Morgunblaðið - 31.10.2019, Qupperneq 60
STJARNAN
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
„Við teljum okkur geta farið alla leið.
Við förum ekki í felur með það þótt
við höfum tapað tveimur leikjum í
röð. Við ætlum að vinna markvisst í
okkar leik og ætlum okkur að vera
betri sem lið í hverri viku,“ sagði
Arnþór Freyr Guðmundsson, leik-
maður Stjörnunnar, þegar Morgun-
blaðið spjallaði við hann í gær.
„Ég held að stóri bikarinn sé það
sem allir Stjörnumenn hafi augun á.
Auðvitað viljum við vinna alla titla en
flestra augu eru á Íslandsmeist-
aratitlinum.“
Stjarnan féll úr keppni í undan-
úrslitum Íslandsmótsins í fimm leikja
rimmu gegn ÍR. Stjarnan varð hins
vegar bikarmeistari á síðasta tímabili
og hafnaði einnig í efsta sæti í deilda-
keppninni. Gefur það ekki liðinu
meðbyr í vetur? „Jú klárlega. Það
var frábært fyrir félagið að vinna tvo
titla í fyrra. Við ætluðum okkur auð-
vitað að vinna Íslandsmótið í fyrra en
það fór eins og það fór.“
Hlynur á sjúkralistanum
Garðbæingar hafa ekki farið af
stað með neinum látum í Dominos-
deildinni þótt allir geri sér grein fyrir
því að liðið hafi burði til að vera mjög
sterkt. Stjarnan vann Þór Þorláks-
höfn og ÍR en tapaði fyrir Tindastóli
og Keflavík. „Við erum kannski ekki
alveg komnir á þann stað sem við
viljum vera á. Hjá okkur eru nýir er-
lendir leikmenn og við erum að reyna
að púsla þessu saman,“ sagði Arnþór
en þess ber að geta að leiðtogi liðsins,
Hlynur Bæringsson, missti af báðum
leikjunum sem töpuðust en hann er
með brákað rifbein. „Ég held að allir
geri sér grein fyrir því hversu mikil-
vægur hann er fyrir okkur. En það
þýðir lítið að tala um það vegna þess
að við getum ekki stjórnað því. Við
verðum bara allir að þjappa okkur
saman og gera betur.“
Tomsick frábær leikmaður
Stjarnan fékk Nikolas Tomsick til
sín í sumar en hann vakti mikla at-
hygli síðasta vetur fyrir frammistöðu
sína með Þór í Þorlákshöfn. Tomsick
var einn albesti leikmaður deild-
arinnar á síðasta tímabili og Garðbæ-
ingar vænta sjálfsagt mikils af hon-
um.
„Hann kemur ágætlega inn í þetta
hjá okkur. Hlutverk hans er ekki al-
veg það sama og hjá Þór í fyrra. Hann
er að venjast því að spila með okkur
og við erum að venjast honum. Við
leikmennirnir höfum ekki áhyggjur af
því að hann skili ekki sínu. Hann er
frábær leikmaður og skiljanlegt að
fólk búist við miklu af honum. Ég held
að Tomsick eigi bara eftir að verða
góður fyrir okkur.“
Erfitt að spá í spilin
Deildin var mjög sterk á síðasta
tímabili og ekki er útlit fyrir annað en
að hún verði það einnig í vetur. Mörg
lið hafa hins vegar tekið miklum
breytingum auk þess sem ýmislegt
óvænt getur gerst í úrslitakeppninni
eins og dæmin sanna. Spurður um
hvaða lið geti slegist um Íslands-
meistaratitilinn segir Arnþór erfitt að
spá um það á þessum tímapunkti.
„Það er erfitt að segja til um það
núna. Ég er ekki viss um að það verði
í samræmi við það hvernig stigataflan
er í dag. Ég á von á því að hún eigi eft-
ir að breytast töluvert þegar líður á
tímabilið,“ sagði Arnþór Freyr Guð-
mundsson enn fremur en hann hefur
skorað 9 stig að meðaltali í fyrstu
leikjunum og er með hátt í 40% nýt-
ingu fyrir utan 3 stiga línuna.
