Morgunblaðið - 31.10.2019, Page 58
58 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019
Í KEFLAVÍK
Skúli B. Sigurðsson
sport@mbl.is
Keflavík og Skallagrímur mættust í
Keflavík í 5. umferð Dominos-
deildar kvenna í Blue-höll þeirra
Keflvíkinga í gærkvöldi. Fyrir leik
voru bæði lið með 50% sigurhlutfall
og líklegt að þessi lið muni verða að
slást um sæti í úrslitakeppninni þeg-
ar vora tekur á næsta ári. 70:75 varð
lokastaða leiksins eftir að Skalla-
grímur leiddi í hálfleik með 14 stig-
um.
Það var mikill hraði sem ein-
kenndi upphaf leiksins og á tímum
svo mikill að augljóst var að liðin
voru ekki að ráða við slíkt. En þegar
á leið kom Skallagrímur sér hægt en
örygglega í forystuna og jók hana
nánast óheft til miðbiks þriðja leik-
hluta. Þá tók við ótrúlegur kafli hjá
Keflavík þar sem þær mokuðu sig úr
24 stiga forystu gesta sinna og komu
leiknum niður í 2 stig þegar um 50
sekúndur voru til loka. Þessi frábæri
kafli var ekki nóg fyrir Keflavík og
kom einfaldlega of seint.
Valur á toppnum
Valskonur eru áfram ósigraðar í
efsta sæti deildarinnar, eftir örugg-
an 102:62-sigur gegn Breiðabliki í
Smáranum. Jafnræði var með lið-
unum í fyrri hálfleik og var staðan
45:41, Valskonum í vil, í hálfleik.
Valskonur unnu hins vegar þriðja
leikhluta með 32 stigum gegn 9 stig-
um Blika og þar fór leikurinn.
Haukar unnu í Hólminum
Haukar gerðu góða ferð í Stykk-
ishólm og unnu sterkan sigur gegn
Snæfelli, 61:56. Snæfell leiddi eftir
fyrsta leikhluta, 18:15 en Hafnfirð-
ingar komu til baka í öðrum leikhluta
og leiddu í hálfleik, 33:28. Haukar juku
forskot sitt um fjögur stig í þriðja leik-
hluta og leikmönnum Snæfells tókst
ekki að svara í fjórða leikhluta.
Öruggt hjá KR
Þá vann KR 15 stiga sigur gegn
Grindavík í Vesturbænum, 81:66. KR
var með yfirhöndina í leiknum allan
tímann en staðan eftir fyrsta leikhluta
var 21:11, KR í vil. Jafnræði var með
liðunum í öðrum og þriðja leikhluta en
í fjórða leikhluta sýndu KR-ingar mátt
sinn og styrk og fögnuðu sannfærandi
sigri í leikslok.
Skallagrím-
ur vann í
Keflavík
Keflavíkurliðið hrökk of seint í gang
Íslandsmeistararnir með fullt hús
Morgunblaðið/Hari
Í Smáranum Kiana Johnson með boltann en Fanney Lind er til varnar.
Í Keflavík Emelía Ósk sækir að
körfu Skallagríms í gær.
Aron Pálmarsson, landsliðsmaður í
handknattleik, lét ekki sitt eftir
liggja þegar lið hans Barcelona
vann öruggan sigur á þýsku meist-
urunum í Flensburg 34:27. Liðin
mættust í Meistaradeild Evrópu á
heimavelli Flensburg í gær. Aron
skoraði 5 mörk og gaf fimm stoð-
sendingar á samherja sína í leikn-
um. Aron verður æ mikilvægari
hlekkur í liði Barcelona sem ætlar
sér stóra hluti í Meistaradeildinni í
vetur eins og oft áður. Barcelona er
með 10 stig í riðlinum eftir 6 leiki
en Flensburg 7 stig. kris@mbl.is
Aron átti beinan
þátt í tíu mörkum
Ljósmynd/Barcelona
5 mörk Aron Pálmarsson var
markahæstur gegn Flensburg.
Samúel Kári Friðjónsson leikur til
úrslita í norsku bikarkeppninni í
knattspyrnu. Lið hans Viking frá
Stavangri vann í gær Ranheim í
undanúrslitum keppninnar 3:0.
