Morgunblaðið - 31.10.2019, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 31.10.2019, Blaðsíða 47
Ég kynntist Agli fyrst fyrir réttum 30 árum. Ég hafði þá með höndum samskipti við arkitekta og byggingastjóra við byggingu stórrar verslunarmiðstöðvar og síðan annarrar nokkrum árum síðar. Því er skemmst frá að segja að með okkur tókust góð kynni. Það- an í frá unnum við oftsinnis náið saman. Fórum utanlands saman, stundum tveir saman, stundum í stærri hópi. Minnisstæð er ferð okkar tveggja til Færeyja og svo áfram til Kaupmannahafnar með Vig- dísi hans og Regínu minni. Þar rifjaði Regína upp dvöl sína í gömlum sumarbústað Guð- mundar frá Miðdal, föður Egils, við Hafravatn. Öll sú upprifjun á því sem þar gerðist myndi sannfæra mestu efasemdarmenn um að endamörk heimsins eru okkur ekki sýnileg. Oft síðar ræddum við flókin ætt- artengsl Egils og reyndar margt fleira sem á ekki erindi við alla. Í starfi sínu var Egill allra manna fremstur. Hann var list- fengur eins og hann átti kyn til. Skipulagður, tillögugóður, flinkur teiknari og úrræðagóður svo af bar. Í samstarfi kom hann fram af einstakri virðingu við samstarfs- menn sína og reyndar við alla aðra. Ef maður segði t.d. um ein- hvern (með sönnu) að hann væri alveg ómögulegur þá myndi Egill svara eitthvað á þá leið að sá hefði ekki náð alveg fullum tökum á verkinu. Aldrei minnist ég þess að hann lenti í ágreiningi að fyrra bragði; ef einhver gerði ágreining við Eg- il, þá færði hann þeim sama allt til betri vegar. Egill var allra manna ljúfastur í framkomu. Honum sagðist skemmtilega frá. Aldrei fór mað- ur bónleiður af fundi hans. Þann- ig maður var hann. Nú skiljast leiðir að sinni. Egill lagði gott eitt til allra mála, hann lagði Oddfellowreglunni gott og umfangsmikið lið í mannúðarmál- um. Í stjórnmálum fylgdum við Sjálfstæðisflokknum, hvor með sínum hætti. Mikill harmur er að okkur kveðinn, auðvitað mest að Vigdísi og fjölskyldu þeirra. Megi Guð vaka yfir Agli og fjölskyldu hans, nú og að eilífu. Einar S. Hálfdánarson. Hinsta kveðja til góðs vinar. Ég sakna vinar míns, sam- starfsfélaga og ferðafélaga Egils Guðmundssonar sem nú er fallinn frá. Egill var á margan hátt ein- stakur maður, listrænn, góður arkitekt, góður vinur, en aðalein- kenni hans var þessi góða nær- vera, ljúfmennska og velvilji. Við höfum brallað margt sam- an, bæði innan og utan vinnu. Vinahópur okkar fimm hjóna „Fjallalambið fagurblátt“ þar sem Egill var æviráðinn formað- ur fór í jeppaferðir, menningar- ferðir og nú síðar leikhúsferðir auk fjölda samverustunda um langt skeið. Fundarboð frá formanninum var oftar en ekki í bundnu máli. Egill átti mörg áhugamál, fjalla- mennsku, bíla, veiðimennsku, ís- lenska náttúru og um tíma vorum við saman í hlaupahópi Grafar- vogs í góðra vina hópi. Minnisstæð og ógleymanleg er ferð okkar hjóna með Vigdísi og Agli til Ekvador þar sem við kynntumst líka nokkrum systk- ina hans, svo og til Kína í brúð- kaup Arnars og Biancu. Við Egill höfum unnið saman við hönnun að fjölmörgum hönn- unarverkefnum og -samkeppn- um, og var einstaklega gott að vinna með honum. Elsku Vigdís og fjölskylda, megi alvaldið veita ykkur styrk á þessum erfiðu tímum, okkar inni- legustusamúðarkveðjur. Pétur Jónsson og Sigrún. MINNINGAR 47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019 ✝ Halldóra Krist-jánsdóttir fæddist í Reykja- vík 22. apríl 1965. Hún lést á Land- spítalanum í Foss- vogi 28. september 2019 eftir skamma sjúkdómslegu. Foreldrar henn- ar voru Hólm- fríður Há- konardóttir, f. 5. september 1942, d. 1980, og Kristján Oddgeirsson, f. 20. október 1940. Halldóra var næstyngst í sex systkina hópi en hin eru: Hjör- dís, f. 1959, d. 2008, Oddgeir, f. 1961, d. 2018, Baldvin, f. 1962, Guðfinna Jóna, f. 1964, og Helga, f. 1968. Samfeðra er Ósk Dís, f. 2000. Eftirlifandi eig- inmaður Halldóru er Hannes