Morgunblaðið - 31.10.2019, Síða 48

Morgunblaðið - 31.10.2019, Síða 48
48 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019 ✝ Valborg Odds-dóttir, Birki- hlíð 38, Reykjavík, áður Neðra-Hálsi í Kjós, fæddist á fæð- ingardeild Lands- spítalans 19. febr- úar 1950. Hún lést á Líknardeild Landsspítalans 8. október 2019. Foreldrar Val- borgar voru Oddur Andrésson, f. 24.11. 1912, d. 21.6. 1982, bóndi á Neðra-Hálsi í Kjós og kona hans Elín Jóns- dóttir, f. 29.6. 1921, d. 26.12. 2010. Systkini Valborgar eru Ágústa, f. 1947, Ólöf, f. 1948, Ólafur, f. 1951, Kristján, f. 1954, og Lilja, f. 1960. Sonur Val- borgar er Emil Örn Evertsson, f. í Kaupmannahöfn 4.1. 1975, raf- eindavirki. Faðir hans er Evert Ingólfsson leikari og garð- yrkjumaður. Fyrir átti Evert dæturnar Kristínu og Gyðu. Evert býr með Elínu Njáls- dóttur. Börn þeirra eru Elín Helena og Kristinn. Valborg var í sambúð með Lárusi Má Björns- fjörðum. Þar kynntist hún Lár- usi Má Björnssyni, félagsmála- fulltrúa og ljóðskáldi. Valborg, Lárus og Emil Örn fluttu frá Ísafirði til Stokkseyrar þar sem Valborg kenndi við grunnskól- ann í tvö ár. Frá Stokkseyri fluttu þau til Reykjavíkur og þar vann Valborg á Náms- gagnastofnun. Einnig kenndi hún um tíma við Fjölbraut- arskóla Suðurnesja. Hún skráði sig í námsráðgjöf við HÍ og lauk námi í þeirri grein samhliða fullri vinnu og vann síðan sem námsráðgjafi í Hvassaleitisskóla og í Háteigsskóla. Valborg hafði opin og leitandi huga og eftir að hafa tekið námsskeið í teikningu og málun í Myndlistarskólanum í Reykjavík fór hún að læra Maóri-nudd og svæðanudd og starfaði sem heilsu- og svæð- anuddari síðustu 15 ár ævi sinn- ar. Hluta þess tíma bjó hún á Neðra-Hálsi og naut þess til fullnustu að vera í sveitinni og sinna þar náttúrutengdum áhugamálum. Hún prjónaði listavel, bæði eftir eigin upp- skriftum og annarra. Hún prjón- aði mikið fyrir Handprjóna- sambandið í gegnum árin, sem og fyrir stórfjölskylduna. Bálför Valborgar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hennar og verður hún jarðsett í Reyni- vallakirkjugarði í Kjós. syni, f. 1952, d. 2014. Sonur Lár- usar er Kári. Emil Örn er kvæntur Þórhildi Knútsdóttur, f. 5.7. 1979, sjúkraþjálf- ara og eru börn þeirra Kári, f. 15.4. 2007, Sindri, f. 1.7. 2010, og Ásta Sól- ey, f. 11.2. 2014. Valborg ólst upp á Neðra-Hálsi þar sem foreldrar hennar stunduðu blandaðan bú- skap. Hún lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands vorið 1970 og kenndi við barnaskól- ann Ásgarð í Kjós og við Foss- vogsskóla þar til hún hélt til Kaupmannahafnar til frekara náms haustið 1974. Þar lagði hún stund á uppeldis- og sál- arfræði. Í Kaupmannahöfn kenndi hún íslenskum börnum á laugardagsmorgnum í litlum skóla sem stóð börnunum til boða einu sinni í viku. Valborg og Emil Örn fluttu aftur til Ís- lands árið 1983 og var hún þá ráðin sérkennslufulltrúi á Vest- Elsku amma Valborg. Síðustu vikur hafa verið mikill rússíbani því veikindin bar brátt að og þau rændu þig öllu þreki á stuttum tíma. Þegar söknuðinn ber að garði er gott að hugga sig við að rifja upp allar góðu stund- irnar sem við áttum saman. Þú varst alltaf svo góð og uppá- tækjasöm og með svo hlýja nær- veru. Það yljaði barnabörnunum alltaf um hjartarætur þegar þau komu heim úr skólanum og þú beiðst þar og kallaðir eruð þið komin, elskurnar mínar? Þú varst mikið inni á heimilinu og varst alltaf til staðar ef eitthvað bjátaði á eða til að spjalla um alla heima og geima, amma nennti alltaf að hlusta á okkur og gaf sér