Fréttablaðið - 07.12.2002, Síða 8
8 7. desember 2002 LAUGARDAGUR
LÖGREGLUFRÉTTIR
ALÞINGI
INNLENT
BUREIJ, AP Ísraelsmenn og Palest-
ínumenn deildu í gær um það hve
margir þeirra tíu Palestínumanna
sem fórust í árás Ísraelsmanna á
Gaza-strönd hefðu verið óbreyttir
borgarar. Ísraelsmenn segja þá
alla hafa verið vopnaða en Palest-
ínumenn telja vopnaða menn yfir-
leitt til óbreyttra borgara ef þeir
eru ekki í her eða lögreglusveitum.
Ísraelski herinn réðst inn í
flóttamannabúðirnar Bureij upp
úr miðnætti í fyrrinótt. Palestínu-
menn notuðu hátalara til þess að
hvetja fólk til að berjast gegn inn-
rásinni. Margir streymdu út á göt-
urnar og stóðu átökin í þrjár
klukkustundir.
Þetta var önnur árás Ísraels-
manna á Gaza-strönd í vikunni. Á
miðvikudaginn réðust ísraelskir
hermenn á varðhús Palestínu-
manna í Gaza-borg. Einn Palest-
ínumaður lést.
Jasser Arafat, leiðtogi Palest-
ínumanna, sagðist stórhneykslað-
ur á þessum árásum.
„Á hverjum degi eru ný fjölda-
morð,“ sagði hann fyrir utan
skrifstofur sínar í Ramallah á
Vesturbakkanum. „Á hverjum
degi er eyðilegging. Á hverjum
degi eru meiri skemmdir. Á
hverjum degi eru fleiri handtök-
ur og á hverjum degi eru fleiri
morð.“ ■
Tíu fallnir eftir innrás Ísraelsmanna á Gaza-strönd:
Barist í þrjár klukkustundir
ÚTFÖR Í FLÓTTAMANNA-
BÚÐUNUM BUREIJ
Í gær voru bornir til grafar í flóttamanna-
búðunum Bureij þeir sem fórust í árásum
Ísraelsmanna í fyrrinótt.
AP
/M
YN
D
Missti stjórn á bílnum:
Hafnaði
í sjónum
LÖGREGLUMÁL Ökumaður missti
stjórn á bíl sínum á veginum við
Fellabök í Steingrímsfirði með
þeim afleiðingum að hann fór af
vegi og hafnaði í sjónum. Bíllinn
hentist niður þrjá metra og lenti
harkalega fimmtán metrum frá
veginum. Fljótlega fór bíllinn að
sökkva að framanverðu. Öku-
maðurinn komst út af sjálfsdáð-
um og óð í land. Lét hann því
næst vita af sér uppi á vegi. Öku-
maðurinn hafði verið í bílbelti
og segir lögregla það hafa bjarg-
að honum. Bíllinn er stór-
skemmdur. ■
SJÁVARÚTVEGUR Nýliðun meðal sjáv-
arútvegsfyrirtækja hefur aldrei
verið meiri en einmitt í tíð núver-
andi kvótakerfis. Guðbrandur Sig-
urðsson, forstjóri Brimis, sjávar-
útvegsstoðar Eimskipafélagsins,
vísar á bug fullyrðingum um að
kvótakerfið hindri hagræðingu í
sjávarútvegi til lengri tíma. „Það
er svo merkilegt að önnur eins
endurnýjun í greininni hefur ekki
orðið frá upphafi vega eins og á
síðustu tíu til fimmtán árum.“
Guðbrandur segir einkum tvennt
hafa komið til, hlutafélagavæð-
ingu bæjarútgerða og fjölskyldu-
fyrirtækja. „Síðan er pólitíska
hliðin, þar sem hlutfallslega meira
af aflaheimildum í þorski hefur
farið til smábáta. Það hefur aftur
leitt til nýliðunar í þeim hluta
greinarinnar.“
Guðbrandur bendir á að í við-
skiptum sé það segin saga að nýir
aðilar komi inn á markaðinn. Hann
bendir á að á sínum tíma hafi
menn talið matvörumarkaðinn
þróaðan og erfitt um vik að koma
inn á hann. Samt hafi orðið til fyr-
irtæki eins og Bónus sem náði á
skömmum tíma mikilli markaðs-
hlutdeild.
