Fréttablaðið - 07.12.2002, Qupperneq 31
LAUGARDAGUR 7. desember 2002
20% Afsláttur af
öllum kvenskóm
Desember
Dagana 5. - 8. bjó›um vi›
20% afslátt af öllum kvenskóm.
tilbo›
Opi› laug. 10-18 og sunnud. 13-18
Eina fyrirtækið sem starfaðhefur frá upphafi í Kjörgarði
er garnverslunin Storkurinn.
Unnur Eiríksdóttir stofnaði versl-
unina við opnun Kjörgarðs en
dóttir hennar Malín Örlygsdóttir
tók við rekstrinum fyrir sautján
árum. „Það má segja að ég hafi
verið með frá upphafi því ég byrj-
aði að aðstoða mömmu um leið og
verslunin opnaði og var meira eða
minna viðloðandi þar til ég tók
við.“
Malín fór til nám í fatahönnun
til Svíþjóðar og sérhæfði sig í
prjónahönnun. Hún hefur hannað
talsvert af peysum og uppskriftir
af þeim geta viðskiptavinir keypt
um leið og þeir velja sér garnið.
Hún segir einstaklega gaman að
vinna að prjónahönnun og á
marga mjög góða viðskiptavini
sem koma til hennar mörgum
sinnum á ári. „Margar þessara
kvenna eru orðnar vinkonur mín-
ar enda legg ég mikið upp úr per-
sónulegri þjónustu. Við höldum
líka námskeið sem alltaf eru full
og höfum gert það í sautján ár.“
Malín telur að undanfarin ár
hafi orðið vakning meðal ungs
fólks í að prjóna sjálft og einstaka
karlmaður reki inn nefið og kaupi
sér garn í peysu. „Frægasti hönn-
uður heims, Kaffe Fassett, er
karlmaður og ég er með umboð
fyrir vörurnar hans. Hann bæði
prjónar og saumar út og hefur ný-
lega bætt við sig bútasaumi.“
Malín er á því að fólk kjósi
fremur persónulega þjónustu og
sé í auknum mæli farið að snúa
sér til sérverslana. „Það er eitt
það skemmtilegasta við þetta að
þjóna viðskiptavinunum og ég hef
mikla ánægju af að ráðleggja
fólki sem kemur til mín.“ ■
Vakning
meðal ungs fólks
MALÍN ÖRLYGSDÓTTIR
Hún segir einn og einn karlmann reka inn nefið
og alltaf sé jafn gaman þegar þeir geri það.
Malín Örlygsdóttir
starfrækir elsta fyrirtækið
í Kjörgarði. Storkurinn
hefur verið þar frá upp-
hafi og Malín með en
hún byrjaði ung að að-
stoða móður sína í
versluninni.
GUNNAR OG HELGA GERÐUR
Gunnar er einn í kvennafansi og
kann því vel.
Helga Magnúsdóttir
Karl með
Áþriðju hæð sitja tvær konurog teikna daginn langan. Þær
skera sig úr öðrum konum í Kjör-
garði því þær eru með karlmann í
farteskinu. Það eru þær Helga
Gerður Magnúsdóttir og Svein-
björg Jónsdóttir og karlmaðurinn
er Gunnar Kristinsson. „Við vor-
um að flytja inn um mánaðamótin
og ákváðum að hafa Gunnar með
því hann er svo skemmtilegur og
klár,“ segir Helga Gerður. Gunnar
brosir: „Ég er farinn að óttast al-
varlega um sjálfsmynd mína í
þessu kvennageri.“
Það leggst vel í þau að starfa í
Kjörgarði: „Það er skemmtilegt
að vera þar sem hjartað slær í
miðbænum.“
Á stofunni, sem heitir A-4, eru
hannaðar auglýsingar, bækur,
merki og yfir höfuð allt sem
tengist útliti. „Nýlega hef ég lok-
ið við að hanna og brjóta um bók
sem gefin er út í tengslum við
handritin og kom út í tilefni þess
að handritin eru til sýnis í Þjóð-
menningarhúsinu. Það er
skemmtilegt að fá slík verkefni,“
segir Helga Gerður. ■
ÞÓREY BJARNADÓTTIR
Hún á marga fasta viðskiptavini sem hún þekkir með nafni og spjallar dálítið þegar
þeir koma og endurnýja.
Hátíðarföt
með vesti
úr 100% ull
kr. 29.900
Allar stærðir til
46— 64
98—110
25— 28
Hátíðarfatnaður
íslenskra karlmanna
Hátíðarfatnaður íslenskra
karlmanna hefur notið mikilla
vinsælda frá því farið
var að framleiða hann.
Færst hefur í vöxt að íslenskir
karlmenn óski að klæðast
búningnum á tyllidögum, svo
sem við útskriftir, giftingar,
á 17. júní, þorrablót,
við opinberar athafnir hérlendis
og erlendis og við öll önnur
hátíðleg tækifæri.
Herradeild Laugavegi, sími 511 1718.
Herradeild Kringlunni, sími 568 9017.
Pó
st
se
nd
um
Pantanir óskast sóttar
Hátíðarföt,
úr 100% ull, með vesti,
skyrtu, klút og nælu.
kr. 36.900.-
Ílúgu Happdrættis Háskóla Ís-lands situr Þórey Bjarnadóttir,
sem starfað hefur þar samfleytt í
fimmtíu ár núna í desember.
„Þetta hefur verið góður tími og
til mín hefur komið margur mað-
urinn í gegnum árin. Flesta þekki
ég með nafni og spjalla dálítið í
hvert sinn sem þeir koma og end-
urnýja.“
Þórey segist hafa fylgt húsinu
allar götur síðan það var opnað en
var í byrjun staðsett á jarðhæð-
inni. „Það var óskaplega gaman að
vinna í þessu húsi þar sem mikill
fjöldi fólks fór um á hverjum degi.
Þá komu margir aðeins til að skoða
rafmagnsstigann og fara eina eða
tvær ferðir með honum. Hann
þótti merkilegur í þá tíð.“ ■
Þórey Bjarnadóttir
Hefur unnið í
Kjörgarði frá upphafi