Clemens Pétursson, f. 30. desember 1959. Þau voru til heimilis á Laug- arnesvegi í Reykjavik. Útförin fór fram 3. október 2019 frá Fossvogskapellu í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Elsku Dóra mín er farin, ég er að átta mig á því, en það gerðist skjótt og óvænt. Að vísu var heilsan ekki í lagi, en að þetta endaði svona var ekki í mínum huga. Eftir situr eiginmaður og aðrir ástvinir og spyrja hvers vegna, en fá engin svör. Nú rifj- um við upp allar góðar minn- ingar um hana. Ég man eftir knúsunum hennar sem voru svo þétt og einlæg. Svarinu í símann þegar hún sagði ævinlega sæl og blessuð með áherslu. Allar skemmtilegu sumarbústaðaferð- irnar um allt land og ferðir er- lendis. Svona gæti ég haldið áfram að telja upp. Dóra var sannur vinur og alltaf tilbúin til að gera allt fyrir alla, bæði fjöl- skyldu og vini og rétta hjálp- arhönd. Minni Dóru var einstakt, hún mundi ótal afmælisdaga og símanúmer, hún var mjög tölu- glögg og kom það sér vel þegar hún var að vinna hjá Rauða krossinum. Hún var ævinlega þakklát fyrir það sem fyrir hana var gert Dóra átti hann Hannes sinn sem var beggja lán. Þau studdu hvort annað á fallegan hátt, undu sér saman og töluðu vel hvort um annað. Tími þeirra saman hefði mátt vera lengri. Ég þakka Dóru samfylgdina og lofa henni að vera alltaf til staðar fyrir Hannes hennar. Ég veit líka að hún verður alltaf nálægt honum og hann á góða fjölskyldu sem mun styðja við hann í framtíð- inni. Sjálf er Dóra örugglega komin í englahópinn, laus við all- ar þjáningar og hittir þar marga ástvini sem umvefja hana. Dóru þakka ég fyrir alla ástina sem hún sýndi mér og allar bænirnar sem hún bað fyrir mér. Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vorn grætir þá líður sem leiftur úr skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum. (H.J.H.) Halldóra Guðmunds- dóttir (fóstra). Halldóra Kristjánsdóttir Bróðir minn var fjórum árum yngri en ég. Sumarið 1948 hafði ég það hlutverk að vekja hann eftir miðdagsblund. Úlfur vakn- aði alltaf glaður í bragði – söng hástöfum „Faðir andanna“ eftir Matthías; heyrði föður okkar syngja sálminn. Úlfur Einarsson ✝ Úlfur Ein-arsson fædd- ist í Mýnesi 29. ágúst 1946. Hann lést 13. mars 2019. Foreldrar hans voru Laufey Guðjónsdóttir kennari og Einar Örn Björnsson bóndi á Mýnesi. Systkini Úlfs: Arnljótur Ein- arsson, Sigríður Laufey Ein- arsdóttir, Björn Einarsson (lát- inn), Áskell Gunnar Einarsson (látinn), andvana fæddur dreng- ur, Guðjón Einarsson og Hjör- leifur Einarsson (látinn). Útförin fór fram 26. mars 2019 í kyrrþey. Úlfur var miklum hæfileikum búinn, hafði fallega barns- rödd og bráðgáfaður. Eftir fermingu lá leiðin í Eiðaskóla – tók próf eftir tveggja ára nám – hann eign- aðist þá þegar Bakk- us að vini og þeir skólabræður Vil- hjálmur frá Skjöld- ólfsstöðum keyptu sér vín og voru að sjálfsögðu reknir úr skóla. Mamma fékk því framgengt að Úlfur tæki prófin í endurvarpsstöðinni hjá Gissuri Ó. Erlingssyni, þökk sé honum. Eftir Eiðaveruna fór hann á samning í bifvélavirkjun hjá Arnljóti Einarssyni bróður okk- ar er rak verkstæði á Egilsstöð- um; sóttist honum námið vel. Um það leyti kvæntist hann Sigríði Þorvaldsdóttur frænku sinni en hjónabandið stóð stutt; Bakkus réð enn ferðinni. Þá fluttist hann suður, vann um tíma hjá Sólheimum í Grímsnesi og sem strætis- vagnabílstjóri í Reykjavík um árabil. Síðan rútubílstjóri eftir 70 ára aldur. Úlfur var prýði- lega ritfær og talsmaður stræt- isvagnabílstjóra með greinum í Mbl. Keypti hann sér íbúð í Krummahólum og var aldrei háður Bakkusi eftir það. Úlfur bjó með Sonju Sigur- jónsdóttur er vann lengi hjá BSÍ; þau héldu sambandi í 17 ár og var hún stoð hans og stytta gegnum veikindi og sleit hann endanlega sambandi við Bakkus með hennar hjálp. Innilegar þakkir og kveðjur til hennar. Úlfur var fjölhæfastur og greindastur