Fréttablaðið - 06.12.2002, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 06.12.2002, Blaðsíða 14
14 6. desember 2002 FÖSTUDAGUR Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason og Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð- borgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. LÖGREGLUFRÉTTIR Ungir sjálfstæðismenn voru aðbýsnast yfir því í gær að rík- isútgjöld hafi vaxið um fimmtung á fimm ára tíma- bili umfram verð- lagsþróun og fjölg- un landsmanna. Á fimm árum hefur ríkið stækkað um 20 prósent. Ég held að vöxturinn sé enn meiri sé lit- ið til tíu ára – ná- lægt 50 prósent- um. Þetta hefur gerst undir for- ystu formanns eldri sjálfstæðis- manna, Davíðs Oddssonar. Og ekki að furða þótt ungir sjálfstæð- ismenn séu hissa. Lengst af hafa sjálfstæðismenn stært sig af því að fara vel með opinbert fé. Að það sé vinstri villa að auka síellt skattheimtu og auka ríkisútgjöld. Það skrítnasta við þessa út- þenslu ríkisins er að enginn kann- ast við ódýrari, aukna eða bætta þjónustu frá ríkinu. Þvert á móti. Í dag þurfum við að greiða fyrir ýmislegt í heilbrigðis- og mennta- kerfinu sem við gerðum ekki fyr- ir tíu árum. Og ekki hefur þjón- ustan batnað. Það er nú sem fyrr hundleiðinlegt að leita til opin- berra fyrirtækja og stofnana eftir þjónustu. Það loðir enn við þessi fyrirtæki að viðskiptamenn séu aukapersónur. Starfsmenn virðast líta á flest erindi viðskipta- vinarins sem bögg – svo vitnað sé í nýútkomna orðabók. Hann er flæktur í flókinn vef undarlegra reglna sem virðast ætlaðar til að lækka í honum rostann. En í hvað hafa þá peningarnir farið? Hvers vegna þarf Davíð Oddsson 50 prósent meiri fjár- muni til að reka ríkið en Stein- grímur Hermannsson? Það er rannsóknarefni. Ég gerði litla rannsókn í rusla- fötinni á skrifstofunni minni. Þar fann ég fréttatilkynningu frá landbúnaðarráðuneytinu um ráð- stefnu á vegum verkefnisins „Fegurri sveita“. Í tilkynningunni var sagt frá eins dags ráðstefnu með erindum yfir tuttugu opin- berra starfsmanna; málstofum og ávörpum. Einnig örlítið um þetta verkefni – „Fegurri sveitir“. Það virðast þrír starfsmenn verkefn- isins hafa heimsótt eina 1.200 sveitabæi á umliðnum þremur árum og spjallað við búalið um þrifnað og umhirðu. Þeir sem standa fyrir svona nokkru hafa aðgang að of miklum peningum. Til hvers er ríkið að taka að sér föðurlegar umvandan- ir um þrifnað og snyrtimennsku í sveitum? Það veit enginn. Ekki einu sinni þeir stjórnmálamenn sem stóðu fyrir þessu. Þeim er ekki sjálfrátt. ■ Hvers vegna þarf Davíð Oddsson 50 prósent meiri fjármuni til að reka ríkið en Steingrímur Hermannsson? Menn með of greiðan aðgang að fjármagni skrifar um stjórnlausa útþenslu ríkisins. Mín skoðun GUNNAR SMÁRI EGILSSON Menn hafa undanfarið deilt umhlut kvenna í stjórnmálum og þær raddir hafa orðið býsna hávær- ar sem halda því fram að velja eigi fólk „vegna hæfileika og verðleika en ekki vegna kyns“, eins og fram- kvæmdastjóri Framsóknarflokks- ins orðaði það í Kastljósi fyrir nokkrum dögum. Hann sagði líka að það væri hreinlega ,,móðgun við bæði kyn“ að jafna hlut kvenna. Ég verð að viðurkenna að mér fallast næstum hendur þegar svona er tal- að. Það vildi ég óska að konur væru metnar að verðleikum. Það er hins vegar ekki svo og ég skal færa nokkur rök fyrir því. Konur eru helmingur íslensku þjóðarinnar og þær búa við eftirfar- andi misrétti: X Kynbundið launamisrétti er staðreynd og sá launamunur hefur ekki verið skýrður með öðru en kynferði. Samkvæmt upplýsingum Þjóðhagsstofnunar í nóvember 2001 voru meðaltekjur kvenna aðeins 55,3 % af tekjum karla. X Þáttur kvenna í fjölmiðlum er óeðlilega rýr og endurspeglar ekki samfélagið. Könnun