tíma, sagði einn ömm- ustrákurinn. Það var einmitt málið það fór ekki mikið fyrir þér en þér leið best í kringum ömmubörnin þrjú. Engin hug- mynd var óframkvæmanleg og lagðir þú mikið á þig til að láta alla drauma barnabarnanna ræt- ast. Þú varst mikill náttúruunn- andi og mjög nýtin og ekkert fór til spillis og nutum við leiðsagn- ar þinnar í þeim málum sem var ómetanlegt og mótaði okkur. Við munum reyna að viðhalda öllum þessu skemmtilegu föstu liðum sem við uppliðum með þér og þú passaðir svo vel upp á að við nyt- um sem best eins og að fara að tína ber saman, taka upp kart- öflur, setja niður gulrætur í garðinum og passa upp á jarð- arberin og finna fallega steina og jafnvel mála þá. Amma var líka mikill græðari og hafði alltaf ráð við öllu, vall- humalskremið hennar lagaði allt og græddi og olíurnar voru aldr- ei langt undan. Kjósin, þar sem þú ólst upp og bjóst um nokkurra ára skeið í seinni tíð, geymir margar minn- ingar og eyddum við mörgum stundum á landskikanum þínum við að reyna að byggja upp sælureitinn okkar. Létum við okkur dreyma um húsið sem enn hefur ekki risið. Það hryggir okkur að þú náir ekki að sjá bú- staðinn rísa en hann mun rísa í minningu þinni þegar að því kemur. Við munum sakna þín mikið. Hvíl í friði, elsku amma, mamma og tengdamamma. Emil Örn Evertsson, Þórhildur Knútsdóttir, Kári Emilsson, Sindri Emilsson, Ásta Sóley Emilsdóttir. Fuglasöngurinn er hávær, það er berjaveisla, þessa fallegu daga í október. Kveðjustundin nálgast, það liggur í loftinu. Blanda af sorg og gleði, þakk- lætið og tárin, það er pláss fyrir það allt undir reyniviðartrjám við göngustíginn að líknardeild- inni í Kópavoginum. Fuglasöngur fyrir okkur berjasysturnar. Valborg var krækiberjakona eins og Snæfríður og Jói. Hún elskaði reyndar flestöll ber og ekki síst beisk og súr ber. Ég var hissa þegar hún færði mér öskju af rándýrum kirsu- berjum sumarið ’92. Ég var ófrísk af Oddi Goða, „þetta er fyrir bumbuna,“ sagði hún. Valborg tók ekki aðeins að sér að hugsa um mig þegar ég var þriggja og hún bara þrettán ára heldur hugsaði hún um öll börn, alltaf. Það eru mörg dæmi sem hægt væri að tína til. Í sumar fékk hún þá hugmynd að gefa Oddi Goða trompet af því að hann var jú að læra á trompet þegar hann var barn og var góð- ur í því. Henni fannst bara svo mikil synd að hann ætti ekki trompet svo hann gæti æft sig, ef hann vildi, þó að það væru mörg, mörg ár síðan hann hætti að læra. Alltaf var Valborg með hugann við það að ná fram því góða, ná fram styrkleikum, að næra líkama og sál hjá þeim sem henni þótti vænt um, það var umhyggjan fyrir öðrum: börn, vinir, fjölskylda og nuddþegar. Í erfidrykkjunni heyrði ég sögur úr sveitinni. Valborg gat ekki farið í fjósið eða farið í hin og þessi störf, hún þurfti að hugsa um Liljuna. Þessi móð- urlegu tengsl urðu sterk. Ég er þakklát. Við áttum margar dýrmætar stundir saman m.a. í sveitaferð- um og á sólpallinum, þar sem hún bjó í kjallaranum hjá mér síðustu árin, hún alltaf með prjónana, ég með tölvuna innan seilingar. Valborg kom mér oft á óvart þessa síðustu vikuna á líknar- deildinni. Þó að krafturinn væri að þverra var pláss fyrir góðar hugmyndir og óskir. Ég fékk að smyrja hana olíunum, það styrkti andann og snertingin var dýrmæt. „Viltu taka vídeó“ hvíslaði hún veikum rómi. Já, ég tók vídeó á símann og það reyndist vera af síðustu mál- tíðinni og meira að segja dreypt- um við á kaffi og opnuðum Síríus rjómasúkkulaðið og Ópal pakk- ann, uppáhaldið hennar Val- borgar, svo sagði hún, svona með Ópalinu: „Hún er alltaf að vinna þessi stelpa.