Fréttablaðið - 06.12.2002, Page 47
FÖSTUDAGUR 6. desember 2002
MYNDLIST Í dag verður opnuð í Nor-
dic Heritage Museum í Seattle
sýning á verkum Bjarna Ragnars
listmálara. Verk Bjarna eru súr-
realísk og í grein sem birtist um
hann í bandarísku listtímariti er
honum líkt við Salvador Dali og
Escher og sagður einn af fáum súr-
realistum sem Ísland hefur alið.
Bjarni Ragnar segist sjálfur hafa
verið skammaður 12 ára fyrir að
teikna eins og hann gerði og hvatt-
ur til að teikna raunveruleikann.
„Frá og með þeirri stundu ákvað
ég að helga mig hinum súrrealíska
stíl,“ segir hann. „Súrrealismi sem
slíkur er ekki list, öllu heldur hugs-
un sem hægt er að túlka með list.“
Hann minnist þess þegar hann sem
krakki stóð á ströndinni og horfði á
fugla á flugi. „Þá fylltist ég öfund,“
segir hann. „Ég hef alltaf þráð
vængi frelsisins.“
Árið 1990 fluttist Bjarni Ragnar
til Portúgal þar sem hann naut
þess að ferðast um lítil fiskiþorp á
ströndinni. „Þetta var eins og að
ganga inn í Rembrandt-málverk,
þar sem tíminn stendur kyrr,“ seg-
ir hann. „Ég var í Portúgal í þrjú ár
og fann þar þessa frelsistilfinn-
ingu sem ég þráði svo heitt sem
krakki.“
Bjarni Ragnar hélt fyrstu
einkasýningu sína 15 ára gamall og
hefur síðan haldið tólf einkasýn-
ingar og tekið þátt í 14 samsýning-
um.
Mikil viðhöfn er í kringum opn-
un sýningar Bjarna Ragnars í
Seattle. „Það er búið að senda út
5.000 boðskort,“ segir hann og
hlær. ■
Bjarni Ragnar með sýningu í Seattle:
Hefur verið
líkt við Dali
og Escher
SJÓNVARPSÞÆTTIR Sjónvarpsþættirn-
ir „Taken,“ sem framleiddir eru
af leikstjóranum Steven Spiel-
berg, hafa farið gífurlega vel af
stað hjá bandarísku sjónvarps-
stöðinni Sci Fi. Samkvæmt
áhorfskönnunum löðuðu fyrstu
tveir þættirnir til sín flesta
áhorfendur í sögu stöðvarinnar.
Þættirnir eru tíu og er hver
þeirra tveggja tíma langur. Fjalla
þeir um fólk sem er numið á brott
af geimverum og samsæri stjórn-
valda til að halda atburðunum
leyndum. ■
Þættirnir „Taken“
njóta vinsælda:
Slógu áhorfs-
met í Banda-
ríkjunum
SPIELBERG
Steven Spielberg og Dreamworks-fyrir-
tækið framleiða þættina „Taken.“
BJARNI RAGNAR
Var boðið til Bandaríkjanna til að
sýna verk sín.
MONA LISA SAMTÍMANS
Myndir Bjarna Ragnars eru ákaflega súr-
realískar . Konunni á þessari mynd hefur
verið líkt við hina frægu Monu Lisu.
VÍMUEFNI Samkvæmt niðurstöðum
nýrrar rannsóknar sem kynnt var
í Bandaríkjunum í vikunni leiðir
neysla kannabisefna ekki til
neyslu á harðari vímuefnum, að
því er fram kemur á fréttavef
BBC. Aukheldur kemur fram í
rannsókninni að ekki dragi úr
neyslu harðari efna með þótt það
takist að draga úr kannabis-
neyslu.
Rand-stofnunin, sem sérhæfir
sig í athugunum á stefnu banda-
rískra stjórnvalda gegn vímu-
efnum, framkvæmdi rannsókn-
ina og notaði upplýsingar úr
rannsókn á misnotkun vímuefna
í Bandaríkjunum frá árunum
1982 til 1994. Meðal þess sem
kemur fram í skýrslu stofnunar-
innar er að það sé alls ekki algilt
að unglingar sem prófað hafi
hörð vímuefni hafi byrjað á
kannabisreykingum. Það sé
miklu frekar að persónleiki
hvers og eins ráði því hvort slík
neysla hefst. Ástæðan fyrir því
að margir byrji fyrst í kannabis-
efnum sé einfaldlega sú hversu
auðvelt sé að nálgast þau. Tals-
menn stofnunarinnar sögðust þó
ekki vera að mæla með lögleið-
ingu eða mýkri stefnu gagnvart
kannabisefnum. Spurningin væri
hins vegar hvort sú áhersla sem
lögð er á að berjast gegn þessu
væga vímuefni dragi ekki úr bar-
áttunni gegn þeim harðari. ■
Ný rannsókn á kannabisefnum:
Leiða ekki til
harðari vímuefna