Samúel Kári hóf leikinn á vara-
mannabekk Viking en var kominn
inn á eftir aðeins stundarfjórðung
og leysti þá Kristoffer Lokberg af
hólmi. Staðan var þá 1:0 fyrir Vík-
ing sem mætir annaðhvort Odds
Ballklubb eða Haugesund í úrslita-
leiknum en þau mætast í kvöld í
hinni viðureigninni í undanúrslit-
unum. sport@mbl.is
Samúel í úrslit
bikarkeppninnar
Morgunblaðið/Eggert
Úrslitaleikur Samúel Kári Frið-
jónsson er á leið í bikarúrslit.
Blue-höllin, úrvalsdeild kvenna í
körfuknattleik, Domnos-deildin, mið-
vikudaginn 30. október 2019.
Gangur leiksins: 4:6, 8:12, 10:16,
10:21, 18:27, 20:31, 23:33, 28:43,
33:53, 35:59, 41:61, 46:63, 52:63,
56:66, 62:69, 70:75.
Keflavík: Daniela Wallen 25/10 frá-
köst, Anna Ingunn Svansdóttir 15,
Emelía Ósk Gunnarsdóttir 12, Þór-
anna Kika Hodge-Carr 7/6 fráköst,
Salbjörg Ragna Sævarsdóttir 5/8
fráköst, Katla Rún Garðarsdóttir 4/7
KEFLAVÍK – SKALLAGRÍMUR 70:75
fráköst, Irena Sól Jónsdóttir 2.
Fráköst: 29 í vörn, 13 í sókn.
Skallagrímur: Keira Robinson 29/9
fráköst/5 stoðsendingar, Emilie Hes-
seldal 19/12 fráköst/5 stoðsend-
ingar, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 11,
Arnina Lena Rúnarsdóttir 8, Maja
Michalska 6, Gunnhildur Lind Hans-
dóttir 2.
Fráköst: 34 í vörn, 9 í sókn.
Dómarar: Aðalsteinn Hjartarson,
Gunnlaugur Briem og Jakob Árni Ís-
leifsson.
Meistaradeild kvenna
16-liða úrslit, seinni leikir:
Twente – Wolfsburg ................................0:1
Sara Björk Gunnarsdóttir lék síðari hálf-
leikinn fyrir Wolfsburg og brenndi af víti.
Wolfsburg áfram, 7:0 samanlagt.
Minsk – Barcelona ....................................1:3
Barcelona áfram, 8:1 samanlagt.
Lyon – Fortuna Hjörring .........................7:0
Lyon áfram, 11:0 samanlagt.
Bayern München – Kazygurt...................2:0
Bayern áfram, 7:0 samanlagt.
Atlético Madrid – Man. City ....................2:1
Atlético áfram, 3:2 samanlagt.
Kasakstan
Okzhetpes – Astana................................. 0:1
Rúnar Már Sigurjónsson var ekki í leik-
mannahópi Astana.
Hvíta-Rússland
Dniapro – BATE Borisov........................ 0:1
Willum Þór Willumsson var ekki í leik-
mannahópi BATE.
Þýskaland
Bikarkeppnin, 32-liða úrslit:
Kaiserslautern – Nürnberg.................... 8:7
Andri Rúnar Bjarnason kom inn á hjá
Kaiserslautern eftir 8 mín. í framlengingu
og skoraði úr síðasta víti liðsins í víta-
spyrnukeppninni.
Staðan er 2:2 eftir venjulegan leiktíma og
framlengingu.
Rússland
Bikarkeppnin, 16-liða úrslit:
CSKA Moskva – Ufa ................................ 1:0
Arnór Sigurðsson lék allan leikinn með
CSKA en Hörður Björgvin Magnússon var
á varamannabekknum.
Grikkland
Bikarkeppnin, 32-liða úrslit:
Kalamata – Larissa ..................................3:0
Ögmundur Kristinsson leikur með Lar-
issa.
Danmörk
Bikarkeppnin, 16-liða úrslit:
Bröndby – SönderjyskE.......................... 0:1
Hjörtur Hermannsson var í liði Bröndby
fram á 87. mínútu. Eggert Gunnþór
Jónsson var í byrjunarliði SönderjyskE en
Ísak Óli Ólafsson á bekknum.
Noregur
Bikarkeppnin, undanúrslit:
Viking – Ranheim.................................... 3:0
Samúel Kári Friðjónsson kom inn á hjá
Viking á 26. mínútu. Axel Óskar Andrésson
er frá keppni vegna meiðsla.
