Morgunblaðið - 31.10.2019, Side 49
suðuverksmiðju K. Jónssonar &
Co á Akureyri.
Tilgangur félagsins var að
reka niðursuðuverksmiðju og
kaupa og selja hvers konar sjáv-
arafurðir.
Kristján rak einnig Nótabrúk
og þrjá báta sem notaðir voru til
veiða á smásíld á Pollinum og
átti K. Jónsson síðasta úthaldið,
áður en þessi veiðiaðferð lagðist
alveg af.
Hann rak einnig verslanirnar
Kjöt & fisk og Didda-bar. Hann
var með pylsugerð, kartöflu-
geymslu og fiskhús.
Árið 1962 stofnuðu hann og
nokkrir aðrir hlutafélagið Norð-
urver sem rak hina glæsilegu
matvörubúð Kjörver.
Árið 1969 var Almenna toll-
vörugeymslan stofnuð á Akur-
eyri með miklum myndarbrag.
Þar gátu innflytjendur varnings
geymt ótollafgreiddar vörur sín-
ar og leyst þær út eftir hendinni.
Árið 1972 var Sölustofnun lag-
metis stofnuð. Niðursuðuverk-
smiðja K. Jónsson & Co var ein
hann verkstjóri í
fyrirtækinu um
tíma.
Þetta voru fyrstu
spor Kristjáns í
þessari iðn sem síð-
ar varð hans ævi-
starf.
Árið eftir fór
hann til Þýskalands
og vann þar í fyrir-
tækinu Nordsee.
Það fyrirtæki var
með frystingu á fiski, síldarsölt-
un, reykingu, niðursuðu og nið-
urlagningu. Það má segja að þar
hafi hann verið í verklegu námi.
Árið 1947 stofnuðu Jón, börn
hans og Lovísu, þau Kristján,
Mikael, Jón Árni og María
ásamt Hjalta Eymann, sem var
mikill vinur Kristjáns, Niður-
Kristján Niku-
lásson Jónsson
fæddist í Aðalstræti
50 á Akureyri 31.
október 1919.
Foreldrar hans
voru hjónin Sess-
elja Lovísa Jóns-
dóttir húsfreyja, f.
1892, d. 1974, og
Jón Björn Krist-
jánsson, síldar-
kaupmaður, hús-
gagnasmiður og bólstrari, f.
1890, d. 1962.
Kristján fór að vinna hjá föð-
ur sínum strax og hann hafði
aldur til, við síldarsöltun á Siglu-
firði.
Árið 1938 fór Kristján til
Kaupmannahafnar til starfa við
verksmiðjuna VINCO og var
af 20 aðilum innan samtakanna.
Hlutafélagið Oddeyri var
stofnað árið 1986 um rekstur
skipsins, Oddeyrin EA-210 sem
smíðað var í Slippstöðinni á Ak-
ureyri.
Kristján var í stjórn þessara
félaga um árabil.
Kristján hafði fá áhugamál
fyrir utan vinnuna en þó lét
hann ekkert sumar líða án þess
að renna fyrir fisk. Uppáhalds-
áin hans var Laxá í Aðaldal.
Kristján kvæntist Sigþrúði
Helgadóttir 14. október 1944.
Sigþrúður var fædd í Aðalstræti
40 á Akureyri 25. ágúst 1922.
Hún lést 24. mars 1985 á 63. ald-
ursári.
Sigþrúður var dóttir hjónanna
Kristínar Jóhannsdóttur, f. 1894,
d. 1959, og Helga Tryggvasonar,
f. 1891, d. 1986.
Kristján og Sigþrúður eign-
uðust fjögur börn. Þau eru
Kristín, f. 1945, Anna María, f.
1949, Jón Kristján, f. 1950, og
Helga, f. 1956.
Kristján lést 3. febrúar 1999.
