Morgunblaðið - 31.10.2019, Síða 46

Morgunblaðið - 31.10.2019, Síða 46
Í dag er borinn til hinstu hvílu kær vin- ur og lærifaðir, Egill Guðmundsson arki- tekt, fjölskyldufaðir og hugsjóna- maður fyrir betri og vistvænni byggð á Íslandi. Maður sem ég á svo ótalmargt að þakka. Það var mikið lán fyrir mig, sem ungan arkitektanema, að komast í vinnu hjá Arkís árið 1998. Þar reyndist Egill mér sannur lærifaðir, jákvæður, hógvær og lausnamiðaður. Samstarfsárin urðu sjö og frá Agli fór ég með „nesti“ sem segja má að ég hugsi um dag hvern. Þar eru að sjálf- sögðu tæknileg atriði tengd fram- kvæmd og hönnun, en einnig holl- ráð sem hann veitti mér um lífið og tilveruna. Það vill svo til að daginn fyrir andlát Egils vitnaði ég á fundi á vinnustað mínum í lýs- ingu Egils á einkennum góðs stjórnanda. Þeim lýsti hann fyrir mér í bílferð árið 2001 eftir að ég hafði minnst á hve sérstaklega gott mér fyndist að vinna í verkum sem hann stýrði. Egill sagði þá að hann reyndi sem stjórnandi að hafa til hliðsjónar samlíkingu sem ónefndur maður hefði bent honum á. Sú væri að slæm stjórnun væri líkt og píramídi þar sem stjórn- andinn trónir efst á toppnum, áberandi öllum og eignar sér það sem hans fólk gerir vel en starfs- mennirnir sjálfir standa í skugg- anum. Á hinn bóginn væri góð stjórn- un eins og píramídi á hvolfi. Þar Egill Már Guðmundsson ✝ Egill Már Guð-mundsson fæddist 27. janúar 1952. Hann lést 10. október 2019. Útför hans fór fram 25. október 2019. væri stjórnandinn neðst, sá sem bæri uppi skipulagsheild- ina án þess að mikið bæri á, hann væri til staðar og sýnilegur en það væri fólkið hans sem fengi að njóta góðra verka og valdefldist þar með. Þessum orðum hef ég aldrei gleymt og þrátt fyrir að hafa síðar tekið háskólanám í stjórnun- arfræðum er þessi samlíking mér trúlega minnisstæðust. Egill hafði einstaka nærveru og var þeim kostum búinn að vera í senn flinkur fagmaður, hugsjóna- maður, mikill mannþekkjari og mannasættir og fæddur kennari. Hann var líka einstaklega ósér- hlífinn og alltaf til staðar fyrir fólkið sitt hvort sem voru sam- starfsmenn eða Vigdís og strák- arnir þeirra. Blessuð sé minning góðs manns. Hans arfur lifir í fólkinu sem hann átti samleið með og þeim byggingum og samfélögum sem hann tók þátt í að móta. Mínar innilegustu samúðar- kveðjur til Vigdísar og fjölskyldu. Hvíl í friði, kæri vinur. Guðrún Ingvarsdóttir. Við Egill kynntumst eins og svo margir á árum áður við húsbygg- ingar. Okkur var úthlutað lóðum hlið við hlið í Baughúsum. Það kom fljótt í ljós mikill samhljómur milli okkar, svipuð sýn á lífið og til- veruna. Samgangurinn jókst með árunum og okkur þótti tilhlýðilegt að gera stíg á milli húsanna til að stytta leiðina. Og hundarnir þeirra Vigdísar og Egils voru sama sinnis og pössuðu húsið okk- ar fyrir ókunnugum, alveg eins og þeirra eigið. Næstu tuttugu árin áttum við ófáar stundirnar saman, hvort sem var hér í Baughúsum, á tónleikum eða á ferðalögum um landið. Egill var meiri jeppakarl en ég, svo við eigum honum að þakka að hafa heimsótt og upp- lifað staði sem við hefðum annars ekki gert hvort sem var að sumri eða vetri. Egill var ljúfur í við- kynningu og vinur vina sinna, þótt ég efist ekki