Dominos-deild kvenna
Keflavík – Skallagrímur ...................... 70:75
KR – Grindavík..................................... 81:66
Breiðablik – Valur .............................. 62:102
Snæfell – Haukar.................................. 56:61
Staðan:
Valur 5 5 0 466:311 10
Haukar 5 4 1 351:305 8
KR 5 4 1 396:358 8
Skallagrímur 5 3 2 351:338 6
Keflavík 5 2 3 354:347 4
Snæfell 5 2 3 327:350 4
Breiðablik 5 0 5 297:409 0
Grindavík 5 0 5 293:417 0
Evrópubikarinn
Darussafaka – UNICS Kazan ............ 77:79
Haukur Helgi Pálsson skoraði 5 stig, tók
3 fráköst og gaf 1 stoðsendingu fyrir Kaz-
an.
Danmörk
Herlev – Horsens................................. 85:88
Finnur Freyr Stefánsson þjálfar Hor-
sens.
NBA-deildin
LA Lakers – Memphis ....................... 120:91
Miami – Atlanta .................................. 112:97
Denver – Dallas ................................ 106:109
Topplið 1. deildar
karla í körfu-
knattleik, Hamar í
Hveragerði, hefur
ákveðið að láta
miðherjann Kinu
Rochford fara.
Rochford lék
mjög vel með Þór
Þorlákshöfn í
efstu deild í fyrra
en hefur ekki látið
eins mikið að sér kveða hjá Hamri.
Skoraði hann tæp 12 stig að meðaltali
og tók rúm 9 fráköst að jafnaði. Ham-
ar hefur unnið alla fimm leiki sína í
upphafi Íslandsmótsins og liðið virðist
líklegt til að fara upp um deild.
Hamar lét
Rochford fara
Kinu
Rochford
Meistarar Vals eiga fimm leikmenn
og Haukar fjóra í 16 kvenna lands-
liðshópi Íslands í körfubolta sem
Benedikt Guðmundsson valdi í gær.
Æfingahópurinn kemur saman 10.
nóvember til undirbúnings fyrir
fyrstu leikina í undankeppni EM
2021. Ísland mætir Búlgaríu í
Laugardalshöll 14. nóvember og
verður frítt á leikinn, og liðið leikur
svo við Grikkland ytra 17. nóvember.
Tveir nýliðar eru í hópnum, þær
Eva Margrét Kristjánsdóttir og
Lovísa Henningsdóttir úr Haukum.
Hópurinn: Bríet Sif Hinriks-
dóttir, Dagbjört Dögg, Emelía Ósk
Gunnarsdóttir, Eva Margrét Krist-
jánsdóttir, Guð-
björg Sverris-
dóttir,
Gunnhildur
Gunnarsdóttir,
Hallveig Jóns-
dóttir, Helena
Sverrisdóttir,
Hildur Björg
Kjartansdóttir,
Lovísa Björt
Hennings-
dóttir, Salbjörg Ragna Sævars-
dóttir, Sara Rún Hinriksdóttir, Sig-
rún Björg Ólafsdóttir, Sóllilja
Bjarnadóttir, Sylvía Rún Hálfdán-
ardóttir, Þóra Kristín Jónsdóttir.
Fimm úr Val og fjórar úr
Haukum í landsliðshópnum
Helena
Sverrisdóttir
UEFA, knattspyrnusamband Evr-
ópu, leggur aðildarsamböndum sín-
um til fé ár hvert til eflingar barna-
og unglingastarfi. Að þessu sinni
fær KSÍ um 60 milljónir króna.
UEFA gerir kröfu um að upp-
hæðin skiptist á milli félaga í efstu
deild karla og fá því félögin 12 sem
áttu lið í Pepsi Max-deild karla í
sumar 5.080.702 krónur hvert.
Stjórn KSÍ, undir formennsku
Guðna Bergssonar, ákvað að leggja
til 60 milljónir króna til viðbótar til
barna- og unglingastarfs, og skipt-
ist sú upphæð á milli félaga sem
ekki áttu lið í efstu deild karla. Fé-
lögin þurfa að sýna fram á að þau
haldi úti yngri
flokkum beggja
kynja og hafi
samþykkta áætl-
un um uppeldis-
starf.
Félög sem áttu
lið í úrvalsdeild
eða 1. deild
kvenna, eða í 1.
deild karla, fá
2.300.000 kr.
hvert, félög úr 2. deild karla
1.450.000, félög í 3. og 4. deild karla
og 2. deild kvenna fá 950.000 kr. og
fimm félög með sameiginleg lið í
meistaraflokki fá 600.000 hvert.
KSÍ útdeilir 120 milljónum
króna til aðildarfélaga
Guðni
Bergsson