Morgunblaðið - 31.10.2019, Síða 59
ÍÞRÓTTIR 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019
Á ÁSVÖLLUM/Í AUST-
URBERGI/Á AKUREYRI
Ívar Benediktsson
Jóhann Ingi Hafþórsson
Einar Sigtryggsson
Haukar voru sjálfum sér verstir
gegn baráttuglöðum Eyjamönnum
þegar liðin mættust í toppslag 7. um-
ferðar Olís-deildar karla í hand-
knattleik í Schenker-höllinni á Ás-
völlum í gærkvöld. Liðin skildu með
skiptan hlut, 28:28, í viðureign þar
sem Haukar voru með frumkvæðið
lengst af. Leikmenn ÍBV skoruðu
fjögur af síðustu fimm mörkum
leiksins og tóku með sér eitt stig
heim til Eyja eftir tvo tapleiki í röð
með einu marki. Kári Kristján Krist-
jánsson jafnaði metin þegar tvær
mínútur voru til leiksloka.
Sóknarleikur Hauka var öflugur
en hins vegar fóru leikmenn illa að
ráði sínu og brást á tíðum bogalistin í
góðum marktækifærum. Liðinu
tókst að leysa vel framliggjandi vörn
ÍBV og hefði átt með réttu að skora
vel yfir 30 mörk. Varnarleikur liðsins
var ekki eins góður og stundum áð-
ur. Markvarslan var á hinn bóginn
vart merkjanleg sem er harla
óvenjulegt.
Eyjamenn léku illa í fyrri hálfleik,
einkum í sókninni. Þeir söknuðu
Kristjáns Arnar Kristjánssonar sem
glímir við eymsli í baki. Leikmenn
ÍBV lögðu hins vegar ekki árar í bát.
Þeir seigluðust áfram og unnu vel
fyrir einu stigi sem hlýtur eftir allt
að vera harla uppörvandi á útivelli
eftir tvo tapleiki á heimavelli í röð í
jöfnum leikjum.
Stórkostlegur fyrri hálfleikur
FH bauð upp á eina bestu frammi-
stöðu tímabilsins til þessa í fyrri
hálfleiknum gegn ÍR á útivelli. Loka-
tölur urðu 32:27, en staðan í hálfleik
var 19:8, FH í vil. FH var spáð Ís-
landsmeistaratitlinum af flestum
fyrir mót og liðið sýndi í gær hvers
vegna. ÍR átti engin svör við hröðum
og skemmtilegum sóknarleik FH-
inga og Phil Döhler fór á kostum í
markinu hinum megin. Döhler varði
28 skot í leiknum og bauð upp á
frammistöðu sem beðið hefur verið
eftir þar á bæ. Döhler kom til FH frá
stórliði Magdeburg í Þýskalandi og
var búist við miklu af kauða. Hann
hefur átt ágæta spretti en heilt yfir
valdið vonbrigðum. Í gær var annað
uppi á teningnum og verður mjög
erfitt fyrir hvaða lið sem er að stoppa
FH með Döhler í stuði.
FH-ingar mættu nokkuð væru-
kærir til leiks í seinni hálfleik, enda
staðan glæsileg og tókst ÍR-ingum
að minnka muninn töluvert. Þeir
voru þó aldrei líklegir til að jafna. ÍR
vann fimm fyrstu leiki sína en hefur
nú tapað tveimur í röð. Það verður
áhugavert að sjá hvernig ÍR-ingar
glíma við fyrsta alvörumótlætið á
tímabilinu. Í gær voru of margir leik-
menn undir pari. Björgvin Þór
Hólmgeirsson, Kristján Orri Jó-
hannsson og Hafþór Már Vignisson
skoruðu samtals fjögur mörk og spili
þeir ekki betur mun ÍR ekki vinna
marga leiki. ÍR er enn einu stigi á
undan FH en miðað við leikinn í gær,
verður það ekki mikið lengur.
KA kreisti fram jafntefli
Stjarnan fór illa að ráði sínu í gær
þegar liðið mætti á KA í KA-
heimilinu á Akureyri. KA lék án
Færeyinganna Áka Egilsnes og All-
an Norðberg og munaði um minna.
Stórskyttan Tarik Kasumovic var
svo lítið með þannig að KA var án
þriggja stærstu póstanna sinna í
leiknum.
Stjarnan fékk fljúgandi start í
leiknum án þess þó að spila mikla
sókn. KA fór hörmulega af stað í
sóknum sínum og Stjarnan skoraði
sex hraðaupphlaupsmörk á fyrsta
kortérinu. KA tók sitt annað leikhlé í
stöðunni 4:10 og reyndi að berja í
brestina. Staðan var 10:15 í hálfleik
og Stjarnan í mjög góðum málum.