um að hann gat verið fastur fyrir. Enda tók hann þátt í atvinnurekstri sem gat kallað á erfiðar ákvarðanir. Menn eins og Egill kalla fram góða hluti í mönn- um eins og mér og verð ég honum ævinlega þakklátur fyrir það. Við Rannveig sendum bestu kveðjur til Vigdísar og fjölskyldu á þessum erfiðu tímum. Björn og Rannveig. Eins óraunverulegt og það er þá er það samt staðreynd að sam- starf okkar í lifandi lífi hefur tekið enda. Í yfir tuttugu ár höfum við starfað saman, eða allt frá því að ég flutti aftur heim eftir nám. Því taka nú við sérstakir tímar. Öll þessi ár hef ég dáðst að dugnaði þínum og ástríðu þinni á því fagi sem þú valdir þér og allt frá fyrsta degi hef ég horft, lært og reynt að tileinka mér margar af þeim dyggðum sem þú sem persóna og fagmaður bjóst yfir. Þú varst ein af mínum fyrirmyndum og ert enn, því að ljúfari og traustari mann er vart hægt að hugsa sér að eiga sem vin eða samstarfsfélaga. Þú varst minn trúnaðarvinur og sannur leiðtogi okkar sem unnum með þér. Þú varst alltaf tilbúin að hlusta og gefa þér tíma til þess að ræða málin eða aðstoða, jafnvel þó svo að þín dagskrá væri yfirleitt meira en full. Þú áttir auðvelt með að finna lausnir á erfiðum málum og náðir yfirleitt að leysa þau þannig að öllum liði vel með þau. Þetta var einn af þínum mörgu, góðu eiginleikum. Það eru einnig litlu hlutirnir sem ég á eftir að sakna. Úrklippa úr einu dagblaðanna með frétt um fyrirhugað útboð sem oftar en ekki lá á borðinu mínu þegar ég mætti á morgnana, ásamt smá skilaboðum um það hvort við ætt- um ekki að bjóða í þetta verk. Skissubækurnar þínar þar sem þú skrifaðir allt skilmerkilega niður í og skriftin þín, sem ég var farinn að vera ansi lunkinn við að lesa úr, svo eitthvað sé nefnt. Þó er það þín þægilega nærvera sem ég á eftir að sakna hvað mest. Það er með sorg í hjarta að ég kveð þig, Egill minn, en á sama tíma þakka ég óendanlega mikið fyrir það sem þú hefur í gegnum árin kennt mér og þær ómetan- legu stundir sem ég hef átt með þér. Minning um yndislegan mann stendur eftir og sú minning er mér dýrmæt. Elsku Egill, þín verður sárt saknað. Þorvarður Lárus Björgvinsson. Þú komst til að kveðja í gær. Þú kvaddir og allt varð svo hljótt. … (Freymóður Jóhannsson) Nú ert þú farinn í ferðina löngu, kæri vinur. Ég sit hérna og horfi á tómt borð þitt og átta mig ekki á hvernig komið er og kannski ekki farinn að meðtaka það ennþá. Tryggari og betri vin var ekki hægt að hugsa sér né heldur betri samstarfsfélaga og læriföður. Ég hóf störf hjá þér að námi loknu og leiðir okkar hafa aldrei skilið eftir það fyrr en dauðinn tók þig svona grimmilega frá okkur. Það er nýr veruleiki fyrir mig að fóta mig í starfi án þín, án klettsins sem ég gat alltaf leitað til, fengið leiðbein- ingar hjá og orð frá fagmanni sem ég virkilega trúði og bar virðingu fyrir. Nærvera þín, kurteisi og umburðarlyndi fyrir öllu og öllum var einstök og því er enn erfiðara fyrir okkur sem eftir sitjum að átta okkur á hvernig kletturinn okkar gat sokkið í hyldýpið án þess að við áttuðum okkur á. Sterkustu stráin bogna ekki held- ur brotna og það er það sem kom upp í hugann kæri vinur. Vinátta okkar hefur verið mikil og samstarfið oft og tíðum mjög