Fréttablaðið - 07.12.2002, Blaðsíða 40
40 7. desember 2002 LAUGARDAGUR
BÆKUR „Verslanir virðast ekki
hugsa sig um tvisvar og selja
bækur hiklaust undir kostnaðar-
verði. Eins og við er að búast þá
eru það lágvöruverðsmarkaðirnir
eins og Bónus og Nettó,“ segir Eg-
ill Örn Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri JPV-bókaforlagsins. Bóka-
útgefendum sárnar oft að sjá
bækurnar sínar verðlagðar á nán-
ast ekki neitt og finnst í sumum
tilvikum lítið gert úr stórum verk-
um.
Verðstríð á bókum virðist ætla
að verða meira þessi jól en áður,
þrátt fyrir spár manna um annað
fyrir vertíðina. Egill Örn segir
þessa þróun tæplega umflúna.
„Samkeppnin á þessum markaði
er grimm. Samkeppnin um það að
fá viðskiptavini til sín er mikil og
sumir tala um fórnarkostnað stór-
markaða í þessu sambandi.“ Sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
hafa útgefendur rætt sín á milli
hvort breyta megi bóksölu-
mynstri en vilja síður eiga yfir
höfði sér að menn á borð við Jó-
hannes í Bónus komi fram opin-
berlega með yfirlýsingar á borð
við: „Bókaútgefendur vilja ekki
bjóða neytendum bækur á góðu
verði.“ ■
Harka í bókaverðstríði:
Bækur hiklaust seldar
undir kostnaðarverði
BÓKAFLÓÐ
Samkeppnin er grimm í bókastríðinu.
Halldór Laxness:
Salka Valka
fer til Kína
BÆKUR Kínverska forlagið Lijiang
hefur komist að samkomulagi við
Eddu um útgáfu í Kína á Sölku
Völku eftir Halldór Laxness. Salka
Valka kom síðast út í landinu árið
1985 en síðan hafa engin verk höf-
undarins verið gefin út í Kína. Liji-
ang-útgáfan hefur frá því að hún
var sett á laggirnar árið 1981 gefið
út tæplega þrjú þúsund titla, meðal
annars verk Günter Grass, Thomas
Mann og Marguerite Duras.
Edda hefur á liðnum árum geng-
ið frá fjölda samninga um útgáfu á
verkum Halldórs Laxness erlendis.
Lönd sem hafa verið honum lokuð
um árabil hafa opnast og hann hef-
ur auk þess fest sig í sessi á eldri
mörkuðum. Á þessu ári hafa verið
gerðir samningar um útgáfur á
bókum hans í Bretlandi, Bandaríkj-
unum, Brasilíu, Noregi, Danmörku,
Þýskalandi, Hollandi, Frakklandi,
Ítalíu, Spáni og víðar, auk Kína.
Í Þýskalandi kom út sérstök af-
mælisútgáfa í 777 tölusettum ein-
tökum ásamt hátíðarútgáfu af Sög-
unni af brauðinu dýra með mynd-
lýsingum Söruh Kirsch og fyrr á ár-
inu var Brekkukotsannáll gefinn út
í ritröð er nefnist Stefnumót meist-
ara í Norsku bókaklúbbunum, þar
sem nútímalistamenn mála árlega
myndir við eitthvert sígilt bók-
menntaverk. ■
Dagbókarsaga Matthíasar Jo-hannessen, Vatnaskil, er
komin út hjá Vöku-Helgafelli.
Þetta er per-
sónuleg skáld-
saga Matthías-
ar þar sem
hann fléttar
saman skáld-
skap og kafla
úr dagbókum
sínum sem
birta leiftur
frá atburðum
og hugrenn-
ingum fyrri
tíðar. Hér segir frá eldri manni
sem kominn er á eftirlaun en eig-
inkonan starfar enn á elliheimili -
þeim stað sem hann óttast mest
af öllu.
NÝJAR BÆKUR
HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ
GERA UM HELGINA?
Sigurjón Kjartansson.
Ég byrja helgina hérna norður á Akureyri
en ég var á Kaffi Akureyri í gærkvöld. Ég fer
svo að dratta mér aftur til höfuðborgarinn-
ar og verð kominn þangað upp úr hádeg-
inu. Ætli ég reyni svo bara ekki að slaka á
og hanga heima hjá mér.