Langt fram í seinni hálfleik var
fjögurra marka munur á liðunum og
Stjarnan gaf ekkert eftir. Með miklu
harðfylgi og einhvers konar krafta-
verki náðu KA-menn að jafna leikinn
á lokamínútunum en KA skoraði
þrjú síðustu mörkin á lokamín-
útunum tveimur.
Patrekur Stefánsson var bestur
hjá KA og sá eini sem virkilega þorði
að skjóta á markið. Dagur Gautason
var svo mikilvægur á endasprett-
inum. Stjörnumenn voru flestir
ágætir í leiknum og var vörnin sterk
lengstum. Leó Snær Pétursson og
Andri Þór Helgason skoruðu mikið
en mörk þeirra komu flest úr hraða-
upphlaupum.
Leikjum HK og Fram, og
Fjölnis og Vals, var ekki lokið þegar
blaðið fór í prentun. Sjá mbl.is/sport/
handbolti.
Kári tryggði ÍBV jafntefli
Skoraði tveimur sekúndum fyrir leikslok gegn Haukum á Ásvöllum
FH-ingar sannfærandi í sigri gegn ÍR-ingum í Breiðholtinu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Jafntefli Fannar Þór Friðgeirsson, ÍBV, reynir að komast fram hjá Ásgeiri Erni Hallgrímssyni, Haukum.
Sara Björk Gunnarsdóttir, lands-
liðskona í knattspyrnu, er komin
áfram í 8-liða úrslit Meist-
aradeildar Evrópu í knattspyrnu
með liði sínu Wolfsburg. Þýsku
meistararnir slógu í gær Twente
frá Hollandi út úr keppninni 7:0
samanlagt. Wolfsburg vann síðari
leikinn í Hollandi 1:0.
Sara Björk lék síðari hálfleikinn
með Wolfsburg í gær og tók víta-
spyrnu á 59. mínútu en brást boga-
listin í þetta skiptið. Wolfsburg lék
til úrslita í keppninni sumarið 2018
en tapaði þá fyrir Lyon.
Wolfsburg í 8-liða
úrslitin af öryggi
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Meistaradeildin Sara er orðin vörn
því að fara langt í keppninni.
Einn af reyndustu mönnum í ís-
hokkíhreyfingunni á Íslandi, Helgi
Páll Þórisson, er tekinn við þjálfun
karlaliðs SR. Helgi hefur verið leik-
maður, dómari og stjórnarmaður í
ÍHÍ á ferlinum. Honum til aðstoðar
verður Ævar Þór Björnsson sem
lengi var markvörður liðsins og
landsliðsmaður. Miloslav Racansky,
fráfarandi þjálfari, óskaði sjálfur
eftir því að hætta og mun einbeita
sér að því að spila með liðinu og
þjálfa yngri flokka hjá félaginu. SR
hefur tapað fyrstu sex leikjum sín-
um í Hertz-deildinni.
Helgi og Ævar
teknir við SR
Ljósmynd/SR
Léttir Ævar Þór Björnsson og Helgi
Páll Þórisson í Laugardalnum.
Ásvellir, Olísdeild karla, miðvikudag-
inn 30. október 2019.
Gangur leiksins: 3:2, 6:4, 10:9,
13:10, 15:12, 15:14, 18:16, 20:20,
23:22, 25:24, 28:28.
Mörk Hauka: Halldór Ingi Jónasson
10/3, Vignir Svavarsson 5, Adam
Haukur Baumruk 4, Einar Pétur
Pétursson 4, Ólafur Ægir Ólafsson
3/1, Ásgeir Örn Hallgrímsson 2.
Varin skot: Grétar Ari Guðjónsson
3, Andri Sigmarsson Scheving 3.
Utan vallar: 6 mínútur.
HAUKAR – ÍBV 28:28
Mörk ÍBV: Dagur Arnarsson 6, El-
liði Snær Viðarsson 6, Kári Kristján
Kristjánsson 5/1, Hákon Daði
Styrmisson 4/2, Fannar Frið-
geirsson 3, Theódór Sigurbjörnsson
2, Friðrik Hólm Jónsson 1, Gabriel
Martínez 1.
Varin skot: Björn Viðar Björnsson
14, Petar Jokanovic 2/1.
Utan vallar: 12 mínútur.
Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og
Jónas Elíasson.
Áhorfendur: 600.
Það er til skammar og
angrar mig alveg rosalega hvern-
ig stjórnvöld hafa dregið lapp-
irnar varðandi uppbyggingu
íþróttamannvirkja hér á landi. Í
raun finnst mér þó meira pirr-
andi að það skuli ekki vera hægt
að setja fram skýr svör og stefnu
í þessum málum.
