Fréttablaðið - 07.12.2002, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 07.12.2002, Blaðsíða 33
KVIKMYND 15.00 26 dagar í lífi Dostojevskíjs nefnist kvikmynd sem sýnd verð- ur í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10. UPPÁKOMUR 12.00 Jólaskemmtun Dansráðs Íslands verður á Broadway. 13.00 Jólasýning verður á Árbæjarsafni. Fjölbreytt dagskrá, íslensku jóla- sveinarnir, þessir hrekkjóttu, koma í heimsókn, krakkar skera laufa- brauð, gestir búa til músastiga og fleira. 15.00 Listakonurnar Kristín Geirsdóttir, Þorgerður Sigurðardóttir, Magdalena Margrét Kjartans- dóttir, Bryndís Jónsdóttir og Ása Ólafsdóttir verða með leiðsögn um sýningu sína, Samspil, sem nú stendur yfir í Hafnarborg. 16.00 Aðventuhátíð Líknar- og vinafé- lagsins Bergmáls verður í Há- teigskirkju. Að athöfn lokinni verða veitingar í safnaðarheimili kirkjunnar. 21.00 Skáldakvennakvöld verður á Næsta Bar. Þar lesa skáldkonurn- ar Vigdís Grímsdóttir, Steinunn Sigurðardóttir, Guðrún Eva Mínervudóttir og María Rún Karlsdóttir upp úr bókum sínum. LEIKHÚS 14.00 Honk! Ljóti andarunginn er sýndur á Stóra sviði Borgarleik- hússins. 14.00 Jólarósir Snuðru og Tuðru eru sýndar í Möguleikhúsinu. Nokkur sæti laus. 14.00 Kardemommubærinn er sýndur hjá Leikfélagi Hveragerðis. 20.00 Veislan er sýnd á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins. Nokkur sæti laus. 20.00 Rómeó og Júlía eru sýnd á Litla sviði Borgarleikhússins. TÓNLEIKAR 13.00 Kóramót barna- og unglinga- kóra verður haldið í Perlunni. Að- gangur er ókeypis. 14.00 Gerðubergskórinn syngur við messu í Breiðholtskirkju. 16.00 Aðventutónleikar Sinfóníuhljóm- sveitar Norðurlands verða að þessu sinni í Íþróttahúsi Glerár- skóla. 16.30 Kór Átthagafélags Stranda- manna heldur aðventutónleika í Bústaðakirkju. 20.00 Sølvguttene eða Silfurdrengirnir halda tónleika í Hallgrímskirkju. Á efnisskránni eru m.a. Kyrie - Sanctus (G.P. Palestrina), Liten kormesse (Kjell Mørk Karlsen), Cry out (Knut Nystedt), Die Himmel erzählen (H. Schütz), Halelújakórinn (G. F. Händel) og norsk jólalög (úts. Per Steen- berg). 20.00 Karlakórinn Þrestir í Hafnarfirði heldur jólatónleika í Víðistaða- kirkju. Auk karlakórsins koma fram Lúðrasveit Hafnarfjarðar, Sig- urður Skagfjörð barítón og Kór eldri Þrasta. 20.30 Söngsveitin Fílharmónía heldur tvenna aðventutónleika í Lang- holtskirkju. Einsöngvari er Sigrún Hjálmtýsdóttir. 20.30 Hundur í óskilum heldur útgáfu- tónleika í Tjarnarbíói. Ljótu hálf- vitarnir hita upp. 33LAUGARDAGUR 7. desember 2002 SUNNUDAGUR 8. DESEMBER hvað? hvar? hvenær? Sparisjóðurinn býður til afmælis- og tónleikaveislu: „Allt small saman“ TÓNLEIKAR Þann 22. desember eru 100 ár liðin frá því að Sparisjóður Hafnarfjarðar hóf starfsemi. Af því tilefni býður Sparisjóðurinn upp á afmælis- og tónleikaveislu í Kaplakrika á morgun, sunnudag. Þar munu margir þjóðþekktir tónlistarmenn koma fram. „Við höfum virkilega vandað valið á tónlistarfólki,“ segir Magnús Pálsson, markaðstjóri Sparisjóðsins. „Þetta er mjög skemmtileg dagskrá.“ Á hátíðinni koma fram Karla- kórinn Þrestir ásamt Björgvin Halldórssyni, Diddú, Öldutúnskórinn, Kvennakór Hafnarfjarðar, Tríó Björns Thoroddsen, Borgardætur, Krist- ján Jóhannsson tenór, Kvintett Kristjönu Stefánsdóttur, Laddi, hljómsveitin BSG, Bubbi og Sálin hans Jóns míns. „Þetta small allt saman á þess- um tíma. Að fá eitt stærsta hús landsins og að Kristján Jóhanns- son skuli einnig vera á landinu.“ Björgvin Halldórsson er umsjón- armaður hátíðarinnar. Dagskráin hefst kl. 14 í Kaplakrika. Hátíðin heldur svo áfram á Þorláksmessu. Þá verður gest- um boðið að koma í afgreiðslur Sparisjóðsins þar sem af- mæliskakan verður á sínum stað. ■ SÁLIN HANS JÓNS MÍNS Kemur fram á hátíðartónleik- um í Kaplakrika. Útsölustaðir: Betra Líf, Kringlunni, Paradís, Laugarnesvegi 82 og Gigtarfélag Íslands Ármúla 5, Hellu. Sólveig Stolzenwald, s. 863 7273 Póstkröfusendingar og uppl. í s. 690 0658 / 659 1517 www.shopping.is/lifsorka LÍFSORKU HITABAKSTRAR úr náttúrulegum efnum Frábær aðferð gegn vöðvabólgu, streitu og ýmsum kvillum. Lífs- orku hitabakstrar henta öllum í hvíld eða við störf. Þú hitar baksturinn aðeins 1-3 mín. í ör- bylgjuofni. Viðurkendir af fagfólki Listhúsinu, Engjateigi 17-19 105 Reykjavík S. 552 5540 LANG ÓDÝRASTA BÓKABÚÐIN Betra verð en í Bónus 14 sinnum skv. verðkönnun Mbl. 4. des. sl. Nýtt kortatímabil

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.