Morgunblaðið - 31.10.2019, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 31.10.2019, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019 Pantaðu borð í síma 483 4700 | hverrestaurant.is HVER TEKUR VEL Á MÓTI ÞÉR OPIÐ 11:30–22:00 ALLA DAGA Ljúffengur matur, góð þjónusta og hlýlegt andrúmsloft. Þóra Kolbrá Sigurðardóttir thora@mbl.is „Fyrirtækið verður eiginlega til af því að ég vildi skapa atvinnu fyrir sjálfa mig. Ég var orðin þreytt á að keyra stöðugt á milli og langaði til að búa til mitt eigið hér á Akranesi,“ segir Kaja um tilurð þess að hún stofnaði fyrirtækið. Ástríða hennar fyrir heilnæmri fæðu hófst þó löngu fyrr eða þegar hún greindist með krabbamein þegar hún gekk með annað barn sitt. „Ég var 28 ára gömul og eðlilega í miklu áfalli. Fað- ir minn hafði látist úr krabbameini ári fyrr og ég var staðráðin í að gera allt til að ná heilsu. Ég sökkti mér því í mikla rannsóknarvinnu á mat- aræði og varð heilluð af því sem ég las. Við erum það sem við borðum og því skiptir öllu máli hvað við lát- um ofan í okkur.“ Með það að leiðarljósi breytti Kaja sínum eigin lífsstíl. Hún er jafnframt mikill talsmaður þess að við séum meðvituð um hvað við lát- um ofan í okkur og að matvælaiðn- aðurinn noti neytendur eins og til- raunadýr. „Mér blöskrar alltaf jafn mikið þegar ég sé til dæmis útskýr- ingar á iðnaðarframleiddum efnum þar sem tekið er fram að verið sé að endurskoða efnið og beðið sé eftir staðfestingu á því að varan sé örugg til manneldis. Eða það eru varn- aðarorð aftan á sælgætisbréfinu sem segja að litarefnin geti haft nei- kvæð áhrif á börn. Þetta finnst mér glórulaust. Hvernig má það vera að það sé ekki búið að staðfesta öryggi og gæði vörunar áður hún kemur inn á borð til neytenda?“ Nýjasta dæmið er veip þó það sé ekki mat- vara en gjörsamlega glórulaust að mínu viti.“ Líkaminn þekkir alvörumat „Besta leiðin er að vera meðvit- aður um hvað þú lætur ofan í þig og hafa samsetninguna rétta. Líkami okkar er klókur og hann þekkir þeg- ar hann fær góðan mat sem inni- heldur næringu. Þegar um „alvöru“-mat er að ræða segir hann stopp þegar hann er orðinn saddur, með öðrum orðum þú borðar minna. Mín skoðun er sú að næringin skipti höfuðmáli og það sé mikill munur á t.d. erfðabreyttri iðnaðar- vöru og lífrænt ræktaðri náttúru- legri afurð. Tökum t.d. hveiti. Þegar þú ert með iðnaðarframleiðslu ann- ars vegar sem búið er að úða 7-9 sinnum á ræktunartímanum með skordýraeitri og illgresiseitri eða líf- ræna vöru sem er ræktuð án allra eiturefna og ekki búið að bleikja. Það er tvennt ólíkt hvernig líkaminn bregst við svona ólíkri matvöru. Líf- færi okkar þreytast við að vera und- ir stöðugu álagi í eiturefnaútskiljun og næringarinnihald er minna í iðn- aðarframleiðslunni. Mörg okkar hafa ekki hugmynd um hvað við er- um að láta ofan í okkur eða börnin okkar. Þá ekki síst þegar kemur að unninni vöru sem er oftar en ekki stútfull af iðnaðarframleiddum E- efnum sem við vitum ekki hvað inni- halda.“ E-efnaflóran sé svakaleg og gott dæmi um þetta. „Mörg E-efni eru eitruð í mínum huga og maður hefur séð þess dæmi að sum þeirra hverfa úr notkun þar sem búið er að úrskurða þau óhæf til manneldis. Besta dæmið er sjálfsagt bláa lit- arefnið sem var notað m.a. í M&M súkkulaðikúlurnar en það var bann- að þegar í ljós kom að það gæti valdið taugaskemmdum hjá börn- um.