Kristján Nikulás-
son Jónsson
MINNINGAR 49Aldarminning
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019
Björn tengdafaðir minn fór á
vit forfeðranna og veit ég að
þar hefir verið tekið vel á móti
honum. Ég hitti Björn fyrst hjá
systur hans Kristínu og Guð-
mundi lögfræðingi ásamt fleiri
fjölskyldugestum en Kristín
bauð okkur alltaf þangað þegar
Björn kom í heimsókn til Ís-
lands og var oft mikið spjallað
enda stórmenn á staðnum svo
maður hlustaði bara á þessa
karla.
Björn var líka kallaður Toby
heima hjá fjölskyldu sinni.
Hann hafði mikinn áhuga fyrir
útiveru frá unga aldri og síðar
voru laxveiðar hans yndi þegar
hann kom í heimsókn og fór
venjulega í Norðurá í Borgar-
firði og Laxá á Ásum. Vorið
1969 hittum við Guðrún hann,
þá nýgift og bæði með ævin-
týraþrá, á leið okkar til Alaska
Björn
Þorbjarnarson
✝ Björn Þor-bjarnarson,
fyrrverandi skurð-
læknir í New York,
fæddist á 9. júlí
1921. Hann lést í
New Jersey 4.
október 2019.
Minning-
arathöfn um Björn
mun fara fram á
Flórída síðar.
en Björn starfaði
þá við New York-
spítala. Þarna var
mikið spjallað og
sagðist hann eiga
sér þann draum að
komast til Alaska
með fjölskyldunni
og sagði eftir að
börnin væru búin í
skólanum færum
við. Björn var orð-
inn 70 þegar hluti
af þessum draum rættist þegar
hann fór í flúðasiglingu niður
Copper River í suðurhluta
Alaska og lét sig ekkert muna
um það þrátt fyrir aldur og smá
óhapp eins og hann orðaði það
að hann fótbrotnaði við ein-
hverja athöfnina og þegar það
átti að kalla eftir flugvél og
koma honum til byggða sagði
karlinn nei og setti spelkur á
sig og sat restina af ferðinni í
gúmmíblöðrubátnum, en þetta
var viku ferð. Þarna vildi hann
ekki láta eitt fótbrot eyðileggja
draumaferðina.
Næst þegar ég hitti hann
sagði hann haltrandi: „Ég fer
bara að vinna aftur ef ég get
ekki ferðast út af löppinni.“ En
svo lagaðist þetta og hann ferð-
aðist um víðan heiminn, þar á
meðal suðurheimskautið svo eitt
sé nefnt.
Hann hafði mikinn áhuga á
lífríkinu og eftir að hann keypti
sér Brady-bátinn niðri í Flórída
fór hann mikið að skoða fugla
innanskerja og var hann sem
heima hjá sér á þeim slóðum,
sérstaklega innan um krókó-
dílana og sú spurning hefur oft
hvarflað að mér hvort sonur
hans heitinn John hafi fengið
krókódílaáhugann frá honum.
John var oft kallaður Krókó-
díla-Dundee, en hann var með
fremstu í þeim fræðum en hann
var á kafi í bæði krókódílum og
stórum kyrkislöngum, s.s. ana-
conda-risaslöngunum, og spurn-
ing er hvort hann var fyrir-
mynd Krókódíla-Dundee
bíómyndar.
Ég hafði mikla ánægju að
fara með Birni á Brady-stang-
veiðibátnum hans að veiða
sunnan við Canaveral-höfða en
þar var alltaf nægur fiskur.
Við fjölskyldan fengum oft að
vera á vorin á Canaveral með
börnin okkar þegar þau voru
minni en þá var maí uppáhalds-
tíminn okkar. Þetta voru ynd-
isleg ár sem gleymast aldrei.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Þetta ljóð gæti ekki átt betur
við Björn og líka son hans John
því orðstír þeirra mun aldrei
gleymast á heimsvísu. Öll okkar
samúð er með fjölskyldunni.
Frá fólkinu Kleifarási 3,
Valdimar Samúelsson.
✝ Eyjólfur G.Jónsson fædd-
ist í Reykjavík 18.
apríl 1938. Hann
lést á hjúkr-
unarheimilinu Eir
3. október 2019.