“ Hún Valborg vissi að ég var oft að vinna, vinna heima, og þess vegna sparaði hún líka að trufla mig eða biðja mig um hjálp. Ó hvað ég vildi að ég hefði … já það er þetta sem gerir mig sorgmædda. Kópavogurinn er spegilslétt- ur, það er bjartur dagur, olíur og rósir í glugganum. Það var ekki mikil orka á síð- ustu metrunum en viskan henn- ar Valborgar sýnir sig: „Þegar maður horfir framan í þann sem er handan við tjöldin, þá skiptir þetta engu máli.“ Já, þetta veraldarvafstur skiptir víst engu máli. Blátt lítið blóm eitt er, ber nafnið: Gleymdu ei mér. Væri ég fleygur fugl flygi ég til þín. Svo mína sálu nú sigraða hefur þú, engu ég unna má öðru en þér. (Þýsk þjóðvísa) Elsku Emil, Tóta, Kári, Sindri og Ásta Sóley, gullmolarnir hennar Valborgar, við erum hér fyrir ykkur öll! Lilja, litla systir. Elsku Valborg, mín kæra systir. Það er ekki auðvelt að hugsa sér að við sjáumst ekki meir á Stekkjarflötinni, Birki- hlíðinni né Bakkagerðinu í alls konar fjölskyldusamhengi. Við áttum okkar friðsömu kveðjustund á líknardeildinni og ég fann þig hverfa hægt og hljótt á braut í gegnum skynfæri mín, hendur og hjarta. Skyndi- lega varð þögnin mjög djúp og fylltist af fögrum minningum sem flugu á ógnarhraða um hug- skotið og aðrar hugsanir sögðu að ekki væri lengur hægt að búa til nýjar minningar, lífi okkar saman væri lokið. Ég kyssti þig á ennið og hvíslaði „elsku Val- borg, hvíldu í friði“, gekk út úr herberginu og hringdi í Emil sem kom að vörmu spori. Það skiptir auðvitað engu máli hvað ég segi úr því sem komið er nema til að minnast fallegu stundanna og nærveru þinnar í okkar samskiptum. Nærgætin framkoma þín, hug- ulsemin, hjálpsemin og ljúf- mennska situr í hjarta mínu og hugskoti. Ég heyrði þig aldrei reiðast né skammast út í nokk- urn né um nokkuð. Þú dæmdir ekki fólk og blandaðir þér ekki í deilur af nokkrum toga. Litla fjölskyldan ykkar ber þess ljúft merki. Ávallt hugsaðir þú um þarfir annarra á undan þínum eigin og gerðir ekki upp á milli fólks. Þín ljúfa lund og rólyndi gerði þér kleift að starfa að mik- ilvægum málum í þögninni. Allt í einu sáust litlar plöntur stinga sér upp úr moldinni; álmar og þinir, sem nú sjást víða á bernskuslóðum okkar og bera vitni um fallega ræktunarsögu og votta göfuglyndið. Þér var annt um hið smáa í náttúrunni s.s. með því að hlúa að berja- lyngi á Kríuhólnum. Þú varst eins og furan; ljóselsk, hitakær, eftirgefanleg og græðandi enda bjóstu til græðandi smyrsl úr vallhumli og gafst fólki i kring- um þig. Þín eigin áföll og erf- iðleika geymdir þú innra með þér á þinn hljóðláta hátt. Gula kaffitrektin sem þú not- aðir á námsárunum í Kaup- mannahöfn hefur í mörg ár verið minn kaffigjafi og mun halda því áfram og minna mig á þær góðu stundir. Ég hugsa hlýtt til Em- ils, Tótu, Kára, Sindra og Ástu Sóleyjar og verð þeim innan handar ef þau þurfa á því að halda í framtíðinni. Takk elsku Valborg. Ólafur Oddsson (Óli bróðir). Hin yndislega Valborg frænka er fallin frá. Mig langar til að minnast hennar með nokkrum orðum og minninga- brotum. Mér er minnisstæðust nærgætni hennar í háttum og yl- urinn í röddinni. Hún var ljúf- asta mannvera sem sem ég hef þekkt. Hún bjó í Danmörku þeg- ar Emil fæddist og vorum við mamma svo heppin að heim- sækja þau þar tvisvar. Fyrst þegar Emil var nýfæddur og al- gjört krútt og svo þegar hann var kominn á legg og enn þá krúttaðri. Það voru mikil ævin- týr fyrir ungan dreng að heim- sækja þau, kynnast dásamlegu