nefndar um konur og fjölmiðla sýndi að konur birtust í um 30% af útsendu efni í fréttatímum sjónvarps og þar er tal- að mál kvenna aðeins 15% á móti 85% af töluðu máli karla. Ég vek sérstaka athygli á því að þessi könn- un var gerð árið 2000! Við sjáum öll viðtalsþætti í sjónvarpi þar sem karlar eru alltaf í hreinum meiri- hluta og fréttatíma með viðtölum við eintóma karla. X Rannsóknir sýna að þrátt fyrir aukna þátttöku kvenna á vinnu- markaði minnkar álagið á heimilun- um ekki, sem þýðir tvöfalt vinnuá- lag á konur. Ég fullyrði að konur í stjórnmálum þurfa að skila um 80 vinnustundum á viku að lágmarki. Þá geri ég ráð fyrir að þær séu í fullu starfi (40 stundir) og nýleg rannsókn sýnir að heimilisstörfin hvíla enn að mestu á konunum, þær verja 20 tímum á viku í þau. Reynsla mín er sú að það fara a.m.k. 20 stundir á viku að auki í undirbún- ing, samráð, fundi og samskipti í pólitíkinni. Og þessi sama kona má aldrei neita viðtölum (það er enn ein mýtan að konur geri það alltaf), hún þarf ávallt að líta vel út, hugsa vel um heilsuna og síðast en ekki síst, lifa fullkomnu fjölskyldulífi! X Konur eru ekki forstjórar stór- fyrirtækja og konur eru ekki banka- stjórar eða í stjórnum fjármálafyr- irtækja – en barnungir piltar eru það! Konur eru yfirleitt ekki í valdastöðum. X Síðast en ekki síst er þáttur kvenna í stjórnmálum óeðlilega rýr og endurspeglar ekki samfélagið. Konur eldast greinilega verr í póli- tík en karlar ef þær komast að á annað borð. Það er oft vitnað til þess að eldri stjórnmálamenn hafi öðlast svo ,,dýrmæta reynslu“. Konur virðast hins vegar vera reynslulaus- ar fram á grafarbakkann og þær verða bara gamlar og mega hætta... Einnig þurfa konur að sæta sífelldri gagnrýni á útlit sitt. Sú samfélags- mynd sem hér er lýst er raunveru- leg og hún felur í sér kúgun kvenna. Því miður verður hún til þess að stúlkur hafa færri fyrirmyndir á valdastólum og það breytist hægt. Samfélagsgerðin styður það að ímynd stjórnmálamanna verði áfram ,,karllæg“. Orðið frambjóð- andi er bara til í karlkyni og einnig orðin ráðherra og þingmaður svo dæmi séu tekin af orðaforðanum. Það þykir sjálfsagt að synir feti í fótspor feðra sinna í pólitík, sbr. Jón Baldvin, Steingrímur Hermanns- son, Björn Bjarnason og Árni Mathiesen. Þeir eru „erfðaprinsar“ og það er gott og gilt. En ég hef reynt það sjálf, þó svo að orðið „erfðaprinsessa“ sé aldrei notað, að það er litið öðrum augum þegar dóttir fetar í fótspor föður síns, þá er hún að „erfa“ völdin – alveg óverðskuldað – eða hvað? Oft er líka litið á konur sem full- trúa kvenna eingöngu. En mér er þá spurn: Eru karlar þá fulltrúar allra annarra hópa? Þátttaka kvenna í stjórnmálum snýst að mestu um baráttu gegn ríkjandi gildum og mér finnst sérstaklega súrt í broti að konur skuli taka undir þann söng að hún snúist eingöngu um hæfni og verðleika. Þar voru Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur og Katrín Fjeldsted læknir og al- þingismaður þó ánægjuleg undan- tekning, en þá var sagt að Katrín væri bara „fúl“. Ég efast um að það orð hefði verið notað um karlmann í þessu tilviki, ætli hann hefði ekki verið sagður „ósáttur“? Síðan má velta því fyrir sér hvort fjöldi kvenna á þingi eykst hugsanlega þegar raunveruleg völd hafa færst enn frekar til fjármálaheimsins og karlanna þar? Þá mega þær vænt- anlega fara inn á löggjafarsam- kunduna... Sárast svíður mér þó þegar stall- systur mínar, sem hafa verið að vinna ötullega innan flokks og ætlað sér hlut í stjórnmálum, kyssa vönd- inn og þakka fyrir að fá að vera hornkerlingar eins og gerðist eftir síðasta prófkjör. ■ NÝJU BJÖRGUNARBÁTARNIR Á REYKJAVÍKURFLUGVELLI Flugmálastjórn segir stjórn-, siglinga- og