Morgunblaðið - 31.10.2019, Síða 35
35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019
Sólin Það er oft fallegt um að litast í guðsgrænni náttúrunni og fengu þessir fallegu hestar í nágrenni Flúða að njóta haustsólarinnar í allri sinni dýrð, þar sem hún sló gylltum ljóma á jörðina.
Kristinn Magnússon
Þeir lokuðu fanga-
klefanum, ég var einn í
myrkrinu. Þetta var
stund ótta og óvissu,
óvissu sem átti eftir að
færa mér tilganginn
með lífinu. Í hvert sinn
sem þeir börðu mig
varð ég sterkari. Í
gegnum sársaukann og
myrkrið fann ég von. Í
ofbeldi og óréttlæti
lærði ég að gefast aldrei upp. Undir
engum kringumstæðum. Ég var
dæmdur til dauða. Glæpurinn var að
hverfa frá íslamstrú og taka kristna
trú, í mínu eigin landi, Egyptalandi.
Með því að lifa pyntingarnar af varð
ég að baráttumanni fyrir trú mína.
Ég hef helgað líf mitt því að færa
öðrum ljós í myrkri trúarofsókna
um heim allan. Ég var tvítugur að
aldri þegar ég var handtekinn, læst-
ur inni í fangaklefa og barinn.
Hengdur upp á fótum, ítrekað kaf-
færður í heitu og köldu
vatni, brenndur með
sígarettum og kross-
festur – það varði
meira en tvo sólar-
hringa.
Að vera rödd þeirra
sem hafa enga rödd
Víða um heim er of-
beldisfull lífsreynsla
sem þessi og ofsóknir
daglegt brauð. Þess
vegna hef ég helgað líf
mitt því að vera rödd
þeirra sem hafa enga rödd og stofn-
aði samtökin One Free World Int-
ernational. Starf okkar felst í að
berjast fyrir þá sem eru ofsóttir
vegna trúar sinnar.
Ég er nú kanadískur ríkisborgari.
Í meira en 15 ár hef ég séð að land
eins og Kanada blómstrar, land sem
virðir grundvallarmannréttindi og
er stolt af því að bjóða fólk af öllum
trúarbrögðum velkomið. Samtökin
okkar eru með höfuðstöðvar í Kan-
ada. Starfsstöðvar eru alls 28 í fjöl-
mörgum löndum. Við berjumst fyrir
frelsi allra, án tillits til litarháttar,
trúar eða kynhneigðar.
Stúlkum bjargað
úr kynlífsánauð
Samtökin hafa skipulagt fjöl-
margar ferðir til hinna ýmsu landa
til þess að frelsa fólk úr ánauð. Eftir
að stríðið gegn hryðjuverkasamtök-
unum ISIS hófst 2014 hafa samtökin
lagt allt í sölurnar til að bjarga Ya-
zidi-stúlkum úr kynlífsánauð ISIS í
Írak og Sýrlandi. Meira en 600
stúlkum og konum hefur verið
bjargað og þær sameinaðar fjöl-
skyldum sinum í Norður-Írak eða
fengið hæli sem flóttamenn í öðrum
löndum. Samtökin hafa sent lyf og
matvæli til flóttamannabúða og
starfað í löndum eins og Afganistan,
Armeníu, Úkraínu, Bangladess,
Kúbu, Ísrael og Palestínu svo fáein
lönd séu nefnd. Ég er stundum
spurður að því hver ég sé í raun. Ég
hef svarað því þannig að ég sé Ya-
zidi þegar ég er að hjálpa Yazidi-
fólkinu. Ég sé gyðingur þegar ég
standi andspænis gyðingaofsóknum.
Ég sé sunni-múslimi sem eru ofsótt-
ir í Búrma og Kína. Ég sé Bahái
sem eru ofsóttir í Íran og ég sé kona
í Íran sem berst fyrir jafnrétti.
Án trúfrelsis mun einræðið
aldrei líða undir lok
Lykilinn að því að fjölmenning-
arsamfélag blómstri þar sem virðing
er borin fyrir mannréttindum er að
byggja brýr milli samfélaga. Þess
vegna er mikilvægt að berjast gegn
ofsóknum gegn minnihlutahópum og
vera rödd þeirra gagnvart stjórn-
völdum víða um heim. Án trúfrelsis
mun einræðið aldrei líða undir lok.