Markmiðið
að vinna Ís-
landsmótið
Morgunblaðið/Hari
Skytta Arnþór Freyr Guðmundsson er gjarnan fyrir utan 3 stiga línuna.
Mikill metnaður til staðar hjá
bikarmeisturunum í Garðabænum
60 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019
Þjálfari: Arnar Guðjónsson
Aðstoðarþjálfari: Hörður Unn-
steinsson.
Árangur 2018-19: 1. sæti og tap
gegn ÍR í undanúrslitum, 3:2.
Íslandsmeistari: Aldrei. Tvisvar
leikið til úrslita, 2011 og 2013.
Bikarmeistari: 2009, 2013, 2015
og 2019.
Stjarnan vann Þór Þ. í fyrstu
umferð og ÍR í annarri umferð en
tapaði fyrir Stjörnunni í þriðju
umferð og gegn Keflavík í fjórðu
umferð. Liðið mætir Njarðvík
annað kvöld á útivelli.
BAKVERÐIR:
Arnþór Freyr Guðmundsson
Dúi Þór Jónsson
Ingimundur Orri Jóhannsson
Magnús Bjarki Guðmundsson
Nick Tomsick
Orri Gunnarsson
Ægir Þór Steinarsson
FRAMHERJAR:
Ágúst Angantýsson
Friðrik Anton Jónsson
Kyle Johnson
MIÐHERJAR:
Hlynur Elías Bæringsson
Jamar Akoh
Tómas Þórður Hilmarsson
Lið Stjörnunnar 2019-20
KOMNIR:
Kyle Johnson frá Frakklandi
Nick Tomsick frá Þór Þorlákshöfn
Jamar Akoh frá Montana-háskóla í
Bandaríkjunum
FARNIR:
Brandon Rozzell til Luleå í Svíþjóð
Antti Kanervo til Helsinki Seagulls í
Finnlandi
Egill Agnar Októsson til Fjölnis
Collin Pryor til ÍR
Eysteinn Bjarni Ævarsson til Hatt-
ar
Grímkell Orri Sigurþórsson til
Álftaness
Breytingar á liði Stjörnunnar
Mikilvægi Hlyns Bæringssonar hefur heldur bet-
ur komið í ljós en liðið hefur unnið leikina sem hann
hefur spilað en tapað báðum án hans.
Það er lykilatriði fyrir Stjörnuna að Ægir og
Thomsick nái vel saman.
Bandaríkjamaðurinn í liðinu er meira svona leik-
maður sem þarf að þjónusta í sókn en þeir Kanar
sem hafa virkað best í Dominos-deildinni eru leik-
menn sem geta skorað sjálfir og líka skapað fyrir aðra.
Það vantar ekki mikið upp á að Stjarnan geti ógnað meisturum KR
í vor og ég hef trú á því að Stjarnan verði komin á þann stað þegar
það skiptir máli.
Benedikt Guðmundsson
um Stjörnuna
Kvennalið KR í knattspyrnu hefur
fengið góðan liðsstyrk en Ana Victoria
Cate og Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
hafa skrifað undir tveggja ára samning
við félagið. Ana, sem er 28 ára gömul,
kemur til KR frá HK/Víkingi en hún
hefur spilað hér á landi frá árinu 2014,
lengst af með Stjörnunni. Þórdís kem-
ur frá Þór/KA eftir að hafa verið hjá
Stjörnunni og Breiðabliki hér á landi.
Skammt er síðan Lára Kristín Ped-
ersen, fyrrverandi samherji Önu og
Þórdísar í Stjörnunni, kom til KR frá
Þór/KA. Svo gæti farið að sú fjórða úr
fyrrverandi meistaraliði Stjörnunnar,
Harpa Þorsteinsdóttir, bætist í hóp-
inn en hún kveðst í viðtali við mbl.is
halda öllum möguleikum opnum.
