Fréttablaðið - 06.12.2002, Page 46
46 6. desember 2002 FÖSTUDAGUR
DÝRT
Að reykja. Þú brennir pening-um. Það kostar 190 þúsund
krónur á ári að reykja einn
pakka á dag. Til þess að eiga þá
upphæð eftir skatta verður þú
að vinna þér inn minnst 260 þús-
und krónur. Þá er heilsuleysið
ótalið en það getur orðið dýr-
keypt. Svo ekki sé minnst á lykt-
ina. Eins og af dýri. Vondu dýri.
Hækkið árslaunin um kvartmillj-
ón. Hættið að reykja. Besta fjár-
festing vikunnar, ársins - og
jafnvel lífsins. ■
Negldi með annarri
og myndaði með hinni
46 ÁRA „Ég verð líklega 46 ára í
dag,“ segir Þorsteinn Jónsson
kvikmyndagerðarmaður, eftir
að hafa hugsað sig um litla
stund. „Til hátíðabrigða verða
vöfflur í eftirmiðdag fyrir fjöl-
skylduna og til enn frekari há-
tíðabrigða förum við hjónin í
leikhús í kvöld til að sjá Sölu-
maður deyr. Annars er ég ekki
vanur að gera mikið úr afmælis-
dögunum mínum. Þetta er nú
svona meira fyrir börnin,“ segir
hann en aftekur með öllu að
hann hafi gleymt að varðveita
barnið í sjálfum sér. „Andinn er
að minnsta kosti ekki í samræmi
við aldurinn,“ segir hann og
hlær. „Og þegar ég var strákur
var alltaf flaggað á strætó. Finn-
ar halda þjóðhátíðardag á þess-
um degi og mér fannst finnski
fáninn vera fyrir Finnana og sá
íslenski fyrir mig persónulega.“
Þorsteinn hefur nýlokið við
gerð heimildarmyndar um
Menntaskólann í Reykjavík sem
nefnist Bestu árin og verður
sýnd í sjónvarpinu í vor. „Ég var
líka að gera mynd sem heitir Við
byggjum hús. Þar geng ég inn í
hlutverk verkamannsins með
byggingaverkamönnum og kynn-
ist fólki í starfi. Ég eiginlega
negldi með annarri og myndaði
með hinni,“ segir Þorsteinn og
kveðst hafa lært heil ósköp um
smíðar og húsbyggingar meðan á
vinnslu myndarinnar stóð. „Svo
er ég að gera heimildarmynd um
Rockville á Suðurnesjum, sem er
meðferðarstöð fyrir dópista og
alka sem eru að fikra sig til nýs
lífs. Þetta er gömul radarstöð á
vegum Byrgisins og mikið og
gott starf unnið þar.“
Þorsteinn segist vonast til að
myndin verði sýnd í bíó því hún
verður í fullri lengd og danska
sjónvarpið hefur þegar keypt
hana til sýninga. „Þetta er mynd
fyrir fólk sem vill sjá myndir
með einhverja meiningu. Hún
fjallar auðvitað ekki bara um
meðferðina heldur ekki síður
þjóðfélagið. Það hlýtur að vekja
spurningar, hvað þetta spennu-
samfélag gerir fólki og hversu
erfitt það er fyrir þá sem missa
fótfestuna að ná áttum aftur.“
Þegar Þorsteinn tekur sér frí
fer hann upp í Kjós þar sem fjöl-
skyldan á landskika. „Þar stund-
um við garðrækt, skógrækt og
göngum fjörur til að hlaða batt-
eríin,“ segir Þorsteinn að lokum.