af okkur systkin- um, fór oft í gegnum dimman dal en vann sigur að lokum. Blessuð sé minning hans. Faðir ljósanna, lífsins rósanna, lýstu landinu kalda. Vertu oss fáum, fátækum, smáum líkn í lífsstríði alda. (Matthías Jochumsson) Sigríður Laufey Einarsdóttir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SVALA NIELSEN, lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum 14. október. Örlygur Antonsson Jónas Antonsson Sonja María Sigurðardóttir Ómar Antonsson Kristín Gísladóttir Þorsteinn Þorsteinsson Íris Gunnarsdóttir Ína Björg Guðmundsdóttir Sigurður Friðrik Guðfinnsson barnabörn og barnabarnabörn Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN RAGNAR HARALDSSON bóndi, Gautsdal, lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi að morgni sunnudags 20. október. Útför fór fram í kyrrþey að ósk hins látna þriðjudaginn 29. október frá Bólstaðarhlíðarkirkju. Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför. Fyrir hönd aðstandenda, Kristín Sigríður Jónsdóttir Gísli Garðarsson Gauti Jónsson Rannveig Runólfsdóttir afa- og langafabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVERRIR GUÐVARÐSSON Hlaðhömrum 2, áður Fálkahöfða 4, lést á Landakotsspítala þriðjudaginn 22. október. Útför hans fer fram frá Áskirkju föstudaginn 1. nóvember klukkan 14. Sérstakar þakkir til starfsfólks Landakotsspítala L2 fyrir frábæra umönnun. Sigríður Bjarnason Hjálmar Sverrisson Oddrún Sverrisdóttir Gísli Guðmundsson Sverrir Sverrisson Kristrún Leifsdóttir Pétur Sverrisson Helena Ragnarsdóttir Karl Friðrik Sverrisson Susan Ellekær Birgir Þór Sverrisson Kolbrún Eva Valtýsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær sonur okkar, bróðir og mágur, HALLGRÍMUR ÞORMARSSON veitingastjóri á Hótel Búðum lést af slysförum 27. október. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 7. nóvember klukkan 13. Þuríður Hallgrímsdóttir Finnbogi Kjartansson Þormar Ingimarsson Þórunn Stefánsdóttir Kjartan Henry Finnbogason Helga Björnsdóttir Fjóla Finnbogadóttir Davíð Sigurbergsson Ása Lind Finnbogadóttir Thelma Þormarsdóttir Óskar Örn Hauksson Rakel Þormarsdóttir Auðunn Blöndal Bryndís Begga Þormarsdóttir Einar Ólafsson Kahina Ólafsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, STURLÍNA STURLUDÓTTIR fyrrum húsfreyja á Þorvaldsstöðum í Hvítársíðu, lést á heimili sínu, Hrafnistu í Hafnarfirði, sunnudaginn 27. október. Jarðsett verður frá Reykholtskirkju þriðjudaginn 5. nóvember klukkan 11. Aðstandendur þakka starfsfólki Hrafnistu fyrir alúðlega og góða umönnun síðastliðin ár. Ásgeir Sigurðsson Sigrún Finnjónsdóttir Kristján Sigurðsson Sigurveig Sjöfn Einarsdóttir Halldór Sigurðsson barnabörn og barnabarnabörn Okkar elskulegi VALDIMAR BJARNASON, Þorlákshöfn, lést mánudaginn 21. október. Útförin fer fram frá Þorlákskirkju laugardaginn 2. nóvember klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Píeta samtökin. Þorbjörg Jónína Magnúsdóttir Bjarni Már Valdimarsson Eva María Hilmarsdóttir Bryndís Ósk Valdimarsdóttir Magnús Þór Valdimarsson Lilja Margrét Sigurðardóttir Salka Liljan Bjarnadóttir Bjarni Valdimarsson Guðfinna Karlsdóttir Magnús Snorrason Friðgerður Pétursdóttir Þóra, Emma og Sandra Bjarnadætur og fjölskyldur Pétur, Jón, Arnþór og Fjóla Rós Magnúsarbörn og fjölskyldur Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, EINAR PÁLSSON Furugerði 1 Reykjavík lést í faðmi dætra sinna á Landspítalanum þriðjudaginn 29. október. Jarðarförin verður tilkynnt síðar. Gerður Einarsdóttir Guðmundur Páll Óskarsson Kristrún Einarsdóttir Gunnar Valur Steindórsson og barnabörn Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi lið- ur, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugg- anum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja við- hengi við síðuna. Minningargreinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.