Morgunblaðið - 31.10.2019, Side 56

Morgunblaðið - 31.10.2019, Side 56
56 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019 ARNAR/ALDA Úlpa Kr. 28.990.- 60 ára Guðlaugur ólst upp í Reykjavík og á Tálknafirði en býr í Mosfellsbæ. Hann er skipstjórnarmenntaður og vélstjóri og er skip- stjóri á eigin bát, sem heitir Dufan BA. Útgerð Guðlaugs nefnist Þiljur ehf. og er jafn- framt fasteignafyrirtæki. Maki: Bryndís Ingibjörg Björnsdóttir, f. 1956, heimavinnandi. Börn: Anna Birna, f. 1984, Harpa, f. 1985, og Þórður, f. 1989. Barnabörnin eru orðin fimm. Foreldrar: Þórður Guðlaugsson, f. 1933, vélfræðingur, og Ólöf Þórunn Hafliða- dóttir, f. 1932, hjúkrunarfræðingur. Þau eru bús. í Kópavogi. Guðlaugur Hákon Þórðarson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þetta er góður dagur til að sinna verkum sem krefjast einbeitingar og sjálfsaga. Kannski þarftu að rífa upp smávegis af illgresi til þess að hleypa nýjum sprotum að. 20. apríl - 20. maí  Naut Enginn vafi er á því að þú verður valin/n til að leiða mikilvægt verkefni. Láttu ekkert standa á milli þín og ástar- innar. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þegar þú stendur frammi fyrir vandasömu verkefni, eins og núna, er gott að byrja á því að greina kjarnann frá hisminu. Láttu verða af því að taka þér smá frí. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Fólk er tilbúið til að veita þér all- an þann stuðning sem þú þarft því það trúir á það sem þú ert að gera. Æfðu þig í að vera þakklát/ur. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Forðastu að vera með stóryrtar yfirlýsingar um líf annarra. Reyndu að geyma smá orku til kvöldsins. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Saklaus athugasemd sem þú lést falla hefur fallið í grýttan jarðveg og það svo að vinur þinn gerir úlfalda úr mý- flugu. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ef þú heldur rétt á spilunum klárast verkefnið í dag. Morgnarnir nýtast þér best vinnulega séð. Tuð skilar engu. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Margir taka fjölskyldum sem sjálfsögðum hlut. Trúðu vini fyrir vanda- máli. Þú hittir manneskju sem á eftir að breyta öllu í lífi þínu. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú átt einkar auðvelt með að ná til annarra. Treystu á eigið innsæi, það hefur gefist best hingað til. 22. des. - 19. janúar Steingeit Notaðu daginn í dag til þess að pæla í því hvernig þú getur farið að því að deila hugmyndum þínum með öðrum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Nýjar upplýsingar valda því að þú átt erfitt með að taka ákvörðun. Félagslífið er í blóma. 19. feb. - 20. mars Fiskar Láttu það vera að flýta þér um of því það býður þeirri hættu heim að þú skilir ekki þínu besta. Hrósaðu öðrum meira. menningarverkefnum á Vestfjörð- um. Mætti þar nefna tónleikaröðina Sumar í Hömrum (2007-2009), MN- hátíðina (2004), tónlistarhátíðirnar þriggja ára skeið og organisti Súða- víkurkirkju 1995-2007. Síðustu áratugina hefur Sigríður átt virka aðild að mörgum stórum S igríður Ragnarsdóttir er fædd 31. október 1949 á Ísafirði og ólst þar upp. „Sem barn og unglingur eyddi ég flestum sumrum hjá móðurfólki mínu á Gautlöndum í Mývatnssveit og tók þar þátt í hefð- bundnum sveitastörfum.“ Sigríður lagði stund á píanóleik frá unga aldri hjá föður sínum, Ragnari H. Ragnar. Hún hélt tón- listarnáminu áfram við Tónlistar- skólann í Reykjavík undir leiðsögn Árna Kristjánssonar píanóleikara og stundaði jafnframt nám við Mennta- skólann í Reykjavík. Að loknu stúd- entsprófi hélt hún til Bandaríkjanna til náms í tónlistargreinum og forn- málum við Lindenwood University í Missouri og lauk þaðan BA-prófi vorið 1971. Á árunum 1976-1978 dvaldi Sigríður í München þar sem hún sótti tíma í tónvísindum og forn- málum við Ludwig-Maximilian- háskólann. Sigríður lagði stund á meistaranám í menningarstjórnun við Viðskiptaháskólann á Bifröst á árunum 2004-2006 og veturinn 2013- 2014 var hún gestanemandi við List- kennsludeild Listaháskóla Íslands. Árið 2018 lauk hún námi í svæð- isleiðsögn um Vestfirði. „Meðan ég var í námi stundaði ég ýmis störf, einkum almenn skrif- stofustörf, sem kom mér síðar að gagni í skólastjórastarfinu.