edda@frettabladid.is
TÍMAMÓT
AFMÆLI
HAGFRÆÐINGUR Ég er að koma frá
Reykjavíkurborg yfir til ASÍ og
þetta leggst gríðarlega vel í
mig,“ segir Ólafur Darri Andra-
son, nýráðinn hagfræðingur
ASÍ. „Starfið hjá Reykjavíkur-
borg var meira embættisstarf,
þetta er svona kvikara og
dýnamískara og alveg bráð-
skemmtilegt.“
Ólafur Darri er kvæntur
Kristjönu Bjarnadóttur, líffræð-
ingi hjá Hjartavernd, og þau
eiga tvö börn, Sindra, tólf ára, og
Rán, tíu ára. „Ég reyni að vera
sem mest samvistum við fjöl-
skylduna,“ segir Ólafur. „Svo
hef ég óhemju gaman af að
ganga á fjöll.“
Hann segist hafa verið að
vinna að því undanfarið að koma
sér í gott form og til dæmis tek-
ið þátt í sínu fyrsta maraþon-
hlaupi í september. „Það gekk
bara ákaflega vel,“ segir hann
hlæjandi. „Ég kom lifandi í mark
og þar með var nú eiginlega tak-
markinu náð. Ég er líka í bráð-
skemmtilegum skokkklúbbi á
Seltjarnarnesi og fór með hon-
um í heilmikla gönguferð í
fyrrasumar. Við lögðum upp frá
Jökulfjörðum og gengum yfir á
Strandirnar og norður á Horn-
bjarg og vorum sótt aftur á Jök-
ulfirðina. Við gengum með allan
útbúnað og gistum í tjöldum og
þetta var einfaldlega dýrðleg
upplifun. Ólafur Darri segir
fjallaferðir og útiveru frábært
tómstundagaman. „Þessi snert-
ing við náttúruna er engu lík og
maður kemur endurnærður og
hress til baka.“
Ólafur Darri segist vera far-
inn að huga að jólum. „Við erum
nýkomin frá London, ég og kon-
an mín, og þar var örlítið gert af
jólainnkaupum. London var
skemmtileg að venju, mikið um
dýrðir og ótrúlegt úrval af
skrani til sölu,“ segir hann og
kímir.
Annars hlakkar hann til sum-
arsins þegar aftur er hægt að
halda á fjöll. „Strákurinn minn
hefur einu sinni farið með mér,
en ég bíð spenntur eftir að taka
bæði börnin með.“ ■
Ólafur Darri Andrason var ráðinn hagfræð-
ingur ASÍ í september síðastliðnum.
Stöðuveiting
Kom lifandi og lukkulegur í mark
FÓLK Í FRÉTTUM
ÞORSTEINN JÓNSSON
Leit svo á þegar hann var barn að flöggin á strætó væru honum til heiðurs
á afmælisdaginn.
FÓLK Í FRÉTTUM
JARÐARFARIR
10.30 Stella Árnadóttir, Skólavörðustíg
24a, Reykjavík, verður jarðsungin
frá Fossvogskapellu.
13.30 Arthur V. O’Brien, Klapparstíg 1,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Landakotskirkju.
13.30 Árni J. Haraldsson, Víðimýri 3,
Akureyri, verður jarðsunginn frá
Akureyrarkirkju.
13.30 Bjarni Ágústsson Mæhle, Akur-
holti 9, Mosfellsbæ, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskapellu.
13.30 Guðmundur Jónsson frá Torfalæk
verður jarðsunginn frá Dómkirkj-
unni í Reykjavík.
13.30 Ísleifur Örn Valtýsson, Klukku-
bergi 12, Hafnarfirði, verður jarð-
sunginn frá Víðistaðakirkju.
13.30 Sigurlinni Sigurlinnason verður
jarðsunginn frá Garðakirkju.
14.30 Magnús Friðrik Einarsson,
Rauðalæk 71, verður jarðsunginn
frá Laugarneskirkju.
15.00 Auður Vilhjálmsdóttir, Kjartans-
götu 2, Reykjavík, verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju.
15.00 Jónína Þorleifsdóttir, Boða-
granda 7, Reykjavík, verður jarð-
sungin frá Fossvogskapellu.
AFMÆLI
Þorsteinn Jónsson kvikmyndagerðar-
maður er 46 ára í dag.
ANDLÁT
Kristinn Morthens, Fjallkofanum í Kjós,
lést 4. desember.
Helga Sveinsdóttir frá Kotvelli, Mið-
vangi 8, lést 4. desember.
Bjarni Ólafsson, Danmörku, lést 3. des-
ember.
Guðbjörn Bjarnason, Neðstaleiti 2,
Reykjavík, lést 3. desember.