náið og þræðir okkar hafa ótrú- lega víða ofist saman á öllum þess- um árum sem við höfum fylgst að. Þú hefur ekki bara reynst mér sem sannur vinur heldur á öll fjöl- skyldan fallegar minningar um Egil, þennan öðling sem alltaf var umhugað um velferð annarra og alltaf gaf sér tíma til að spyrja hvernig gengi og skildir eftir já- kvæða hvatningu. Áhugi þinn á faginu var einstakur og þú varst mikill frumkvöðull í vistvænni nálgun í skipulags- og byggingar- málum og engin tilviljun að þú vannst að öllum fyrstu verkefnum sem fóru í vottaðan farveg á Ís- landi. Skipulag Urriðaholts er frumkvöðlaverkefni á þessu sviði og hefur hlotið alþjóðlegar viður- kenningar og skipti það verkefni þig miklu máli og var þér mikið kappsmál að vel tækist til. Það er sama hvar drepið er niður, alltaf varst þú sá sem mesta orkuna hafði, var ferskastur í hugsun og sá sem var mest drífandi með smitandi jákvæðni. Fráfall þitt er mikill missir fyrir alla sem áttu þig að sem samferða- mann á einhvern hátt og við sem eftir sitjum munum halda minn- ingunni á lofti, halda áfram að reyna að tileinka okkur þína góðu siði og vera kyndilberar þess starfs sem þú stóðst fyrir og rækta þína framtíðarhugmyndir í skipulagsmálum og byggingarlist. Bókin okkar sem senn kemur út er ekki síst þitt hugarfóstur og mun hún verða vitnisburður um fallega framtíðarsýn og metnað sem skiptir okkur öll máli. Ég veit að hún var þér hjartans mál. Við gömlu hlaupafélagarnir munum hlaupa saman á gamlárs- dag og minnast þín sérstaklega. Falleg minning um fallinn vin, stóran persónuleika sem af sinni hógværð færði umræðuna og gjörðir dagsins á hærra plan. Hafðu þakkir fyrir allt, kæri vinur. Við Ingibjörg og börnin okkar höfum misst sannan fjöl- skylduvin og læriföður. Megi al- góður Guð vernda Vigdísi og fjöl- skyldu þína og hjálpa okkur öllum að finna veginn fram á við. Aðalsteinn Snorrason arkitekt. Stórt skarð er höggvið í hóp okkar starfsmanna Arkís við frá- fall Egils Guðmundssonar, skarð sem erfitt er að fylla. Egill var afskaplega ljúfur maður og einstakur vinnufélagi. Þótt hann væri sá elsti í hópn- um var hann einn sá áhugasamasti um fagið. Oftar en ekki mætti hann til vinnu með fullmótaðar hugmyndir sem hann hafði mótað heima við. Ástríða hans fyrir arki- tektúr og skipulagi var mikil. Hann hafði sérstakan áhuga á sjálfbærni, lét sér annt um fólk og umhverfi og var duglegur að miðla því nýjasta í þeim efnum til okkar. Egill var góður leiðbeinandi, alltaf boðinn og búinn að hjálpa samstarfsfólki sínu og miðla af reynslu sinni. Egill bar traust til reynslulítilla starfsmanna og átti þannig þátt í að efla sjálfstraust þeirra og þekkingu. Fyrir honum voru allir jafnir. Hann hafði ekki aðeins lausnir á vandamálum tengdum hönnun heldur var hann góður sáttasemjari. Þegar upp kom ágreiningur innan verkefna hafði Egill einstakt lag á leysa hann á þann hátt að öllum liði vel. Eitt af því sem einkenndi Egil var hve umhyggjusamur hann var um hag og líðan vinnufélaga sinna. Ef einhver átti við veikindi eða erfiðleika að stríða gaf hann sér tíma til að hringja í viðkomandi eða senda póst. Hann var góður hlustandi en það var líka gaman að hlusta á hann segja sögur og gera kannski létt