Fréttablaðið - 07.12.2002, Blaðsíða 28
„Hið sjónræna ræður ótrúlega
miklu í markaðsetningu hvort sem
selja á bækur eða stjórnmála-
menn. Að setja í orð drepur hið
dularfulla og mystíska. Þá fara
menn að þykjast gáfulegir og fara
að efast. Myndir eiga hins vegar
greiðari leið að mannshuganum.
Að kaupa hluti hangir á hinu lélega
í undirmeðvitundinni; öfundinni,
stoltinu, hégómanum og öllu
þessu,“ segir prófessor Guðmund-
ur Oddur í grafískri hönnun við
Listaskóla Íslands Hann er leiðir
blaðamann Fréttablaðsins um jóla-
bókaflóðið en við erum að skoða
hönnun á bókakápum í bókabúð
Máls og menningar. Þó nú sé árstíð
rithöfunda er einnig uppskeruhá-
tíð hönnuða. Guðmundur Oddur
grípur bókina um Jón Baldvin.
„Hér er ágætt dæmi um hvernig
spilað er á undirmeðvitundina: Jón
Baldvin hugsi í forgrunni, konan
bak við manninn úr fókus en með
augun á honum sem miðpunkti.“
Fyrir þessi jólin er meginein-
kennið klassísk og sígild uppsetn-
ing en módernismi er víkjandi.
Áberandi er miðjusett myndbygg-
ing, portrett, gullgyllt upphleypt
letur en allt þetta var bannað á
tímum módernismans þegar ein-
faldleiki og minimalismi var í önd-
vegi. „Nú er allt í sensasjón, stór-
drama og hinu mikilfenglega,“
segir Guðmundur Oddur. Þessi ný-
klassíska stefna kemur frá Evrópu
og Ameríku og verður ráðandi hér
um miðjan 9. áratuginn. „Frábært
dæmi um þetta gæti verið Sonja.
Hér er miðjusett Hollywood-mynd
frá 4. áratugnum, glæsileiki og
upphafning portrettsins. Leturval-
ið er undirstrikar þetta, er klass-
ískt og flúraðra en módernisminn
hefði nokkurn tíma leyft sér.“
Kápa og innihald
renni saman í eitt
Talandi um fagmennsku segir
Guðmundur Oddur enga spurn-
ingu um að greina megi framfarir.
Áður mátti finna eina og eina bók
í flóðinu sem var sómasamleg en
þeim fjölgar og að sama skapi
sjást færri slys. En þau eru enn til
staðar og óverjandi með öllu þeg-
ar slíkt dúkkar upp. Það fer ekki
fram hjá glöggu auga þegar í
tímahraki kastað er til höndum í
hönnun bókakápu sem er sorglegt
því oft býr mikill metnaður að
baki útgáfunni að öðru leyti.
Guðmundur Oddur er ekkert
endilega á því að hönnuðir þurfi
að lesa þá bók, sem þeir eru að
hanna um kápu, spjaldanna á milli
en forsenda góðrar hönnunar sé
þó sú að þeir séu í tengslum við
efni bókarinnar og eðli. „Helst
þurfa þeir að vera í góðu sam-
bandi við höfundinn og fá frá hon-
um upplýsingar. Og auðvitað
skiptir miklu máli að þeir geri sér
grein fyrir hvar í sveit bókin er
sett, hvort um er að ræða fræði-
bók eða ástarróman. Langflottast
er að bókakápan og innihaldið
renni saman í eitt konsept. En
slíkir konfektmolar eru sjaldséð-
ir, sjást kannski annað eða þriðja
hvert ár.“ Prófessorinn segir jafn-
framt bókagerðina sem slíka skip-
ta máli. Að menn átti sig til dæm-
is á að tengja harða spjaldið við
kápuna með litavali og að þetta
tvennt hangi saman. „Ekki bara að
þetta sé kápa utan um einhvern
óskyldan hlut heldur að þetta
hangi saman í litatilfinningu og sé
fagur prentgripur sem slíkur.“
Salan hangir á kápunni
Tæknileg fagmennska er að
aukast, að mati Guðmundar Odds,
en ekki að sama skapi fagmennska
í tengslum við notkun leturgerðar,
lita og samspil þátta. Hann segist
sjá fleiri og fleiri viðvaninga í
hönnuninni. „Þeir kunna kannski á
forritið en vantar auga og uppeldi.
