Fréttablaðið - 06.12.2002, Side 8
8 6. desember 2002 FÖSTUDAGUR
GRÆNLAND Jonathan Motzfeldt
segir sjálfgefið að hann verði ekki
formaður grænlensku lands-
stjórnarinnar þetta kjörtímabil.
Hann hefur verið formaður henn-
ar í 17 af þeim 23 árum, sem liðin
eru frá því Grænlendingar fengu
heimastjórn.
Hann tapaði fyrir Hans Enok-
sen í formannskjöri jafnaðar-
flokksins Siumut í október síðast-
liðnum. Motzfeldt hafði engu að
síður gert sér vonir um að verða
formaður landsstjórnarinnar í
krafti þess að fá flest atkvæði
allra þingmanna flokksins í kosn-
ingunum á þriðjudaginn. Hann
hlaut hins vegar ekki nema 709 at-
kvæði, sem er um það bil helmingi
minna en hann fékk í síðustu
kosningum.
„Kjósendur hafa talað,“ sagði
Motzfeldt í viðtali við grænlensku
útvarpsstöðina Kalaallit Nunaat.
„En ég er samt ánægður að flokk-
urinn minn, sem allir höfðu spáð
miklu tapi, hafi nokkurn veginn
haldið sínu.“ Hann segist þó ætla
að halda áfram að reyna að hafa
þau áhrif sem hann getur.
Siumut er eftir sem áður
stærsti flokkur Grænlands, þrátt
fyrir nokkuð fylgistap. Óljóst er
hvort Enoksen formaður myndar
nú stjórn með vinstri flokknum IA
eða hvort hann heldur áfram
stjórnarsamstarfi með borgara-
flokknum Atassut. ■
Jonathan Motzfeldt viðurkennir ósigur sinn:
Ætlar að halda
áfram að hafa áhrif
FRÁ GRÆNLANDI
Jonathan Motzfeldt, sem verið hefur nánast
landsfaðir Grænlendinga undanfarna tvo
áratugi, verður ekki formaður grænlensku
landsstjórnarinnar næsta kjörtímabil.
Hækkanir hins opinbera:
Mótmælt
harðlega
MÓTMÆLI Stjórn og fulltrúaráð
Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar mótmælir harðlega hækk-
unum opinberra aðila að undan-
förnu. Nýjustu dæmin eru hækk-
anir ríkisins á áfengi og tóbaki og
hækkanir gjalda Reykjavíkur-
borgar á leikskólum og gæsluvöll-
um. Stjórn og fulltrúaráð Starfs-
mannafélags Reykjavíkurborgar
telja þetta vera skammsýnar og
ábyrgðarlausar ákvarðanir, meðal
annars vegna þeirra áhrifa sem
þetta hefur á lánskjaravísitölu, og
þess fordæmis sem þessar hækk-
anir gefa öðrum aðilum til hækk-
ana á vörum og þjónustu. ■
ALÞINGI „Ég fer fram á það að for-
maður fjárlaganefndar reyni að
gera betur eða að einhver annar
verði fenginn í djobbið,“ sagði
Steingrímur J. Sigfússon við 3.
umræðu um fjáraukalög.
Stjórnarandstæðingar gagn-
rýndu Ólaf Örn Haraldsson, for-
mann fjárlaganefndar, fyrir að
skýra ekki tillögur nefndarinnar.
Þótti þeim tæpra tveggja mínútna
ræða hans ekki hæfa viðfangsefn-
inu og kröfðust frekari skýringa á
tillögugerðinni.
Ólafur sagðist ekki sjá ástæðu
til að halda langar ræður til að
endurtaka það sem hann hefði
áður sagt. Síðar tók hann fram-
söguræðu Einars Más Sigurðar-
sonar, Samfylkingu, dró saman
meginefni hennar og spurði svo:
„Hafa menn heyrt þetta áður?“
Hvatti hann Einar svo til að stytta
mál sitt og komast að kjarna máls-
ins.
Einar tók því ekki þegjandi og
sagði Ólaf svo ákveðinn í að end-
urtaka aldrei það sem hann eða
einhver annar hefði sagt að ræður
hans yrðu sífellt styttri og styttri.
Væntanlega yrði hann því hættur
að flytja ræður í vor. ■
Formaður fjárlaganefndar gagnrýndur:
Nýjan mann í djobbið
ÓLAFUR ÖRN HARALDSSON
Ólafur er í keppni við sjálfan sig um að
flytja sífellt styttri ræður, sagði Einar Már
Sigurðarson, þingmaður Samfylkingar.
