Fréttablaðið - 07.12.2002, Page 34
34 7. desember 2002 LAUGARDAGUR
ONE HOUR PHOTO kl. 2.40
2, 4, 6, 8 og 10
SWIMFAN kl. 2, 4, 6, 8 og 10
Sýnd kl. 2, 5, 8 og 11 bi. 12 ára
Sýnd í lúxus kl. 4, 7 og 10
kl. 6 .10Í SKÓM DREKANS
POSSESSION kl. 4, 8 og 10.05
LILO OG STITCH/ísl.tal kl. 2Sýnd kl. 1.30, 3.45, 5.50, 8 og 10.10
Sýnd kl. 1, 2, 4.10, 6, 8 og 10
THE TUXEDO kl. 8 og 10 VIT474 SWEET HOME ALABAMA 4 og 6
VIT
461
LILO OG STITCH/ísl.tal kl. 2 VIT429
SANTA CLAUS 1.30, 3.40, 5.50, 8, 10.10 VIT485
CHANGING LANES kl. 6, 8 og 10.10 VIT479
Sýnd kl. 4 og 8 VIT 469
kl. 2, 4, 8 og 10.05HAFIÐ
kl. 5.50DAS EXPERIMEN
TÓNLIST Jóhann Jóhannsson hefur
verið viðriðinn tónlistariðnaðinn í
fjöldamörg ár. Hann hefur vakið
mikla athygli síðustu misseri sem
einn af liðsmönnum Orgelkvar-
tettsins Apparats.
Sú sveit gaf út fyrstu plötu sína
um daginn og hafa dómar verið
mjög jákvæðir. Það sem færri vita
er að Jóhann er einnig virkt tón-
skáld. Nýverið hefur hann meðal
annars samið tónlist við leikritin
„Viktoría og Georg“ og „Krydd-
legin hjörtu“. Einnig samdi hann
tónlist við kvikmyndirnar „Maður
eins og ég“ og „Íslenski draumur-
inn“.
„Þetta er tónlist úr leikritinu
„Englabörn“ sem sýnt var í
fyrra,“ segir Jóhann um fyrstu
sólóplötu sína. „Tónlistin vakti já-
kvæð viðbrögð og mig langaði til
að gera eitthvað meira með hana,
fara lengra með þessa tónlist og
láta hana virka sem sjálfstætt
verk.“
Jóhann segist hafa raðað tón-
listinni upp á nýtt til að láta hana
virka sem eina heild. „Þetta er
svolítið eins og kvikmyndatónlist
að því leyti að sömu stefin, sömu
mótífin, koma aftur og aftur fyrir
hér og þar á plötunni. En að mörgu
leyti virkar þetta líka eins og
nokkurs konar svíta.“
En hver er munurinn á leikhús-
tónlist og kvikmyndatónlist? „Ég
nálgast þetta á mjög svipaðan hátt
en þetta er ekki alveg það sama.
Leikhústónlist er nálægari manni
en kvikmyndatónlist. Tónskáldið
tekur miklu virkari þátt í sköpun
leikverks. Við gerð „Englabarna“
var ég með alveg frá byrjun. Það
er mjög þakklátt starf fyrir tón-
skáld að taka þátt í svona upp-
færslu því tónlistin er svo mikill
hluti af sýningunni.“
Platan hefur fengið frábæra
dóma í erlendum blöðum, vefmiðl-
um og sjónvarpsstöðum. Gagn-
rýnandi þýska blaðsins Debug
hafði þetta að segja: „Djúp og döp-
ur smáverk sem nálgast mann af
viðkvæmi. Svo brothætt að ekki
er annað hægt en að gefa sig á
þeirra vald. Þessi lög, afsakið...
verk, mega ekki við hornum og
brúnum. Til hvers ættu þau að
þurfa þau þegar verkin miðla svo
mikilvægum skilaboðum. Tónlist
svo fögur að öllum orðum er of-
aukið. Tónlist sem hægir á degin-
um, áður en hann nær að hefjast.
Ég gæti vel hugsað mér daginn í
dag þannig.“ orlygur@frettabladid.is
FRÉTTIR AF FÓLKI
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10 VIT 468
MASTER OF DISGUISE
TÓNLIST
TÓNLIST Hún Jennifer Lopez leitar
inn á við á þriðju breiðskífu sinni
„This Is Me... Then“ og syngur per-
sónulega texta ofan á poppsmíðar
hinna ýmsu lagahöfunda. Fjöldi
þeirra er slíkur að þeir gætu hæg-
lega mannað fótboltalið, varamenn
og klappstýruhóp. Svo er hún með
bandaríska landsliðið í útsetning-
um uppi í stúku. Miðað við einfald-
leika laganna er gaman að velta því
fyrir sér hvaða hlutverki allir þess-
ir menn gegna eiginlega?
Útkoman er skiljanlega, miðað
við fjölda málamiðlana, afar geril-
sneydd en þó oft mjög grípandi.