Nú eru bara fínar líkur á því
að íslenska karlalandsliðið í fót-
bolta þurfi að spila heimaleik
annars staðar en á Íslandi í
mars. Við gætum hugsanlega
haft samband við okkar gömlu
herraþjóð Dani eða leitað á náðir
Færeyinga, sem manni virðist að
séu mun betur á tánum en við í
þessum efnum. Þetta er auðvit-
að ömurleg staða. Á sama tíma
er bara beðið eftir því að ekki
megi lengur spila handbolta-
landsleiki hér á landi og að-
stöðuleysið hér á landi varð til
þess að Selfyssingar máttu ekki
spila í Meistaradeild Evrópu í
vetur. Frábært. Ég veit í raun ekki
hvar keppnisaðstaðan er góð á
Íslandi. Er eitthvert íþróttalands-
lið ánægt?
Ísland vann silfur á Ólympíu-
leikum og brons á Evrópumóti í
handbolta, og fótboltalandsliðin
okkar hafa komist á hvert stór-
mótið á fætur öðru, en íþrótta-
heimurinn hér á landi er verð-
launaður með blómum og
kossum. Minnir í raun svolítið á
jarðarför, sem er kannski ekki til-
viljun. Mætti ég frekar biðja um
aðgerðir.
Ég gæti hugsanlega fyrir-
gefið allan þennan seinagang við
uppbyggingu íþróttamannvirkja
(það er að segja ef hann væri
ekki orðinn svona mikill) ef
stjórnvöld kæmu bara fram og
segðu skýrt: „Sorrý, það eru ekki
til neinir peningar núna en við
erum búin að reikna út að hægt
verði að gera nýjan völl og höll
eftir 10 ár.“ En í staðinn hefur í
mörg, mörg ár verið boðið upp á
japl, jaml og fuður sem allir hafa
svo gaman af. Engin skýr svör
um hvert við stefnum og hvað
verður gert hvenær. Ég hlakka til
þess dags þegar úr þessu verður
bætt.
BAKVÖRÐUR
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Austurberg, Olísdeild karla, miðviku-
daginn 30. október 2019.
Gangur leiksins: 2:4, 5:8, 7:13, 8:15,
8:19, 11:21, 15:24, 19:26, 21:29,
23:31, 27:32.
Mörk ÍR: Sturla Ásgeirsson 8/7,
Bergvin Þór Gíslason 6, Sveinn Andri
Sveinsson 6, Þrándur Gíslason 2,
Hafþór Már Vignisson 2, Viktor Sig-
urðsson 1, Kristján Orri Jóhannsson
1, Björgvin Þór Hólmgeirsson 1.
Varin skot: Sigurður Ingiberg Ólafs-
son 12, Óðinn Sigurðsson 2.
ÍR – FH 27:32
Utan vallar: 4 mínútur
Mörk FH: Ásbjörn Friðriksson 10/3,
Egill Magnússon 5, Einar Rafn Eiðs-
son 5, Arnar Freyr Ársælsson 4,
Ágúst Birgisson 3, Birgir Már Birg-
isson 2, Bjarni Ófeigur Valdimarsson
1, Jakob Martin Ásgeirsson 1, Leon-
harð Þorgeir Harðarson 1.
Varin skot: Phil Döhler 28.
Utan vallar: 14 mínútur
Áhorfendur: Á að giska 150.
Dómarar: Ingvar Guðjónsson og Sig-
urjón Þórðarson
Olísdeild karla
Haukar – ÍBV ....................................... 28:28
KA – Stjarnan....................................... 27:27
ÍR – FH ................................................. 27:32
Leikjum Fjölnis og Vals, og HK og
Fram, var ekki lokið þegar blaðið fór í
prentun. Sjá úrslit og stöðu á mbl.is/sport/
handbolti.
Meistaradeild karla
A-RIÐILL:
Flensburg – Barcelona ....................... 27:34
Aron Pálmarsson skoraði 5 mörk og gaf
5 stoðsendingar fyrir Barcelona.
Danmörk
Mors-Thy – Aalborg............................ 33:30
Janus Daði Smárason skoraði 3 mörk.
fyrir Aalborg. Ómar Ingi Magnússon er
meiddur. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari
liðsins.
Svíþjóð
Kristianstad – Hallby.......................... 26:17
Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði 2
mörk fyrir Kristianstad og Teitur Örn Ein-
arsson 1.
Skövde – Sävehof .................................30:32
Ágúst Elí Björgvinsson varði 14 skot í
marki Sävehof.
Helsingborg – Alingsås ...................... 23:38
Aron Dagur Pálsson skoraði 1 mark fyr-
ir Alingsås.
Noregur
Elverum – Haslum............................... 28:24
Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 3
mörk fyrir Elverum.
Follo – Oppsal ...................................... 19:26
Thea Imani Sturludóttir skoraði 4 mörk
fyrir Oppsal.