frændfólki, leikjum í bakgarðin- um og hornsílaveiðum í tjörnum. Valborg var frábær gestgjafi og Emil hinn skemmtilegasti frændi, sérstaklega eftir að hann lærði að ganga og tala. Dagarnir með Valborgu og Emil í Dan- mörku eru sveipaðir ljóma og hlýju í minningunni. Eftir að þau fluttu heim var auðveldara að vitja þeirra og voru stundir okkar saman skemmtilegar og yndislegar. Okkur fannst sérstaklega gaman að heimsækja Valborgu í gamla húsið í sveitinni. Húsið öðlaðist nýtt líf, var rifið úr fortíðinni og fylltist hlýju, væntumþykju og vallhumalsilmi þegar Valborg bjó þar. Þar ræddum við himin og jörð, garðrækt og geimvís- indi, krækiber og aðalbláber. Valborg var mikil berjakona eins og systur hennar og mág- konur. Með haustinu kom iðu- lega yfir hana berjahugur og var þá skoppað um holt og móa í leit að gjöfulum þúfum. Í gamla hús- inu voru á þeim árstíma iðulega ber í skálum, sem hún deildi glöð með gestum og gangandi. Valborg var ákaflega örlát á tíma sinn og ást. Eitt sinn fékk hún álmfræ til að spíra og ól upp af þeim nokkra tugi trjáa upp í reitnum sínum. Af sinni fá- dæma gjafmildi gaf hún systk- inum sínum flesta álmana þegar þeir voru orðnir stálpuð tré. Standa þeir nú víða á reitunum sem minnismerki um hverju ást- ríki, nærgætni og einlæg sam- skipti fá áorkað. Hún prjónaði einnig afburða fallegar peysur, sem margir ættingjanna voru svo heppnir að eignast. Í peys- unum og álmunum erum við svo heppin að geta horft á eða borið utan á okkur handbragð, hlýju og ást Valborgar þótt hún sé nú farin. Við vottum Emil, Þórhildi, Kára, Sindra og Ástu Sóleyju okkar innilegustu samúð, sem og systkinum hennar, ættingj- um og ástvinum öllum. Arnar Pálsson og fjölskylda. Viltu vera stilltur gera einungis það sem gott er hverjum og gefandi og öðrum að líði sérhverjum sem væri í unaðslandi (Guðl. Ósk.) Fyrir hartnær 50 árum gekk út úr Kennaraskóla Íslands vaskur hópur kennara sem „lagði út á lífsins braut“ eins og segir í fallegu ljóði Freysteins Gunnarssonar, fyrrverandi rekt- ors þess skóla. Í hópnum var tvítug stúlka sem gekk til móts við lífið, hæglát en þó með létta og glaða lund, það var Valborg Oddsdóttir. Hún var góður vin- ur og félagi og áttum við saman gott samfélag í fjóra vetur bæði innan skóla og utan. Það var eft- irminnilegt þegar við vorum saman í partíi í Hlíðunum á H- daginn, hinn 26. maí 1968, þegar við gengum út í nóttina og fylgdumst með umferðinni fær- ast af vinstri akrein yfir á þá hægri. Einnig þegar Hekla gaus vorið sem við útskrifuðumst og við fórum saman austur fyrir fjall og upp að eldfjallinu – sér- stök útskriftarferð. Valborg mætti yfirleitt í jólamáltíðina okkar, en við bekkjarfélagarnir höfum í áratugi hist hinn 29. desember ár hvert og átt góða stund saman. Þeir mæta sem geta. Einnig höfum við hist síðla sumars í nokkur skipti og var Valborg með okkur í uppsveit- um Borgarfjarðar 2017 þar sem við áttum ógleymanlega sam- veru. Við munum Valborgu glaða og hressa í góðra vina hópi, hún hafði gaman af því að syngja og gerði það vel en stundum var eins og hún bæri með sér sorg í sinni, enda eru fáir sem fara gegnum lífið án þess að glíma við erfiðleika af einhverju tagi. Valborg var alla tíð heil í vin- áttu sinni, hún bar með sér mildi og gaf mikið af sér. Við þökkum fyrir að eiga góðar minningar um ljúfa bekkjarsyst- ur og sendum fjölskyldu hennar samúðarkveðjur. Fari hún í friði umvafin engl- um og góðum vættum. Hver veit hvort hinsta vort kvöld er nær eða fjær lofum því líðandi stund hvern ljúflingsfund vinur kær (Guðl. Ósk.) Fyrir hönd D-bekkjar Kennaraskóla Ís- lands 1966-1970, Guðrún Þóranna Jónsdóttir. Valborg Oddsdóttir ✝ Ólafur Ágústs-son fæddist í Grindavík 22. júlí 1935. