Fréttablaðið - 06.12.2002, Side 21
FÖSTUDAGUR 6. desember 2002
Ég er fæddur á Akureyri enfluttist með foreldrum mín-
um til Hafnarfjarðar sjö ára
gamall og ólst þar upp. Á sumrin
fór ég alltaf norður í sveit og öðl-
aðist við það miklar taugar til
landsbyggðarinnar,“ segir
Tryggvi Harðarson, bæjarstjóri
á Seyðisfirði. Eftir að Tryggvi
lauk námi í Öldutúnsskóla lá leið
hans í gagnfræðaskólann Flens-
borg þaðan sem hann hélt áfram
upp í menntadeild, sem síðar
varð Flensborgarskóli.
„Ég var í fyrsta árganginum
sem útskrifaðist frá skólanum
sem stúdentar. Þetta voru sér-
stakir tímar. Við upplifðum
aldrei hvernig var að vera busað-
ur af því að við vorum aldursfor-
setarnir.“ Að námi loknu ákvað
Tryggvi að leggja land undir fót.
Hann sá hvar námsstyrkur var
auglýstur til Kína og sótti um.
„Mér til mikillar gleði fékk ég
styrkinn og hóf nám í kínversku
við málastofnun í Peking. Þetta
var árið 1975. Aðgangur til Kína
var takmarkaður og menningar-
byltingin hafði að mestu runnið
sitt skeið. Maó var á lífi og Nixon
var kominn og farinn. Nánari
samskipti Kína og Bandaríkj-
anna voru í burðarliðnum. Á
meðan á dvöl minni stóð féllu all-
ir gömlu byltingarleiðtogarnir
frá og mikill umrótstími tók við.“
Tryggvi segir að fyrir vestur-
landabúa að vera í Kína á þess-
um tíma hafi verið all sérstakt.
„Þegar ég hef heimsótt Kína í
seinni tíð sé ég hversu gríðarleg-
a miklar breytingar hafa orðið í
landinu.“ Tryggvi hafði áætlað
að dvelja einungis eitt ár í Kína
en þau urðu fjögur. Hann innrit-
aðist í háskólann í Peking og fór
þar í stjórnmálafræði ásamt
áframhaldandi námi í kínversku.
Í formannsslag við Össur
Eftir að námi lauk og Tryggvi
kom heim til Íslands árið 1979
hóf hann störf sem kennari. Það
sama ár átti hann þátt í að taka á
móti fyrsta flóttamannahópnum
sem hingað kom frá Víetnam.
Tryggvi var við kennslu í nokkur
ár auk þess að starfa við járna-
bindingar. Þá leiddist hann út í
blaðamennsku og starfaði í nokk-
ur ár á Alþýðublaðinu gamla.
„Árið 1986 dróst ég síðan af full-
ri alvöru inn í pólitík þegar ég
var kjörinn í bæjarstjórn Hafn-
arfjarðar.“ Það vakti athygli þeg-
ar Tryggvi ákvað að fara í for-
mannsslag á móti Össuri Skarp-
héðinssyni vorið 2000. „Mér þótti
heldur dauflegt umhverfið í
kringum Samfylkinguna á þess-
um tíma. Ég hef alltaf verið
þeirrar skoðunar að menn eigi að
takast á um niðurstöður mála.
Það versta sem stjórnmálaflokk-
ur getur lent í er kyrrstaða og lá-
deyða. Ég hef alla tíð verið ágæt-
is kunningi Össurar og við höfum
átt gott samtarf í gegnum tíðina,
bæði fyrir og eftir þennan kosn-
ingaslag. Satt best að segja
reiknaði ég ekki með því að
vinna en taldi nauðsynlegt að
koma á fót smá baráttu. Við Öss-
ur fórum vítt og breitt um landið.
Það vakti athygli og þá var til-
ganginum náð.“
Baráttan við náttúruöflin
Eftir sextán ár í bæjarstjórn
Hafnarfjarðar ákvað Tryggvi að
hætta. Skömmu síðar var haft
samband við hann og honum
boðinn bæjarstjórastóllinn á
Seyðisfirði. Tryggvi, sem er frá-
skilinn og þriggja barna faðir,
flutti ásamt elsta syni sínum til
Seyðisfjarðar og hóf störf sem
bæjarstjóri í júlí á þessu ári.
