Fréttablaðið - 07.12.2002, Blaðsíða 30
30 7. desember 2002 LAUGARDAGUR
Það eru rúm fjörutíu ár síðan Kjörgarður við Laugaveg var opnaður.
Síðan hefur mikið vatn til sjávar runnið og flestir karlanna sem þar hafa
starfað hörfað fyrir konum sem þar hafa fest rætur.
Kvennagarður
Fastir viðskiptavinir geta
gengið að borðum sínum vísum
Það þóttu mikil tíðindi fyrir margt lönguþegar Kjörgarður, fyrsta verslunarmið-
stöð okkar Íslendinga, hóf starfsemi. Þar
var mikið og flókið tækniundur sem dró
fólk að eins og mý að mykjuskán. Raf-
magnsstiginn í húsinu var tilefni til langra
lýsinga á undrinu og þar sem tveir menn
mættust var rætt um hvort þeir hefðu séð
stigann góða og hvernig tilfinning það
hefði verið að fara upp og niður.
Síðan hefur mikið vatn runnið til sjáv-
ar. Kjörgarður hefur þjónað okkur með
ágætum og gerir enn. Þeir sem komu
þangað reglulega á frumbýlisárunum hafa
án vafa ekki gert sér í hugarlund þá að sá
dagur myndi renna upp að þar sætu nær
eingöngu
konur að
völdum. Sú
er hins vegar
raunin og
þeir fáu karl-
ar sem þar eru enn munu víkja fyrir kon-
um á næstu vikum. Fregnir herma að
þangað séu bæði væntaleg kvennablaðið
Vera og kvennakirkjan. ■
GUÐRÚN SIGTRYGGSDÓTTIR OG KLARA SIGURBJÖRNSDÓTTIR
Þær reka saman veitingastaðin Lóuhreiður og elda og baka allt sem þar er á boðstólum.
Lóuhreiður er notalegur veit-ingastaður í eigu þeirra
Klöru Sigurbjörnsdóttur og Guð-
rúnar Sigtryggsdóttur. „Þegar
við tókum við staðnum var fjöld-
inn allur af föstum viðskiptavin-
um sem fylgdi. Þeir sækja stað-
inn enn og það er það skemmti-
lega við reksturinn. Við bökum
og eldum allan mat sjálfar og
það virðist falla vel í kramið að
fá venjulegan heimilismat því
föstu viðskiptavinir okkar koma
margir daglega í mat.“
Þær segja talsvert um að
saumaklúbbar komi í kaffi og
hópur vinkvenna láti sjá sig
reglulega og fá þær alltaf sama
borðið. „Í hádeginu eru alltaf
nokkur borð frátekin fyrir föstu
viðskiptavinina sem ganga að
þeim vísum. Fullorðinn maður
sem við vitum að kom daglega
allan þann tíma sem fyrrum eig-
andi rak staðinn fylgir okkur og
mætir alltaf í hádegismat. Kon-
urnar í húsinu setjast líka niður
hjá okkur og spjalla. Þessi rekst-
ur er ótrúlega skemmtilegur og
við værum ekki í þessu nema
fyrir það hve gaman er að hitta
allt þetta fólk daglega og spjalla.
Oft setjumst við niður hjá gest-
unum og drekkum úr kaffi-
bolla.“ ■
Áþriðju hæð er Fulbrightstofn-unin og þar ræður ríkjum
Lára Jónsdóttir. Hún segir flesta
kannast við stofnunina en færri
viti um starfsemina fyrir utan
styrkina sem veittir séu náms-
mönnum til náms í Bandaríkjun-
um. „Fulbrightstofnunin er
menntastofnun Íslands og Banda-
ríkjanna og starfar með fjár-
magni frá utanríkisráðuneyti
Bandaríkjanna og menntamála-
ráðuneytinu að menntaskiptum.“
Auk þess að veita styrki sér
stofnunin um að veita ráðgjöf um
nám í Bandaríkjunum á hvaða
skólastigi sem er.
„Við erum aðeins tvær sem
vinnum hérna en auk mín starfar
hér Guðrún Eysteinsdóttir náms-
ráðgjafi. Við höfum kunnað vel
við okkur í þessu kvennaríki sem
okkur er sagt að sé að færast í
aukana. Hingað eru væntanleg,
eftir því sem ég kemst næst, bæði
kvennablaðið Vera og kvenna-
kirkjan. Þá verða ekki margir
karlar eftir ef það verður þá nokk-
ur, nema auðvitað á neðstu hæð-
inni, sem Bónus hefur lagt undir
sig.“ ■
Sérsniðin sundföt og litríkbarnaföt blasa við þegar komið
er inn um dyrnar hjá Freydísi
Jónsdóttur, sem rekur Gallery
Freydísi í Kjörgarði.
Hún hefur alla tíð haft gaman
af saumaskap og á bak við er hún
með vinnustofu þar sem hún situr
og saumar eða hannar barnaföt.
„Til mín koma konur og fá sér-
saumuð bikini sem ég sauma eftir
máli. Það er svo oft sem stöðluð
sundföt passa alls ekki því konur
er ekki allar eins í vextinum.
Barnafötin hanna ég og sauma og
legg áherslu á að hafa þau litrík.
Flísið er mjög vinsælt og til mín
koma margir og kaupa sængur-
gjafir. Það er alltaf gaman að gefa
eitthvað sem er frábrugðið því
sem fæst í búðunum.“
Freydís hefur mikið yndi af
vinnunni og segir hvern dag
skemmtilegan. „Í húsinu eru
margar frábærar konur sem reka
sín eigin fyrirtæki og það er gam-
an að spjalla og bera saman bæk-
ur sínar. Ég er á því að konur reki
sín fyrirtæki skynsamlega og
leggi mikla vinnu í að gera sem
best. Þær velta ekki alltaf fyrir
sér að fá sem mestan gróða út
rekstrinum þó að þær vinni af
hagsýni.“ ■
Lóuhreiður er
rekið af tveimur
kjarnakonum
sem baka og
elda allan mat
sjálfar. Það hitt-
ir í mark því
þær eiga fjöld-
ann allan af
föstum við-
skiptavinum.
LÁRA JÓNSDÓTTIR OG GUÐRÚN
EYSTEINSDÓTTIR
Eru ánægðar í Kjörgarði.
Ánægðar í
kvennaríki
FREYDÍS JÓNSDÓTTIR
Hún segir alla daga í vinnu vera
skemmtilega.
Lára Jónsdóttir og
Guðrún Eysteinsdóttir
Freydís Jónsdóttir
Litrík
barnaföt