Fréttablaðið - 06.12.2002, Qupperneq 48
Ídesember stunda rithöfundarbárubrun á hvítfyssandi öldum
jólabókaflóðsins og sóla sig á strönd
frægðarinnar. En hið blíða er jafnan
blandað stríðu; í sjálfum Edensgarði
leyndist eiturnaðra. Jólabókamánuð-
ur væri samfelld sælutíð fyrir rithöf-
unda og skáld sem gætu reikað milli
kaffihúsa og lesið úr verkum sínum
við lófatak og fögnuð og speglað sig í
aðdáunaraugum hrifnæmra bók-
menntaunnenda, ef höggormurinn
væri ekki líka á kreiki í þessari jarð-
nesku Paradís, að þessu sinni í gervi
gagnrýnandans, rétt eins og hlut-
skipti rithöfunda og skáldmenna sé
ekki nógu erfitt þótt slíkar vábeiður
gangi ekki ljósum logum.
GAGNRÝNENDUR elta rithöfunda
og listamenn eins og erfðasyndin
mannkynið. Og jafnvel þótt dauða-
refsingar þekkist ekki lengur og ekki
einu sinni hýðingar og þaðan af síður
að setja fólk í gapastokk á almanna-
færi mega listamenn ennþá búa í
skugga opinberra lífláta og mega
möglunarlaust þola að listamannsæra
þeirra sé krenkt og strýkt á því fjöl-
farna torgi þar sem nútímamenn hitt-
ast – það er í sjónvarpinu.
NÚTÍMINN er hraður og á hlaup-
unum hefur gagnrýni í sjónvarpi ver-
ið stytt niður í örfá dómsorð, kannski
eina setningu. Þessi eina setning get-
ur skipt sköpum fyrir afkomu lista-
manns – að maður tali nú ekki um
listamannsæruna. Hún eða hann
skrifar kannski bók, það tekur eitt ár,
kannski tvö eða þrjú, og svo er bókin
kannski afgreidd í hinu opinbera
sjónvarpi þjóðarinnar með hnyttinni
neikvæðni, og engum manni dettur
framar í hug að kaupa þessa bók,
enda um nóg annað að velja.
AÐ NOTA sjónvarpið í öllu sínu
veldi til þess að vara fólk við bókum
eða leiksýningunum finnst mér álíka
gáfulegt og að stunda rjúpnaveiðar
með langdrægum eldflaugum. Þegar
um er að ræða fáar og stuttar um-
sagnir um meira eða minna handa-
hófskennt úrtak úr jólabókakösinni
væri bæði mannúðlegra og réttlátara
að láta duga að fjalla einvörðungu um
þær bækur sem gagnrýnendur vilja
benda lesendum að láta ekki fara
framhjá sér. Ruslið fýkur út í veður
og vind af sjálfu sér án þess að fyrst
þurfi að draga það upp í sjónvarp og
gramsa í því með ógeði.
Drif á öllumGullmolar Lækkað verðNýkomnir
Gott á bilathing.is
Númer eitt í notu›um bílum!Laugavegi 170–174 • Sími 590 5000 • www.bilathing.is • bilathing@hekla.is
Rekstrarleiga
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
í fremstu rö›
Heimsbókmenntir
„Meistaralega skrifu›“
„Líflæknirinn er meistaralega skrifu› söguleg
skáldsaga.“
Jón Yngvi Jóhannsson, DV
„Líflæknirinn er flaulhugsu› og spennandi
skáldsaga sem endurskapar sögulegar persónur
og baksvi› fleirra af næmi og frumleika.“
Steinunn Inga Óttarsdóttir, Mbl.
Í spéspegli mannlífsins
Ást og kynlíf, einstaklingsbundinn húmor í
húmorslausu samfélagi og sjálfsvir›ing
einstaklingsins eru me›al vi›fangsefna
höfundar í flessum sjö kostulegu
smásögum. Ásamt Óbærilegum léttleika
tilverunnar er fletta sú bók Milans Kundera
sem mestra vinsælda hefur noti› ví›a um
heim.
Vinsælasti rithöfundur heims
Í flessari endurminningabók segir Astrid Lindgren
rómantíska ástarsögu foreldra sinna eins og henni einni
er lagi›. Astrid skrifar hér einnig um uppvöxt sinn í
Smálöndunum í upphafi sí›ustu aldar, bækurnar sem
hún las í æsku og fyrstu sporin á rithöfundarbrautinni.
Silja A›alsteinsdóttir ritar eftirmála um ævi og störf
Astridar Lindgren.
„Houellebecq er snillingur“
„Meistaralegur höfundur ... skrifar af fítonskrafti og er
spámannlega ögrandi og sérkennilega fyndinn ...
Nútímaskáldsögur gerast ekki miki› betri en Áform ...
Houellebecq er snillingur.“
Kolbrún Bergflórsdóttir, DV
"Áform er frábær skáldsaga ... skyldulesning fyrir
alla sem hafa snefil af áhuga á nútímabókmenntum
heimsins, og hún fjallar um mál sem ekkert okkar
getur leitt hjá sér."
Jón Yngvi Jóhannsson, DV
www.edda.is
Sjónvarp og
dauðarefsingar
Bakþankar
Þráins Bertelssonar