Hin börnin tvö, 16 ára drengur
og 13 ára stúlka, ákváðu að
verða eftir hjá móður sinni í
Hafnarfirði. Hann segir þau
ekki alveg hafa verið tilbúin að
hlaupa frá félögunum.
„Mannlífið er gott á Seyðis-
firði. Það vakti strax athygli
mína þegar ég flutti á Seyðis-
fjörð hversu menningarlífið var
blómlegt á ekki stærri stað.
Seyðfirðingar hafa lagt sérstaka
rækt við menninguna samhliða
því að plássið byggir mikið á út-
gerð og fiskvinnslu.“
Baráttan við náttúruöflin átti
hug Tryggva í síðasta mánuði.
Stöðug hætta á skriðuföllum og
yfirlýst hættuástand settu mark
sitt á mannlífið. „Málefni um of-
anflóð komu strax inn á borð til
mín þegar ég hóf störf. Í undir-
búningi er bygging flóðvarna-
garða og vonast er til að fram-
kvæmdir hefjist næsta sumar.
Ég get sagt með sanni að mál-
efni ofanflóða er eini málaflokk-
urinn sem ég hef aldrei fyrr
komið nálægt. Það hefur tekið
drjúgan tíma að fara ofan í
þessa hluti en ég hef haft mér til
aðstoðar sérfræðinga og annað
hæft fólk bæði fyrir austan og
sunnan.“
Tryggvi segir að þrátt fyrir
að íbúar á Seyðisfirði þurfi að
yfirgefa heimili sín taki þeir því
með stóískri ró. „Þeir þekkja að-
stæður og vita út á hvað þetta
gengur. Þeim þykir þetta ekki
hættulegra en að ganga yfir
götu í Reykjavík. Fólk er komið
með nokkuð góðar áætlanir um
hvernig bregðast skuli við. Það
þýðir að hættan á slysum á fólki
verður hverfandi.“
Tryggvi segir fá störf jafn
óörugg og starf bæjarstjóra.
Framtíð bæjarstjórans hvíli í
höndum meirihluta bæjarstjórn-
ar, sem geti breyst eins og hendi
sé veifað við næstu kosningar.
„Það eina sem ég veit er að ég er
ráðinn til næstu fjögurra ára.
Hvað tekur við verður framtíðin
að leiða í ljós.“
kolbrun@frettabladid.is
TRYGGVI HARÐARSON BÆJARSTJÓRI
„Mér til mikillar gleði fékk ég styrkinn og hóf nám í kínversku við málastofnun í Peking. Þetta var árið 1975. Aðgangur til Kína var tak-
markaður og menningarbyltingin hafði að mestu runnið sitt skeið. Maó var á lífi og Nixon var kominn og farinn. Nánari samskipti Kína og
Bandaríkjanna voru í burðarliðnum. Á meðan á dvöl minni stóð féllu allir gömlu byltingarleiðtogarnir frá og mikill umrótstími tók við.“
Barist við
náttúruöflin
Tryggvi Harðarson er
bæjarstjóri á Seyðis-
firði. Íbúar þar hafa ítrekað
þurft að yfirgefa heimili sín
vegna hættu á aurskriðum
vegna gríðarlegrar úrkomu.
Þessi fyrrum námsmaður í
Kína, kennari, blaðamaður,
járnabindingamaður og bæj-
arfulltrúi sem aldrei fyrr
hafði kynnst ofanflóðamál-
um mátti taka á honum
stóra sínum. Tryggvi ólst upp
í Hafnarfirði þar sem hann
hefur búið þar til hann varð
bæjarstjóri á Seyðisfirði.
,,
Aðventukransar – skreytingar við öll tækifæri
Gjafavara í úrvali – ný kertaskreyting
Öðruvísi
blómabúð
Dalvegi 32, s. 564 2480, www.birkihlid.is
20% Afsláttur af
öllum kvenskóm
Desember
Dagana 5. - 8. bjó›um vi›
20% afslátt af öllum kvenskóm.
tilbo›
Opi› laug. 10-18 og sunnud. 13-18