Ösp Viðarsdóttir, Flókagötu 63, Reykja-
vík, lést 3. desember.
Þórður Gestsson, Kálfhóli, Skeiðum,
lést 1. desember.
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Að gefnu tilefni skal tekið fram að fólk
ætti ekki að láta skammrif fylgja
bögglum um jólin.
Leiðrétting
KROSSGÁTA
LÓÐRÉTT: 1 kerra, 2 lögun, 3 heysætið, 4 bugðu, 5 ástfólginn, 6 væla, 7 stífi, 8
grenjaði, 11 heppin, 14 óhljóð, 16 þéttur, 18 dæld, 20 tilhneigingu, 21 bikkja,
23 ráfar, 26 lokkar, 28 rauðlituð, 30 peninga, 31 rola, 33 bergmála.
LÁRÉTT:
1 öruggur,
4 flagð,
9 greinilegt,
10 ljómi,
12 rækti,
13 rólegi,
15 lykta,
17 nöldur,
19 nudd,
20 elsku,
22 ferðist,
24 pípur,
25 glampi,
27 ker,
29 leifar,
32 veðurþyt,
34 röð,
35 aldin,
36 yndis,
37 makaði.
Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 túss, 4 skorða, 9 pláneta, 10 glóa, 12 ertu,
13 leikni, 15 ónýt, 17 kuðli, 19 ata, 20 steig, 22 áhrif, 24 lið, 25 góna, 27 erja,
29 silans, 32 ufsa, 34 alin, 35 nauðaði, 36 starði, 37 iðka. Lóðrétt: 1 stertur,
2 fugl, 3 dæld, 4 sneið, 5 ker, 6 Ottó, 7 raunar, 8 alltaf, 11 lestir, 14 nugg, 16 ýt-
inni, 20 sleips, 21 eðjuna, 23 halaði, 26 ósaði, 28 afar, 30 alið, 31 snúa, 33 suð.
ÓLAFUR DARRI ANDRASON
Vill helst vera uppi um fjöll og firnindi
þegar hann á frí.
Ólafur Örn Haraldsson.
Nuuk.
Odd Nerdrum.
1.
2.
3.
Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
Nýtt hafnfirskt tímarit semheitir „i“ leit dagsins ljós
fyrir um mánuði. Þar var kjör-
inn „Frægasti Hafnfirðingurinn“
og varð poppstjarnan Bo Hall
fyrir valinu. Var mál manna að
hann væri vel að titlinum kom-
inn. Væntanlegt er 2. tölublað i
og nú er kosið um Hafnfirðing
ársins 2002. Telja fróðir menn
líklegt að baráttan standi eink-
um milli þeirra Lúðvíks Geirs-
sonar bæjarstjóra og Stefáns
Karls Stefánssonar leikara en
hann hefur verið áberandi mjög
að undanförnu í tengslum við
samtökin Regnbogabörn og um-
ræðuna um einelti.
Þorsteinn Jónsson kvikmyndagerðarmaður er að gera heimildarmynd
um Rockville-meðferðarheimilið þar sem ógæfufólk er að fikra sig í
átt til nýs lífs. Hann á afmæli í dag og ætlar í leikhús til hátíðabrigða.
Stjórnarandstæðingar kvörtuðusáran undan því að Ólafur Örn
Haraldsson gæfi litlar skýringar
í framsögu sinni við 3. umræðu
um fjáraukalög
og skömmuðust
mjög yfir stutt-
um ræðum hans.
Það heyrðist svo
á máli eins
stjórnarliða að
ræður Ólafs
væru annað hvort í ökkla eða
eyra. Í fyrra hefði hann haldið
svo langa ræðu að fáir hefðu ver-
ið eftir til að hlusta í lokin. Nú
segði hann rétt það mikilvægasta
í ræðu sinni og vísaði svo í þing-
skjöl. Hvora leiðina sem hann
veldi ætti hann ekki upp á pall-
borðið hjá stjórnarandstæðing-
um.
Hvers vegna fluttu síamství-burarnir til Bretlands?
Til þess að hinn gæti ekið bíln-
um.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/I
N
G
Ó