Morgunblaðið - 13.11.2019, Síða 26
VIÐTAL
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Á meðan það er ennþá von hefur
maður trú. Við ætlum okkur á þriðja
stórmótið í röð, og það yrði rosaleg-
ur árangur fyrir íslenskt landslið,“
segir Aron Einar Gunnarsson,
landsliðsfyrirliði í fótbolta, þegar
Morgunblaðið slær á þráðinn til
hans til Katar.
Aron vinnur að því hörðum hönd-
um þessa dagana að koma sér aftur
út á fótboltavöllinn eftir að hafa orð-
ið fyrir hrottalegri tæklingu í leik
með Al Arabi í katörsku úrvalsdeild-
inni í síðasta mánuði. Liðbönd í
ökkla slitnuðu við tæklinguna og Ar-
on segir mildi að ekki skyldi fara
verr. Vegna meiðslanna missti hann
af leikjum við Frakkland og Andorra
í síðasta mánuði, og hann verður
sömuleiðis ekki með gegn Tyrkjum á
morgun eða gegn Moldóvu á sunnu-
dag, þegar undankeppni EM lýkur.
Ísland þarf á hálfgerðu krafta-
verki að halda til að komast beint á
EM, en það felst í því að liðið vinni
báða leiki sína og Tyrkland nái ekki
að vinna Andorra á útivelli í loka-
umferðinni. Að öðrum kosti fer liðið í
umspil í lok mars og myndi þá von-
andi njóta krafta Arons og Jóhanns
Bergs Guðmundssonar, sem er ein-
mitt einnig staddur í Katar í sjúkra-
endurhæfingu líkt og Aron:
Á undan áætlun og líður vel
„Endurhæfingin gengur mjög vel.
Ég er á undan áætlun og líður bara
vel,“ segir Aron, sem er reyndar
ekki þekktur fyrir að láta bilbug á
sér finna. „Fyrstu tvær vikurnar var
ég í gifsi, næstu tvær í spelku þó að
reiknað hafi verið með þremur vik-
um, og er farinn að gera æfingar
sem ekki var búist við að ég yrði far-
inn að gera á þessum tímapunkti.
Læknateymið er mjög ánægt með
hvernig þetta hefur þróast. Hægt og
rólega mun ég koma mér út á grasið,
alla vega í byrjun desember, og
planið er að ég nái fyrsta leiknum
eftir áramót, 2. janúar,“ segir Aron,
sem er líklega á besta stað í heimi
þegar kemur að meðferð við
meiðslum:
„Ef maður byggi ekki hérna væri
ég sennilega kominn hingað hvort
sem er í endurhæfingu. Hérna hefur
maður mjög góða sérfræðinga og
sjúkraþjálfara sem sjá um mann á
morgnana, og seinni part dags eru
æfingar hjá liðinu með fitnessþjálf-
ara og öðru. Ég er því á fínu róli og
virkilega ánægður með þetta.“
Aron hafði skorað tvö mörk í síð-
ustu fjórum leikjum með Al Arabi
þegar hann meiddist, og virtist í afar
góðu formi á sinni fyrstu leiktíð eftir
komuna frá Cardiff í Englandi:
Pirraði mig, þó að strákurinn
bæðist afsökunar
„Auðvitað er þetta svekkjandi.
Maður svekkti sig fyrstu tvo eða
þrjá dagana og var pirraður, en svo
áttar maður sig á því að maður getur
ekkert í þessu gert. Svona aðstæður
koma upp í fótboltanum og maður
verður að taka því eins og maður. En
vissulega var ég kominn vel inn í
hlutina hérna þegar þetta gerðist,
farinn að venjast fótboltanum og
kominn í gott form, og þess vegna
var þetta mjög svekkjandi, en síðan
fer maður bara að einbeita sér að því
að ná sér góðum til að komast í gang
strax eftir meiðslin. Það eru afar
mikilvægir landsleikir fram undan
eftir það, ef Tyrkirnir og Frakkarnir
klára sitt, og maður verður kominn á
fulla ferð í mars,“ segir Aron. Hann
kveðst í dag ekki bera kala til leik-
manns Al Khor sem tæklaði hann og
meiddi ekki bara Aron heldur dæld-
aði þar með vonir Íslands um að
komast beint á EM. Tæklingin var
þó mjög ljót:
„Það var það sem ég pirraði mig á
fyrstu þrjá dagana, þó að strákurinn
hafi beðist afsökunar og allt það, og
komið upp á sjúkrahús eftir aðgerð-
ina. Þetta var heimskuleg tækling og
hann baðst afsökunar á því, en þetta
gerist í fótbolta. Maður erfir það
ekkert við hann. Þetta er hluti af
leiknum og hans ákvarðanatöku. Ég
er samt heppinn að ekki skyldi fara
verr. Ég hefði getað brotnað og er í
raun sáttur með að „bara“ liðböndin
skyldu fara,“ segir Aron.
Okkur líður mjög vel hérna
Hann segir lífið í Katar hafa verið
gott þessa fyrstu mánuði sem hann
hefur verið í landinu með fjölskyldu
sinni; eiginkonu og tveimur sonum.