grín að sjálfum sér í leiðinni. Utan vinnu var hann allt- af jákvæður og til í að taka þátt í alls kyns skemmtunum með okkur vinnufélögunum. Við fyllumst þakklæti fyrir að hafa kynnst Agli, þakklæti fyrir að hafa verið okkur góð fyrirmynd í starfi og fyrir að hafa kynnst svona hjarthlýjum manni sem hafði einstaklega góða nærveru. Egils verður sárt saknað. Við starfsfólk Arkís sendum Vigdísi og fjölskyldu okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Margrét Björg Guðnadóttir. Kveðja frá Verkfræðinga- félagi Íslands Látinn er í Reykjavík Egill Guðmundsson arkitekt. Egill teiknaði, ásamt Þórarni Þórarinssyni, Verkfræðingahúsið á Engjateigi 9. Efnt var til opinnar hugmyndasamkeppni um hönnun hússins árið 1982. Tillaga þeirra félaga hlaut fyrstu verðlaun og Húsráð Ver- fræðingafélags Íslands var ein- huga um að byggja eftir tillögu þeirra. Bygging Verkfræðinga- húss reyndist stórt verkefni fyrir félagið og oft á tíðum erfitt fjár- hagslega. Í tímans rás hefur kom- ið í ljós hversu farsæl þessi ákvörðun var og í dag er húsið ein meginstoðin í öflugu starfi Verk- fræðingafélags Íslands. Undirritaður kannaðist lítillega við Egil frá fyrri tíð en samskiptin jukust þegar ég tók við sem starfi sem framkvæmdastjóri Verk- fræðingafélagsins árið 2008. Það var ætíð gott að leita til Egils. Hann var úrræðagóður og umhugað um að allar fram- kvæmdir og breytingar á húsinu væru vandaðar og til bóta. Egill og samstarfsfólk hans sinnti verkefn- um í Verkfræðingahúsi af kost- gæfni og vandvirkni í góðu sam- starfi eiganda hússins, aðra hönnuði og iðnaðarmenn. Að lokum þakka ég Agli sam- starfið og sendi fjölskyldu hans og samstarfsmönnum samúðarkveðj- ur frá Verkfræðingafélagi Ís- lands. Árni B. Björnsson, framkvæmdastjóri VFÍ. Yndislegur vinur okkar, Egill, hefur kvatt okkur. Hann hafði allt sem prýddi góðan vin og fjöl- skylduföður. Hann var trygglynd- ur, kærleiksríkur og alltaf til í að hjálpa hverjum þeim sem þurfti á að halda. Egill var myndarlegur maður á velli. Hann var meðalmaður á hæð, dökkur yfirlitum, með hrafn- svart hár og brúneygur. Hann var giftur Vigdísi Magnúsdóttur hjúkrunarfræðingi og þau eignuð- ust tvö börn: Tönju fædda 1970 og Arnar Óskar fæddan 1978. Barna- börnin eru Páll Skírnir og Guð- mundur Logi. Egill varð MA í arkitektúr frá Arkitekthøgskolan í Ósló árið 1978 og starfaði við fag sitt til ævi- loka. Hann var einn af eigendum arkitektastofunnar ARKÍS og kom að ýmsum verkefnum á ferli sínum. Má þar nefna stúdentagarða, íbúðahverfi og aðrar opinberar byggingar. Hæfileikar Egils sem arkitekts nutu sín vel meðal fjöl- skyldu og vina. Hann teiknaði hús þeirra hjóna að Baughúsum 36 og listrænt stigahandrið á heimili for- eldra minna sem minnti á pípu- orgel. Egill var fágaður maður og mikill listamaður. Hann hafði fal- lega rithönd og hann skrifaði alltaf á öll heillaóskakort. Rithönd hans var hvort í senn fáguð og listræn. Egill og Vigdís voru mjög sam- rýnd hjón og lifðu mjög fallegu og innihaldsríku lífi saman. Þau ferð- uðust mikið með foreldrum mín- um og fleirum bæði innan lands og utan og fóru oft í leikhús. Egill var mikill náttúruunnandi og þau Vigdís fóru oft í sumarbú- staðinn Lynghól sem var