Fréttablaðið - 06.12.2002, Page 24
Fastur liður í jólaundirbúningiflestra íbúa höfuðborgarsvæð-
isins er að fara niður í bæ og
skoða jólaskreytingarnar, bæði
hinar opinberu götuskreytingar
og skreytingar í búðargluggum.
Mikið vatn hefur runnið til sjávar
síðan jólasveinninn í Rammagerð-
inni fór fyrir öllum jólaskreyting-
um í borginni. Undanfarin ár hef-
ur meira að segja verið verðlaun-
að fyrir fallegustu jólaskreyting-
una á Laugaveginum, sem segir
sína sögu um það hversu miklu
máli gluggaskreytingar þykja
skipta.
Ekki eru allir verslunareig-
endur búnir að skreyta hjá sér
enn en þegar gengið er um
Laugaveginn og Austurstrætið
kemur í ljós að jólaskreytingar
eru komnar í velflesta búðar-
glugga. Meira að segja áfengis-
verslunin í Austurstræti hefur
tekið á sig jólablæ með skreyt-
ingum, sem hefði líklega þótt
óhugsandi fyrir fáum árum.
Erfitt er að greina sérstaka
strauma og stefnur í jólaskreyt-
ingunum. Þær spanna allt frá
gamaldags hlöðnum skreyting-
um yfir í mjög mínímalískt
skraut með nokkrum kúlum eða
ljósum. Einnig fara sumir þá
leið að stilla vörunni einfaldlega
út á jólalegan hátt, auk þess sem
aðrir eru beinlínis að selja jóla-
vörur þannig að þær verða
skraut í sjálfu sér. Myndirnar
tala sínu máli en best er þó að
drífa sig í bæinn og skoða
sjálfur. ■
24 6. desember 2002 FÖSTUDAGUR
Jólin í búðargluggunum:
Allar stefn-
ur ríkjandi
EYMUNDSSON
Hér er ljósadýrðin í fyrirrúmi.
ELM
Mínímalísk jólaskreyting með einni seríu
við fótstall gínunnar.
1928
Hér nýtist söluvarningurinn sjálfur
í skreytingu.
BRIM
Skreyting í náttúrulitum á móti vetrarfatnaði.
ÉG OG ÞÚ
Hér er stillt út vörum í jólalitum. Hvítt minnir á snjó og rautt er litur jólanna.
HÓKUS PÓKUS
Nokkuð hefðbundin skreyting þar sem gín-
an er klædd í jólasveinabúning.
GUÐBRANDUR JEZORSKI
Skreytingar gullsmiða eru oft nokkuð
hlaðnar þótt hér sé farin hófstilltari leið.