Höfundar hafa jafnvel tekið uppá
því að hanna útlit bóka sinna sjálf-
ir því þeir kunna á forritið - slíkt
getur endað með ósköpum.“
Allt miðast við að lækka kostn-
að en Guðmundur Oddur telur sig
hafa staðfestar heimildir fyrir því
að greiðsla fyrir hönnun bóka hafi
hrapað um helming frá því sem
var fyrir 10 árum. Hann segist þó
gera ráð fyrir því að stærri og
metnaðarfyllri útgáfur átti sig á
mikilvægi bókakápunnar. „Þetta
er einn mikilvægasti þátturinn í
tengslum við sölu. Ekki spurning,
þetta er andlit bókarinnar og það
sem dregur þig fyrst að henni. Stór
hluti sölunnar hangir á kápunni og
kemur að mikilvægi næst á eftir
góðu orðspori.“
jakob@frettabladid.is
28 7. desember 2002 LAUGARDAGUR
PRÓFESSOR GUÐMUNDUR ODDUR
Segir myndir eiga greiðan aðgang að
mannshuganum. Að kaupa hluti hangir á
hinu lélega í undirmeðvitundinni; öfund,
stolti og hégóma. Að frátöldu orðspori er
bókakápan mikilvægasta sölugagn útgef-
enda.
Dóra:
1. Samúel
eftir Mikael Torfason
„Ber af íslenskum skáld-
sögum. Pappírinn gerir
gæfumuninn - það gott að
koma við þessa bók. Hún
er gróf eins og sagan
sjálf..“
2. Stolið frá höfundi stafrófsins eftir Dav-
íð Oddsson „Möguleikar í prentverki
eru fagmannlega nýttir til að undir-
strika skemmtilegan titil.“
3. Hjálpræði efnamanns eftir Klemens frá
Alexandríu „Ekkert gleður eins mikið
og Lærdómsrit bókmenntafélagsins,
hönnunin stendur alltaf fyrir sínu.
4. Plebbabókin eftir Jón Gnarr „Besti
brandarinn.“
5 The Autograph Man eftir Zadie Smith
„Reyndar flottasta bókin sem ég fann.
Get ekkert að því gert að hún er frá út-
löndum og ekki skráð í Bókatíðindi.“
Guðrún:
1. Blíðfinnur, Ferðin til Tar-
gíu eftir Þorvald Þorsteins-
son
„Myndir Guðjóns Ketilsson-
ar á kápum Blífinns bókan-
na eru yndislega fallegar
og þjóna innihaldinu eins
og best verður á kosið.“
2. Engill í Vesturbænum eftir Krístínu
Steinsdóttur „Kápan lætur kannski lítið
yfir sér við fyrstu sýn en endurspeglar
innihald bókarinnar vel.“
3. Konungur háloftanna eftir Guðberg
Auðunsson „Hér kemur enn einn gull-
molinn frá Brians Pilkington.“
4. Frida eftir Barböru Mujico „Hér fer ekk-
ert úrskeiðis, grafísk útfærsla letursins
passar eins og flís við rass.“
5. Hjálp að handan eftir Svövu Jónsdóttur
„Mynd á kápu er eftir Kristínu Gunn-
laugsdóttur og gaman að sjá hvað þær
koma vel út á prenti enda Kristín frá-
bær málari.“
Egill:
1. Seiðandi saltfiskur og
þorskréttir þjóðanna, rit-
stjóri Einar Árnason
„Feikilega fallega hönnuð
