Fréttablaðið - 06.12.2002, Blaðsíða 26
6. desember 2002 FÖSTUDAGUR
Jájá, ég á mér sannarlega mitteftirlætis jólaskraut,“ segir
Friðrik Weisshappel, sem hefur
heldur betur látið til sín taka þeg-
ar útlitið er annars vegar. „Það er
hluti af jólagjöf sem ég fékk fyrir
margt löngu og hef haldið mikið
upp á alla tíð síðan. Ég fékk eitt
sinn hring í jólagjöf og þeim hring
var komið fyrir í pínulitlum pakka
ásamt fullt af öðrum pökkum.
Þannig var í pottinn búið að þegar
ég lyfti lokinu af stórum pakka
kom í ljós míníatúr af stofu og þar
var pakkinn ásamt jólatré, ruggu-
hesti og fleiru slíku. Umbúðirnar
um hringinn reyndust svo fyrir-
taks jólaskraut,“ segir Friðrik,
sem er mikið jólabarn og segir
hefð fyrir því að hafa mikið af
skrauti í kringum sig yfir hátíð-
arnar.
Hann safnar litlum jólasvein-
um af ýmsum stærðum og gerð-
um, hvort heldur er úr keramiki
eða kertum. „Ég hef alla tíð haldið
mikið upp á jólin.“ Það nýjasta í
jólasafni Friðriks er járnjólatré
sem hann fékk í Byko. „Það kem-
ur af því geðveik birta og ég nota
það sem vinnuljós í eldhúsinu þar
sem ég er að byggja mér hús nú
um stundir.“ ■
Gamall pakki reynist
besta jólaskraut
ÓTTAR FELIX HAUKSSON
Ætlar að bjóða foreldrum sín-
um og fleiri í mat á aðfanga-
dagskvöld og ætlar því að
bregða út af vananum
í matargerðinni.
FRIÐRIK WEISSHAPPEL
Hann er algjört jólabarn og safnar
jólasveinum af öllum stærðum og
gerðum.
Undanfarin ár hef ég verið meðfylltan kalkún í matinn á að-
fangadagskvöld. Nú ætla ég hins
vegar að breyta til þar sem ég á
von á gestum sem þykir eitthvað
annað gott,“ segir Óttar Felix
Hauksson, tónlistar- og athafna-
maður. „Ég er nú ekki búinn að
ákveða hvað verður í matinn en
sennilega verður það léttreyktur
lambahryggur.“
Óttar Felix segist hafa alist upp
við svínalæri með puru. Þegar
hann fór sjálfur að búa reyndi
hann að hafa matseldina eins ein-
falda og mögulegt var og hafði þá
gljáðan hamborgarhrygg. „En eft-
ir að mér óx ásmegin í matargerð-
inni fór ég að gera ýmsar tilraunir
með fuglakjöt. Mér hefur gengið
vel með kalkúninn,“ segir Óttar
Felix. Síðustu ár hefur hann notað
„ítalska fyllingu“ eins og hann
kallar, hannaða af honum sjálfum.
Þá notar hann ávexti, grænmeti,
ólífur, sólþurrkaða tómata og ýmis
vel varin leyndarmál. Með herleg-
heitunum býður hann upp á sykur-
gljáðar kartöflur, maís og soðið
grænmeti, svo fátt eitt sé nefnt.
Eftirrétturinn er síðan möndlu-
grautur og að sjálfsögðu verðlaun.
Um kvöldið er síðan boðið upp á
kaffi og konfekt. ■
Óttar Felix Hauksson:
Bregður út af
vananum í ár
JÓLAMATURINN MINN
UPPÁHALDSJÓLASKRAUTIÐ
Eftirminnilegasta
jólagjöfin:
Gjafir frá
sonunum
„Það sem stendur upp úr á jól-
unum eru þær gjafir sem synir
mínir hafa búið til,“ segir Ásdís
Halla Bragadóttir. „Þær hafa
margar verið ofsalega fallegar og
það er svo mikil sál og svo miklar
tilfinningar lagðar í þessar gjafir.
Svo er þeim svo skemmtilega
pakkað inn að maður er heillengi
að taka þær upp.“
Ásdís Halla segir að það hvíli
alltaf mjög mikil leynd yfir þess-
um gjöfum. „Í nóvember eru þeir
farnir að bíða eftir að geta kjaftað
frá en eru þó yfirleitt mjög dug-
legir að þegja yfir þessu þegar á
hólminn er komið.“ ■Sigurstjarnan, Bláu húsin Fákafeni, s. 588-4545
Einnig opið um helgar. Verið velkomin.
100% mesta vöruúrval á fermetra.
Austurlenskt bollastell
og aðrir skrautmunir
með ekta gyllingu,
einnig glæsileg
glös og pottar.
Ótrúlegt úrval
öðruvísi
gjafavöru.
Heitasta búðin í bænum
ÁSDÍS HALLA BRAGADÓTTIR
Synir hennar passa vel að hún uppgötvi
ekki hvað er í pakkanum frá þeim.
26