Fréttablaðið - 06.12.2002, Blaðsíða 20
20 6. desember 2002 FÖSTUDAGUR
Ég veit ýmislegt um það hvern-ig er að vera ríkisstjórn,“ sagði
George W. Bush Bandaríkjaforseti
á kosningafundi í byrjun nóvem-
ber. Nokkrum dögum fyrr sagðist
hann ekki ætla að sætta sig við
„ömurlegt frumvarp frá öldunga-
deild Sameinuðu þjóðanna“.
Þetta eru aðeins nýjustu dæmin
af mýmörgum um seinheppni for-
setans í orðavali. Löngu áður en
hann varð forseti hafði hann öðlast
töluverða frægð fyrir margvísleg
mismæli sín og klaufaleg ummæli
af ýmsu tagi.
Fljótlega eftir að hann fór fyr-
ir alvöru að verða orðaður við
forsetaembættið fóru áhugamenn
að safna saman slíkum ummæl-
um. Haldið er úti mörgum vefsíð-
um þar sem helstu gullkornum
forsetans er haldið saman og
gefnar hafa verið út bækur með
þeim.
Af þessum sökum hefur forseti
Bandaríkjanna ósjaldan orðið auð-
veldur skotspónn spaugurum og
skemmtikröftum. Margir telja
seinheppni hans í orðavali reyndar
ótvíræða sönnun þess að forseti
Bandaríkjanna stígi ekki beinlínis
í vitið.
Stundum þykir stuðningsmönn-
um forsetans þó nóg um hama-
ganginn í spaugframleiðslunni.
Þeir hafa reynt að hrekja sögur af
mismælum forsetans og hefur tek-
ist að sýna fram á að sum þeirra
séu ranglega eignuð Bush og mörg
megi reyndar rekja til Dan Quayle,
sem var varaforseti George Bush
eldri á níunda áratugnum.
Í síðustu viku gerðist það svo að
breska auglýsingaeftirlitið bann-
aði auglýsingu þar sem gert er
grín að Bush. Auglýsa átti nýtt
myndband með úrvali úr teikni-
myndaþáttum þar sem gert er grín
að stjórnmálamönnum og frægu
fólki.
Í auglýsingunni var sýnd
teiknimynd af Bush þar sem hann
opnar eintak af myndbandinu og
segir: „Þetta er uppáhaldið mitt –
bara að stinga því í myndbands-
tækið.“
Svo stingur hann spólunni í
brauðristina sína.
En hvað sem því líður er enn
grannt fylgst með hverju orði for-
setans gagngert í þeim tilgangi að
henda kostulegustu spakmælin á
lofti.
Mörg þessara ummæla er
reyndar erfitt að þýða á íslensku,
vegna þess að hann slær saman
enskum orðum og ruglast á ensk-
um orðtökum. Út úr því hafa með-
al annars komið fleyg „nýyrði“ á
borð við „misunderestimate“, þar
sem hann slær saman orðunum
„misunderstand“ og „under-
estimate“, það er að segja að mis-
skilja og að vanmeta. Útkoman
gæti verið að „misvanmeta“.
Jacob Weisberg, sem hefur tek-
ið saman og gefið út tvær bækur
með fleygum spakmælum forset-
ans, sagðist reyndar hafa sleppt
einu óborganlegu atviki úr bók-
inni. Menn hefðu þurft að sjá það
til þess að kunna að meta það. Það
var þegar Bush fór að veifa til tón-
listarmannsins Stevie Wonder á
tónleikum þess síðarnefnda síð-
astliðið vor. gudsteinn@frettabladid.is
Bandaríkjaforseti þykir óvenju seinheppinn á stundum:
Veifaði Stevie Wonder
EKKI BEINLÍNIS ORÐHEPPINN
George W. Bush Bandaríkjaforseti þykir ekki með orðheppnustu mönnum. Litlu munar að
hann slái Dan Quyale, fyrrverandi varaforseta föður síns, við í mismælum og seinheppni í
orðavali.
„Ég geri mér grein
fyrir því að óróleiki
í Mið-Austurlöndum
skapar óróleika í þeim
heimshluta.“
,,
JÓLAFATNAÐUR - JÓLAGJAFIR
á 50-80% lægra verði
Einnig barna- og unglingafatnaður
EVERLAST-gallar
kr 2.990
- með og án hettu allar stærðir -
blátt - grátt - svart - rautt
Opið
mán - fös 11-18
laugard. 11-16
OUTLET 10
+ + + m e r k i f y r i r m i n n a + + +
FAXAFENI 10 – SÍMI 533 1710
Ge
rðu
góð
ka
up
Everlast dúnúlpur 4.990
Mao barnajakkaföt 5.990
Parrot barnabuxur 2.590
Fila barnaúlpur 2.990
Herrar
Bene jakkaföt 12.500
4 you skyrtur 1.990
Marco bindi 1.990
Herraskór 3.990
4 you gallabuxur 2.990
Dömur
Nicegirl bolir 1.990
Tark buxur 2.990
Morgan jakkar 8.500
Laura Aim skyrtur 1.990
Levi’s gallabuxur 2.990
Diesel gallabuxur 3.990
Póstsendum
Kvenföt st. 36-44
Stelpuföt st. 92-134
Vönduð föt á
sanngjörnu verði.
LAURA ASHLEY
Bæjarlind 14-16, 201 Kópavogi.
s.551 6646
Opið alla virka daga 10 - 18
og alla laugardaga og sunnudaga til jóla.
❋