og skemmtileg bók.“
2. Hjálpræði efnamanns
eftir Klemens frá Alex-
andríu „Lærdómsrit Bókmenntafélags-
ins eru flottasti bókaflokkur á Íslandi
fyrr og síðar.“
3. Stolið frá höfundi starfrófsins eftir
Davíð Oddsson „Hallgrímur segir að
þetta sé flottasta bókarkápan í ár, jú,
hún er ansi góð. Tékkum svo á inni-
haldinu...“
4. Plebbabókin eftir Jón Gnarr „Kápan er
fyndin, nokkuð sem vantar sárlega í
bókina sem ég las spjaldanna á milli á
þremur mínútum í Eymundsson.“
5. Ást á rauðu ljósi eftir Jóhönnu Krist-
jónsdóttur „Klassík frá því í kringum
1960.“
Illugi:
1. Stolið frá höfundi staf-
rófsins eftir Davíð Odds-
son „Ber af. Svo einfalt er
það. Titillinn er líka ferlega
flottur.“
2. Don Kíkóti eftir
Cervantes „Klassísk kápa í
alla staði og gengur alveg
upp.“
3. Leiðin til Rómar eftir Pétur Gunnars-
son „Hæg og falleg kápa.“
4. Samúel eftir Mikael Torfason „Í raun-
inni finnst mér þessi kápa ógeðslega
ljót. En hún er vel heppnuð!“
5. Bíðfinnur 3 eftir Þorvald Þorsteinsson
„Kápurnar um Blíðfinn eru alltaf fínar.“
5bestu
Dóra:
1. Hitler og seinni heim-
styrjöldin eftir A.J.P. Taylor
„Hönnuðurinn fer alla leið
og klæðir þessa merku
bók í búning sem gjaldfell-
ir efni hennar gríðarlega
mikið.“
2. Þjóðerni í þúsund ár?
Ritstjóri Sverrir Jakobsson „Merkilega
vond kápa. Á þetta að vera fyndið
myndefni?“
3. Ísland í aldanna Rás eftir Illuga Jökuls-
son „Treysti enginn sér til að gera bet-
ur en þetta?“
4. Barist fyrir frelsinu eftir Björn Inga
Hrafnsson „Sérkennileg hönnun og
minnir helst á forsíðuna á Vikunni fyrir
10 árum.“
5. Nennekkja feisaða eftir Valgeir Magn-
ússon „Stimpillinn „Alvöru unglinga-
bók“ sem er klínt á kápuna hlýtur að
senda kjánahroll niður eftir bakinu á
íslenskum ungmennum.“
Guðrún:
1. Vaknað í Brussel eftir
Elísabetu Ólafsdóttur „Pirr-
ar mig svakalega, í fyrsta
lagi þessi stuldur á stell-
ingu og vörum Bjarkar á
Homogenic og svo þessi
tilgerðarlegi skurður og
skeyting sem að ég veit
ekki alveg hvað á að fyrirstilla. Kannski
engil á hvolfi?.“
2. Gullkorn úr hugarheimi íslenskra
barna í samantekt Halldórs Þorsteins-
sonar „Englarnir hans Raffaels eru nú
búnir að ganga svo oft á milli manna
að þeir hafa fengið á sig ansi gleði-
barnalegan blæ.“
3. Í fréttum er þetta helst ritstýrt af: Guð-
jóni Inga Eirkíkssyni og Jóni Hjaltasyni
„Hver gerði þessa hörmung?“
4. Nafnlausir vegir eftir Einar Má Guð-
mundsson „Með nafn höfundar og titil
í þessu letri og litum, verður kápan
forljót.