BAGDAD, WASHINGTON, AP Á sunnu-
daginn rennur út frestur sem
Írökum var veittur til þess að
skila til Sameinuðu þjóðanna ítar-
legri skýrslu um kjarna-, sýkla-
og efnavopn sín. Búist er við því
að þeir skili skýrslunni á morgun.
Bandarísk stjórnvöld búast við
því að skýrslan verði full af blekk-
ingum. Reynt verði að slá ryk í
augu vopnaeftir-
litsmanna með því
að afhenda þúsund-
ir skjala um auka-
atriði. Meðal ann-
ars verði mikið
rætt um svonefnda
„tvöfalda notkun“
efna og tækjabúnaðar, sem hægt
er að nota hvort heldur sem er í
hernaðarlegum tilgangi eða í frið-
samlegum tilgangi.
Írakar gagnrýndu vopnaeftir-
litsmenn Sameinuðu þjóðanna
harðlega á miðvikudaginn, eftir
að þeir komu óvænt í eina af höll-
um Saddams Husseins. Taha
Yassin Ramadan, varaforseti
Íraks, sakaði vopnaeftirlitið um
að stunda njósnir. Hallarleitin
væri bein ögrun sem vel gæti leitt
til stríðs.
Annað hljóð var hins vegar kom-
ið í Saddam Hussein sjálfan í gær.
Hann hvatti landsmenn sína til þess
að veita vopnaeftirlitinu allan
stuðning sinn. Vopnaeftirlitið væri
kærkomið tækifæri til þess að af-
sanna ásakanir Bandaríkjanna um
að Írakar lumi enn á gereyðingar-
vopnum.
Hins vegar sagði Saddam að
ásakanir Bandaríkjanna væru
„ranglátar, hrokafullar og lágkúru-
legar.“
Vopnaeftirlitsmennirnir sjálfir
svöruðu hins vegar ásökunum Íraka
fullum hálsi. Vopnaeftirlitið hefði
farið „réttu leiðina“, en þyrfti að
sigla milli skers og báru, þar sem
annars vegar væru kvartanir Íraka
og hins vegar þrýstingur Bandaríkj-
anna um nákvæmara eftirlit.
„Við erum að skila árangri,“
sagði Demetrius Perricos, sem er í
forsvari fyrir hóp vopnaeftirlits-
manna. Til dæmis hefðu eftirlits-
mennirnir á miðvikudaginn lagt
hald á tólf sprengjur, sem innihéldu
hættulega efnablöndu. Þetta eru
fyrstu efnavopnin sem finnast í
Írak eftir að vopnaeftirlitið hóf
störf að nýju.
Skoðunin á forsetahöllinni á mið-
vikudag tók hálfan annan tíma og
skilaði í sjálfu sér engum árangri
öðrum en þeim að láta reyna á heim-
ildir vopnaeftirlitsins til þess að
fara hvert á land sem er í Írak til að
leita vopna. ■
Frestur Íraka
að renna út
Saddam Hussein segir vopnaeftirlitið kærkomið tækifæri til að afsanna
ásakanir Bandaríkjanna. Vopnaeftirlitið segist hafa fundið fyrstu efna-
vopnin í Írak. Írakar eiga að skila skýrslu sinni um helgina.
ÍRASKIR UNGLINGAR
Meðan vopnaeftirlit Sameinuðu þjóðanna athafnar sig í Írak halda landsmenn hátíðlega
síðustu daga föstumánaðarins Ramadan. Þessir ungu menn brugðu sér í skemmtigarð í
Bagdad í gær þar sem þeir kveiktu sér í sígarettum og hlustuðu á ferðaútvarp.
Bandarísk
stjórnvöld
búast við
skýrslu fullri af
blekkingum.
ORÐRÉTT
SJÚKIR EIGENDUR
„Ekki veit ég hvort forráða-
menn bíóhúsa hérlendis hafa al-
mennt skertari heyrn en kollegar
þeirra erlendis en það hlýtur að
vera eitthvað að.“
Bíógestur kvartar yfir hávaða í bíóum.
Fréttablaðið, 5. desember.
EFNIÐ OG ANDINN
„Hið eina sem dugir er að
ábyrgir geri sér grein fyrir að
andlega fóðrið, ekki síst á vett-
vangi skapandi athafna, telst jafn
mikilvægt hinu efnislega.“
Bragi Ásgeirsson er ekki ánægður með
að málverk hafi fylgt með í bankakaup-
um. Morgunblaðið, 5. desember.
EINMITT
„Fjall er ekki listaverk“
Þröstur Eysteinsson hjá Skógrækt rík-
issins hefur ekki sömu skoðanir á náttúr-
unni og Roni Horn listamaður. Morgun-
blaðið 5. desember.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/I
N
G
O