Guðbrandur bendir á að togur-
um hafi fækkað verulega á síðustu
tíu til fimmtán árum. „Auðvitað
kemur slík þróun niður á einhverj-
um. Störfum fækkar í greininni
við hagræðinguna. Við megum
heldur ekki gleyma því að við
erum að keppa við þjóðir á al-
þjóðamörkuðum sem greiða lægri
laun en við.“ Eina leiðin sem sé
fær til að bregðast við slíkri sam-
keppni sé að auka framleiðni og
afköst. Hagræðingin komi alltaf
niður á einhverjum, en til lengri
tíma litið sé hún til hagsbóta.
„Það er ljóst að við erum með
kvótakerfinu að nýta takmarkaða
auðlind sem þó er endurnýtanleg.
Grunnurinn að því að okkur gangi
vel í framtíðinni er að við náum
stjórn á veiðunum.“ Guðbrandur
segir að leiðarljósið sé að arðsem-
in til lengri tíma verði sem mest.
haflidi@frettabladid.is
Höfum ekki efni á
öðru en hagræðingu
Nýliðun í sjávarútvegi hefur aldrei verið meiri en undir núverandi
kvótakerfi. Samkeppni við aðrar þjóðir kallar á vöku stjórnenda.
MIKIL NÝLIÐUN
Guðbrandur Sigurðsson, forstjóri Brimis, sjávarútvegseiningar Eimskipafélagsins, segir
mikla hagræðingu og nýliðun hafa orðið innan útvegsins undir núverandi kvótakerfi.
FÉLL Í SJÓINN Sautján ára stúlku
var bjargað úr sjónum við Vatns-
nesvita í Keflavík um fimmleytið
í fyrradag. Það voru lögreglu-
menn úr Keflavík og vegfarend-
ur sem björguðu stúlkunni. Engin
lýsing er á svæðinu og því voru
aðstæður erfiðar. Talið er að
stúlkunni hafi skrikað fótur og
hún því hafnað í sjónum. Hún var
flutt á Heilbrigðisstofnun Suður-
nesja til athugunar.
NÝIR ÍSLENDINGAR Ellefu er-
lendir ríkisborgarar eru á lista
yfir þá sem fá íslenskan ríkis-
borgararétt fyrir jólin. Þeirra á
meðal eru handboltakapparnir
Roland Eradze og Aleksandre
Petersons og körfuboltamaður-
inn Damon Johnson. Níu um-
sóknum var hafnað.
16 MILLJÓNIR Í BÚFJÁREFTIRLIT
Bændasamtökin hafa greitt 16
milljónir króna vegna búfjáreft-
irlits síðustu fjögur ár sam-
kvæmt svari landbúnaðarráð-
herra við spurningu Helgu Hall-
dórsdóttur varaþingmanns.
Kostnaðurinn er greiddur með
fjárframlögum ríkisins.
Fjáraukalög:
Meiri-
hluti sam-
þykkti
ALÞINGI Fjáraukalög voru sam-
þykkt með 36 atkvæðum stjórn-
arliða, 22 stjórnarandstæðingar
sátu hjá við atkvæðagreiðslu og
fimm voru fjarstaddir. Verði
rekstur ríkissjóðs í samræmi
við fjárlög og fjáraukalög verð-
ur 1,7 milljarða króna afgangur
af reglulegum rekstri.
Stjórnarandstæðingar sátu
að mestu hjá við atkvæða-
greiðslu um einstakar tillögur.
Þingmenn Vinstrihreyfingarinn-
ar - græns framboðs og Frjáls-
lynda flokksins greiddu þó at-
kvæði gegn 220 milljóna fjár-
veitingu vegna sölulauna við
sölu á hlutafé ríkissjóðs í Lands-
banka og Búnaðarbanka. ■
MESSAÐ Í ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ Sókn-
arnefnd Ástjarnarsóknar hefur
gert leigu- og þjónustusamning við
Hauka um aðstöðu fyrir söfnuðinn
í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöll-
um. Samkvæmt deiliskipulagi er
gert ráð fyrir að kirkja verði reist
í sókninni þegar fram líða stundir.