Undirmenn Lopez hafa unnið vinnu
sína vel og gulltryggja henni fast
sæti næsta árið á MTV.
Það versta við plötuna eru
textasmíðarnar. Það er nánast ótrú-
legt ef það er satt að textarnir séu
beint frá hjarta stúlkunnarog að
henni detti ekkert dýpra í hug að
segja elskhuga sínum Ben Affleck :
„I’m glad when I’m making love to
you, Im glad for the way you make
me feel. I love it cause you seem to
blow my mind, everytime.“ Einnig
er texti lagsins „To Ben“ hræðileg-
ur, lagið er svo vanilluvæmið og til-
gerðarlegt. Getur verið að stúlkan
sé eins einföld og þessir textar gefa
til kynna?
Hvernig sem því líður er hér að
finna fína poppsmelli. Þar ber hæst
lögin „Still“, „Loving You“ og „The
One“. Leiðið bara textana hjá ykk-
ur og þið sleppið heil.
Birgir Örn Steinarsson
JENNIFER LOPEZ: This Is Me... Then
Einföld Lopez
JÓHANN JÓHANNSSON
Einn af fimm liðsmönnum Orgelkvartettsins Apparats. Var að gefa út sína fyrstu sólóplötu.
Englabörnin hans Jóa
Diskurinn „Englabörn“ kom út á dögunum. Diskurinn geymir tónlist úr sam-
nefndu leikriti sem sýnt var í Hafnarfjarðarleikhúsinu í fyrra.
Önnur Lord of the Rings mynd-in, „The Two Towers“, var for-
sýnd í New York á fimmtudag. All-
ir helstu aðalleik-
arar myndarinnar
og leikstjórinn
Peter Jackson
mættu á sýning-
una. Fyrstu við-
brögð gagnrýn-
enda eru afar já-
kvæð. Margar
stjörnur létu
einnig sjá sig á sýningunni. Þar
má nefna Yoko Ono, son hennar
Sean Lennon og leikkonuna Susan
Sarandon. Sérstök forsýning
myndarinnar verður haldin hér á
landi 18. desember en almennar
sýningar hefjast annan í jólum.
Michael Jackson skrópaði áfimmta degi réttarhaldanna
þar sem skera á úr um hvort söngv-
arinn skuldi fyrr-
um umboðsmanni
sínum 21 milljón
dala eður ei. Lög-
maður hans gat
ekki gefið neina
skýringu á fjarvist
hans en sagði að
hún gæti tengst
kóngulóarbitinu
sem Jackson varð fyrir á búgarði
sínum á dögunum. Konungur popps-
ins fékk því mínus í kladdann.
Leikarahjónin Melanie Griffithog Antonio Banderas hafa
ákveðið að vera í sundur nokkrar
vikur. Banderas á
að vera orðinn
hundleiður á öf-
undsýkisköstum
konu sinnar og bað
um smá frítíma
frá henni. Parið
gifti sig 1996 og á
eina dóttur.
Griffith hefur upp
á síðkastið verið ljósmynduð há-
grátandi og er óttast um andlega
heilsu hennar. Talsmaður hjónanna
sagði að skilnaður væri ekki í
vændum.
Dr. Gunni með jólatónleika á Grandrokk um helgina:
Mikið skrall
TÓNLEIKAR Dr. Gunni er kominn með
nýja hljómsveit sem hefur verið
starfandi síðan í vor. „Það eru þrír
strákar með mér í bandinu,“ segir
Gunnar Lárus Hjálmarsson, öðru
nafni Dr. Gunni. „Grímur Atlason,
sem áður var í sveitinni Rosebud, á
bassa, Kristján Freyr Halldórsson
og Guðmundur Halldórsson, en
þeir eru ekki bræður.“
Sveitin hefur komið tvisvar op-
inberlega fram í ár. „Við lékum á
tveimur hátíðum. Fyrst í Viðey og
þar var mikið skrall. Svo lékum við
á Innipúkanum um Verslunar-
mannahelgina, og þar var líka mik-
ið skrall.“ Sveitin ætlar að gefa út
plötu á næsta ári. „Hún heitir „Flat-
us lifir“ og þetta verður skrall-
plata.“
Hljómsveit Dr. Gunna heldur
tónleika á Grandrokk í kvöld. Leik-
ið verður bæði nýtt efni og gamalt
sem Gunni hefur samið í gegnum
árin. „Við ætlum að leika nokkur
lög með S.H. Draumi, Bless og Pop-
Kings. En aðallega nýtt efni.“
Pönkpoppsveitin Innvortis frá
Húsavík hitar upp. Skemmtunin
hefst upp úr miðnætti. Aðgangs-
eyrir er 500 kr og er aldurstak-
mark 20 ár. ■
DR. GUNNI
Undirbýr nú með nýrri hljómsveit sinni
breiðskífu sem kemur út á næsta ári.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/I
N
G
Ó
Blóm og
gjafavara
Öðruvísi blómabúð
Dalvegi 32, s. 564 2480, www.birkihlid.is