Fréttablaðið - 19.02.2020, Side 6

Fréttablaðið - 19.02.2020, Side 6
H E I LB R I G Ð I S M Á L Liu Zhimm- ing, yfirmaður Wuhan Wuchang sjúkrahússins í Kína, lést í gær af völdum COVID-19 veirunnar sem á uppruna sinn að rekja til Wuhan- borgar. Sjúkrahúsið var hannað ein- göngu til þess að sinna sjúklingum sem sýkst hafa af veirunni. COVID-19 veiran hefur dregið tæplega nítján hundruð manns til dauða og er Zhimming sjöundi heil- brigðisstarfsmaðurinn sem lætur lífið af hennar völdum. Útbreiðsla veirunnar er mikil og hefur hún greinst víðs vegar um heim en í gær var fyrsti dagurinn þar sem ný tilfelli hennar voru færri en tvö þúsund í Kína síðan í janúar, í gær greindust þar 1.886 ný tilfelli. Á heimsvísu hafa rúmlega 72 þúsund manns smitast af veirunni og áhrifa hennar gætir víða. Veiran hefur greinst í 26 löndum fyrir utan Kína, þar með talið í Svíþjóð, Finn- landi og í Bretlandi. Í þessum 26 löndum hafa um 830 manns smitast og fimm hafa látið lífið af völdum veirunnar. Yfir tvö þúsund ráðstefnum og iðnaðarsýningum hefur verið frest- að í Kína vegna hafta á ferðalög til að minnka útbreiðslu veirunnar og eru áhrifin sögð teljast í milljörðum Bandaríkjadollara. Tæknirisinn Apple hefur gefið það út að fyrirtækið sjái ekki fram á að ná ársfjórðungsmarkmiði sínu í mars vegna hægrar framleiðslu á iPhone og minnkandi eftirspurnar frá Kína. Í kjölfarið féllu hlutabréf í asískum fyrirtækjum í kauphöll- inni á Wall Street. Forseti Suður-Kóreu sagði efna- hag landsins hafa tekið dýfu í kjöl- far veirunnar. Eftirspurn eftir suð- urkóreskum vörum hafi minnkað á heimsvísu. Eggja- og fuglakjötsframleiðsla hefur dregist saman í Kína og sama má segja um útflutning á málmi, en lönd víðs vegar hafa hætt að taka við flutningaskipum frá Kína. Fjöldi flugfélaga hefur tímabund- ið hætt við f lug til Kína og fjölda íþróttaviðburða og mannfagnaða hefur verið frestað víða í Asíu. Tugir manna víða um heim hafa verið settir í sóttkví og einangrun til að reyna að hamla útbreiðslu COVID-19 og voru til að mynda 300 Bandaríkjamenn fluttir með flugi til Bandaríkjanna í gær eftir að hafa verið haldið í sóttkví á skemmti- ferðaskipinu Diamond Princess í tvær vikur. Fjórtán þeirra voru greindir með veiruna. Þá var rússneskri konu gert að snúa til baka í einangrun eftir að hafa f lúið af sjúkrahúsi í Sankti Pétursborg þar sem hún hafði verið í einangrun. Grunur lék á að konan væri smituð af veirunni eftir ferð til Kína. Veiran hefur ekki greinst hér á landi en samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup óttast þriðjungur þjóðar- innar að hún berist til landsins. Sérstakri gámaeiningu hefur verið komið upp við bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi en þar verður hægt að taka á móti og skoða sjúklinga sem grunur leikur á að séu smitaðir af veirunni. birnadrofn@frettabladid.is Veiran hefur ekki greinst á Íslandi. Samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup óttast þriðjungur þjóðarinnar að hún berist til landsins. ÞÝSKALAND Skotinn Iain Macnab þurfti að hætta sem bæjarstjóri í þýska þorpinu Brunsmark þann 31. janúar, þegar Bretland gekk formlega úr Evrópusambandinu. Macnab hafði verið þar bæjarstjóri í tólf ár við góðan orðstír. Þorpið er í nágrenni Hamborgar og þar búa um 150 sálir. „Ég má ekki kjósa lengur í Þýska- landi og ef ég má ekki kjósa þá get ég ekki verið bæjarstjóri,“ sagði hann í samtali við fréttastofuna AFP. Iain Macnab er sjötugur að aldri og hefur búið í Brunsmark í 28 ár. Hann er kvæntur þýskri konu og eiga þau saman tvö börn. Uppruna- lega er hann frá öðrum smábæ, Achiltibuie í skosku hálöndunum. Eftir atkvæðagreiðsluna árið 2016 sóttu margir Bretar í Þýska- landi um ríkisborgararétt, en Macnab var ekki einn af þeim. „Ég hugsaði nokkrum sinnum um að gera það en lét aldrei af því verða.“ Macnab segir Evrópusambandið ekki gallalaust og að því fylgi reglu- gerðafargan, en betra sé að vera innan þess til þess að hafa áhrif. Hann telur einnig að útgangan gæti klofið Stóra-Bretland og hann sjálfur sé í fyrsta sinn að fyllast þjóðerniskennd sem Skoti. Daginn sem hann yfirgaf bæjar- stjórnarsk rifstofuna lét hann skoska fánann blakta við hún. Hann kveður þó embættið með þakklæti. „Mér finnst að ég hafi áorkað einhverju, jafn vel þó að þetta geti verið vanþakklátt starf.“ – khg Missti bæjarstjórastólinn í Brunsmark vegna Brexit Áhrifa af COVID-19 gætir víða um heim Rúmlega 72 þúsund manns hafa smitast af COVID-19 veirunni og tæplega nítján hundruð látist af hennar völdum. Yfirmaður sjúkrahúss í Wuhan í Kína, sem einungis sinnir sjúklingum smituðum af veirunni, lést í gær. Kong Yuefeng gefur blóð eftir að hafa læknast af COVID-19 veirunni. Hann lauk einangrun í gær. MYND/GETTY Iain Macnab má ekki lengur kjósa í þýskum heimabæ sínum. MYND/GETTY Eftir áralanga þróun og prófanir höfum við náð markmiði okkar. Við höfum búið til eina þróuðustu dýnu heims Simba tvinndýnan er gerð úr einstakri samsetningu 2500 keilulaga gorma og móttækilegs minnissvamps. Fáðu betri svefn – sama hvert svefnmynstur þitt er. Komdu og kynntu þér Simba í næstu Dormaverslun eða á www.simba.is V A RA ÁRSINS 2018 B R E T L A N D HEILSUDÝNUR Kjörin heilsudýna ársins á meðal 10.637 þátttakenda í neytenda könnun KANTAR TNS í Bretlandi SIMBA STÆRÐIR VERÐ Dýna 80 x 200 cm 79.990 Dýna 90 x 200 cm 89.990 Dýna 90 x 210 cm 94.990 Dýna 100 x 200 cm 94.990 Dýna 120 x 200 cm 104.990 Dýna 140 x 200 cm 114.990 Dýna 160 x 200 cm 134.990 Dýna 180 x 200 cm 149.990 Dýna 180 x 210 cm 159.990 Dýna 200 x 200 cm 169.990 OP IÐ Á SU NN UD ÖG UM Í DO RM A SM ÁR AT OR GI SIMBA DÝNURNAR HENTA BÆÐI Í HEFÐBUNDIN OG STILLANLEG RÚM Afgreiðslutími Rvk Mánudaga til föstudaga kl. 11–18.30 Laugardaga kl. 11–17 Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi) www.dorma.is Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði FRÉTTIR, FÓLK & MENNING á Hringbraut 1 9 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.