Ég hef átt fundi með mörgum þjóð-
arleiðtogum og komið fyrir þing-
nefndir ýmissa ríkja til að vekja at-
hygli á þeim fjölmörgu sem eru
ofsóttir vegna trúar sinnar.
Skömmu fyrir komu mína til Íslands
átti ég fund með forseta Íraks vegna
stöðu mála á landamærum Tyrk-
lands og Sýrlands. Ísland er lítið
land en það er stórt land þegar kem-
ur að því að berjast fyrir mannrétt-
indum og mannlegri reisn. Ísland
getur verið birtan sem ryður burt
myrkrinu í fangaklefa trúarofsókna.
Að misstíga sig segir ekki hver
við erum heldur það að neita að gef-
ast upp. Ef við berjumst ekki fyrir
hvert annað glötum við mennskunni.
Við megum aldrei gleyma sögunni
sem hefur sýnt okkur að heimurinn
getur verið myrkur og ósanngjarn.
Ekki vegna hins illa, heldur vegna
þess að álengdar situr fólk þögult
hjá.
Eftir Majed
El Shafie » Ísland getur
verið birtan sem
ryður burt myrkri
trúarofsókna.
Majed El Shafie
Höfundur er stofnandi hjálpar-
samtakanna One Free World Inter-
national, ofwi.org. Hann er hér á landi
á vegum Birgis Þórarinssonar alþing-
ismanns og fundar með íslenskum
stjórnvöldum um baráttuna gegn
trúarofsóknum víða um heim.
info@ofwi.org
Fangelsaður og pyntaður – að gefast aldrei upp
Aldrei fyrr hafa mál-
efni norðurslóða verið
jafn fyrirferðarmikil í
umræðunni á alheims-
vísu og núna. Stærstu
þjóðir heims vilja seil-
ast til áhrifa á svæðinu
og virðast sjá tækifæri í
þeim afleiðingum sem
hlýnun jarðar hefur en
auðvitað hefur hún á
sama tíma í för með sér
miklar ófyrirséðar breytingar fyrir
þá sem á norðurslóðum búa.
Á dögunum var haldið Hringborð
norðurslóða í Reykjavík og í
tengslum við það var á Akureyri
stofnaður sérstakur vettvangur bæj-
ar- og borgarstjóra á norðurslóðum,
Arctic Mayors. Á hringborði norður-
slóða komu íbúar, sérfræðingar og
ráðamenn alls staðar að úr heiminum
saman til þess að ræða málefni
dreifðra byggða í heimshlutanum.
Áhuginn á málinu fer stigvaxandi
enda verður okkur sífellt ljósara hví-
líkar breytingar eru að eiga sér stað
og hversu mikilvægt það er að mæta
þeim breytingum með samstilltu
átaki allra sem hags-
muna eiga að gæta –
sem er í raun veröldin
öll. Ég fagna þessum
áhuga enda eru
byggðamál gríðarlega
mikilvæg og verða það
á komandi árum.
Með stofnun Arctic
Mayors, vettvangs bæj-
ar- og borgarstjóra á
norðurslóðum, taka 13
sveitarfélög í ólíkum
löndum höndum saman
til að vinna að sameig-
inlegum hagsmunamálum sem
teygja anga sína inn á flest svið
mannlegrar tilveru í breyttum heimi.
