Morgunblaðið - 13.11.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 2019
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
Peysur - Blússur - Buxur - Tunikur
Töskur - Klútar - Hanskar - Húfur
Silkislæður - Klemmueyrnalokkar
Vinsælu velúrgallarnir alltaf til,
einnig stakar svartar velúrbuxur
Stærðir S-4XL
1988 - 2018
NÝJAR GLÆSILEGAR
HAUSTVÖRUR
Bergþór Ólason alþingismaðurræddi á Alþingi í gær nokkuð
sem hefur pirrað hann og án efa
marga aðra sem eiga leið um mið-
borgina, enda lýti á þessu annars
ágæta svæði. Hann sagði: „Í janúar
2012 bárust
fréttir af
því að risa-
stórt grjót
væri komið
fyrir utan
Alþingis-
húsið. Síð-
an bárust
fréttir af
því að þar
væri á ferð Svarta keilan, sem svo
var kölluð, minnisvarði um borgara-
lega óhlýðni eftir listamanninn
Santiago Sierra.“
Þá sagði Bergþór að Reykjavíkur-borg hefði lítið gert með það að
þingið hefði ekki viljað grjótið
þarna. Forsætisnefnd hefði árið
2012 samþykkt einróma að grjótið
væri stílbrot og styngi í stúf við
heildarmynd Austurvallar.
Hann bætti því við að borginhefði svo flutt Svörtu keiluna
um nokkra metra og nú stæði hún
fyrir framan Skála Alþingis.
Loks sagði Bergþór: „Mig langarað vísa því til forseta Alþingis
og forsætisnefndar að hlutast til um
að taka upp samtal við Reykjavíkur-
borg þar sem markmiðið og niður-
staðan verði sú að grjóthnullungur-
inn, þessi svokallaða Svarta keila,
verði fluttur af Austurvelli. Þetta
svokallaða listaverk á ekkert heima
hér. Fyrir mig get ég sagt: Ég vil
þetta burt og fyrsti tíminn er bestur
hvað það varðar. Það væri við hæfi í
aðdraganda jóla – þar sem Listasafn
Reykjavíkur hefur metið verkið á 25
milljónir fyrir nokkru – að semja við
listamanninn um að selja það og
verja ágóðanum til Mæðrastyrks-
nefndar. Hann hefur örugglega ekki
á móti því.“
Svarta keilan
Ágæt hugmynd
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Vegagerðin og Björgun hf. hafa
gert með sér samkomulag um
dýpkun í Landeyjahöfn frá því
haustdýpkun lýkur 15. nóvember
og út janúar næstkomandi. Skrifað
var undir samninginn í gær, 12.
nóvember. Dýpkað verður flesta
daga meðan fært er, að því er fram
kemur í frétt á heimasíðu Vega-
gerðarinnar.
Dýpkað hefur verið samkvæmt
samningi vor og haust og er þetta
veruleg viðbót við þá dýpkun.
„Með þessu vill Vegagerðin leitast
við að halda höfninni opinni fram
yfir áramót sé þess nokkur kost-
ur,“ segir í fréttinni.
Dýpkunarskipið Dísa ásamt
áhöfn mun liggja við í Vestmanna-
eyjahöfn og nýta þau tækifæri er
gefast til dýpkunar í samræmi við
efni samningsins. Dísa hefur að
mestu annast dýpkun við Land-
eyjahöfn.
Samkomulagið felur einnig í sér
breytingar á fyrri samningi að því
leyti að ekki er gert ráð fyrir að-
komu Björgunar að dýpkun í mars-
mánuði eins og núverandi samn-
ingar gerðu ráð fyrir.
Leitað verður eftir því að fá til
starfa stærra skip með öflugri bún-
að til þess að opna höfnina en
Björgun mun svo taka við og ljúka
frekari hreinsun. sisi@mbl.is
Samið um dýpkun út janúarmánuð
Vegagerðin og Björgun hf. semja um
áframhaldandi dýpkun í Landeyjahöfn
Morgunblaðið/sisi
Dýpkun Dísa verður tiltæk í Vest-
mannaeyjum fram á næsta ár.
Ríkisstjórn Íslands samþykkti sl.
föstudag tillögu flóttamannanefndar
þess efnis að tekið yrði á móti 85
flóttamönnum í samstarfi við Flótta-
mannastofnun Sameinuðu þjóðanna.
Er um að ræða fjölmennustu mót-
töku flóttafólks frá því að íslensk
stjórnvöld hófu að taka á móti flótta-
fólki í samstarfi við Sameinuðu þjóð-
irnar. Greint er frá þessu á heima-
síðu Stjórnarráðs Íslands.
Tekið verður á móti fólki frá
þremur svæðum; sýrlensku flótta-
fólki sem er í Líbanon, flóttafólki í
Keníu og afgönsku flóttafólki sem er
í Íran.
Hafa markvisst eflt móttöku
„Íslensk stjórnvöld hafa eflt mót-
töku flóttafólks markvisst frá árinu
2015 en frá þeim tíma hafa þau tekið
á móti 247 einstaklingum. Frá árinu
2015 hafa fimmtán sveitarfélög tekið
á móti hópum og þar af voru sjö
sveitarfélög að taka á móti kvóta-
flóttafólki í fyrsta sinn. Meirihlutinn
kom frá Sýrlandi en einnig frá Írak,
Úganda, Kongó, Simbabve, Rúanda,
Súdan og Kamerún,“ segir í tilkynn-
ingu stjórnvalda um málið, en mót-
taka flóttafólks er sögð hafa tekist
vel hér á landi.
Staða Sýrlendinga í Líbanon er
sögð fara síversnandi. „Má þar
nefna að um 55% barna hafa ekki að-
gang að formlegri menntun. Þar af
hafa 40% engan aðgang að menntun
og innan við 5% barna á aldrinum
15-18 ára hafa möguleika á mennt-
un,“ segir einnig í tilkynningunni.
Þá er áætlað að 2,6 milljónir
flóttafólks séu Afganar og að 45 þús-
und manns séu í brýnni þörf fyrir að
komast sem kvótaflóttafólk frá
Keníu á þessu ári. khj@mbl.is
Samþykkja 85
kvótaflóttamenn
Fjölmennasta mót-
taka flóttafólks til
þessa hér á landi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Keflavík Flóttafólk frá Írak sést
hér koma til landsins árið 2018.