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu Víðihlíð 25. október 2019. Foreldrar hans voru Matthildur Sigurðardóttir, f. 1. júní 1914 d. 10. september 2005, og Sveinbjörn Ágúst Sigurðsson, f. 11. ágúst 1906, d. 28. júní 1975. Systkini Ólafs; Bjarni Guð- mann, f. 1931, d. 2012, Hildur Sigrún, f. 1936, Hallbera Árný, f. 1938, Alda, f. 1940, Bára, f. 1940, Ása, f. 1941, Þórdís, f. 1942, Sigríður Björg, f. 1946, Sigurður Magnús, f. 1948, Hrönn, f. 1951, Matthildur Bylgja, f. 1952, d. 2009, Svein- Börn hennar eru Sölvi Snær, Adrían Elí og Indía Lind. 2) Ágústa Hildur, f. 4. mars 1961, maður hennar er Hjálmar Hallgrímsson. Börn þeirra eru a) Gréta Dögg, f. 1986, börn hennar eru Unnur Embla og Hjálmar Logi. b) Hallgrímur, f. 1992, í sambandi með Geir And- ersen, f. 1994, dóttir Hallgríms er Katrín Eva. c) Unnar, f. 1997. 3) Íris, f. 25 september 1964. Börn hennar eru a) Egill Geir- dal, f. 1985, í sambúð með Evu Lind Matthíasdóttur, f. 1985. Börn þeirra eru Ólafía Hrönn, Natalía Freyja, Viktor Veigar, Silvía Rán og Kjartan Darri. b) Alma Rut, f. 1990, í sambúð með Robert Slover, f. 1988. c) Elmar Ágúst, f. 1993, í sambúð með Kristjönu Margréti Guðmunds- dóttur, f. 1991. d) Vignir Páll, f. 1995. e) Arent Númi, f. 2005. Útför Ólafs fer fram frá Grindavíkurkirkju í dag, 31. október 2019, og hefst athöfnin klukkan 13. björn Ægir, f. 1954, Sjöfn, f. 1956. Ólafur kvæntist 25. desember 1958 Unni Guðmunds- dóttur, f. 10. júlí 1938, d. 25. apríl 1997. Foreldrar hennar voru Sigrún Guðmundsdóttir, f. 23. janúar 1915, d. 18. ágúst 2008, og Guðmundur Guð- mundsson, f. 18. maí 1905, d. 14. september 1981. Börn Ólafs og Unnar eru: 1) Sigurþór, f. 14. september 1959, kona hans er Hallfríður Traustadóttir. Börn þeirra eru a) Ólafur Unnar, f. 1984 maki Ásdís Bjarnadóttir, f. 1984. Börn þeirra eru Alexander Máni, Sigurþór Nökkvi og Unn- ar Orri. b) Kristín Ósk, f. 1986. Elsku afi, þá ertu kominn í sumarlandið til ömmu eftir 22 ára fjarveru hennar. Það sem einkenndi þig var að þú varst alltaf hlæjandi og með húmor- inn á lofti og þegar þú fórst á böll varstu hrókur alls fagnað- ar. Mér finnst svo skemmtileg saga af þér þegar þú komst á ball á Sjómannastofuna og ég var að vinna á barnum og alltaf keyptirðu bara kók og ég skildi ekkert í því að þú varðst alltaf meira og meira hress af þessari einu litlu kók, svo fór ég að fylgjast betur með þér þá sá ég að minn maður var allan tímann með nesti, það er nú varla barnabarnið hans sem fer að segja eitthvað við því. Þið amma byggðuð sumarbú- stað 1990 sem var sameining- artákn fjölskyldunnar og áttum við nú margar góðar minningar þaðan og einhvern veginn fannst mér þér líða alltaf best í sumarbústaðnum og vildir helst vera þar allt árið. Við Unnar bróðir fórum með þér eitt skiptið í vinnuferð upp í bústað og það var farið í búðina á und- an til að kaupa eitthvað fyrir helgina, ég spyr: afi, hvað eig- um við að borða í kvöld? (Inni í búðinni) þá svarar þú: haldið þið að þið séuð bara að koma hingað upp í bústað til að éta!? Svona var húmorinn hans afa, mjög svartur og góður. Takk fyrir allt, elsku afi, ég mun minnast þín með virðingu og söknuði, en ég veit að samt sem áður var þetta gott fyrir þig að fá að fara. Hallgrímur Hjálmarsson. Ólafur Ágústsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.