Akureyri fer með formennsku í
þessu samstarfi næstu tvö árin. Eitt
helsta markmiðið okkar er að Arctic
Mayors fái áheyrnaraðild að norð-
urskautsráðinu. Við teljum að sveit-
arfélögin geti lagt umtalsvert af
mörkum í umræðunni um norð-
urslóðir. Leiðarljós okkar er: „Ekk-
ert um okkur án okkar. Saman erum
við sterkari.“
Það kom berlega í ljós bæði á
hringborði norðurslóða og á fundum
Arctic Mayors hversu margt lítil
sveitarfélög á norðurslóðum eiga
sameiginlegt. Við erum öll að fást við
sömu áskoranir en af ólíkri stærð-
argráðu. Mikilvægt er að sveitar-
félögin sjálf séu virkir þátttakendur í
umræðunni um norðurslóðamál enda
er það hlutverk sveitarfélaga að
fylgja eftir stefnumótun ríkisvalds-
ins. Fólkið sem býr í smærri sveitar-
félögum vítt og breitt á norðurhveli
jarðar býr yfir yfirgripsmikilli þekk-
ingu á nærumhverfinu sem er dýr-
mætt fyrir ríkisvaldið að hafa aðgang
að. Sveitarfélögin leika enn fremur
lykilhlutverk í því að vinna að stað-
bundnum áætlunum varðandi lofts-
lags- og umhverfismál.
Um fjórar milljónir manna búa nú
í löndum eða á landsvæðum sem
liggja að norðurheimskautinu og
þetta fólk treystir á náttúruauðlindir
til að afla sér lífsviðurværis. Jaðar-
byggðir Íslands tilheyra sannarlega
þessum hópi. Samfélög á norð-
urslóðum búa fæst við þróaða innviði,
samgöngur eru torveldar eða engar,
ljósleiðarasamband skortir víðast
hvar, traustu rafmagni og traustri
heilbrigðisþjónustu er sjaldnast til að
dreifa. Mörg samfélaganna standa
höllum fæti. Atvinnutækifæri eru fá
og atgervisflótti mikill. Menntað fólk
sér oft og tíðum ekki framtíðina fyrir
sér á afskekktum stöðum þar sem
innviðir standast ekki ýtrustu kröfur
nútímans.
Ég er eindregið þeirrar skoðunar
að það sé skylda okkar að snúa vörn í
sókn. Tækifærin búa á norður-
slóðum. Við getum bætt innviðina og
til að mynda boðið upp á bestu
menntun í heimi með fjarnámi. Þetta
hefur sannast í því umfangsmikla
starfi sem unnið er við Háskólann á
Akureyri þar sem fjarnámið er á
heimsmælikvarða, mjög tæknivætt
og faglegt.
Vettvangur bæjar- og borgar-
stjóra á norðurslóðum, Arctic
Mayors, mun leggja á það höfuð-
áherslu að þróa innviðina og afla
nauðsynlegs fjármagns í þá upp-
byggingu sem verður að fara fram.
Þess vegna segjum við: „Ekkert um
okkur án okkar. Saman erum við
sterkari.“ Sókn stærstu þjóða heims
til áhrifa á norðurslóðum verður að
miða að því að byggja upp innviði
þeirra samfélaga sem þar eru og
stuðla að bættum lífsskilyrðum. Við
samþykkjum ekki að þessi sókn stór-
þjóðanna snúist um hernaðarbrölt
eða ofnýtingu viðkvæmra auðlinda.
Hér þarf að fara að öllu með gát.
Akureyri hefur um alllangt skeið
verið miðstöð norðurslóðastarfs á Ís-
landi. Sveitarfélagið hefur verið virk-
ur meðlimur í Northern Forum frá
2003 og er fulltrúi Íslands á þeim
vettvangi. Akureyri er einnig mið-
stöð rannsókna á norðurheimskaut-
inu þar sem Háskólinn á Akureyri
gegnir veigamiklu hlutverki. Það er
yfirlýst markmið bæjarstjórnar
Akureyrar að styrkja stöðu Akureyr-
ar enn frekar á þessum vettvangi
enda er um gríðarlega mikilvægan
málaflokk að ræða.
Skilyrði fyrir allt lífríki manna og
dýra á norðurslóðum hafa breyst ört
á síðustu árum og breytast með vax-
andi hraða ef fram fer sem horfir. Við
þurfum því að vera gildandi í allri
umræðu og ákvörðunum um framtíð
byggðar á norðurslóðum. Ekkert um
okkur án okkar.
Eftir Ásthildi
Sturludóttur » Við þurfum að vera
gildandi í allri um-
ræðu og ákvörðunum
um framtíð byggðar á
norðurslóðum.
Ásthildur Sturludóttir
Höfundur er bæjarstjóri á Akureyri
og formaður Arctic Mayors.
Ekkert um okkur án okkar