“ Um áratuga skeið hefur Sigríður tekið virkan þátt í fjölbreyttum tónlistar- störfum á Vestfjörðum. Hún starfaði sem píanókennari við Tónlistarskóla Ísafjarðar á árunum 1972-1976 og aftur frá 1979. Hún varð skólastjóri sama skóla árið 1984 og gegndi því starfi til 2017. Hún var um áratuga skeið undirleikari Sunnukórsins á Ísafirði og kom fram með kórnum á ótal tónleikum og uppákomum og lék m.a. á hljómdiski kórsins sem út kom fyrir nokkrum árum. Þá hefur hún unnið og leikið með ýmsum fleiri kórum, einsöngvurum og hljóðfæra- leikurum, m.a. með Kammersveit Vestfjarða, sem starfaði á Ísafirði og Bolungarvík í nokkur ár. Sigríður hefur einnig verið virk í tónlistar- starfi kirkna fyrir vestan, hún var organisti við Ísafjarðarkirkju um Sellódagar á Ísafirði (2001), Jóns- messutónar (1995), Sumarsólstöðu- hátíð (1991) og ekki síst tónlistahá- tíðina Við Djúpið, sem var lengi árviss viðburður á Ísafirði. Þá stóð hún að uppfærslum nokkurra stórra kórverka á borð við Messías og Sálu- messu Mozarts og uppfærslum á söngleikjunum Oliver! (1999) og Söngvaseið (2003). Hún var einnig mjög virk í Styrktarfélagi til bygg- ingar tónlistarhúss á Ísafirði og tók þar þátt í margs kyns uppákomum, kabarettum, torgsölum o.s.frv. „Ég hef einkum helgað starfskrafta mína eflingu tónlistaruppeldis og tónlist- arlífs á svæðinu með það að leiðar- ljósi að tónlistarkennsla sé mann- rækt og að öflug menning sé forsenda byggðar á Vestfjörðum.“ Sigríður hefur alla tíð verið mjög virk í félagsstörfum, sat m.a. í stjórn Neytendafélags Vestfjarða, Krabba- meinsfélagsins Sigurvonar, Óperu Vestfjarða og Delta Kappa Gamma (félags kvenna í fræðslustörfum). „Réttindi kvenna og barna hafa ávallt verið mér mjög hugleikin. Sigríður var einn af stofnendum Kvennaframboðsins og Kvennalist- ans og var margsinnis í framboði fyrir Kvennalistann bæði í lands- og sveitarstjórnarkosningum. Hún gekk síðar til liðs við Samfylkinguna og var um tíma varaþingmaður fyrir Vestfjarðakjördæmi. Sigríður var sæmd riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf sín sumarið 2008 og sama haust var hún útnefnd bæjarlistamaður Ísa- fjarðarbæjar. Fjölskylda Eiginmaður Sigríðar er Jónas Tómasson, f. 21.11. 1946, tónskáld. Foreldrar hans voru Tómas Árni Jónasson, f. 5.10. 1923, d. 5.11. 2016, læknir, og Anna Jóhannesdóttir, f. 30.10. 1924, d. 6.5. 2018, húsmóðir. Þau voru bús. í Reykjavík. Börn Sigríðar og Jónasar eru 1) Ragnar Torfi Jónasson, f. 17.6. 1973, verkefnisstjóri hjá Meniga, býr á Álftanesi. Maki: Tinna Þorsteins- dóttir, píanóleikari. Dætur Ragnars og Tinnu eru Áshildur Jökla, f. 29.5. 2009 og Steinunn Embla, f. 4.5. 2011; Sigríður Ragnarsdóttir, tónlistarmaður og fyrrverandi skólastjóri – 70 ára Morgunblaðið/Árni Sæberg Fjölskyldan Sigríður og Jónas ásamt börnum sínum, barnabörnum og tengdadótturinni Tinnu, á heimili sínu, en þau eru flutt í Garðabæinn. Tónlistarkennsla er mannrækt Kammersveit Vestfjarða Hjónin Jónas og Sigríður, Jakob Hallgrímsson, Hjálmar Ragnarsson og Gunnar Björnsson. 40 ára Edda er Reyk- víkingur, ólst upp í Graf- arvogi en býr í Selja- hverfinu. Hún er jarðfræðingur að mennt, með meistara- gráðu frá HÍ. Hún er verkefnastjóri hjá Ný- sköpunarmiðstöð Íslands og vinnur helst við malbiksrannsóknir. Edda er hestakona og í fyrra vann hún áhugamannamót Ís- lands í fjórgangi. Maki: Heiðar Vignir Pétursson, f. 1980, bif- reiðarstjóri hjá Ölgerðinni. Foreldrar: Þorsteinn Ingi Jónsson, f. 1955, smiður í Rvík, og Guðný Stefánsdóttir, f. 1956, skrifstofumaður hjá Reykjavíkurborg. Stjúpfaðir er Grétar Einarsson, f. 1947, leigubílstjóri. Þau eru bús. í Reykjavík. Edda Sóley Þorsteinsdóttir Til hamingju með daginn Reykjavík Eva María Sig- valdadóttir fæddist 22. febrúar 2019 kl. 3.18. Hún vó 3.386 g og var 49 cm löng. Foreldrar hennar eru Hanna Lea Magnúsdóttir og Sigvaldi Örn Gústavsson. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.