Fréttablaðið - 06.12.2002, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 06.12.2002, Blaðsíða 16
16 6. desember 2002 FÖSTUDAGURTENNIS KOURNIKOVA Tennisstjarnan íðilfagra Anna Kournikova lét ekki sitt eftir liggja á tískusýningu sem haldin var í Dublin á Írlandi í vikunni. Sýn- ingin var liður í þriggja daga tenniskeppni á milli Evrópu og Bandaríkjanna. Umboðsmaður Paolo di Canio,leikmanns West Ham, segir að engar líkur séu á því að Ítalinn muni yfirgefa herbúðir liðsins þegar leikmannamarkaðurinn opnar á ný í janúar. Samningur Di Canio rennur út í lok tímabilsins. Hingað til hefur verið talið að hann myndi yfirgefa West Ham þar sem liðið hefur ekki enn boð- ið honum nýjan samning. „Paolo hefur oft lýst því yfir að hann vilji ljúka ferlinum á Upton Park,“ sagði umboðsmaðurinn. Manchester United dróstgegn Chelsea í átta liða úr- slitum ensku deildarbikarkeppn- innar. Í öðrum viðureignum eig- ast við Wigan og Blackburn, Aston Villa og Liverpool og loks Sheffield United og Crystal Palace. Leikirnir verða 17. eða 18. desember. FÓTBOLTI ÍÞRÓTTIR Í DAG 18.00 Sýn Sportið með Olís 18.30 Sýn Trans World Sport (Íþróttir um allan heim) 19.00 Valsheimili Handbolti karla (Valur - ÍBV) 19.15 Grindavík Körfubolti karla (UMFG - UMFN) 19.15 Seljaskóli Körfubolti karla (ÍR - Keflavík) 19.30 Sýn Alltaf í boltanum Markaþurrðin hjá Forlan loks á enda Diego Forlan, framherji Manchester United, er loks farinn að láta að sér kveða. Alex Ferguson telur að honum hafi tekist að kveða niður allar gagnrýnisraddir með frammistöðu sinni. FÓTBOLTI Diego Forlan, úrúgvæski framherjinn í liði Manchester United, hefur heldur betur náð að þagga niður í háværum gagnrýn- isröddum sínum upp á síðkastið. Eftir að hafa átt við mikla markaþurrð að stríða síðan hann gekk til liðs við United hefur hann nú skorað sex mörk á leiktíðinni. Síðast skoraði hann annað marka United gegn Burnley í enska deildarbikarnum. Forlan braut ís- inn með United í leik gegn Aston Villa í lok október þegar hann skoraði fyrsta deildarmark sitt fyrir liðið. Síðan þá hefur hann smám saman verið að finna sitt rétta form. Sir Alex Ferguson, knatt- spyrnustjóri United, telur að Forl- an sé búinn að sanna sig sem öfl- ugur framherji. „Hann hefur kveðið niður þær efasemdaraddir sem voru uppi um hann. Hann hreyfir sig vel á vellinum, er með tvo góða skotfætur og er aldrei hræddur við að skjóta á markið,“ sagði Ferguson eftir sigurleik gegn Liverpool um síðustu helgi. Þar skoraði Forlan bæði mörk United. Ferguson telur einnig að stuðn- ingur áhangenda United hafi átt stóran þátt í velgengni Forlan upp á síðkastið. „Hann er fyrst og fremst duglegur við að reyna hlutina og áhangendurnir virða það. Þeir hafa staðið dyggilega við bakið á honum, sama hversu oft hann hefur skotið í stöngina eða látið markvörðinn verja frá sér.“ Forlan var keyptur til United frá argentíska félaginu Independiente í janúar á þessu ári. Þar skoraði hann 20 mörk á þarsíðustu leiktíð, mörg hver einkar glæsileg. Forlan vakti at- hygli með úrúgvæska landsliðinu á HM í sumar þegar hann skoraði fallegt mark gegn Senegal í eina leiknum sem hann fékk að spreyta sig á mótinu. Forlan hefur alls leikið fimm landsleiki fyrir Úrúgvæ og hefur skorað í þeim tvö mörk. Í herbúðum United er vonast til að Forlan nái að fylla skarð markaskorarans Andy Cole, sem gekk til liðs við Blackburn undir lok síðasta árs. Ef hinn 23 ára gamli Úrúgvæi heldur upptekn- um hætti ætti hann auðveldlega að geta staðið undir væntingun- um. freyr@frettabladid.is MARKI FAGNAÐ Diego Forlan fagnar fyrra marki sínu gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni síðastliðinn sunnudag. Hann verður í eldlínunni á morgun þegar United tekur á móti Arsenal, efsta liði deildarinnar. „Þeir hafa staðið dyggi- lega við bakið á honum, sama hversu oft hann hefur skotið í stöng- ina.