Fréttablaðið - 07.12.2002, Side 23
23LAUGARDAGUR 7. desember 2002
L
a
n
d
lis
t
(Munið síðan JÓLAMARKAÐINN á Smáratorgi!)
ekkert
brudl-
Opnum
klukkan
tíu!
Tilboðið gildir til sunnudags!
Skinnlausar, úrbeinaðar
kjúklingabringur
afsláttur við kassann
V
er
ð
í
Bó
nu
s
ge
tu
r
LÆ
KK
A
Ð
fy
ri
rv
ar
al
au
st
*
A
LL
T
A
F
be
tr
a
ve
rð
!
Úrbeinaðar
skinnlausar
kjúklingabringur
1207kr.kg
Merkt verð 2195kr.
við verri rekstrarskilyrði vegna
hærri vaxta. Ég taldi sjálfur að
eignarhald yfir auðlindum í hafinu
myndi koma í veg fyrir að við gæt-
um sótt um aðild. Eftir að hafa
brotið málið til mergjar tel ég af-
gerandi vísbendingar um að svo sé
ekki. Ég er þeirrar skoðunar að Ís-
landi sé betur borgið innan Evr-
ópusambandsins en utan. Ég gæti
hins vegar haft rangt fyrir mér og
Davíð Oddsson, Steingrímur J. Sig-
fússon og aðrir andstæðingar Evr-
ópusambandsins rétt fyrir sér. Það
er ekki nema ein leið til að kanna
það. Hún er sú að skilgreina samn-
ingsmarkmiðin og sækja um aðild.
Leggja málið síðan í dóm kjósenda
í þjóðaratkvæðagreiðslu.“ Össur
leggur áherslu á að vönduð um-
ræða verði að fara fram. „Ég vil
ekki sjá þjóðina tvístrast í málinu,
eins og gerðist í Noregi. Ég skynja
hins vegar vaxandi stuðning við
málið meðal þjóðarinnar.“
Ingibjörg Sólrún ráðherra?
Ráðherrar ríkistjórnarinnar
eru tólf talsins. Össur segist ekki
sjá ástæðu til þess að svo margir
ráðherrar séu í ríkisstjórn. „Nema
til að leysa innanhússvanda núver-
andi ríkisstjórnarflokka. Ég tel að
það eigi að fækka ráðuneytum og
gera stjórnsýsluna skilvirkari.
Þrátt fyrir miklar tækniframfarir
hefur lítil þróun orðið í stjórnsýsl-
unni. Ég hef til dæmis verið fylgj-
andi hugmyndum um eitt atvinnu-
málaráðuneyti. Ráðuneytin endur-
spegla ekki þær breytingar sem
hafa orðið í atvinnulífinu.“ Össur
bendir á að sólrisugrein eins og
þekkingariðnaður eigi lítið skjól
meðan landbúnaður, sem hafi ört
minnkandi vægi, sé með heilt ráðu-
neyti og ráðherra. „Þetta endur-
speglast einnig í vanrækslu ríkis-
stjórnarinnar í menntamálum.
Framlög til landbúnaðar eru hærri
en þær upphæðir sem renna til
allra framhaldsskóla landsins og
Háskóla Íslands samanlagt. Þessar
áherslur eru tímaskekkja. Við vilj-
um leggja áherslu á fjárfestingu í
menntun. Það er fjárfesting sem
skilar sér fljótt til baka inn í samfé-
lagið.“
Í beinu framhaldi af fækkun
ráðherra og ráðuneyta má spyrja
hvort eitthvað sé því til fyrirstöðu
að sækja ráðherra annað en í þing-
flokkana. „Svar mitt við þessu er
klárt. Það er ekkert því til fyrir-
stöðu. Þannig er mögulegt að kalla
afburða einstaklinga til mikilvæg-
ustu trúnaðarstarfa í ríkinu.“ Um-
ræða um komu Ingibjargar Sól-
rúnar Gísladóttur í landsmálin
skýtur reglulega upp kollinum.
Telur Össur mögulegt að Ingi-
björg Sólrún verði kölluð sem ráð-
herra í ríkisstjórn undir forystu
Samfylkingarinnar? „Í stjórnmál-
um er ekkert ómögulegt,“ svarar
hann. Aðspurður um hvort hann
hafi rætt það við svilkonu sína er
svarið líka afdráttarlaust: „Nei.“
haflidi@frettabladid.is
Kjósendur ráða
því hvernig stjórn
verður mynduð. Við höfum
hins vegar sagt að við erum
tilbúin að leiða ríkisstjórn.
Okkur finnst eðlilegt að
stærsti flokkurinn í sam-
steypustjórnum sitji í
forsætisráðuneytinu.
,,