griða- staður þeirra. Hundarnir sem þau áttu voru ómissandi hluti af þess- um ferðum og var mikil ánægja að hafa þá með í för. Þar áttu þau ánægjustundir með vinum og fjöl- skyldu. Ég vil þakka Agli fyrir yndisleg kynni í gegnum árin. Ég er ríkari eftir að hafa kynnst honum og Vigdísi og fjölskyldu þeirra. Ég votta Vigdísi, Tönju, Arnari Ósk- ari, Biöncu, Páli Skírni og Guð- mundi Loga samúð mína. Kristjana Jónsdóttir. Það er mánudagsmorgunn og ég geng inn um bakdyrnar okkar í vinnunni. Þarna situr þú yfirveg- aður við gluggann, með bláa kaffi- bollann þinn og klæddur í Birken- stock-inniskóna þína. Fyrir utan gluggann þinn stendur drauma- bíllinn okkar beggja. Innilega bið- ur þú góðan daginn og ég finn fyr- ir væntumþykju þinni og þinni góðu nærveru. Að koma í vinnuna var eins og að koma heim í stofu, svo heimilislegt og notalegt. Egill, ég vildi að ég hafði sagt þér hvað góðmennska þín og nærvera gerði mikið fyrir vinnudaginn minn. Við sátum hlið við hlið og sötr- uðum morgunkaffið okkar og spjölluðum um allt og ekki neitt. Þögnin okkar var notaleg og spjallið okkar dýrmæt. Þú spurðir mig reglulega hvernig mér gengi í skólanum og áhugi þinn á því sem ég hafði að segja skein í gegn. Ég fann hvernig metnaðurinn helltist yfir mig og hvað ég varð stolt. Ég fann að ég skipti máli og þér var annt um mig og það sem ég hafði að segja. Þú kunnir sam- skipti upp á hundrað og það er eitt af því sem ég ætla að halda fast í og tileinka mér í gegnum lífið. Egill, ég hef lært svo margt af þér og horfi upp til þín alla daga og ég vildi óska þess að þú vissir það. Ég er þakklát fyrir að hafa kynnst þér og þakklát fyrir allt það sem þú hefur kennt mér og ég vona að þú hafir fundið fyrir vænt- umþykju minni eins og ég fann fyrir þinni. Sjáumst seinna, elsku Egill, takk fyrir allt. Ég mun sakna þín. Hlýja þín, okkur hefur fært jákvæðni, hún skín svo skært. Um alla eilífð við höfum lært samskipti okkar, ó svo kært. Þú svífur nú um tunglið bjarta, og heldur áfram með þitt fagra hjarta. Í flóði og fjöru, við stöldrum hér, og minnumst alls hins góða frá þér. Tunglskinið, það lýsir upp myrkur og saman þéttist okkar liðsstyrkur. Hönd í hönd, við hjálpumst hér að, og ávallt þú fylgir okkur í hjartastað. Þín, Sesselja Þrastardóttir (Setta). 46 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019 Pálína Margrét Stefánsdóttir ✝ Pálína Mar-grét Stef- ánsdóttir fædd- ist 12. febrúar 1925. Hún lést 20. september 2019. Útför Pálínu fór fram 4. október 2019. Meira: mbl.is/andlat Minningar á mbl.is Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Lára Árnadóttir, umsjón útfara Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Sálm. 16.11 biblian.is Kunnan gerðir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu, yndi í hægri hendi þinni að eilífu. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AÐALHEIÐUR HELGA JÚLÍUSDÓTTIR Lækjasmára 6, Kópavogi, lést 26. september á heimili sínu. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Hallmann Sigurðsson Brynjar Hallmannsson Helga Valgeirsdóttir Bjarney M. Hallmannsdóttir Gestur Pétursson Ragnheiður J. Ragnarsdóttir Kjartan Þ. Kjartansson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.