Fyrsta messan að Ásvöllum fer
fram þann 15. desember.
ROTTUR UNDIR ÞILJUM Íbúi við
Grettisgötu hefur óskað eftir leyfi
fyrir 10 fermetra viðbyggingu. Í
umsókninni kemur fram að húsið
þarfnist mikilla endurbóta. Við rif
á gólfefni í íbúð umsækjenda
fundust dauðar rottur og mýs og í
húsinu fundust margir pokar af
rottueitri.
ORÐRÉTT
GUSTUK AÐ PRÓFA
Ég veit ekki hvort
leiftursnöggt högg
í höfuðið myndi
duga í þessu til-
felli.
Einar Oddur
Kristjánsson um
Hafrannsóknastofnun.
DV, 6. desember.
HVAÐ MEÐ KENNARAPRIKS
SKYLMINGAR?
Ég held að ég hafi ekki áhuga á
að eiga í orðaskaki við hann á
þessum nótum.
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrann-
sóknastofnunar, um Einar Odd. DV,
6. desember.
KRÓKÓDÍLATÁR
Þetta eru ákveðin vonbrigði.
Reinhard Reynisson, bæjarstjóri á Húsa-
vík, um að Guðni Ágústsson leyfði ekki
krókódílaeldi. Morgunblaðið,
6. desember.
Gist er á Riu Canela, 4 stjörnu lúxushóteli.
Úrvalsbændaferð
til Spánar og Portúgals
Innifalið: flug, skattar, allar
skoðunarferðir, hlaðborðs
morgunmatur og kvöld-
matur á stórglæsilegu
fjögurra stjörnu hóteli,
Hotel Riu Canela við
Ayamonte. Hótelið er við
ströndina og er með eigin
upphitaða sundlaug. Nán-
ari upplýsingar um hótelið
má fá á: http:/www.riu.com
Á þessum árstíma er gróðurinn í Evrópu kominn lengst í Portúgal og syðst
á Spáni enda er veturinn mildastur á þessum slóðum eins og Kanaríeyjum.
Hitinn á þessum tíma er venjulega yfir 20 gráður. Hótelið er við
Ayamonte, syðst á landamærum Portúgals og Spánar.
Hótelið er lúxushótel.
Kvöldverðarhlaðborð og morgunmatur eru innifalin.
Á kvöldin er fjölbreytt dagskrá. Flogið er beint til Faro í suður-Portúgal
með leiguflugi þannig að heildarverð ferðarinnar er mjög hagstætt.
Fyrsta ferð árið 2003
5. april Flogið beint til Portúgals í morgunflugi og keyrt á hótel eftir að hafa skoðað bæinn
Ayamonte (5 km frá hóteli)
6. april Frjáls tími
7. april Höfuðborg Andalúsíu, Sevilla heimsótt. Þar eru skoðaðar merkar minjar frá dögum Mára
o.fl. auk frjáls tíma í borginni.
8. april Frjáls dagur.
9. april Heimsókn til Tavira og Faro í Algarve-héraði í Portúgal.
10. april Frjáls dagur.
11. april Bæirnir Silvers og Lagos í Portúgal heimsóttir. Báðar ferðirnar yfir til Portúgal munu endur-
vekja minninguna um hið mikla nýlenduveldi Portúgala yfirráð hina islömsku Mára og
þrælahald. Þar fyrir utan eru allir bæinir forkunnarfagrir og varðveita minjar liðinna tíma.
12. april Keyrt til Faro eftir morgunverð og svo út á flugvöll og flogið heim um eftirmiðdaginn.
Fararstjóri:
Friðrik G. Friðriksson
(Frissi)
Nánari upplýsingar og
pantanir í Hlíðarsmára 15,
Kópavogi, í síma 585 4100.
Verð þessarar ferðar er kr. 89.000(plús 15 þús. f. einbýli)
Ferðaávísun
MasterCard
gildir 5.000