Á meðan
enn er von
þá hefur
maður trú
Aron fljótari að ná sér en læknar
töldu Ætlar sér á þriðja stórmótið
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 2019
SÉRBLAÐ
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
fimmtudaginn 28. nóvember
Við komum víða við í ár, heimsækjum
fjölda fólks og verðummeð fullt af
spennandi efni fyrir alla aldurshópa.
Morgunblaðsins kemur út
Jólablað
Meistaradeildin
Zaragoza – Dijon ................................. 75:60
Tryggvi Snær Hlinason tók þrjú fráköst
fyrir Zaragoza og gaf eina stoðsendingu.
Svíþjóð
Borås – Djurgården .......................... 108:80
Elvar Már Friðriksson skoraði 27 stig,
tók eitt frákast og gaf átta stoðsendingar
hjá Borås.
NBA-deildin
Detroit – Minnesota ......................... 114:120
SA Spurs – Memphis........................ 109:113
Boston – Dallas ................................. 116:106
New Orleans – Hoston..................... 116:122
LA Clippers – Toronto......................... 98:88
Golden State – Utah......................... 108:122
KÖRFUBOLTI
Tryggvi Snær
Hlinason lét lítið
fyrir sér fara
þegar lið hans
Zaragoza vann
þægilegan 15
stiga sigur gegn
Dijon í Meist-
aradeildinni í
körfuknattleik á
Spáni í gær.
Leiknum lauk
með 75:60-sigri Zaragoza en
spænska liðið leiddi með 16 stigum
í hálfleik og gat því leyft sér að
slaka aðeins á í síðari hálfleik.
Tryggvi var stigalaus í leiknum en
hann tók þrjú fráköst og gaf eina
stoðsendingu á þeim tæpu tíu
mínútum sem hann spilaði. Zara-
goza er í fjórða sæti D-riðils með 8
stig eftir fimm leiknar umferðir,
einu stigi minna en topplið Dijon.
bjarnih@mbl.is
Þægilegt hjá
Zaragoza
Tryggvi Snær
Hlinason
GOG hafði betur gegn Kolding á útivelli í Íslendingaslag
dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gær. Leikn-
um lauk með þriggja marka sigri GOG, 28:25, en staðan í
hálfleik var 15:12, GOG í vil.
GOG náði mest fjögurra marka forskoti í fyrri hálf-
leik, 5:1. Kolding tókst að jafna metin í 8:8 þegar tæpar
tíu mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. GOG var hins
vegar sterkari aðilinn undir lok fyrri hálfleiks. Í síðari
hálfleik náði GOG mest sex marka forskoti, 21:15, þegar
fimmtán mínútur voru til leiksloka en leikmenn GOG
voru með frumkvæðið allan seinni hálfleikinn og unnu
sanngjarnan sigur.
Árni Bragi Eyjólfsson skoraði sex mörk fyrir Kolding en varnarmað-
urinn Ólafur Gústafsson komst ekki á blað. Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði
eitt mark fyrir GOG úr tveimur skotum en Viktori Gísla Hallgrímssyni
tókst ekki að verja skot í marki GOG. Arnar Freyr Arnarsson var ekki í
leikmannahóp GOG en liðið er sjöunda sæti deildarinnar með 12 stig eftir
ellefu leiki. Kolding er í tólfta sætinu með 6 stig. bjarnih@mbl.is
GOG vann Íslendingaslaginn
Árni Bragi
Eyjólfsson
Valsmenn hafa sagt upp samningi sínum við handknatt-
leiksmanninn Svein Aron Sveinsson en þetta kom fram í
fréttatilkynningu sem félagið sendi frá sér í gær.
Sveinn Aron var í síðustu viku dæmdur í níu mánaða
fangelsi, þar af sjö mánuði skilorðsbundna, fyrir sér-
staklega hættulega líkamsárás á bílastæði við Sæmund-
argötu í Reykjavík í september 2017.
Sveinn Aron viðurkenndi brot sitt en hann sparkaði
meðal annars ítrekað í höfuðið á manni sem hann felldi
sjálfur til jarðar. Þá þurfti hann að greiða fórnarlambi
sínu 700 þúsund krónur í miskabætur.
„Sú ofbeldishegðun sem leikmaðurinn játaði að hafa
sýnt er í algjörri andstöðu við allt sem Valur stendur fyrir og hafa því allar
forsendur fyrir samstarfi félagsins og leikmannsins brostið. Félaginu er
því nauðugur einn kostur, að rifta samningnum,“ segir meðal annars í til-
kynningu Valsmanna. bjarnih@mbl.is
Rekinn frá Hlíðarenda
Sveinn Aron
Sveinsson
HANDKNATTLEIKUR
Olís deild karla:
Hlíðarendi: Valur – KA.........................19:30
Coca Cola bikar kvenna:
Ásvellir: Haukar – ÍBV..............................19
KÖRFUKNATTLEIKUR
Dominos-deild karla:
Síkið: Tindastóll – Haukar ...................19:15
Ásgarður: Stjarnan – Valur..................19:15
Þorlákshöfn: Þór Þ. – Grindavík..........19:15
Í KVÖLD!