Morgunblaðið - 31.10.2019, Síða 62
62 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 2019
Okkar þekking nýtist þér..
Orkusparnaður
með Nergeco hraðopnandi
iðnaðarhurðum
Mest seldu iðnaðarhurðir á Íslandi
• Opnast hratt og
örugglega
• Orkusparandi
• Þola mikið vindálag
• Öruggar og
áreiðanlegar
• Henta við allar
aðstæður
• Yfir 20 ára reynsla á
Íslandi
• Hafðu samband við
okkur og við finnum
réttu hurðina fyrir þig
Myndlistarmaðurinn Ragnar Kjart-
ansson ræðst ekki á garðinn þar
sem hann er lægstur og segir nú frá
því á vef The Art Newspaper að
hann muni endurgera eða -skapa
bandarísku sápuóperuna Santa
Barbara og sýna í nýrri menningar-
miðstöð, GES-2, í Moskvu í sept-
ember á næsta ári.
Santa Barbara sápuóperan hóf
göngu sína á níunda áratugnum og
verður endurgerð Ragnars í formi
umfangsmikils vídeóverks sem
verður dreift um hina miklu menn-
ingarmiðstöð. Segir í frétt The Art
Newspaper að valdir þættir verði
endurleiknir daglega á mjög stóru
sviði inni í GES-2 og að Ragnar
muni einnig taka upp staka þætti
með rússneskum leikurum í stúdíói
sínu á Íslandi. Þar verði smíðaðar
sviðsmyndir í anda sápuóperunnar
og leikið eftir raunverulegum
handritum að þáttum Santa Barb-
ara.
„Þú hefur svikið mig!“
Í Santa Barbara segir af Cap-
well-fjölskyldunni í Kaliforníu og
var sápuóperan sú fyrsta frá
Bandaríkjunum sem sýnd var í
Rússlandi en sýningar hófust á rík-
isstöðinni RTR árið 1992.
„Rússar voru að senda hver öðr-
um ljóð og svo
kom Santa Barb-
ara allt í einu og
allt breyttist.
Þetta er tilfinn-
ingaþrunginn
massi, skúlptúr.
Við erum í sífellu
að leika atriði
þar sem fólk læt-
ur út úr sér setn-
ingar á borð við
„Þú hefur svikið mig!“,“ er haft eft-
ir Ragnari í fréttinni.
Stofnunin sem rekur GES-2 sendi
frá sér tilkynningu um verkefnið og
segir í henni m.a. að í verkinu megi
sjá hvernig skáldskapur og list geti
haft áhrif á heiminn. Stofnunin hafi
veitt Ragnari leyfi til að nota allt
rými menningarmiðstöðvarinnar
og allar hæðir, í því skyni að hann
geti látið draum sinn rætast eða
draumsýn.
Flutti „Guð“ fyrir fullu húsi
Ragnar framdi gjörning sinn
„God“, eða Guð, 28. október sl. í
Majakovskí-leikhúsinu í Moskvu,
sex klukkustunda langan en í hon-
um syngur hann, í rússneskri þýð-
ingu, um að sorgin sigri hamingj-
una. Var fullt hús og sungu gestir
með, samkvæmt fréttinni.
Ragnar endurger-
ir Santa Barbara
Umfangsmikið verk sýnt í Moskvu
Ragnar
Kjartansson
Tónlistarhátíðin Airwhales verður
haldin í fyrsta sinn helgina 7.-9. nóv-
ember frá kl. 16 til miðnættis á hót-
elinu Hlemmur Square að Lauga-
vegi 105 og verður aðgangur
ókeypis. Markmiðið með hátíðinni er
að koma listamönnum sem eru frá
eða búa á Íslandi á framfæri, skv. til-
kynningu. „Við trúum á tónlist-
arsenuna í Reykjavík og finnst að
þetta tónlistarfólk eigi að fá sjálf-
stætt svið til að koma tónlist sinni á
framfæri og fá tækifæri til að deila
þessari helgi og byggja brýr til ann-
arra landa. Airwhales er fyrir alla.
Alla listamenn
sem taka þátt, og
alla þá sem
hlusta. Við erum
að taka bylgj-
urnar aftur til
okkar. Málstaður
okkar kemur frá
hjartanu,“ segir í
tilkynningu og að
boðið verði upp á
yfir 20 tónlistarmenn, plötusnúða og
aðra listamenn í fyrrnefnda þrjá
daga. Hátíðin er í samkeppni við
stærstu tónlistarhátíð á Íslandi, að
því er fram kemur í tilkynningunni
og er þar átt við Iceland Airwaves
sem haldin verður 6.-9. nóvember.
Meðal listamanna sem koma fram
eru Jelena Ciric, Gugusar, Skauti,
MSEA, Dead Bird Lady, David Rist,
supersport, Ottoman, Skoffín, S.hel,
Regn., Marteinn Sindri, Sinah, Sal-
óme Katrín og Reykjavik on Stage.
Um Hlemm Square segir að hót-
elið sé stoltur 0bakhjarl margra
listahátíða og viðburða í Reykjavík
og að á jarðhæðinni sé reglulega
boðið upp á tónlistar- eða listvið-
burði.
Airwhales-hátíðin haldin í fyrsta sinn á Hlemmi Square
Marteinn Sindri
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Rapparinn Countess Malaise, öðru
nafni Dýrfinna Benita, sendir frá
sér fyrstu breiðskífu sína í dag, á
hrekkjavöku, 31. október. Platan
ber titilinn Hystería en Countess
Malaise segir að platan sé persónu-
leg og að í lögunum takist hún á við
andlega vanlíðan, femínisma, geð-
ræn vandamál og fleira.
