Fréttablaðið - 11.12.2002, Qupperneq 1
ÍÞRÓTTIR
Hættur við
að hætta
bls. 16
Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Miðvikudagurinn 11. desember 2002
Tónlist 18
Leikhús 18
Myndlist 18
Bíó 20
Íþróttir 14
Sjónvarp 22
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
MÁLSTOFA Sveinn Agnarsson sér-
fræðingur flytur erindi sem hann
nefnir Eru bestu skólarnir bestir?
Athugun á skilvirkni í grunnskól-
um. Erindið verður flutt í málstofu
viðskipta- og hagfræðideildar í hús-
næði Hagfræðistofnunar að Ara-
götu 14. Málstofan hefst klukkan
16.
Eru bestu
skólarnir bestir?
FYRIRLESTUR Guðbjörg Gissurardótt-
ir heldur fyrirlestur um elda-
mennsku og listir í Listaháskóla Ís-
lands klukkan 12.30. Guðbjörg mun
skoða eldamennskuna út frá skap-
andi ferli listamannsins og hvernig
hægt er að nýta sér eldhúsið í skap-
andi þroska. Hvernig örva má
sköpunargleðina í eldhúsinu og
elda oftar eins og listamaður frek-
ar en tæknimaður og gera elda-
mennskuna skemmtilegri og auð-
veldari um leið.
Sköpunarþörfinni
svalað í eldhúsinu
KÖRFUBOLTI Tveir leikir fara fram í
Kjörísbikarkeppni karla í kvöld.
KR tekur á móti Grindavík klukkan
19.15 og Keflavík sækir ÍS heim
klukkan 19.30. Einn leikur fer fram
í Doritos-bikarkeppni kvenna.
Laugdælir mæta Breiðabliki klukk-
an 20 að Laugarvatni.
KR mætir
Grindavík
BÆKUR
Að njóta
ævikvöldsins
MIÐVIKUDAGUR
250. tölublað – 2. árgangur
bls. 28
JÓLIN
Gefðu mér
gott í skóinn
bls. 24
JIMMY CARTER TEKUR VIÐ FRIÐARVERÐLAUNUM NÓBELS
Gunnar Berge, formaður norsku Nóbelsnefndarinnar, sagði í haust að með því að veita Carter verðlaunin væri meðal annars meiningin
að ýta við George W. Bush Bandaríkjaforseta.
LANDBÚNAÐUR Yfirdýralæknir hef-
ur kært bóndann á Uppsölum við
Blönduós fyrir að hafa keypt tæp-
lega þrjú hundruð kindur
frá bænum Hvammi í
Vatnsdal, en þar hefur riðu-
veiki verið. Reglugerð um
riðuveiki bannar með öllu
verslun með fé milli bæja á
sýktum svæðum. Bjarni
Stefánsson, sýslumaðurinn
á Blönduósi, segir að búið
sé að taka skýrslu af tveim-
ur mönnum sem tengjast
málinu. Fram hefur komið
að kæra yfirdýralæknis er
réttmæt og mun framhald málsins
ákveðið í samráði við hann.
Birgir Ingþórsson, bóndi á Upp-
sölum, segist ekki líta þetta mál al-
varlegum augum. Engin riðuveiki
hafi fundist á bænum Hvammi síð-
an 1987. Þá hafi öllu fé þar verið
fargað. Nýr búfjárstofn hafi verið
þar síðan 1990 og riðuveiki hafi
ekki tekið sig upp aftur.
Riðuveiki hefur aldrei fund-
ist á Uppsölum.
Bæirnir Hvammur og
Uppsalir tilheyra sama varn-
arhólfinu, sem nær milli
Miðfjarðar og Blöndu. Að
sögn Sigurðar Sigurðssonar,
dýralæknis á Keldum, hefur
riðuveiki fundist nær árlega
á þessu svæði um langt
skeið. Ef eitthvert svæði á
Íslandi sé sýkt þá sé það
þetta. Birgir segir bændur innan
varnarhólfsins hafa löngum versl-
að með fé sín á milli. Hann geti
auðveldlega nefnt fimmtán dæmi
þess á síðustu tíu árum. Birgir
sagðist enga hugmynd hafa haft
um reglugerðina og taldi víst að
svo væri um aðra bændur á svæð-
inu. Hann sagði einhverja vera að
bregðast skyldu sinni með því að
kynna ekki betur nýjar reglugerð-
ir.
Sigurður segir það alvarlegt að
menn flytji lifandi kindur milli
bæja. „Með þessu banni er ekki
síður verið að reyna að útrýma
fjárkláða af Norðurlandi og fyrr-
greint varnarhólf hefur skorið sig
úr með að vera magnaðasta kláða-
svæði landsins um langan aldur.