5. Áhyggjudúkkur eftir Steinar Braga
„Kannski passar myndin við ringureið-
artilfinningu bókarinnar en af hverju
að vera svona ófrumlegur? Escher var
ekki ófrumlegur!“
Egill:
1. Skítadjobb eftir Ævar
Örn Jóspesson „Svona voru
bókarkápur sirka 1980,
þetta er eins og flassbakk
aftur í Hlemmur-Fell.“
2. Ljóðaþing eftir Eystein
Þorvaldsson „Dauðalega
drapplituð kápa, virkar
álíka leiðinleg og viðfangsefnið, ljóða-
gerð á síðari hluta tuttugustu aldar.“
3. Pabbi, bók fyrir verðandi feður eftir
Ingólf V. Gíslason „Voða sætur strákur
á kápunni en af hverju er pabbinn að
sjúga snuðið?“
4. Hitler og seinni heimstyrjöldin eftir
A.J.P. Taylor „Er ekki dálítið langt geng-
ið að láta stafina á forsíðunni drjúpa
blóði, kápan lítur út eins og vefsíða
nasistafélags?“
5. Í fréttum er þetta helst, gamansögur af
íslenskum fjölmiðlamönnum. „Vona
að guð gefi að ég sé ekki í þessari
bók.“
Illugi:
1. Ég veit þú kemur eftir
Gerði Kristný „Sillí hug-
mynd og frumstæð út-
færsla.“
2. Vaknað í Brussel eftir
Elísabetu Ólafsdóttur „Ör-
ugglega eitthvað „grúví“
konseft hér að baki. En
þetta er ljótt, ljótt, ljótt!“
3. Crazy eftir Benjamin Lebert „Ekki gefur
nú kápan tilefni til að halda að það
séu mikil ærsl hér á ferðinni.
4. Skrýtnastur er maður sjálfur eftir Auði
Jónsdóttur „Því miður - því ég held
þetta sé áhugaverð bók. En kápan
dregur úr áhuganum.“
5. Vitfirringur keisarans eftir Jaan Kross
„Sama sagan. Mig langar að lesa þessa
bók en kápan er skelfileg leiðinleg.“
Góðar og slæmar bókakápur:
Að höfða til hins
lélega í undir-
meðvitundinni
Góðar
1. Stolið frá höfundi starf-
rófsins eftir Davíð Odds-
son „Veisla fyrir fagurkera
og einkennist af hug-
myndaauðgi og smekkvísi.“
2. KK eftir Einar Kárason
„Nær svo vel saman grip-
urinn bókin og kápa. Góð
tenging milli leturgerðar og myndar.“
3. Sonja eftir Reyni Traustason „Glæsileg
notkun á portretti og prýðileg týpógraf-
ía sem er vel við hæfi.“
4. Konur með einn í útvíkkun „Hér hang-
ir saman kápa og bók og góð tenging
leturs og myndar.“
5. Vaknað í Brussel eftir Elísabetu Ólafs-
dóttur „Hugmyndaríki í myndrænni
framsetningu og höfðar til einhvers í
undirmeðvitund minni sem ég kýs að
fara ekki nánar útí.“
Vondar
1. Nafnlausir vegir eftir
Einar Má Guðmundsson
„Fullkomið metnaðarleysi
og smekklaus leturgerð.
Má heita furðuleg kápa
um verk þessa viður-
kennda höfundar.“
2. Sólarsaga eftir Sigur-
björgu Þrastardóttur „Þetta er ekki
sæmandi góðum höfundi og líkist
helst kápu bókar eftir Teresu Charles.“
3. Draumar eftir Starr og Zuker „Hefði
manneskja með tilfinningu fyrir letri
fengið að fikta með svo djarfa efnis-
notkun á þessu bláa flaueli mætti bú-
ast við góðu, en það er ekki. Hryllilegt.“
4. Ég veit þú kemur eftir Gerði Kristnýju
„Ekkert líf í þessu, steindauður upp-
stoppaður lundi og ósmekklegt lita- og
leturval.“
5. Röddin eftir Arnald Indriðason „Er
þetta saga Íslenskrar leiklistar? Marg-
tuggin klisja að nota sviðstjöld og
óspennandi leturgerð.“
5verstu
Fréttablaðið leitaði til fimm einstaklinga sem
áhuga hafa á bókum og bókahönnun og fékk
þá til að velja fimm bestu og fimm verstu
bókakápurnar í ár. Þetta voru Dóra Ísleifs-
dóttir, grafískur hönnuður, Egill Helgason
sjónvarpsmaður, Guðmundur Oddur Magn-
ússon, prófessor við Listaháskóla Íslands,
Guðrún Tryggvadóttir myndlistarmaður og
hönnuður og Illugi Jökulsson rithöfundur.
Álitsgjafar