Spænski fram-
herjinn Álvaro
Montejo er búinn
að framlengja
samning við Þór
Akureyri og mun
því spila með liðinu
í 1. deildinni í fót-
bolta á næstu leik-
tíð. Montejo hefur spilað með Ak-
ureyrarliðinu undanfarin tvö ár. Hann
skoraði 10 mörk í 18 deildarleikjum á
síðustu leiktíð og 16 mörk í 21 leik í
deildinni árið áður. Montejo hóf feril
sinn hér á landi með Hugin á Seyð-
isfirði árið 2014 og þá hefur hann
einnig spilað með Fylki og ÍBV.
Knattspyrnumaðurinn Halldór Orri
Björnsson er genginn til liðs við
Stjörnuna á nýjan leik og hefur skrifað
undir þriggja ára samning við Garða-
bæjarfélagið. Halldór yfirgaf FH í vik-
unni eftir að hafa spilað með Hafn-
arfjarðarliðinu undanfarin þrjú ár en
hann er uppalinn Stjörnumaður og lék
með liðinu í mörg ár áður en hann
reyndi fyrir sér í atvinnumennskunni í
eitt ár með sænska liðinu Falkenbergs
árið 2014. Halldór Orri hefur spilað
188 leiki í efstu deild og hefur í þeim
skorað 59 mörk. Hann á tvo A-
landsleiki að baki.
Þrír íslenskir körfuboltadómarar og
eftirlitsmenn voru við störf á leikjum á
vegum FIBA í gær. Davíð Tómas Tóm-
asson dæmdi leik TTT Riga gegn
Tango Bourges frá Frakklandi í Lett-
landi í Evrópudeild kvenna. Davíð
dæmdi með Rússa og Úkraínumanni.
Rúnar Birgir Gíslason var eftirlits-
maður FIBA á leiknum og var þetta í
annað sinn sem þeir
Davíð eru valdir í
sama leik. Ísak Ern-
ir Kristinsson var
svo einn dómara í
leik Bakken Be-
ars frá Dan-
mörku og
Kataja frá
Finnlandi í
Evrópubik-
arnum, en
leikið var í
Risskov í
Danmörku.
Dæmdi Ísak
með Grikkja og
Frakka.
Eitt
ogannað
„Við áttum góðan leik á Íslandi en
við erum bara hálfnuð. Við þurfum
að taka verkefnið alvarlega og gefa
okkur öll í það,“ sagði Olivier Echo-
uafni, þjálfari PSG, í gær.
PSG og Breiðablik mætast í París
í kvöld í seinni leik liðanna í 16-liða
úrslitum Meistaradeildar Evrópu í
fótbolta kvenna. PSG er í kjörstöðu
með 4:0-forskot. Berglind Björg
Þorvaldsdóttir, framherji Blika, er
í hópi markahæstu leikmanna
keppninnar með 9 mörk.
Nær Berglind
tug í París?
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Yfirburðir Breiðablik átti erfitt
uppdráttar gegn stjörnum PSG.
Ada Hegerberg, framherji franska
knattspyrnuliðsins Lyon, var á
skotskónum þegar Evrópumeist-
ararnir fengu Fortuna Hjörring í
heimsókn í seinni leik liðanna í sex-
tán liða úrslitum Meistaradeildar
Evrópu í knattspyrnu í gær. Heger-
berg skoraði tvívegis fyrir Lyon í
7:0 sigri og er orðin markahæsti
leikmaður í sögu keppninnar með
53 mörk í 50 leikjum. Hin þýska
Anja Mittag átti metið með 51
mark. sport@mbl.is
Hegerberg
sló metið
AFP
Met Ada Hegerberg skorar í
Meistaradeildinni á dögunum.