„Ég er að fjalla um hvernig það er
að vera kona með sterkan persónu-
leika og geðræn vandamál. Í raun er
þetta hreinskilin frásögn af lífi
mínu. Þess vegna heitir platan líka
Hystería, því ég tala um ofbeldi,
nauðgunarmenningu og femínisma í
lögunum mínum.
Hér áður fyrr var litið niður á
konur sem voru með sterkar skoð-
anir og töluðu um þessa hluti, þær
voru gjarnan taldar klikkaðar eða
kallaðar nornir. Mér fannst Hyster-
ía vera fullkomið nafn á plötuna
vegna sögunnar á bak við orðið og
það hvernig orðið hefur verið notað í
gegnum tíðina, aðallega til þess að
lýsa konum.“
Countess Malaise vill ekki bara
tala um konur og karla.
„Ég reyni að hafa lögin mín þann-
ig að þau séu opin fyrir öll vegna
þess að ég er hinsegin listakona og
styð allt trans og „gay“ og „non-bin-
ary“ fólk. Ég styð alla þá sem eru
jaðri samfélagsins vegna þess að
það er frábært að vera öðruvísi og á
þessari plötu er ég er svolítið að
fagna því.“
Mikil kúnst að tjá sig með rappi
Spurð hvort rappið sé góður mið-
ill til að koma skilaboðum sem þess-
um á framfæri segir Countess Mala-
ise: „Já. Rapp varð til vegna reiði og
valdleysis jaðarhópa. Rappið er í
raun ljóð, orð sem maður getur leik-
ið sér með og tjáð sig með hætti sem
maður getur ekki annars. Það er svo
mikil kúnst að tjá sig með rappi.“
Countess Malaise segir að á plöt-
unni afhjúpi hún sig enn meira en
áður.
„Ég syng líka á plötunni og það er
í fyrsta skipti sem ég syng opin-
berlega. Ég er að prófa nýja hluti á
plötunni og fer út fyrir þæginda-
ramma minn. Ég ýti sjálfri mér út í
það að vera berskjaldaðri en ég hef
verið áður.“
Countess Malaise segir að ástæð-
an fyrir þessari afhjúpun sé sú að
hún vilji að tónlistin sé ekta.
„Þannig tengir maður við list. Ég
vil að fólk geti hlustað á þetta og
fundið fyrir því að það megi finna
fyrir öllum þessum tilfinningum,
hamingju, losta, kvíða, þunglyndi og
reiði, og að það sé allt í lagi. Það er
svolítið ástæðan fyrir því að ég lagði
áherslu á að platan yrði svona fjöl-
breytt í tilfinningum og sögum.“
Countess Malaise er nú þegar bú-
in að senda frá sér þrjú lög á þessu
ári og nú sendir hún frá sér Hyster-
íu, en á henni er að finna átta lög.
Hún er því einn af þeim íslensku
röppurum sem hafa verið hvað virk-
astir þetta árið.
Notar vanlíðan í sköpun
Countess Malaise útskrifaðist úr
háskóla í Amsterdam sumarið 2018
og var henni farið að líða verulega
illa undir lokin. Hún ákvað að koma
heim til Íslands bæði til þess að
skapa tónlist og til þess að vinna í
sjálfri sér og andlegri líðan sinni.
„Ég rétt svo náði önninni lifandi
því mér leið svo illa. Ég notaði allt
sem ég upplifði til að vinna að þess-
ari plötu og koma mér aðeins niður
á jörðina heima á Íslandi, vera í
kringum vini og fjölskyldu og fá
hjálp og á sama tíma nota allan
kvíðann og allt stressið og þung-
lyndið til þess að skapa eitthvað
þýðingarmikið og líka eitthvað sem
fólk getur haft gaman af og lært
eitthvað af.“
Sköpunarþörfin dreif Countess
Malaise áfram.
„Fyrst og fremst skapa listamenn
vegna þess að þeir þurfa þess. Ég
þurfti bara að koma heim og skapa
og þess vegna er þetta allt byrjað að
rúlla hjá mér núna. Ég var að gera
tónlist á meðan ég var í skóla og
spilaði víða í Evrópu. Það var ótrú-
lega erfitt að halda öllum þessum
boltum á lofti. Núna er ég að reyna
að gera eins mikið og ég get,“ segir
Countess Malaise, sem er sömuleið-
is á fullu í myndlist, en 30. nóvemb-
er verður opnuð sýningin Lucky Me
í Kling og Bang með verkum eftir
hana, Melanie Ubaldo og Darren
Mark.
Spurð hvaða þýðingu það hafi að
platan komi út á hrekkjavöku segir
Countess Malaise:
„Það er tími þegar fólk getur
dressað sig upp og verið hvað sem
það vill og leikið sér.“
Hingað til hefur Countess Mal-
aise helst gefið út tónlist sem er í
gotneskum stíl.
„Það verður alltaf hluti af mér og
ég myndi segja að platan væri mjög
fjölbreytt. Mér líður eins og með
hverju lagi sem ég gef út sé alltaf
einhver þróun, alltaf eitthvað nýtt
sem bætist við. Mig langar að halda
því áfram, ýta sjálfri mér út fyrir
það sem ég er vön í hvert skipti.“
Á næsta ári mun Countess Mal-
aise gefa plötuna út á vínyl og sömu-
leiðis mun hún senda frá sér tón-
listarmyndbönd við lög af Hysteríu.
Hystería Hluti ljósmyndar sem prýðir bakhlið fyrstu plötu rapparans Countess Malaise. Rapparinn er fyrirsætan.
Rapparinn Countess Malaise sendir frá sér nýja plötu
Berskjaldaðri en áður Vill að tónlistin sé ekta
„Hreinskilin frá-
sögn af lífi mínu“