fjarskiptabúnað nýrra björgunarbáta vera mjög fullkominn. Þeir séu með mjúkum botni sem henti vel til landtöku á erfiðum stöðum og geti borið allt að 15 til 20 menn hvor. Að auki fylgi uppblásanlegir björgunarflekar. Reykjavíkurflugvöllur: Nýir björgunar- bátar gagnrýndir BÚDDISTAR BOÐA FRIÐ Helstu leiðtogar búddatrúar komu saman í Kambódíu í gær. Í yfirlýsingu þeir- ra eru trúaröfgar hvers konar for- dæmdar og sagðar valda ótta og eyðileggingu um heim allan. Ríki heims eru hvött til þess að sýna umburðarlyndi og samkennd, sem sé vænlegasta leiðin til að efla frið- inn. ÞINGMAÐUR MYRTUR Salam Magomedov, þingmaður í Dagestan, var myrtur á miðviku- daginn. Morðingjarnir biðu eftir honum þegar hann kom heim til sín á bifreið sinni. ERLENT skrifar um konur í stjórnmálum. MARGRÉT SVERRISDÓTTIR Um daginn og veginn Hornkerlingar STÚLKA FYRIR BÍL Sjö ára stúlka varð fyrir bíl á mótum Leynis- brautar og Heiðarhrauns í Grindavík síðdegis í fyrradag. Stúlkan var að leik ásamt fleiri börnum og virðist hafa hlaupið út á götuna í veg fyrir bílinn. Hún var flutt með sjúkrabíl á slysa- deild Landspítalans í Fossvogi. Samkvæmt upplýsingum lækna slapp stúlkan vel. Hún var óbrot- in en hafði fengið kúlu á höfuðið. TVEIR STÚTAR Í KEFLAVÍK Tveir ökumenn voru stöðvaðir af lög- reglunni í Keflavík í fyrrinótt vegna gruns um ölvun við akstur. Ökumennirnir voru færðir til lög- reglustöðvarinnar og fóru þeir þaðan undir læknishendur þar sem tekið var af þeim blóðsýni. Þakkar- kveðjur úr Dalsgerði Óskar Þór, Lovísa og fjölskylda, Dalsgerði 1K, Akureyri skrifa: Við, fjölskyldan í Dalsgerði 1Ká Akureyri, færum hér með alúðarþakkir öllum þeim sem hafa veitt okkur styrk og stuðning af ýmsu tagi eftir umferðarslys í Danmörku 4. júlí síðastliðinn. Dóttir okkar, Sigrún María, átta ára, varð fyrir alvarlegustu áverkunum í slysinu og hefur síð- an verið bundin við hjólastól, hvað sem síðar kann að verða. Við erum þakklát heilbrigðisstarfs- fólkinu, bæði hér heima og í Dan- mörku, sem hefur unnið af þekk- ingu, ósérhlífni og alúð. Við erum þakklát vinum okkar sem höfðu frumkvæði að sérstöku stuðnings- átaki og öllum þeim einstakling- um, fyrirtækjum og félögum sem hafa stutt við bakið á okkur á einn eða annan hátt. Þessi stuðningur hefur auð- veldað fjölskyldunni að komast í hentugra húsnæði á einni hæð, sem við flytjum í núna í desem- ber. Innilegar þakkir með óskum um gleðileg jól og farsælt kom- andi ár. ■ BRÉF TIL BLAÐSINS ÖRYGGISMÁL Aðstandendur fórnar- lamba Skerjafjarðarslyssins hafa sagt tvo nýja gúmmíbjörgunar- báta með utanborðsmótorum, sem keyptir hafa verið fyrir Reykja- víkurflugvöll, vonda lausn á öryggismálum vallarins. Á heimasíðu aðstandendanna, flugslys.is, er rifjað upp minnis- blað Hallgríms Sigurðssonar, yfir- manns hjá Flugmálastjórn, varð- andi björgunarbátinn sem notað- ur var í Skerjafjarðarslysinu. Í minnisblaðinu, sem skrifað er þremur mánuðum eftir slysið, segir Hallgrímur bátinn óheppi- legan þar sem hann sé með utan- borðsmótor. Það sé bæði hættu- legt vegna grynninga í Skerjafirði og fyrir fórnarlömb í sjó. Hallgrímur lagði til að keyptur yrði bátur með niðurfellanlegum borðstokki, hörðum botni og inn- byggðum mótor. Hann minnir á orð samgönguráðherra á fundi átta dögum eftir slysið um að stjórnvöld vildu hafa á flugvellin- um besta fáanlega björgunarbún- að og að ekkert yrði til sparað í þeim efnum. Að sögn Flugmálastjórnar eyk- ur það öryggi mikið að tveir utan- borðsmótorar eru á hvorum báti „þar sem minni líkur eru á að þeir verði ónothæfir við það að mótor rekist í við erfiðar aðstæður líkt og víða eru í grunnristum Skerja- firðinum.“ ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.