“ Við erum það sem við borðum Á Akranesi er að finna heildsölu, verslun og lífrænt kaffihús sem hefur að geyma margar þær bestu kök- ur og kræsingar sem finnast hér á landi. Konan á bak við þetta allt saman er Karen Jónsdóttir eða Kaja eins og hún er kölluð og reglan er einföld: allar vörur eru lífrænar, umhverfisvænar og gæðin í hámarki. Kaja trúir því staðfastlega að við séum það sem við borðum og með þann boðskap að leiðarljósi stofnaði hún Kaja Organic, Matarbúr Kaju og Café Kaju sem blómstrar á Skaganum og fær alla til að líða vel. Morgunblaðið/Árni Sæberg Góð næring skiptir öllu Karen Jónsdóttir er konan á bak við Kaffi Kaju, Matarbúr Kaju og Kaju Organics. Hágæðavörur sem næra líkama og sál. Hágæðahuggulegheit Karen segir það miklu máli skipta að bjóða upp á næringarríka gæðavöru. Hveiti er ekki bara hveiti Kaja býð- ur meðal annars upp á lífrænt pasta. Umhverfisvænt Kaja er með frábært úrval af umhverfisvænu og lífrænu góðgæti sem gælir við líkamann. Heimilislegt og huggulegt Kaffihúsið er einstaklega heimilislegt og huggu- legt enda vinsælt meðal heimamanna sem kunna greinilega gott að meta. Matur er mannsins megin Lífspeki Kaju er sú að maturinn þurfi að vera lífrænn, umhverfisvænn og ríkur að gæðum. Við erum það sem við borðum. Hættum í sykri og sykurlaust líf er eitthvað sem við heyrum oft og iðu- lega og gleymum ekki sykurlausum september! Í starfi mínu verð ég oft vör við að þetta sykurlausa líf veld- ur ruglingi hjá mörgum sem er ekkert skrítið þar sem almennt er hvítur hreinsaður borðsykur (rófu- sykur) kallaður sykur, viðbættur sykur er einnig kallaður sykur og í síðasta lagi er orðið sykur notað sem flokksheiti yfir alla þá sætu sem til er, sem er hin rétta notkun á orðinu sykur. Af þessu leiðir að margir vita ekki hvaða sykur er verið að vísa í þegar talað er um sykur eða að vera sykurlaus. Hvað þýðir það að vera sykurlaus eða hætta í sykri? Í fyrsta lagi gengur ekki upp að hætta í öllum sykri því heilinn á okkur þrífst og starfar á sykri, að auki inniheldur nánast öll matvara einhverja teg- und sykurs sem sést í næringargild- istöflu matvöru undir kolvetni, en það þarf ekki að þýða að matvaran innhaldi viðbættan sykur en við- bættur sykur er það sem flestir vilja minnka eða hætta að borða. Þetta er sykurinn sem er bætt aukalega í matinn og kemur fram á innihaldslýsingunni. Viðbættur sykur er sykurinn sem við þurfum ekki til þess að lifa. Til þess að geta hætt eða minnk- að viðbættan sykur eða valið þann skásta þarf maður að vita hvað hann heitir því listinn yfir tegundir viðbætts sykurs er að verða æði langur. Algengustu nöfnin sem við sjáum á innihaldslýsingu í dag er erfðabreyttur HFCS/HFC unninn úr erfðabreyttum maís, stundum kallað háfrúktósi, einnig eru dext- rosa, fruktósi, maltose, mannitol, sorbitol, glyerol, xylitol sem er mjög mikið unninn sykur eða syk- uralkóhól. En minna unninn sykur eins og hvítur borðsykur (hvíttaður rófusykur), agave og reyrsykur eru á undanhaldi þar sem verð þykir of hátt og náttúrusykur eins og kókónektar, hunang og hlynsíróp eru lítið notuð í dag þar sem þau eru mjög dýr. Í mínum huga er ætíð best að borða sem næst nátt- úrulegum uppruna og sem minnst unna matvöru en hafa samsetning- urna ætíð þannig að þú sért að borða næringu. Hvað þýðir að vera sykurlaus?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.