálumstoðkerfisins eru verkir í liðum.Mismunandi er í hvaða liðumverkirnir eru en oft eru það hnéin eða fingurnir sem láta mest finna fyrir sér. Margir hafa líka verki í mjöðmum, ökklum eða öðrum liðum en sama hvar er þá skal ávallt hafa í huga að kyrrseta er aldrei til bóta og það er ýmislegt hægt að gera til að láta sér líða betur. Leiðir til úrbóta Það er ýmislegt í lífsstílnum sem hefur áhrif á liðheilsu og því er um að gera að huga vel að ákveðnum þáttum sem geta haft jákvæð áhrif og jafnvel dregið úr verkjum. Þar ber helst að nefna mataræði og hreyfingu. Mikilvægt er að borða sem mest af hreinni fæðu og taka inn bæði D-vítamín og Omega-3. Sykur er alltaf slæmur og getur oft verið orsök liðverkja. Gott ráð er að taka hann alveg út sem og að draga sem mest úr brauðmeti og því sem innheldur einföld (og oftast næringarsnauð) kolvetni. Mín reynsla er sú að þegar við einblínum á að borða eingöngu hreina fæðu, getur það haft gríðarlega jákvæð heilsufarsleg áhrif. Borða sem mest af ávöxtum, grænmeti, fræjum, hnetum, berjum og baunum ásamt því að borða egg, kjöt og fisk eins og hentar. Hver og einn verður þó að hlusta á eigin líkama og velja matvæli sem henta. Þegar við tökum mataræðið í gegn getur það leitt til þess að við léttumst, sem er í flestum tilfellum jákvætt því ofþyngd reynir meira á liðina. Ofþyngd leiðir oft af sér hreyfingarleysi eða minni hreyfingu en annars og þannig myndast vítahringur þar sem þyngd, verkir og hreyfingarleysi ýta undir hvort annað. Stundaðu hreyfingu við hæfi og styrktu vöðvana kringum liðina. Köld böð geta hjálpað en númer 1, 2 og 3 er að hafa mataræðið í lagi því það sem við látum ofan í okkur hefur lang mestu áhrifin á líðan okkar. Glúkósamín í lausasölu Glúkósamín er nú loksins leyft í lausasölu hér á landi en fjölmargir læknar hafa um langa hríð mælt með því fyrir bætta liðheilsu. Glúkósamín er amínósykra sem þýðir að það er gert úr prótínsameind sem blönduð er við sykursameind. Líkaminn framleiðir sjálfur glúkósamín en sú framleiðsla minnkar þó með aldrinum. Inntaka á glúkósamíni eykur framboð þess í líkamanum sem þýðir að viðgerðarhæfni hans eykst umfram það sem annars væri mögulegt. Glukósamín og kondrotín bætiefnablanda Glucosamin & chondroitin complex frá Natures Aid er magnað liðbætiefni þar sem tekið er á fjölmörgum þáttum sem tengjast liðverkjum. Auk glúkósamíns inniheldur þetta bætiefni kondtrótín súlfat sem er byggingarefni brjósks og eru þessi tvö efni því afar góð blanda fyrir liðina en dagsskammtur inniheldur 1000 mg af glúkósamíni og 200 mg af kondrótíni ásamt engifer, túrmerik, C-vítamíni og rósaldin (rosehips). Engifer og túrmerik er þekkt fyrir bólgueyðandi eiginleika og C -vítamín stuðlar að eðlilegri myndun kollagens fyrir eðlilega starfsemi brjósks. Í hverjum dagsskammti er einnig 25 mg af rósaberjum (rosehips). Þegar rósaberin eru unnin eru ákveðin efni í þeim enn til staðar og hafa flestar rannsóknir sýnt fram á að þau dragi úr verkjum og stífleika og aukið virkni fólks með slitgigt. Vinnur saman Misjafnt er hvað hentar til að vinna bót á liðvandamálum og verkjum því en fjölmargir notast við liðbætiefni ýmiskonar. Ég tel að samhliða heilbrigðu mataræði og réttri hreyfingu, komi Glucosamin & Chondroitin complex sterkt þar inn og ég held að það geti gert stórkostlega hluti. Sölustaðir: Flest apótek, heilsubúðir og heilsuhillur verslana ERTU MEÐ STERK BEIN? BEINVERND ER MIKILVÆG ALLA ÆVI OSTEO ADVANCE er fullkomin blanda fyrir beinin • Kalk og magnesíum í réttum hlutföllum • D vítamín tryggir upptöku kalksins • K2 vítamín sér um að kalkið skili sér í beinin Sölustaðir: Flest apótek, heilsubúðir og heilsuhillur verslana Kynning Nýtt fyrir liðina loksins á Íslandi! Glúkósamín sem hefur verið eitt vinsælasta liðbætiefnið erlendis um langa hríð fæst nú í bætiefnaformi hér á landi. Það eykur viðgerðarhæfni líkamans og getur dregið úr liðverkjum. „ Inntaka á glúkósamíni eykur framboð þess í líkamanum sem þýðir að viðgerðarhæfni hans eykst umfram það sem annars væri mögulegt“. Hrönn Hjálmarsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.