Hann var sonur
Valgerðar M. Eyj-
ólfsdóttur sjúkra-
liða og Jóns Eyþór
Guðmundssonar,
listmálara og
kennara. Eyjólfur ólst upp í
Reykjavík, stundaði fyrst nám í
matreiðslu og lauk sveinsprófi í
matreiðslu 31. maí 1958. Síðar
nam hann tannsmíði og lauk
sveinsprófi í tannsmíði 23. maí
1964. Eyjólfur starfaði lengst
sem tannsmiður, bæði hjá Erni
barn sitt, Eyþór Eyjólfsson.
Eldri sonur þeirra hjóna,
Eyjólfur Magnús Eyjólfsson
gæðastjóri, er búsettur á Akra-
nesi. Hann eignaðist þrjú börn
með fyrri konu sinni, Jórunni
Arnbjörgu Magnadóttur
ábyrgðafulltrúa. Þau heita Ey-
rún Arna, Elísabet Eir og Ívar
Trausti og á hann tvö börn,
þau Alexöndru og Axel Róbert.
Sambýlismaður Eyrúnar er Jal-
dert og sambýlismaður El-
ísabetar er Bjarnfinnur Ragn-
ar. Seinni eiginkona Eyjólfs er
Hugrún Sigurðardóttir fram-
leiðslustjóri og eiga þau dótt-
urina Yrsu Þöll. Sambýlis-
maður Yrsu er Logi Breiðfjörð
og eiga þau soninn Sævar
Loga.
Yngri sonur Eyjólfs og Ingu
er Eyþór, forstjóri, búsettur í
Tókýó og Mosfellsbæ. Maki Ey-
þórs var Junya Nakano, en
hann lést í bílslysi árið 2008.
Jarðarförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hins látna.
Bjartmars tann-
lækni sem og sjálf-
stætt. Síðustu árin
vann hann hjá
Kjötsmiðjunni og
síðar Ísfugli en lét
af störfum 2005.
Eyjólfur giftist
eftirlifandi eigin-
konu sinni, Ingu
Jónu Sigurðar-
dóttir, hinn 5.
október 1958. Inga
Jóna er fædd 14. mars 1939 og
er dóttir hjónanna Magneu Jó-
hönnu Ingvarsdóttur og Sig-
urðar Jónssonar. Hinn 12. mars
1959 eignuðust þau son sinn,
Eyjólf Magnús Eyjólfsson. Fjór-
um árið síðar, hinn 29. júlí
1963, eignuðust þau seinna
Minning um mann. Já, góðan
og hjartahlýjan mann sem er nú
fallinn frá. Faðir minn andaðist
í svefni 3. október 2019. Margar
góðar minningar á ég um hann,
minningar sem ég geymi sem
gull í hjartastað. Árin í Árbæn-
um voru með miklum ágætum
og mikið um útivistarferðir hjá
okkur fjölskyldunni. Má þar
helst nefna skautaferðir á
Rauða- og Hafravatn og skíða-
ferðir í Bláfjöllin. Áratug síðar
náði útiveran nýjum hæðum
þegar pabbi keypti nýja sex
metra seglskútu sem hlaut
nafnið Ögn. Var hún óspart not-
uð til siglinga um sundin blá og
naut faðir minn þess til hins
ýtrasta. Einnig var færi gjarnan
rennt til að ná í fisk í soðið.
Gleymi ég ekki skiptinu þegar
við veiddum um 300 kg af væn-
um þorski og Landhelgisgæslan
mætti á staðinn. Héldum við að
þeir væru komnir til að taka
okkur að ólöglegum veiðum, en
viti menn; þeir ágætu menn
fóru um borð í snekkju rétt hjá
okkur og gerðu afla og veið-
arfæri upptæk. Aflinn þar um
borð var 30 kg. Ég hef aldrei
heyrt gamla minn hlæja jafn
mikið og þá, hvorki fyrr né síð-
ar. Skömmu síðar settumst við
feðgar saman á skólabekk og
tókum 30 tonna skipstjórnar-
námið og prófið með glans.
Mjög skemmtilegur tími þar.