“ AP /M YN D FÓTBOLTI Jerzy Dudek, pólski mark- vörðurinn í liði Liverpool, leikur ekki næstu þrjá leiki liðsins þrátt fyrir að hafa staðið sig vel í sigri gegn Ipswich í deildarbikarkeppn- inni í fyrrakvöld. Chris Kirkland varamarkvörður fær því að sýna hvað í sér býr í leikjum gegn Charlton í deildinni, Vitesse Arn- hem í Evrópukeppni félagsliða og í deildarleik gegn Sunderland. „Jerzy getur núna hvílt sig vit- andi það að hann hefur náð aftur upp sjálfstrausti. Hann sýndi að hann getur staðið sig vel fyrir Liverpool og honum var vel fagnað af áhangendum liðsins,“ sagði Ger- ard Houllier, knattspyrnustjóri liðs- ins, eftir leikinn gegn Ipswich. ■ Jerzy Dudek, markvörður Liverpool: Hvílir næstu þrjá leiki HOULLIER Gerard Houllier, knattspyrnustjóri Liver- pool, ætlar að hvíla Jerzy Dudek í næstu leikjum. Dudek hefur gengið illa á milli stanganna í undanförnum leikjum og hef- ur hann legið undir mikilli gagnrýni fyrir frammistöðu sína. TENNIS Tennisleikarinn John McEnroe féll úr leik á Honda-mót- inu í Lundúnum þegar hann tapaði fyrir Henri Leconte í tveimur lot- um á miðvikudag. McEnroe, sem hefur tvívegis lagt Frakkann að velli í úrslitaviðureign mótsins, brást illur við tapinu eins og hon- um einum er lagið. Hann eyðilagði auglýsingaborða og slapp með viðvörun fyrir ljótan munnsöfn- uð. „Ég hef aðeins tapað tvisvar fyrir Leconte í 31 viðureign svo ég bjóst ekki við að tapa leiknum,“ sagði hinn skapilli tennisleikari eftir mótið. ■ John McEnroe: Samur við sig JOHN MCENROE Hefur alltaf átt erfitt með að hemja skap sitt. FÓTBOLTI Peter Kenyon, stjórnarformaður Manchester United, telur að innan við helmingur þeirra 92 félaga sem taka þátt í ensku deildar- keppninni geti komist í gegn- um þá fjárhagserfiðleika sem hafa átt sér stað í boltanum undanfarið. „Það verður að endurskoða allt skipulagið,“ sagði Kenyon í viðtali við BBC. „Satt best að segja held ég að við getum ekki haft fjórar atvinnu- mannadeildir lengur. Félögin eru of mörg. Ég sé ekki annað en að 1. og 2. deild geti boðið upp á atvinnumennsku og að í þeirri þriðju verði hálfatvinnu- mennska.“ Markaðsvirði Manchester United hefur lækkað mikið und- anfarin ár. Er félagið metið á tæpa 35 milljarða króna en fyrir nokkrum árum var það metið á um 134 milljarðar króna. „Ég veit ekki hvers vegna svona mörg knattspyrnufélög fóru á hlutabréfamarkað á sínum tíma,“ sagði Keynon. „Þetta var hálfgerð tískubylgja. Það er mikil óvissa í þessum bransa og menn eru ekki alltaf tilbúnir að fjár- festa í knattspyrnufélögum.“ ■ Peter Kenyon, stjórnarformaður Manchester United: Innan við helmingur félaga lifir af MANCHESTER UNITED Markaðsvirði United hefur lækkað mikið undanfarin ár. Félagið er metið á tæpa 35 milljarða króna. Glæsileg ítölsk leðursófasett Model IS 1000 3+1+1og 3+2+1 Litir: Koníaksbrúnt, antikbrúnt, Burgundy rautt, svart og ljóst Verð frá aðeins kr. 198.000 Opið mán.–fös. 10–18, lau. 10–16 og sun. 13–16 – gæða húsgögn Bæjarhrauni 12, Hf. Sími 565-1234

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.