Kaup og sala fjár er áhrifarík að-
ferð til að dreifa smitsjúkdómum
eins og riðuveiki, garnaveiki og
fjárkláða. Allir geta þeir legið niðri
lítt áberandi um nokkur ár, einkum
riðuveikin, en gosið upp þegar fé
er flutt í nýtt umhverfi.“
kolbrun@frettabladid.is
Bóndinn kærður
vegna fjárkaupa
Yfirdýralæknir hefur kært bónda fyrir að kaupa fé frá býli þar sem riðu-
veiki hefur verið. Samkvæmt reglugerð frá árinu 2001 er það bannað.
ÓSLÓ, AP Nóbelsverðlaunin voru
afhent í gær. Jimmy Carter, fyrr-
verandi Bandaríkjaforseti, fékk
friðarverðlaunin afhent í Ósló. Í
Stokkhólmi fékk Ungverjinn
Imre Kertész bókmenntaverð-
launin og þar voru líka afhent
Nóbelsverðlaun í efnafræði, eðl-
isfræði, læknisfræði og hagfræði.
Jimmy Carter sagði í ræðu
sinni að margt hefði breyst frá
því hann var forseti. Bandaríkin
nytu nú ein algerra yfirburða
jafnt í hernaði sem í efnahags-
málum, og sú staða ætti vart eftir
að breytast á næstunni. Á hinn
bóginn væri heimurinn nú hættu-
legri en áður. Samgöngur og fjar-
skipti væru orðin mun auðveld-
ari, en gagnkvæmur skilningur
og virðing hefðu ekki aukist að
sama skapi.
„Stríð getur stundum verið ill
nauðsyn. En hve nauðsynlegt sem
það kann að vera, þá verður það
alltaf af hinu illa, aldrei af hinu
góða. Við lærum aldrei að lifa
saman í friði með því að drepa
börnin hvert fyrir öðru,“ sagði
hann. ■
Nóbelsverðlaunin voru afhent í gær:
Carter sagði stríð aldrei af hinu góða
Jólaverð 3.990 kr.
Tilboð
REYKJAVÍK Suðaustan 5-10
m/s og dálítil rigning með
köflum. Hiti 5 til 9 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 5-10 Rigning 8
Akureyri 3-8 Léttskýjað 4
Egilsstaðir 3-8 Léttskýjað 4
Vestmannaeyjar 8-13 Þokusúld 7
➜
➜
➜
➜
+
+
+
+
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49
ára samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
október 2002
29%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu á
miðviku-
dögum?
55%
81%
„Riðuveiki
hefur fundist
á þessu svæði
nær árlega
um langt
skeið. Ef eitt-
hvert svæði á
Íslandi er sýkt,
þá er það
þetta.“
AP
/B
JÖ
R
N
S
IG
U
R
D
SO
N
FUNDUR MIÐSTJÓRNAR
Sjálfstæðismenn funduðu um umdeilt
prófkjör í Norðvesturkjördæmi í gær.
Miðstjórn Sjálfstæðis-
flokksins:
Gat ekki
úrskurðað
STJÓRNMÁL Miðstjórn Sjálfstæðis-
flokksins tók kæruatriði vegna
prófkjörs flokksins í Norðvestur-
kjördæmi ekki til efnislegrar
meðferðar á fundi sínum í gær.
„Stofnanir flokksins hafa alls
staðar fjallað um þetta mál og
samþykkt samhljóða. Við þær að-
stæður hefur miðstjórnin ekki
lengur vald yfir málinu,“ sagði
Davíð Oddsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, þegar hann
kynnti niðurstöðu miðstjórnar.
Niðurstaðan er því sú að úrslit
prófkjörsins standa nema kjör-
dæmisráð flokksins í Norðvestur-
kjördæmi ákveði annað. Kjör-
dæmisráðið fjallar um framboðs-
lista flokksins í janúar.
Miðstjórn segir engan vafa á
að verulegur misbrestur hafi ver-
ið á framkvæmd utankjörfundar-
atkvæðagreiðslu en að hún geti
ekkert gert vegna lagaramma
flokksins. Þess vegna leggur mið-
stjórnin til lagabreytingar sem
gera meðal annars ráð fyrir að
frambjóðendur geti kært fram-
kvæmd prófkjöra og að hér eftir
geti aðeins flokksbundnir sjálf-
stæðismenn kosið í prófkjörum.
Að auki verður skerpt á reglum
um utankjörfundaratkvæði.
Vilhjálmur Egilsson segir að
málið sé allt saman áfram opið,
þar sem miðstjórnin hafi ekki tek-
ið neina efnislega afstöðu.
„Það verður bara að fara aðra
leið til að fá prófkjörið ógilt,“ seg-
ir Vilhjálmur. „Ég hafði frekar
reiknað með því að miðstjórnin
myndi taka beint á þessu máli
vegna þess að þetta er það mikil-
vægt pólitískt mál fyrir flokkinn
og lýðræðið í landinu.“
Aðspurður hvort hann ætli í
sérframboð ef prófkjörið muni
standa eftir sem áður sagði Vil-
hjálmur: „Ég ætla ekkert að hugsa
í neinum ef-um.“ ■