Fyrir fáeinum árum fór hann
svo sína síðustu skútuferð, á út-
hafsskútu okkar Hugrúnar,
Yrsu AK. Fór ekkert á milli
mála hvað hann naut sigling-
arinnar, þar sem golan kyssti
kinn og bárurnar brotnuðu á
stafni. Svífandi seglum þöndum.
Faðir minn kær, ég óska þér
góðrar siglingar inn í drauma-
landið og þakka þér fyrir allar
góðar stundir.
Eyjólfur M. Eyjólfsson,
Hugrún Sigurðardóttir.
Eyjólfur G.
Jónsson
Við þökkum auðsýnda samúð og vináttu
vegna andláts
BENEDIKTS EINARS
GUÐBJARTSSONAR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á
gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi.
Edda Hermannsdóttir og fjölskylda.
Þökkum samúð og hlýhug vegna andláts
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
GUÐLAUGAR HALLDÓRU
GUÐMUNDSDÓTTUR
Tindum.
Hörður Grímsson Fjóla Benediktsdóttir
Börkur Grímsson Guðrún Kristín Sigurgeirsd.
barnabörn og barnabarnabörn
Við þökkum af hrærðu hjarta öllum þeim
sem sýndu okkur hlýhug og samúð við
andlát og útför ástkærs eiginmanns míns,
sonar okkar, bróður, föður og afa,
HELGA KRISTJÁNSSONAR
aðstoðarskólameistara,
Bergstaðastræti 71, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Landspítalans í Fossvogi
fyrir einstaka umhyggju og alúð við fjölskyldu og vini.
Selma Ósk Kristiansen
Baldur Helgason Patty Spyrakos
Bryndís Helgadóttir Anton Máni Svansson
Jóhanna Bryndís Helgadóttir Kristján Óli Andrésson
Sylvía, Hildur, Steingerður og Andrés Kristjánsbörn
og afabörnin öll
Ástkær eiginmaður minn og besti vinur,
faðir, tengdafaðir og afi,
MARTEINN GUÐJÓNSSON
tæknifræðingur,
er látinn. Útförin fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn
8. nóvember klukkan 13.
Gerður Hannesdóttir
Guðjón Marteinsson Hafdís Huld Steingrímsdóttir
Halla Björk Marteinsdóttir Pétur Heiðar Baldursson
Hannes Jón Marteinsson Harpa Hrönn Grétarsdóttir
og barnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HULDA KRISTJÁNSDÓTTIR
Arnarhrauni 23, Hafnarfirði,
sem lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 7. október,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í
Hafnarfirði mánudaginn 4. nóvember klukkan 13.
Guðrún Jóna Knútsdóttir Rúnar Sigursteinssson
Ágúst Knútsson
Kristján Knútsson Gréta Benediktsdóttir
Sigrún Edda Knútsdóttir Janus Friðrik Guðlaugsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, pabbi okkar, afi
og langafi,
SIGMAR JÖRGENSSON
járnsmiður,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans við
Hringbraut 27. október.
Hann verður jarðsunginn frá Áskirkju þriðjudaginn 5. nóvember
klukkan 13.
Jónheiður Björnsdóttir
Ólafur K. Sigmarsson Aðalheiður Stefánsdóttir
Sigfríður Birna Sigmarsd.
Hrafnhildur Sigmarsdóttir
Sigmar Freyr, Kristinn Björn, Lilja Katrín,
Jenný Sif og Steinar Óli
Okkar ástkæri
JÓN ERNST INGÓLFSSON
Hraunhólum 18, Garðabæ,
lést á heimili sínu föstudaginn 25. október.
Útför hans fer fram frá Garðakirkju
föstudaginn 8. nóvember klukkan 15.
Dagný Guðmundsdóttir
Rósa Dögg Jónsdóttir
Helgi Hrannarr Jónsson Harpa Rós Gísladóttir
Dagur Geir Jónsson Elísa Rut Hallgrímsdóttir
Aðalheiður Jónsdóttir Juan Carlos Melgar Rada
barnabörn og barnabarnabarn